Þjóðviljinn - 30.08.1986, Blaðsíða 13
HEIMURINN
Sovésk
stúlka af ríku foreldri benti fyrir
nokkru vopnuðum ræningjum
að ræna heimili sitt ef þá vant-
aði peninga og hún fengi hluta
þýfisins. Astæðan fyrir þessu
athæfi stúlkunnar var að hana
vantaði fé til að fjármagna fíkn-
iefnakaup sín. Það er málgagn
kommúnistaflokksins i Azer-
bajan sem sagði frá þessu í
gær í síðustu grein sinni um
eiturlyfjavandamálið í Sovétr-
íkjunum. Blaðið gaf í skyn að
foreldrarnir hefðu látist í
átökum við ræningjana. Blaðið
sagði einnig frá því að nýlega
hefðu 13 menn verið dæmdir
fyrir að versla með eiturlyf. í
greininni segir að vörubílstjóri
einn hafi verið gripinn með
fullan bíl af hálfunnu ópíum.
Hann væri vanur að flytja tó-
mata milli staða en notaði ferð-
ina til baka í eiturlyfjaflutninga.
Blaðið taldi líklegt að upp væri
komin skipulögð mafía í So-
vétríkjunum sem hagnaðist á
eiturlyfjasölu.
Lech
Walesa var í gær tekinn til yfir-
heyrslu og vildu yfirvöld fá að
vita um möguleg tengsl hans
við neðanjarðarhreyfingu
Samstöðu í landinu. Þegar Wa-
lesa kom úr yfirheyrslunni not-
aði hann tækifærið og gaf út
yfirlýsingu til fréttamanna.
„Við krefjumst þess að allir
samviskufangar verði iátnir
lausir“, sagði hann. „Við krefj-
umst þess að þeir sem vinna
sjálfstætt í þágu landsins verði
ekki refsað með fangelsis-
vist.“ Walesa gaf þessa yfirlýs-
ingu sína í tilefni þess að sex
áreru nú liðin frá stofnun Sam-
stöðu sem nú er ólögleg. Wa-
lesa sagði við fréttamann Re-
uter í gær að hann hefði í yfir-
heyrslunni verið spurður um
tengsl sín við Zbigniew Bujak,
einn helsta leiðtoga neðanj-
arðarhreyfingar Samstöðu
sem var handtekinn í sumar
eftir að hafa verið eftirlýstur í
fjögur ár. Walesa sem var í gær
kallaður fyrir lögregluyfirvöld í
ellefta sinn, sagðist hafa neit-
að að svara öllum spurning-
um. Tveir aðrir andófsmenn,
Jacek Kuron og Zbigniew
Romaszewski voru einnig yfir-
heyrðir, í Varsjá. Walesa er
hins vegar búsettur í Gdansk.
Eldf jallasér-
fræðingar
frá Frakklandi og Ítalíu sögðu í
gær að mikil hætta væri á að
eiturgas leitaði aftur upp á yfir-
borð Nios vatns í Kamerún en
þar létust alit að 1700 manns í
síðustu viku þegar eldhrær-
ingar urðu á botni vatnsins.
Afleiðingarnar urðu þær að
eiturgas í svo miklu magni
leitaði upp á yfirborðið, að allt
sem hrærðist á stóru svæði
umhverfis vatnið lést nær
samstundis. Franski sér-
fræðingurinn Haroun Tazieff
var við vatnið í gær og sagði að
gas gæti leitað upp úr vatninu
hvenær sem væri. Sá ítalski,
Giorgio Marinelli, sagði að
vatnið væri svo heitt að hættan
á gasuppstreymi væri enn fyrir
hendi. Vatnið sem venjulega er
20 gráðu heitt, er nú 30 gráðu
heitt.
Varsjár-
bandalagið
tilkynnti í gær að það væri til-
búið að samþykkja eftirlit úr
lofti á herjum sínum og að-
gerðum þeirra. Þetta kom fram
á afvopnunarráðstefnunni í
Stokkhólmi í gær. Vestrænir
fulltrúar á ráðstefnunni sögðu
að þessi yfirlýsing gæti orðið
til að leggja drög að langþráðu
samkomuiagi á ráðstefnunni.
Henni lýkur 19. september
næstkomandi.
Bandaríkin
Nauðsynjar
Gaddafi fær hótanir
Yfirmaður herafla Nató, Bandaríkjamaðurinn Bernard Rogers, sagði
ígœr að Gaddafi Líbýuleiðtogi gœti átt von á árásfrá Bandaríkjunum
Washington - Yfirmaður her-
afla Nató, Bandaríkjamaðurinn
Bernarde Rogers, varaði
Gaddafi Líbýuleiðtoga við því
að Bandaríkin gætu notað B-
52 sprengjuflugvélar sínar til
að ráðast á Líbýu ef hann fyrir-
skipaði hermdarverkaárásir
gegn Bandaríkjamönnum.
„Við erum með B-52 flugvélar
í Bandan'kjunum", sagði Rogers.
Hann rædddi um Gaddafi sem
skíthæl, „Bastard“. „Hann
(Gaddafi) hlýtur að gera sér grein
fyrir því að hann getur átt von á
slíkri meðferð." Rogers sem var
einn þeirra sem tók þátt í að
skipuleggja sprengjuárásina á
Trípólí, höfuðborg Líbýu, í apnl
síðastliðnum, sagði að hann tal-
aði ekki fyrir munn Reagans
Bandaríkjaforseta en stakk upp á
því að Bandaríkin ættu að halda
áfram hernaðarlegum, efnahags-
legum og diplómatískum þrýst-
ingi á Líbýu.
„Hann verður að skilja...að ef
hann tengist meiri háttar
Bernard Rogers, yfirmaður herafla
Nató. Kallaði Gaddafi skíthæl og hót-
aði honum árás.
skemmdarverkum gegn Banda-
ríkjamönnum á ný og ef fingraför
hans finnast, getur hann átt von á
sömu refsingu og í apríl“, sagði
Rogers. Hann sagði að B-52 vél-
arnar gætu flogið yfir Atlantshaf-
ið og aftur til baka með elds-
neytisáfyllingu í lofti, því væri
þetta einn sá kostur sem Banda-
ríkin ættu völ á. Með þessu þyrftu
Bandaríkjamenn ekki að nota F-
111 sprengjuþotur sínar sem
staðsettar eru í Bretlandi eins og
gert var í apríl. Þá var deilt mjög
hart á Margaret Thatcher fyrir að
leyfa bandarískum vélum að
hefja sig til flugs til að varpa
sprengjum á Líbýu. Frakkar
leyfðu Bandaríkjamönnum ekki
að fljúga vélunum yfir Frakkland
heldur urðu þær að sveigja út á
Atlantshafið á leið sinni suður á
bóginn.
Rogers lét þessi orð falla í Was-
hington í gær um svipað leyti og
bandaríska flugmóðurskipið
Forrester ,var utan við landhelgi
Líbýu í Miðjarðarhafinu og
Vernon Walters, sendimaður
Bandaríkjaforseta var að fara til
Evrópu til að hvetja V-
Evrópuríki innan Nató til að efna
til efnahagslegra refsiaðgerða
gegn Líbýu.
V-Berlín
Flúðu vestur í vörabíl
Hjón með nokkurra mánaða gamalt barnflúðu í gœrmorgun íátta
tonna vörubíl sem hlaðinn var möl yfir landamærin
V-Berlín - Austur-þýsk hjón
með átta mánaða gamalt barn
sitt óku í gærmorgun á bíl í
gegnum hlið við Berlínarmúr-
inn, inn í V-Berlín, í skothríð
a-þýskra landamæravarða.
Þau óku í gegnum hliðin á stór-
um vörubíl sem hlaðinn var möl.
Ekki var fulljóst í gær hvers
vegna þau flúðu. Flóttinn gerðist
mjög hratt, einar tíu sekúndur
hafa liðið frá því bíllinn jók ferð-
ina í A-Berlín og þar til hann var
kominn yfir í V-Berlín.
fráA- til V-Berlínar
Við landamærin eru rammgerð
járnhlið og þegar aðvörunarhljóð
heyrðist um að hliðið væri að lok-
ast, herti bfllinn ferðina austan
megin og ruddi burtu öðru hlið-
inu, jók síðan ferðina þegar hann
kom að aðal markalínunni milli
A- og V-Berlínar. Lögreglumað-
ur þar sagðist hafa veifað bflstjór-
anum þegar hann nálgaðist, um
að stöðva bflinn „en hann hélt
bara áfram inn í borgina á fullri
ferð“, sagði hann.
Bfllinn var merktur bygg-
gingarfélagi ríkisins og var með
plóg framan á sér. Nokkrum
skotum var hleypt af en ekkert
þeirra virðist hafa hæft bílinn.
Bandaríkin, Bretland og
Frakkland sem hafa haft með
höndum öryggisgæslu vestan
megin landamæranna í borginni
frá stríðslokum, sendu í gær mót-
mælaorðsendingu til sovéska
sendiráðsins í A-Berlín og sök-
uðu yfirvöld um að beita ofbeldi
og bera litla virðingu fyrir manns-
lífum. Karlmaður reyndi á mið-
vikudaginn að flýja yfir til V-
Berlínar. Skotið var að honum og
náðist hann áður en hann komst
yfir landmærin.
Kaffið
hækkar
Lundúnum - Verð á kaffi hækk-
aði á alþjóðamörkuðum i gær
og kostar nú tonnið af kaffi
2.300 pund í Lundúnum.
Tonn af kaffi hefur hækkað um
600 pund á þremur vikum og
veldur þar helst að fregnir hafa
borist frá Brasilíu um að kaffi-
uppskera þessa árs þar í landi
verði 25% minni en á síðasta ári
vegna mikilla þurrka. Brasflía er
einmitt mesta kaffiframleiðslu-
land í heimi.
ERLENDAR
FRÉTTIR
INGÓLFUR fnr-.t-.rn
HJÖRLEIFSSON R E Ul E R
Noregur
Hvalbátar stöðva
Nató herskip
Osló - Um það bil 20 norskir
hvalveiðibátar lokuðu i gær
Vesturfirði við Lófóten í Noregi
fyrir bandaríska flugmóður-
skipinu Nimitz og öðrum
smærri herskipum Nató sem
ætluðu þangað til að taka þátt í
heræfingum Nató við strendur
Noregs næstu daga.
Hvalveiðmennirnir vildu með
þessum aðgerðum mótmæla því
sem þeir nefna þrýsting banda-
rískra yfirvalda á norsku ríkis-
stjórnina um að hún tilkynni að
Norðmenn muni hætta hval-
veiðum í ágóðaskyni frá og með
næstu áramótum.
Þegar síðast fréttist í gær var
Nimitz rétt utan við hvalbátana
en gerði ekki tilraun til að sigla í
gegnum hindrunina.
Kýr og kjarnorkuver í V-Þýskalandi. Bændur í V-Þýskalandi urðu fyrir miklum
skakkaföllum sem v-Þýsk yfirvöld hafa nú bætt að nokkru.
TsjernóbíllV-Þýskaland
Milljarður
í skaðabætur
Bonn - Innanríkisráðherra V-
Þýskalands, Friedrich Zim-
mermann tilkynnti í gær að
yfirvöld þar í landi hefðu greitt
5,3 miiljarða króna til bænda í
V-Þýskalandi í skaðabætur
vegna kjarnorkuslyssins í
Tsjernóbíl þar sem uppskera
þeirra hefði eyðilagst.
Zimmermann sagði að yfirvöld
hefðu greitt 300.000 bændum
skaðabætur, flestir þeirra eru
grænmetis- og kúabændur. Eftir
slysið í Tsjernóbfl í aprfl síð-
astliðnum var alls kyns grænmeti
tekið af markaði á ákveðnum
svæðum, svo sem spínat og hvít-
kál á meðan geislavirkni var yfir
leyfilegum mörkum.
A svifdreka á Everest
Þrír Bandaríkjamenn hyggjastfljúga á svifdrekum upp á efsta tind Everest fjalls í október
Peking - Tveir bandarískir svif-
drekaflugmenn hafa tilkynnt
að þeir ætli að renna sér á
skíðum niður efstu tinda Ever-
est fjalis í Himalajafjöllum og
svífa síðan í loft upp og lenda á
efsta tindi fjallsins.
Larry Tudor og Bob Carter
heita mennirnir, þeir sögðu
fréttamanni Reuter að þeir „von-
ist“ til að geta notað sér vinda í
hlíðum fjallsins til þess að komast
á tindinn sem er í 8,848 metra
hæð yfir sjávarmáli. Þeir sögðu
að flugið þyrfti ekki að taka nema
tíu mínútur ef vel gengi.
Tudor, 32 ára og Carter, 36
ára, komu til Peking fyrir stuttu á
leið sinni til móts við þriðja flug-
manninn og 26 manna leiðangur
sem tekur þátt í ævintýrinu. Þeir
hyggjast framkvæma flugið í okt-
óber stuttu áður en monsún vind-
ar taka að blása. „Við tökum
flugið í um það bil 7,300 metra
hæð“, sagði Tudor. „Það gæti
jafnvel farið svo við að þyrftum
ekki að renna okkur á skíðum til
þess að ná þeim 58 km hraða á
klukkustund sem er nauðsyn-
legur. Ef vindar blása hressilega
verður nóg að stökkva." Tudor
sagði að þriðji svifdrekaflugmað-
urinn, Steve Mckinney, hefði
fengið hugmyndina þegar hann
var í fjallgöngu og fylgdist með
gammi sem notaði uppstreymi til
að hækka flugið í fjallshlíðinni.
Laugardagur 30. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13