Þjóðviljinn - 30.08.1986, Blaðsíða 3
FRETTIR
Reykvísk endurtrygging
Securitas
Heimta rannsókn
15 starfsmenn Securitas vilja að Securitas og Vari verði rannsökuð.
Telja sér herfilega misboðið með opinberri viðurkenningu á starfsemi Vara
Við höfum óyggjandi vitneskju
um að þau atriði sem við nefn-
um i bréfínu til
dómsmálaráðherra eiga við rök
að styðjast. Við höfum ekkert á
móti því að fá samkeppni í fagið,
en hún verður að vera heiðarleg,
það er af og frá að við séum með
þessu að ganga erinda forstjóra
Securitas, enda förum við einnig
Heimspekistaða
Beðið um
Mikael
Doktor Hannes
Hólmsteinn dæmdur
óhœfur
Heimspekideildarmenn
greiddu í fyrradag á fundi sínum
atkvæði um umsækjendur um
lektorsstöðu í heimspeki. Mikael
Karlsson fékk flest atkvæði eða
27, Erlendur Jónsson 9 og Hannes
Hólmsteinn Gissurarson ekkert.
Dómnefnd sem skipuð var af
þremur doktorum, Halldóri
Guðjónssyni, Eyjólfi Kjalar Em-
ilssyni og Vilhjálmi Ámasyni
skilaði áliti þar sem dr. Mikael
Karlsson var dæmdur hæfastur,
dr. Erlendur Jónsson var einnig
dæmdur hæfur með þeim fyrir-
vara þó að dómnefnd hefði engin
gögn í höndum varðandi rann-
sóknir í siðfræði, sem var ein
þeirra greina sem kveðið var á
um í auglýsingu um stöðuna að
nýi lektorinn ætti að gegna. Dr.
Hannes Hólmsteinn var dæmdur
óhæfur til að gegna þessari til-
teknu stöðu, en tekið fram í áliti
að væri um að ræða stöðu í
stjórnmálaheimspeki dæmdist
Hannes hæfur.
Niðurstaða deildarfundarins
varð því sú að heimspekideild
biður um Mikael Karisson í lekt-
orsstöðuna, en þess má geta að
árið 1976 sótti Mikael um lekt-
orsstöðu í heimspeki, var dæmd-
ur hæfastur umsækjenda einsog
nú, fékk flest atkvæði á deildar-
fundi en hlaut þó ekki stöðuna.
Hana fékk Arnór Hannibalsson.
Nokkrar deilur urðu um niður-
stöðu dómnefndar og munu þeir
Erlendur og Hannes hafa gert at-
hugasemdir við það en Halldór
og Eyjólfur svarað. Hannes
Hólmsteinn sagði meðal annars í
viðtali við Þjóðviljann í gær:
„Þetta dómnefndarálit er rang-
látt og stenst ekki röklega. Ég hef
engar áhyggjur af mínum hlut, en
ég hef áhyggjur af þeim þre-
menningum sem sömdu dóm-
nefndarálitið. Ég er sammála
gríska heimspekingnum Platóni
um að það sé miklu verra að beita
aðra menn ranglæti en verða fyrir
því sjálfur. Að öðru leyti tek ég
þessu með heimspekilegri ró.“
• m
fram á rannsókn á því fyrirtæki,
sögðu Þorsteinn Briem og Krist-
ján H. Gunnarsson starfsmenn
Securitas í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Þeir afhentu Jóni Helgasyni
dómsmálaráðherra bréf í gær þar
sem farið er fram á að fjölmörg
atriði er snerta starfsemi öryggis-
þjónustunnar Vara verði
rannsökuð. Einnig er farið fram á
rannsókn á starfsemi Securitas.
Bréf þetta er undirritað af
fimmtán starfsmönnum Securit-
Vara var veitt opinber viður-
kenning á starfsemi sinni fyrir
skömmu og segja starfsmenn
Securitas sér hafa verið misboðið
herfilega sem stétt með þeirri
viðurkenningu. Öryggisgæsla er
fag og virðingu hennar verður að
gæta, segja starfsmennirnir, sem
telja að starfsemi Vara sé faginu
til vansæmdar.
Farið er fram á að rannsökuð
verði einkum átta atriði. í fyrsta
lagi hvort innbrot hafi verið fram-
ið í aðalstöðvar Vara í vetur og
hvort innbrotsaðilinn hefði getað
haft áhrif á móttöku neyðarboða
frá viðskiptavinum. í öðru lagi
hvort margdæmdur eiturlyfjasali
og neytandi sé eða hafi verið við
störf hjá fyrirtækinu og þannig
haft iyklavöld og aðgang að
bönkum, stofnunum, fyrirtækj-
um og einkaheimilum, sem mis-
nota má í eiturlyfjaheiminum.
Svona má lengi telja og ljóst er að
ef rétt reynist verður starfsemi
Vara að teljast í meira lagi vara-
söm.
-gg
TM kaupir
meirihluta
Tryggingamiðstöðin hf. hefur
keypt meirihluta, 51%, í Reyk-
vískri endurtryggingu hf. að því
er segir í frétt frá félögunum.
Markmiðið með sameining-
unni er sagt að „ná sameiginlega
til sem flestra greina vátrygginga
á markaðnum og jafnframt leita
nýrra“. Umsvif Reykvískrar
endurtryggingar hafa aukist
verulega uppá síðkastið og segir i
fréttatilkynningunni að það sem
af er ári hafi velta fyrirtækisins
aukist um 40%. Yfirtaka TM fór
þannig fram að bætt var við hluta-
féð sem svaraði hlut TM. Gísli
Örn Lárusson, fyrrum stjórnar-
formaður RE, er áfram forstjóri
og kvaðst í samtali við Þjóðvilj-
ann vera mjög ánægður með sam-
eininguna. - m
Albert Sigurðsson fornvörður sést hér gera við málaða marmaralíkið. Á nokkrum stöðum hefur verkið verið algjörlega útmáð og hefur Albert þá þurft að fylla uppí
eyðurnar. Rammarnir tveir sem Albert krýpur við og umlykjandi svæði þar sem hann mundar pensilinn, er t.d. aö öllu málað af honum. Ljósm. KGA
Vonarstrœti 12
Málað marmaralíki endurlífgað
T7 I • H /I H / *>t trt/in I I / I f
Verkið, sem var málað árið 1908þegar húsið var byggt var komið í algjöra niðurníðslu
ísafjörður
Flotinn stækkar
Sigrún ÍS 900 gerð út á
rœkju
ísfirðingum hefur bæst nýtt skip í
flota sinn, Sigrún ÍS, og er fyrir-
hugað að gera það út á rækju-
veiðar.
Talið er að breytingarnar muni
kosta 15-20 miljónir króna. -gg
álaða marmaralíkið sem
skreytir veggina að Vonar-
stræti 12, fyrrum hús Skúla og
Theodóru Thoroddsen og nú Al-
þingis, hefur fengið andlitslyft-
ingu síðustu mánuðina, en verkið
sem var málað árið 1908 þegar
húsið var byggt, var komið í al-
gjöra niðurníðslu.
Að sögn Alberts Sigurðssonar
fornvarðar sem unnið hefur að
viðgerðinni á verkinu, var það
gert af dönskum málara að nafni
Lauritzen sem var búsettur hér á
landi um skeið. Albert sagði að
viðgerðin væri vandasamt verk
og það erfiðasta væri að gera
eftirlíkingu af verki einhvers ann-
ars, en hlutar af verkinu hafa al-
gerlega verið útmáðir og hlutverk
Alberts er m.a. að fylla upp í þær
eyður. Aðspurður hvort slík mál-
uð marmaralíki væri víða að finna
sagði Albert að þau hafi verið
máluð í nokkrum húsum, en all-
flest þeirra væru nú með öllu
horfin.
Það er ánægjulegt að á tímum
vaxandi niðurrifsstefnu skuli
verðmæti sem þetta varðveitt í
stað þess að vera kastað á rusla-
hauga sögunnar eins og svo
mörgum menningarsögulegum
heimildum, en verkið og húsið
með verkinu í eru mikilvægar
menningarsögulegar heimildir.
Þess ber einnig að minnast að
þarna orti hún Theódóra þulurn-
ar sínar og þarna var prentsmiðja
gamla Þjóðviljans til staðar þar til
hann var lagður niður árið 1915.
-K.Ól.
Skeiðarársandur
Hleypur úr Grænalóni
Skeiðará vex jafnt og þétt
Skeiðará vex óðum þessa dag-
ana og leggur af henni jökul-
fýlu mikla, en vestan megin í
Skeiðarárjökli hófst einnig hlaup
í gærmorgun.
Að sögn Sigurjóns Rist vatna-
mælingamanns kemur hlaupið úr
Grænalóni í Núpsvötn og Súlu.
Hann sagðist búast við að það
myndi standa í tvo til þrjá daga og
líklega yrði það nokkuð öflugt.
Venjulega hleypur úr Grænalóni
árlega.
Sigurjón taldi mögulegt að
hringvegurinn fari í sundur við
vestustu brúna á Skeiðarársandi,
ímlr cpm SnrSiirlanrklínan
gæti verið í hættu, en þó væri ekki
hægt að fullyrða neitt um það.
Það dregur hægt að Skeiðar-
árhlaupi og ekki von á því fyrr en
eftir um hálfan mánuð. Áin er þó
orðin dökk mjög og leggur af
henni mikla fýlu eins og áður
sagði.
-gg
Laugardagur 30. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3