Þjóðviljinn - 30.08.1986, Qupperneq 16
HÖBMJMff JrHfffJWirirtUJIRA
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Laugardagur 30. ógúst 1986 195. tölublað 51. órgangur
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
SUF-könnunin
SUF-könnunin
Byggðastefna
AB-menn
harðastir
Tveir þriðju
Reykvíkinga hlynntir
jöfnum
búsetuskilyrðum
Yfírgnæfandi meirihluti að-
spurðra í skoðanakönnun félags-
vísindastofnunar HÍ og SUF fylg-
ir almennri byggðastefnu, og af
stuðningsmönnum flokkanna eru
Alþýðubandalagsmenn á-
kveðnastir byggðamenn.
í könnuninni er spurt hvort
stuðla eigi að sem jöfnustum bú-
setuskilyrðum um landið jafnvel
þótt við það ykjust þjóðarút-
gjöld. 70,9% eru alveg eða frekar
á þessu, 22,8% á móti.
í könnuninni er svarendum
skipt eftir flokksstuðningi, og
kemur í ljós að byggðastefna á sér
víðtækastan hljómgrunn meðal
stuðningsmanna Alþýðubanda-
lagsins. 87,5% þeirra svara ját-
andi, 86% Kvennalistamanna,
85% Framsóknarmanna, 70%
Alþýðuflokksmanna og 62,5%
BJ-ara. Byggðastefna á minnstu
fylgi að fagna meðal Sjálfstæðis-
manna, aðeins 59% þeirra svara
spumingunni með jái, en 35%
eru á móti. Rúmur fjórðungur
krata og BJ-manna segja nei, um
típrósent allaballa, frammara og
Kvennalistakj ósenda.
Tveir þriðju aðspurðra á
Reykjanesi og í Reykjavík fylgja
byggðastefnu einsog henni er lýst
í spurningunni, tæp 30 prósent á
móti. Annarsstaðar eru 82%
með, 14% á móti. - m
Hrafnagilsskóli
Ingvar
hættir
Ingvar Gíslason: Býð
migekkifram við
nœstu kosningar
Þing sambands ungra fram-
sóknarmanna fer sögulega af stað
einsog til var stofnað, en eins og
flestir hafa tekið eftir voru fyrir
þingið miklar heitingar í ungum
framsóknarmönnum um að
skipta um menn í þingflokki
Framsóknarflokksins.
Ingvar Gíslason þingmaður
Framsóknarflokksins steig í
pontu í Hrafnagilsskóla í gær og
lýsti því yfir að hann gæfí ekki
kost á sér í atþingiskosningum
næsta ár. Þar með hefur eitt þing-
sæti losnað en væntanlega mun
fleira gerast pólitískra tíðinda á
þinginu í Eyjafirði um helgina.
-pv
Við eigum 40 ára afmæli mánudaginn 1. september og ætlum að bjóða gestum og gangandi
að njóta með okkur veitinga og léttrar tónlistar í Samvinnutryggingahúsinu Ármúla 3, í tilefni
Veitingar verða einnig á boðstólum á stærstu
umboðsskrifstofum okkar úti á landi.
Sjáumstámánudaginn
SAMVINNU
TRYGGINGAR
Gegn sjúklingaskatti
Meirihluti á móti skólagjöldum
Iskoðanakönnun SUF og félags-
vísindastofnunar kemur fram
almenn andstaða gegn sjúklinga-
skatti. 69,2% leggjast gegn því að
sjúklingar greiði meira af
heilbrigðiskostnaði þótt því fylg-
du almennar skattalækkanir.
23,7% vilja sjúklingaskatt.
Innan flokksstuðningshópa er
andstaða við sjúklingaskatt mest
í Alþýðubandalagi, 82-16. Kratar
77-20, Kvennalisti 77-19, BJ: 75-
21, Framsókn 73-20. Stuðnings-
menn íhaldsins eru hallastir undir
sjúklingaskatt, 31% með, 59,5%
á móti.
í könnuninni er einnig spurt
um hvort foreldrar eigi að borga
skólagjöld fyrir börn sín og
skattar að lækka um leið. 56%
eru á móti, 37% með. Skóla-
gjaldamenn eru fæstir í BJ, 78-17,
og AB, 71-24. Kvennalisti 66-30,
Framsókn 62-29, kratar 62-33, en
stuðningsmenn skólagjalda með-
al Sjálfstæðismanna eru fleiri en
andstæðingar skólagjalda, 48%
vilja skólagjöld, 47% eru á móti.
Aldraðir þingmenn
Sjálfstæðisfólk vill síst unga þingmenn
Þingmenn eru of gamlir. í
skoðanakönnun SUF og fé-
lagsvísindastofnunar telja 60,6%
að þingmenn undir 35 ára séu nú
of fáir. 27,7% telja fjölda ungra
þingmanna hæfílegan, 2,8%
segja ungt fólk of margt á löggjaf-
arsamkundunni.
Stuðningsmenn ungs fólks á
þing eru flestir f stuðningshópi BJ
(75% segja of fáir), AB (75%) og
Kvennalista (72%). Þá koma
kratar (70%) og Framsóknar-
kjósendur (66%). Hlutfallslega
fæstir Sjálfstæðismenn styðja
ungt fólk til þingsetu, 60%, en
36% þeirra telja það hæfilega
margt. - m