Þjóðviljinn - 04.09.1986, Side 6
VIÐHORF
Bústaðakladdinn
Ólafur Skúlason skrifar
„Heldur Svavar Gestsson,
stjórnmálamaðurinn margreyndi, að prestar
ogforystumenn safnaðanna hér í
prófastsdæminufylgist t. d. ekki meðþví
hverjir greiða atkvœði gegn hœkkun á
framlögum í Kirkjubyggingarsjóð
borgarinnar? Og dettur honum virkilega íhug
að við vitum ekki hverjirsitja hjá við sömu
atkvœðagreiðslur? Við vœrum nú meiri
aumingjarnir ef við fylgdumst ekki með
slíku. “
Ekki er alltaf auðvelt að átta
sig á því, hvernig beri að skilja og
túlka ritaðan texta. Sú er list
leikara hvað mest, er þeim tekst
að gæða orð lífi. Sýna þeir okkur
líka, að það er mögulegt að láta
sömu setningarnar, óbreyttar
hvað orðalag áhrærir, segja
áheyranda sitt hvað. Þeir gæða
sumt glettni og höfða til hláturs,
hið sama fær við aðra túlkun og
leikstjórn alvöiu og jafnvel
hryggð.
Svo fór mér, þegar ég las grein
Svavars Gestssonar, alþingis-
manns, formanns Alþýðubanda-
lagsins og sjálfsagt sitt hvað
fleira, þó að ekki sé minnst á for-
ystu hans fyrir blaðinu Þjóðvilj-
anum. í fyrstu las ég texta hans og
brosti að. Hélt maðurinn væri að
gera að gamni sínu. Og jafnvel,
þegar hann sagði, að ekki væri af
stráksskap skrifað, trúði ég því
ekki. En síðan hef ég komist að
því, að það er talið, að hann hafi
verið grafalvarlegur og meint
þessi furðulegheit, sem hann lét
frá sér fara. Fór ég þá líka að rifja
það upp, þegar mér var sagt, að
ég ætti ekki að lesa texta alþingis-
mannsins sem grín, að ég hafði
aldrei séð hann brosa. Hann hef-
ur alltaf birst mér og öðrum í
sjónvarpinu grafalvarlegur,
jafnvel þungur á brún og svo sem
allar áhyggjur veraldar hvíldu
honum á herðum. Lét ég þá
sannfærast um að mér bæri ekki
að brosa að skrifum hans.
En áður en lengra er haldið, vil
ég biðja afsökunar á því, að hann
hefur orðið að bíða nokkuð eftir
því að fá að heyra um „kladdann"
minn. En því veldur, að ég er ný-
kominn heim og rakst ekki á
grein formannsins og alþingis-
mannsns fyrr en nokkuð fór að
grynnka í blaðabunkanum. Nú
og svo tók mig líka nokkurn tíma
að átta mig á því, hvort ég ætti að
vera að skrifa svar í blöðin, jú,
hann heimtar, að ég sendi þetta í
þau öll. Af því að í stað þess að
skrifa hefði mér verið skapi næst
að hringja frekar í þetta nýja
sóknarbarn mitt. Bjóða Svavar
velkominn í Bústaðasókn og fjöl-
skyldu hans og skýra fyrir hon-
um, hver munur er á því að fylgj-
ast með og gefa einkunnir til
færslu í kladda. Mig grunar jafn-
vel, að herra alþingismaðurinn
hafi lesið allt of mikið um hið
fræga Watergate-mál og segul-
bandsspólurnar hans Nixons
fyrrum forseta Bandaríkjanna og
því tileinkað sér tilburði blaða-og
þingmanna frá segulbandsspólu-
leit þeirra þá. Mér býður jafnvel í
grun, að hann hafi lært fleira frá
þeim tíma, þar sem okkur er tjáð,
að Nixon hafi sett fólk, sem hon-
um féll ekki við, á sérstakan hat-
urslista. En ég flýti mér að bæta
því við, til að forðast nýja gusu,
að ég á engan haturslista og yfir
mínum skjölum hvílir engin
önnur leynd en sú, sem presti ber
að sýna gagnvart trúnaði við
sóknarbörn. Og segulbandsspól-
ur eða tölvudiska fylli ég ekki
upplýsingum um fólk.
En hver er þá munurinn á því
að fylgjast með, eins og ég sagði í
grein minni, og gefa einkunnir til
færslu í kladda eins og Svavar
túlkar af skarpskyggni sinni?
Heldur Svavar Gestsson,
stjórnmálamaðurinn marg-
reyndi, að prestar og forystu-
menn safnaðanna hér í prófasts-
dæminu fylgist t.d. ekki með því,
hverjir greiða atkvæði gegn
hækkun á framlögum í Kirkju-
byggingarsjóð borgarinnar? Og
dettur honum virkilega í hug, að
við vitum ekki, hverjir sitja hjá
við sömu atkvæðagreiðslur? Við
værum nú meiri aumingjarnir, ef
við fylgdumst ekki með slíku. En
svo er ég nú ekki kalkaður ennþá,
að ég þurfi að skrifa þetta hjá
mér. Og heldur Svavar Gestsson,
að ég fylgist ekkert með því,
hverjir sækja hér kirkju og hverj-
ir sjást aldrei? Og ég þarf heldur
ekki að færa það til bókar og hef
heldur ekki hugsað mér að láta
það eitt ráða algjörlega um mat
mitt. En það hljótum við að
þekkja báðir, hvílíkur munur það
er að tala fyrir tómu húsi eða fullu
eða eitthvað þar í milli. Og mér
hefur virst eins og það sé upp-
sláttarvert, þegar fundir eru svo
fjölsóttir, að hvert sæti er skipað,
og prýða þá myndir útsíður
flokksblaðanna á eftir. Og Svav-
ar þarf ekki að segja mér það, að
bæði formaður Sjálfstæðisflokks-
ins og varaformaður eru sóknar-
börn mín. En hér er einnig annar
alþingismaður, formaður þing-
flokks Alþýðuflokksins, Eiður
Guðnason, og ég dreg enga dul á
það, hversu mikils ég met það, að
hann sækir reglulega kirkju sína.
En þó að prestur gleðjist yfir
góðri kirkjusókn en harmi lélega,
þá bjóðum við ekki til kirkju og
syngjum messur prestsins vegna,
heldur safnaðarins. Allir hafa
gott af þeirri kyrrð, sem kirkju-
göngu fylgir, og þó ekki síst þeir,
sem vandasömum annastörfum
gegna í þjóðfélaginu, sem margir
eiga mikið undir, að vel séu rækt.
Og kirkjuganga er ekki til þess
eins að hlusta á prestinn. Prestar
eru misjafnir og tekst misjafnlega
upp. En þeir boða líka sterkt,
sem sækja kirkju, og þeir eru líka
að boða og flytja boðskap sinn,
sem koma þangað sjaldan eða
aldrei. Báðir flokkar lýsa af-
stöðu, annar til stuðnings, hinn
ekki. Og það þarf víst enginn,
sem varðveitir heilbrigða dóm-
greind, að fara í grafgötur með,
hvort kirkjunnar fólk telur heppi-
legra og eðlilegra kristnu fólki.
Mér hefði aldrei dottið í hug að
vera boðið að ávarpa fund í Al-
þýðubandalaginu því til fram-
dráttar, þar sem ég hef aldrei gef-
ið til kynna, að ég styddi þann
flokk, hvað þá að ég sé flokks-
bundinn í honum (sem ég er nú
reyndar ekki í nokkrum flokki).
Hitt gæti aftur á móti hent, að
þeim yrði boðið að ávarpa
fundarmenn, þótt ekki væri fé-
lagi, sem hefði sýnt áhuga á mál-
um flokksins og sýnt stuðning á
einhvern máta. Ætli okkur prest-
um fari ekki nokkuð svipað. Og
þó var öllum borgarfulltrúum og
varaborgarfulltrúum boðið að
taka þátt í guðsþjónustum og
ganga fram fyrir söfnuð vegna tvö
hundruð ára afmælis borgarinn-
af. En þeir vildu það ekki allir, og
það hneykslar mig ekki, hvað þá
að þeir fari á einhvern svartan
lista hjá mér eða séu skráðir í
kladda.
Og þá skal ég nú loksins svara
sóknarbarninu mínu, eftir þenn-
an langa inngang: Ég held alls
engan kladda og get ekki skilið,
hvernig Svavar las það úr orðum
mínum, að ég gerði slíkt. Ég þarf
ekkert slíkt. Hitt þykir mér aftur
á móti vel við hæfi, að kirkjan fari
að gera eitthvað slíkt og fylgist
betur með umræðum á hinu háa
Alþingi og hvernig atkvæði falla
um þau mál, sem hún telur miklu
varða. Sé ég, að aðrir gera slíkt
og birta opinberlega, og las ég í
„Nýjum menntamálum" einn
slíkan, þar sem afrakstur
stjórnmálaflokkanna var tíund-
aður og einstakir þingmenn
metnir út frá áhuga þeirra á þeim
málum, sem þar voru krufin. Og
ég verð að hryggja Svavar Gests-
son með því, að hann komst þar
ekki á blað, þar sem þeir voru
skráðir, sem mestan áhuga höfðu
sýnt og hróssins voru því verðir.
En hvort þetta verður til þess að
hann tekur til við að beina geiri
sínum að kennurum á eftir að
koma í ljós. En þeir halda ein-
hvers konar kladda í líkingu við
það, sem Svavar finnur mér allt
til hnjóðs fyrir í ímyndun sinni.
En mikið gleður það mig, að
Svavar ætlar að virða svo búsetu í
sókn þeirri, sem ég þjóna, að
hann biður mig „auðmjúklega“
að birta sér upplýsingar um það
„til hvers hirðirinn ætlast af
sauðum sínum“, og þar sem ég
geri ekki ráð fyrir því, að flokks-
formaðurinn búist við línum frá
mér í efnahagsmálum eða öðru
slíku, heldur hugsi til kirkjumála,
þá skal ég benda honum á það, að
mikið mundi ég nú meta stuðning
hans við starfsmannafrumvarp
kirkjunnar, sem eins og hann vit-
anlega veit var lagt fram á síðasta
þingi. Og ég skal gleðja hann
með því um leið, að verði það
frumvarp samþykkt losnar hann
við að tína til alla þá titla, sem nú
er hægt að tengja nafni mínu og
hann var óþreytandi við í skrifi
sínu, þar sem hann, verði það
frumvarp samþykkt, fækkar
þeim titlum sjálfkrafa um einn.
Þá vil ég einnig benda honum á
annað mál, sem mjög er brýnt að
fá tekið fyrir í sölum Alþingis, en
það er afnám prestskosninga.
Það er smánarmeðferð á prestum
og söfnuðum, sem verður að
víkja frá hið bráðasta. Og mikið
væri ég feginn, ef þetta nýja sókn-
arbarn mitt og þau hin, sem fyrir
eru, og ráða málum á Alþingi,
sameinuðust um þetta. Þá þætti
mér nú stafa ljómi frá Bústaða-
sókn og alþingismönnunum
okkar þar.
Eins og fram hefur komið, er
ég nýkominn heim úr fríi, en fer
nú að messa aftur. En fjarvera
mín þessar sumarfrísvikur hefur
sjálfsagt valdið því, að ég hef ekki
getað boðið mitt nýja sóknarbarn
velkomið í kirkjunni okkar.
Vona ég að fljótlega verði bætt úr
því. Og sýni Svavar Gestsson
áhuga á söfnuði sínum og kirkju,
skal ég ekki meina honum þess að
stíga í stólinn í þeirri góðu kirkju,
sem ég þjóna.
Ólafur Skúlason er dómprófastur í
Reykjavík og prestur í Bústaða-
sókn. Eitt sóknarbarna hans þar
heitir Svavar Gestsson.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2
Innritun er hafin á námskeið vetrarins
Vefnaöur f. byrjendur................ 8. sept.
Tréskuröur .......................... 8. sept.
Prjónatækni ......................... 8. sept.
Myndvefnaður......................... 9. sept.
Baldýring.......................... 18. sept.
Fatasaumstækni...................... 1. okt.
Þjóðbúningasaumur.................... 3. okt.
Leðursmíði........................... 4. okt.
Vefnaðarfræði........................ 6. okt.
Tauþrykk............................. 7. okt.
Brugðin bönd ........................ 8. okt.
Vefnaður f. börn................... 11. okt.
Knipl.............................. 11. okt.
Tuskubrúðugerð..................... 13. okt.
Bótasaumur ........................ 13. okt.
Sokka- og vettlingaprjón............. 6. nóv.
Ath. Hjá Heimilisiðnaðarskólanum er hámarks-
fjöldi nemenda á námskeiði 6-10 og vel menntaðir
kennarar í öllum greinum. Nemendur fá námið
viðurkennt víða í öðrum skólum sem þátt á list- og
verkmenntabrautum.
Innritun að Laufásvegi 2, II hæð. Kennslugjald
greiðist við innritun. Greiðslukortaviðskipti. Upp-
lýsingar í síma 17800.
Kennarar
Kennara vantar að Alþýðuskólanum á
Eiðum. Upplýsingar í síma 97-3820 eða 97-
3821.
Skólastjóri.
Skrifstofustarf
Staða skrifstofumanns við embætti ríkislögreglu-
manns er laus til umsóknar. í starfinu felast al -
hliða skrifstofustörf, auk skjalavörslu, afgreiðsla
reikninga o.fl.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldurs,
menntun og fyrri störf, óskast sendar til ríkislög-
manns, Sölvhólsgötu 7, Reykjavík, fyrir 10. sept.
n.k.
ALÞÝÐUBANDALAGtÐ
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráðsfundur mánudag 8. september kl. 20.30.
Fundarefni: Dagskrá bæjarstórnarfundur þriðjudagsins 9.
september, og önnur mál.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 4. september 1986