Þjóðviljinn - 04.09.1986, Page 15
ÍÞRÓTTIR
Kvennaknattspyrna
Sjö mörk
Blikanna
Breiðablik vann auðveldan
sigur á botnliði Hauka, 7-0, í 1.
deild kvenna á Hvaleyrarholts-
vellinum í Hafnarfirði í gær-
kvöldi.
Staðan var 5-0 í hálfleik og
Breiðablik, án margra sinna
bestu leikmanna, hafði mikla
yfirburði. Magnea Magnúsdóttir
skoraði 3 mörk, Ásta María
Reynisdóttir 2, Svava Tryggva-
dóttir 1 og Lára Ásbergsdóttir 1.
-MHM
England
Fyrsta tap Liverpool
fra því í febrúar
QPR að hlið Wimbledon á toppnum. Man. Utd eittneðst
Kenny Dalglish skoraði fyrir Liverpool
en þaö dugði ekki til.
Liverpool tapaði í gærkvöldi
sínum fyrsta leik í ensku deilda-
keppninni í knattspyrnu síðan í
febrúar. Það var lið Leicester,
sem hefur haft ótrúlegt tak á Li-
verpool undanfarin ár, sem sig-
raði 2-1 á Filbert Street í Leicest-
er. Gary McAllister og Russell
Osman komu Leicester í 2-0 en
Kenny Dalglish skipti sjálfum sér
inná sem varamanni hjá Liverpo-
ol og náði að skora mark fimm
mínútum fyrir leikslok.
Urslit í ensku knattspyrnunni í
gærkvöldi urðu þessi:
1. deild:
Aston Villa-Luton.................2-1
Leicester-Liverpool...............2-1
Manch.City-Norwich.................2-2
Newcastle-Q.P.R....................0-2
2. deild:
BradfordCity-Cr.Palace.............1-2
Brighton-Birmingham................2-0
Deiidabikarinn -1. umferð, seinni leikir,
heildarúrslit í svigum
Chester-Derby County..........1-2 (2-2)
(Derby áfram á útimörkum)
Fulham-Aldershot............2-0 (5-1)
Northampton-Gillingham......2-2 (2-3)
Peterborough-Colchester.....2-0 (2-0)
PortVale-NottsCounty..............4-1 (7-2)
Reading-Bristol Rovers......4-0 (6-1)
-VS/Reuter
Landsliðshópurinn
Sigi Held: 15 duga.
„Þessir 15 leikmenn eru sterk-
asti landsliðshópur sem ég get
teflt fram og enginn einn til við-
bótar á sérstaklega heima í hon-
um. Ég þarf ekki sextánda mann
ef þessir sleppa allir við meiðsli
um næstu helgi,“ sagði Sigfried
Held, landsliðsþjálfari íslands í
knattspyrnu, eftir að landsliðs-
hópurinn fyrir leikinn gegn
Frökkum á Laugardalsvellinum
Atli Eövaldsson - fyrirliöi í
fyrsta sinn.
Heid valdi aðeins
fimmtán leikmenn
Viðar kemur inn efÁgúst Már getur ekki leikið. Atlifyrirliði í sínum 40.
Held útskýrðifjarveru Guðmundar Torfa og Porsteins
Gu&mundur Torfason —
kemst ekki að.
leik.
næsta miðvikudag var tilkynntur
í gær.
Hinsvegar má segja að Viðar
Þorkelsson úr Fram sé sextándi
maðurinn í hópnum. Ef Ágúst
Már Jónsson verður ekki heill
eftir næstu helgi kemur Viðar í
hópinn í staðinn.
Tvö atriði til viðbótar í vali
Helds koma nokkuð á óvart.
Stefán Jóhannsson markvörður
úr KR er valinn en flestir áttu von
á að Þorsteinn Bjarnason frá
Keflavík yrði í hópnum. Þá er
langmarkahæsti leikmaður 1.
deildar, Guðmundur Torfason,
ekki í náðinni. Held útskýrði
báðar þessar ákvarðanir sínar:
„Ég valdi Stefán þar sem hann
er ungur og býr yfir miklum hæfi-
leikum og getur bætt mun meiru
við sig en Þorsteinn. Þarna er ég
að hugsa til framtíðarinnar. Með
Guðmund Torfason vil ég benda
á að í hópnum eru sóknarmenn-
irnir Pétur Pétursson, Arnór
Guðjohnsen og Ragnar Mar-
geirsson. Ég tel ekki að Guð-
mundur geti ýtt neinum þessara
út en ég hef fylgst vel með honum
og veit að hann er góður leikmað-
ur,“ sagði Held.
Landsliðshópurinn er þannig
skipaður, landsleikjafjöldi fylgir:
Markverðir:
Bjarni Sigurðsson, Brann...........12
Stefán Jóhannsson, KR...............2
Aðrir leikmenn:
Ágúst Már Jónsson, KR...............5
ArnórGuðjohnsen, Anderlecht........20
ÁsgeirSigurvinsson, Stuttgart......35
Atli Eðvaldsson, Uerdingen.........39
Guömundur Þorbjörnsson, Baden....37
Guðni Bergsson, Val...............8
GunnarGíslason, KR................22
ÓlafurÞórðarson, (A................7
ÓmarTorfason, Luzern.............21
PéturPétursson, (A................28
RagnarMargeirsson, Waterschei....20
Sigurður Jónsson, Sheff.Wed........7
Sævar Jónsson, Brann..............29
Atli Eðvaldsson verður fyrir-
liði íslands í fyrsta skipti en hann
leikur einmitt sinn 40. landsleik á
miðvikudaginn.
Sigurður Grétarsson, Pétur
Ormslev, Lárus Guðmundsson
og Janus Guðlaugsson eru allir
útúr myndinni vegna meiðsla.
Það er ekki ólíklegt að Sigi
Held stilli upp eftirfarandi byrj-
unarliði: Markvörður, Bjarni
Sigurðsson. Varnarmenn, Gunn-
ar Gíslason, Sævar Jónsson og
Ágúst Már Jónsson. Tengiliðir,
Sigurður Jónsson, Ómar Torfá-
son, Atli Eðvaldsson, Ásgeir Sig-
urvinsson og Guðmundur Þor-
björnsson. Framherjar, Pétur
Pétursson og Arnór Guðjohn-
sen. Tveir tengiliðanna leika
sem nokkurs konar bakverðir,
samkvæmt þýskri fyrirmynd, og
þeir Sigurður, Ómar, Atli og
Guðmundur koma allir til greina
í þær stöður. _VS
Stefán Jóhannsson - býr
yfir hæfileikum, segir Held.
4. deild
Hlutkestið réði!
Sindri í úrslitgegn Aftureldingu
Það verður Sindri frá Horna-
firði sem leikur til úrslita um
meistaratitil 4. deildarinnar ' í
knattspyrnu næsta laugardag,
gegn Aftureldingu úr Mosfells-
sveit. Mótanefnd KSÍ þurfti að
kasta upp um hvort Sindri eða
HSÞ.b ættu að leika þar sem liðin
urðu jöfn að stigum og markatölu
í úrslitakeppninni. Bæði leika í 3.
deild að ári og bæði samþykktu
að kastað yrði upp til að losna við
ferðakostnað af aukaleik. Urslit-
aleikurinn fer fram á Valbjarnar-
velli í Laugardal á laugardaginn
og hefst kl. 17.
V. Pýskaland
Jafnt í
Stuttgart
Stuttgart varð að láta sér
nægja jafntefli, 1-1, gegn ný-
liðunum Blau Weiss Berlin í
Bundesligunni í knattspyrnu í
gærkvöldi. Bayern Munchen
vann Nurnberg 1-0 á útivelli
og Kaiserslautern sigraði Boc-
hum 4-1. Eftir 4 umferðir eru
Leverkusen, Hamburger og
Bayern með 7 stig á toppnum.
Uerdingen er í 7. sæti með 5
stig og Stuttgart í 9. sæti með 4
stig. -VS/Reuter
Pétursmálið
Staðfesting
Pétur löglegur samkvœmt dómstóli KSÍ
Dómstóll KSÍ staðfesti í fyrra-
kvöld úrskurð héraðsdómstóls
ÍBH þess efnis að Pétur Pétursson
væri löglegur leikmaður með ÍA.
Það var áfrýjun FH-inga til dóm-
stóls KSÍ sem var tekin fyrir.
Samskonar kærur eru á
leiðinni frá Val, Þór og Breiða-
bliki og ljóst er að þær fá sömu
niðurstöðu hjá dómstól KSÍ,
verði þær ekki dregnar til baka.
Hinsvegar eiga félögin eftir
þann möguleika að kæra til dóm-
stóls ÍSÍ senr er æðsta dómstig
íþróttahreyfingarinnar hér á
landi.
Forkeppni OL
Fjórir næsta ár
Leikdagar hafa verið ákveðnir
hjá íslenska landsliðinu í knatt-
spyrnu fyrir forkeppni Ólympíu-
leikanna í Seoul árið 1988.
ísland leikur fjóra leiki á næsta
ári, gegn Itölum ytra 15. apríl,
Hollendingum heima 26. maí,
Austur-Þjóðverjum heima 2.
september og Portúgölum ytra 7.
október. Sfðan verður seinni um-
ferð riðilsins leikin í apríl og maí
1988.
Gjaldgengir eru þeir leikmenn
sem ekki hafa leikið í
heimsmeistarakeppni þannig að
allir atvinnumenn íslands og
nokkrir sem leika hér heima eru
úr leik. -VS
Akureyri
Framarar
sigruðu
Framarar sigruðu Víkinga
2-1 í úrslitaleik í 3. flokksmóti
pilta í knattspyrnu sem fram
fór á Akureyri um síðustu
helgi. Mótið fór fram á vegum
unglinganefndar KSÍ og átta
lið tóku þátt.
-K&H/Akureyri
-VS
Kvennahandbolti
Hollandsferð
A-landslið og unglingalandslið
kvenna í handknattleik fara á
morgun, föstudag, til Hollands til
æfinga og keppni. Dvalið verður
þar í viku og alls leiknir 8 leikir
auk þess sem liðin æfa stíft.
A-landsliðið býr sig undir C-
keppni heimsmeistaramótsins
sem hefst í Valencia á Spáni í lok
október og stendur fram í nóvem-
ber. Unglingalandsliðið tekur
þátt í Norðurlandamótinu sem
fram fer í Danmörku í október.
Þjálfari liðanna er Hilmar
Björnsson.
-VS
Fimmtudagur 4. september 1986 pjÓÐVILJINN - SÍÐA 15