Þjóðviljinn - 04.09.1986, Page 13
HEIMURINN
Refsiaðgerðir gegn Líbýu
áhugi í Evrópu
Ritskoðun
hefur aftur verið tekin upp í S-
Afríku eftir að henni hafði verið
aflétt í viku. Aftur hefur verið
tekin upp sú reglugerð sem
fylgdi neyðarástandslögun-
um, að fréttamönnum er bann-
að flytja fregnir af óeirðum í
landinu aðrar en þær sem Upp-
lýsingaskrifstofa stjórnvalda
hefur látið þeim i té. Fyrir
tveimur vikum síðan viður-
kenndu stjórnvöld í S-Afríku
að reglugerð neyðarástands-
laganna um ritskoðun væri óg-
ild þar sem hún hefði ekki ver-
ið tilkynnt á lagalegan hátt.
Öllum fréttamönnum er nú
bannað að koma nálægt
óeirðasvæðum.
Nató ráðamenn hafa nú
miklar áhyggjur út af afstöðu
stjórnarandstöðuflokka i ýms-
um löndum Atlantshafsband-
alagsins, eftir því sem David
Owen, leiðtogi sósíaldemó-
krata í Bretlandi sagði í gær.
Owen hafði þetta eftir David
Steel, formanni Frjálslynda
flokksins i Bretlandi. Steel hitti
Bandaríkjamanninn Bernard
Rogers, yfirmann herafla Nató
í Evrópu á dögunum. í tæplega
fjögurra tíma spjalli þeirra í
millum mun Rogers hafa orðið
tiðrætt um þær róttæku
breytingar sem gætu orðið í
varnarmálum í Evrópu ef þess-
ir stjórnarandstöðuflokkar
kæmust til valda eftir næstu
þingkosningar. Rogers mun
hafa nefnt sérstaklega jafnað-
armenn í Vestur-Þýskalandi og
Verkamannaflokkinn í Bret-
landi.
Friðarsöngur
sem ríkisstjórn S-Afríku hefur
lagt í mikinn kostnað við að
koma á framfæri til að koma á
sáttum milli kynþátta landsins,
hefur mætt mikilli andúð hjá
hvítum jafnt sem svörtum ibú-
um landsins. Fólk segir söng-
inn vera tilfinningasnauðan og
grófan. Söngur þessi nefnist
„Saman byggjum við bjarta
framtíð". Svartur yfirmaður á
auglýsingastofu sagði um
sönginn að hann væri svo
„grófur og tilfinningalaus að
það tekur engu tali“. Þessi
sami maður sagði einnig: „Við
erum í miðri borgarastyrjöld
og stjórnin í Pretoríu telur sig
geta komist úr klípunni með
friðarsöng frekar en að reyna
að nálgast raunir svartra íbúa
landsins." Hvítir stjórnarand-
stöðuþingmenn hafa gagnrýnt
þetta framtak minnihluta-
stjórnarinnar harðlega.
Platsprengja,
tiu kíló að þyngd, lenti í gær í
húsagarði í litlu þorpi í V-
Þýskalandi í gær. Ástæðan
fyrir þessu mun vera sú að
Phantom F-4 G orrustuþota frá
Bandaríkjaher var í æfinga-
flugi og átti sprengjan að lenda
á æfingasvæði Atlantshafs-
bandalagsins stutt frá þorp-
inu. Fulltrúi Nató sem skýrði
frá þessu reyndi að gera lítið úr
þessu með því að segja að
sprengjan hefði „bara dottið í
mjúkan jarðveg, enginn
meiddist.“
íranskt
herskip skaut varnaðar-
skotum að sovésku flutninga-
skipi í Persaflóanum í gær, til
merkis um að það skyldi
stöðva svo mögulegt væri að
rannsaka farminn. íranir munu
hafa stöðvað ein 10 skip á
flóanum í fyrradag, til að rann-
saka hvort þau væru með
varning á leið til Irak. Þeir hafa
aukið mjög þessar skoðanir
eftir að átök hörðnuðu í síð-
ustu viku í Persaflóastríðinu.
Haag - Vernon Walters, sér-
stakur erindreki Bandaríkj-
anna, sem nú er t Evrópu til að
hvetja Natóþjóðir til að efna til
refsiaðgerða, neitaði því að
evrópskir ráðamenn sem hann
hafði rætt við um þetta mál,
væru nokkuð „pirraðir" vegna
hugmynda um refsiaðgerðir.
Beirut - Stríðsþreyttir íbúar
Beirut borgar í Líbanon fögn-
uðu í gær nýjum samningum
um vopnahlé en varað var við
því í gær að marga erfiðleika
þyrfti enn að yfirstíga þar til
mega ætti von á varanlegum
friði í landinu.
Kristnir og múslímskir með-
limir í ríkisstjórn landsins lýstu í
fyrradag yfir vopnahléi í landinu
og tilkynntu um leið að stjórnin
hefði ákveðið að vinna að gerð og
samþykkt sáttmála sem ætlað er
að kveða niður ofbeldi milli trú-
flokka. Nú hafa um það bil 200
vopnahléssamningar verið undir-
ritaðir frá því borgarstyrjöldin
hófst, í apríl 1975. Talið er að um
það bil 100.000 manns hafi látist í
þeim átökum.
í V-Beirút var haft eftir hátt-
settum mönnum í hreyfingum
múhameðastrúarmanna að sá
friður sem ríkt hefði í borginni
þær 24 klukkustundir frá því
Vernon ræddi við hollenska
ráðamenn í gær um refsiaðgerðir
gegn Líbýu. Walters hefur einnig
rætt við Mitterrand Frakklands-
forseta um þetta mál. Walters
sagðist hafa rætt um hryðjuverk
og stefnuna gagnvart Líbýu við
evrópska ráðamenn og hefðu þær
viðræður verið gagnlegar og
ríkisstjórnin kom saman, væri
mjög viðkvæmur þar til alvarleg
pólitísk ágreiningsefni hefðu ver-
ið leyst. Þau snúast fyrst og
fræðandi.
Rætt hefur verið um það í blöð-
um í Evrópu að undanförnu, að
ráðamenn væru lítið hrifnir af á-
kafa Bandaríkjamanna í að beita
Líbyumenn refsiaðgerðum nú.
Walters sagði við fréttamenn í
gær að hann hefði ekki orðið var
við að evrópskir ráðamenn væru
fremst um aukna aðild múham-
eðstrúarmanna að stjórnun
landsins sem kristnir Maronítar
hafa séð um. Kristnir menn eru
argir út af þessu máli. „Ef þeir
eru það, eiga þeir að nefna það,“
sagði Walters í gær. Eitt dæmið
um að evrópskir ráðamenn séu
ekki sérstaklega hrifnir af hörð-
um refsiaðgerðum gegn Libýu
nú, er að hollenskir embættis-
menn sögðu í gær að Holland
fylgi ekki slíkum aðgerðum nú.
hins vegar hræddir um að þá
aukist um leið völd Sýrlendinga í
landinu en þeir hafa verið mjög
áberandi í Líbanon.
Kjarnorkuver
Lokun æskileg
Bonn - Niðurstöður í tveimur
rannsóknum, sem ríkisstjórn
V-Þýskalands fyrirskipaði um
þá spurningu hvort fýsilegt sé
að hætta við notkun kjarnorku
til öflunar rafmagns í landinu,
hafa nú komið ráðamönnum í
bobba.
Niðurstöðurnar eru nefnilega á
þá leið að ef kjarnorkuverum
yrði lokað á nokkurum árum,
myndi það ekki hafa neikvæð
áhrif á efnahag landsins. Líklegt
þykir að þessar niðurstöður muni
koma sér mjög illa fyrir ríkis-
stjórnina fyrir komandi þing-
kosningar, en veita um leið
Græningjum og jafnaðar-
mönnum prýðilegt fóður fyrir
kosningabaráttuna. Bæði samtök
hafa einmitt lýst því yfir að þetta
mál verði allt að því forgangsat-
riði í komandi kosningum.
Það var umhverfismálaráðu-
neyti landsins, sem fól tveimur
stofnunum, RWI í Essen (Ein
helsta rannsóknarstofnunin í V-
Þýskalandi um efnahagsmál), og
OEKO stofnuninni, sem ein-
beitir sér að umhverfismálum, að
framkvæma rannsóknina. Þær
voru óháðar hvorri annari. Stofn-
anirnar voru hins vegar ekki sam-
mála í niðurstöðum sínum um
vistfræðilega áhrif þess að hverfa
frá notkun kjamorku og að loka
verunum strax en voru hins vegar
sammála um að það myndi ekki
leiða af sér neikvæð efnahgasleg
áhrif að loka kjarnorkuverum
landsins á nokkrum árum. Sú var
einmitt ein helsta röksemd ríkis-
stjórnarinnar fyrir að loka ekki
kjarnorkuverum á næstu árum.
Amnesty
Blóðrauð skýrsla um Chile
Námsmenn fóru í tveggja daga verkfall í vor tll að mótmæla herforingjastjórn-
inni, þá var þessi mynd tekin. Öryggislögreglan gekk þá mjög hart fram gegn
þeim og öðrum sem mótmæltu á þessum tíma þúsundir manna hurfu spor-
laust.
Lundúnum, Santiago- Öryggis-
sveitir herforingjastjórnarinn-
ar í Chile hafa þróað með sér
nýjar aðferðir ógna, m.a. með
því að nota leynilegar sveitir til
að fremja mannrán, pynta og
myrða. Svo segir í nýlegri
skýrslu Amnesty Internatiónal
sem birt var í gær og fjallar um
mannréttindamál í Chile.
Mótmæli almennings hafa
aukist mikið að undanförnu gegn
stefnu herforingjastjórnarinnar í
landinu og hinar leynilegu sveitir
hafa aukið mjög aðgerðir sínar
frá því 1983, þar áður höfðu þess-
ar sveitir, sem hvergi fyrirfinnast
í opinberum gögnum, haft sig
fremur lítið í frammi. í fréttatil-
kynningu Amnesty segir að nú
framkvæmi þessar leynisveitir of-
beldisverk sín á götum úti um
miðjan dag. f skýrslu Amnesty
um Chile segir ennfremur að
samtímis haldi öryggissveitir
áfram handtökum og pyntingum
á þeim sem grunaðir eru um and-
stöðu við herforingjastjórnina.
Aðgerðir öryggissveitanna hafa
aukist að mun, líkt og leynilegu
sveitanna, síðan 1983. Fjölda-
handtökur eru einnig mun al-
gengari en fyrr, tilkynnir Amn-
esty.
I þessari 22 bls. skýrslu Amn-
esty segir að þrátt fyrir afneitanir
herforingjastjórnarinnar séu
nægar sannanir fyrir því að innan
hinna leynilegu sveita séu félagar
öryggissveitanna í samstarfi við
óbreytta borgara. Slíkar sannanir
er m.a. að finna í niðurstöðum
rannsókna dómsvalda, en slíkar
rannsóknir munu hins vegar vera
mjög sjaldgæfar. Samkvæmt
herlögunum frá því í valdaráni
hersins 73, eru pólitískir flokkar
bannaðir. Fréttamenn, stjórn-
mála- og félagsmálaleiðtogar og
starfsmenn verkalýðsfélaga hafa
verið beittir þvingunum og hand-
teknir fyrir að gagnrýna
stjóinvöld eða fyrir að skipu-
leggja friðsamleg mótmæli.
Þessa dagana eru allir flokkar í
landinu, jafnt frá vinstri- til mið-
flokka, að undirbúa mótmæla-
herferð gegn stefnu stjórnvalda.
Upphafið er í dag. Stuðnings-
menn flokkanna hafa verið hvatt-
ir til að taka þátt í að efna til
„Lýðræðisdags" stöðvunar til að
heiðra daginn í dag, hinn hefð-
bundna dag forsetakosninga í
landinu. Með deginum í dag hefj-
ast síðan vikulöng mótmæli gegn
herforingjastjórninni. Búist er
við að öryggissveitirnar muni
svara þeim með harkalegum að-
gerðum. Hinn stöðugi ótti al-
mennings við öryggis- og leyni-
sveitirnar er einmitt það sem
stjórnarandstæðingar óttast að
muni letja mikinn fjölda fólks frá
að taka þátt í mótmælunum.
Fólki er enn í fersku minni hand-
taka 15.000 manna í máli síð-
astliðnum þegar stjórnarand-
stæðingar efndu til mótmæla.
Herforingjastjórnin hefur hins
vegar að undanförnu auglýst af
miklum krafti sérstaka útihátíð í
miðborg Chile þann 9. september
til að minnast valdatöku hersins
fyrir 13 árum. Stjórnarandstæð-
ingar fá hins vegar ekki að vekja
athygli á mótmælaaðgerðum sín-
um í fjölmiðlum.
Beirut
Viðkvæmu vopnahléi fagnað
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13