Þjóðviljinn - 04.09.1986, Síða 7
MANNLIF
Frá sekkjun fóöurblöndunnar. Guðmundur Einarsson er hér viö að smeygja pokum á sekkjun-
arvélina sem síðan sér um að fylla þá og loka fyrir...
...pokinn dettur síðan á færiband og við enda þess er Ingólfur Valur Ingólfsson sem staflar
pokunum upp fyrir lyftarann.
Tœkjalíf
Og hér er Valdimar Tracey sem vinnur á lyftaranum.
Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri I einum tækjasal verksmiðjunnar.
Verksmiðjustjórinn, Olafur Benediktsson, fylgist með allri starfsemi verksmiðj-
unnar af tölvuskjánum þeim arna.
Kornblandan heimsótt
Kornblandan er fyrirtæki
með aðsetur við Sundahöfn og
þangað lögðum við Ijósmynd-
ari blaðsins leið okkar einn
rigningardag í vikunni til að
afia efnis í mannlífssíðu blaðs-
ins í þeirri trú að þar væri gnótt
líflegs myndefnis. Á skrifstofu
fyrirtækisins hittum við fyrir
Arna Gunnarsson fram-
kvæmdastjóra og byrjuðum
við á að rekja úr honum garn-
irnar varðandi fyrirtækið.
„Fóðurblandan var stofnuð
1961 og hafði lengi aðsetur á
Grandavegi og þá var hún í eigu
Lýsis hf. 1984 flutti verksmiðjan
síðan hingað en hér eru þrír fóð-
urframleiðendur í þyrpingu, Fóð-
urblöndunarstöð MR og Sam-
bandsins auk okkar.
Verksvið okkar er að fram-
leiða kjarnfóður til landbúnaðar
og útvegum við til þess bæði er-
lent og innlent hráefni, og er
hlutur innlends um fjórðungur.
Við rekum ásamt MR kornhlöð-
una, en þangað er dælt öllu hrá-
efni úr skipum og síðan unnið úr
því alls kyns fóðurblöndur."
-Hvaða hráefni er aðallega
nýtt?
„Það er til dæmis fiskimjöl frá
fiskmjölsverksmiðj um,
grasmjöl, þangmjöl og bruggklíð
sem við fáum frá ölgerðum. Það
erlenda er mest bygg og soja-
mjöl. Úr þessu vinnum við marg-
ar gerðir fóðurblanda, s.s. fyrir
nautgripi, sauðfé, hesta, svín,
kjúklinga og jafnvel kanínur og
laxa. Það nýjasta hjá okkur er
framleiðsla laxafóðurs og er það
unnið með leyfi erlendra fram-
leiðenda. Samdráttur hefur verið
í framleiðslu nautgripafóðurs en
aukning í framleiðslu til svína- og
kjúklingabænda. Og nú er e.t.v.
að skapast markaður í fóður-
framleiðslu fyrir kanínur. Við
erum einnig komnir með þær nýj-
ungar að bjóða upp á fóður sem
blandað er lýsi og fitu sem þýðir
að fóðrið verður orkumeira. Við
höfum sent út tilraunafóður til
bænda sem hafa prófað það og
viðtökur, bæði manna og skepna
hafa verið mjög góðar“.
-Hve margir starfsmenn eru í
vinnu hjá verksmiðjunni?
„Hér vinna alls 12 - 13 starfs-
menn. Verksmiðjan fór af stað í
aprfl en hún er mikið til sjálfvirk.
í raun vinna við hana 4 menn,
einn verksmiðjustjóri sem stjórn-
ar verksmiðjunni af tölvuskjá og
þrír sem vinna við afgreiðslu og
pökkun, aðrir vinna við bókhald
og annað slíkt. Ég held að óhætt
sé að segja að þetta sé sjálfvirk-
asta verksmiðja í Evrópu".
Nú renna tvær grímur á okkur
ljósmyndarann, því hugmyndin
hafði verið að taka líflegar mynd-
ir á mannlífssíðuna okkar. Allir
eru jú að tala um að Þjóðviijinn
sé að verða líflegt blað. Eftir að
hafa farið undir leiðsögn fram-
kvæmdastjórans um verksmiðj-
una erum við komin á þá skoðun
að mannlífssíðan að sinni verði
með fyrirsögninni tækjalíf.
-GH
Sjá Ifvi rkasta
verksmiðja
Ewópu
Flmmtudagur 4. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7