Þjóðviljinn - 04.09.1986, Blaðsíða 16
MÖOVIUINN
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Einar Kárason, Stefán Baldursson og Kjartan Ragnarsson fyrir framan nýjasta leikhús borgarbúa. (Mynd E.ÓI).
Leikhús r
Eyjur Einars í BUR
Leikgerð úr skáldsögum Einars Kárasonar leikin ískála Bœjarútgerðar
Meðal verkefna Leikfélags
Reykjavíkur í vetur verður leik-
gerð Kjartans Ragnarssonar á
skáldsögum Einars Kárasonar,
„Þar sem Djöflaeyjan rís“ og
„Gulleyjan“.
Kjartan bjó þessar sögur í
leikbúning með leiknemum við
Leiklistarskólann síðastliðinn
vetur og fékk við þá vinnu hug-
mynd um að gera úr sögunum
heildstæða leikgerð og sýna al-
menningi. Þegar farið var að
huga að húsnæði, kom í ljós að
þessi sýning hentaði illa bæði í
Iðnó og í Þjóðleikhúsinu. Þá var
það sem hin sáluga Bæjarútgerð
Reykjavíkur kom óvænt inn í
myndina og hefur Stefán Bald-
ursson síðan verið í samningavið-
ræðum við forsvarsmenn Granda
h/f um gömlu BÚR skálana á
Bráðræðisholtinu.
Að sögn Stefáns hefur Leikfé-
lagið fengið vilyrði fyrir BÚR
skálunum, en einhver dráttur
verður þó á því að Grandi rými þá
til hlítar þannig að vinna við
uppsetninguna getur ekki hafist
eins snemma og til stóð. En stefnt
er að því að „Eyjurnar“ verði
leiknar á Bráðræðisholtinu á
þessu leikári og mun Kjartan
leikstýra en Grétar Reynisson sjá
urn leikmynd og búninga.
Það er því ljóst að á svipuðum
slóðum og eitt sinn stóð bragga-
hverfið Kamp Knox munu í
braggalaga fiskiskála spranga
íbúar annars braggahverfis: holdi
klæddar persónur Karólínu spá-
konu, Tómasar smákaupmanns,
litla hórkallsins Grettis auk töff-
arans Badda, Magga bjútí og
Bóní Móróní svo fáeinar úr lit -
ríkupersónugalleríiEinars Kára-
sonar séu nefndar.
Nánar verður fjallað um
vetrardagskrár leikhúsanna í
Reykjavík í næsta sunnudags-
blaði Þjóðviljans.
-pv
Fiskvinnslustöðvarnar
Lán leysa ekki vandann
Soffanías Cecilssonformaður Sambandsfiskvinnslustöðva: Viðbótarlán eykurávanda margra
fiskvinnslustöðva. Áhœttufé eða aukið eigiðfé það eina sem getur leyst vanda stöðvanna
Skreið
Italir
Það er alveg Ijóst að aukið
lánsfé leysir ekki vanda þeirra
fiskvinnslustöðva, sem verst eru
settar, og allra síst þegar þau eru
með öfgavöxtum. Það eina sem
leysir vanda þeirra er einhvers-
konar áhættufé eða aukið eigið fé
í formi hlutabréfaútboðs. En hver
leggur fé sitt í slík fyrirtæki? sagði
Soffanías Cecilsson formaður
Sambands flskvinnslustöðva, að-
spurður um aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar til lausnar vanda flsk-
vinnslunnar.
Soffanías sagði að ný lán leystu
vanda sumra þeirra 50 fisk-
vinnslustöðva, sem ættu í erfið-
Ieikum. En hjá þeim sem eru að
kikna undir vaxta og verðbóta-
greiðslum lána frá verðbólgutím-
abilinu myndu lán aðeins auka á
vandann, því greiðslubyrðin
myndi þyngjast.
Hann sagði að rekstur þeirra
fiskvinnslustöðva, sem ekki
hefðu tekið mikið af lánum þegar
verðbólgan var sem mest væri í
lagi. Hin sem tóku lán eiga í mest-
um erfiðleikum og reksturinn
eins og hann er nú stendur ekki
undir greiðslum þeirra.
Þá benti Soffanías á að einhver
mesti vandi sem fiskvinnslan ætti
við að glíma nú væri fólksekla.
Fiskvinnslunni væri haldið gang-
andi af húsmæðrum, en þeim færi
fækkandi ár frá ári sem vildu
vinna þessi störf og nú á
haustmánuðum, þegar skólabörn
hætta vinnu væri vandinn vegna
fólkseklunnar óskaplegur.
-S.dór
boraa
vel
Framleiðendur fá
300-400fyrir hvert
kíló afskreið á Ítalíu.
Árni Bjarnason: Man
ekki eftir svo góðu
verði í nokkur ár.
Gætum selt meira til
Ítalíu
Eg man ekki eftir að verðið
fyrir ítalíuskreiðina hafí verið
svo gott í nokkur ár. Skilaverðið
er á bilinu 300-400 krónur fyrir
kflóið og þeir sjá margir eftir því
núna að hafa ekki hengt meira
upp í vor, sagði Arni Bjarnason
hjá íslensku umboðssölunni í
samtali við Þjóðviljann í gær.
ftalir hafa keypt skreið af ís-
lendingum um árabil, en árið í ár
hefur verið talsvert hagstætt.
Verðið hefur hækkað bæði í
krónum og dollurum þar sem lír-
an hefur styrkst gagnvart dollar
að sögn Árna. ítalir kaupa ekki
nema gæðavöru og Ítalíuskreið á
fátt sameiginlegt með því sem
menn selja til Nígeríu. Aðeins er
hengt upp 1. flokks hráefni, ein-
göngu þorskur, og verkunin er
mjög vandasöm. Enda fylgir
þessu nokkur áhætta.
Árni sagði í gær að um 30 fram-
leiðendur seldu skreið til Ítalíu og
sagðist búast við að salan myndi
nema 600-700 tonnum í ár. „Það
er hægt að selja miklu meira af
þessu, en menn virðast ekki vera
tilkippilegir til þess að framleiða
Ítalíuskreið.“
Þess má geta að fyrir skömmu
voru sendir 61000 skreiðarpakk-
ar út til Nígeríu. Enn hefur ekki
fengist borgun fyrir farminn, en
hámarksverð á hvert kíló af þeirri
skreið verður 140 krónur. Þar er
um að ræða þorsk, en fyrir til að
mynda ufsa fæst mun lægra verð.
-sg
Dagvistun barna
Við hrópum á fólk
Skortur á starfsfólki í dagvistunargeirann sjaldan verið meiri. Einni deild í
Tjarnarborg lokað eftir helgi. Steinunn Auðunsdóttir: Vonlaust aðfáfólk tilstarfa
Víða á dagvistunarhcimilum
borgarinnar ríkir mikill skortur á
fóstrum og ófaglærðu starfsfólki,
sem virðist, að sögn forstöðu-
kvenna nokkurra dagvistarheim-
ila, sjaldan hafa verið meiri. Á
leikskólanum Tjarnarborg hefur
verið gripið til þess ráðs að loka
einni deild heimilisins eftir næstu
helgi, en þar hafa 20 börn verið
vistuð.
„Það er auðvitað algjört neyð-
arúrræði hjá okkur að loka þess-
ari deild. Dagvistarkerfið er
gjörsamlega komið í þrot. Það er
ekki endalaust hægt að bjarga
ástandinu fyrir horn eins og við
höfum gert á síðustu árum. Það
er orðið vonlaust að fá fólk í þessi
störf og það hriktir í þeim sem
fyrir eru. Og að sjálfsögðu eru
það launamálin sem þarna skipta
miklu máli,“ sagði forstöðukona
Tjarnarborgar Steinunn Auðuns-
dóttir um ástandið.
Aðspurð um heildarfjölda
starfsfólks sem vantar nú á dag-
vistarheimili borgarinnar, sagði
Fanný Jónsdóttir umsjónarfóstra
hjá Dagvistun barna að þær upp-
lýsingar lægju ekki enn fyrir en
verið væri að safna þeim saman.
„Það er ekkert launungarmál
að dagvistunargeirinn hrópar á
fólk og fær litla svörun", sagði
Fanný. „Ástæðurnar fyrir því eru
m.a. þær að á þessum starfsvett-
vangi eru launin lág eins og í öðr-
um kvennastéttum, en auk þess
er ekkert samræmi á milli fjölgun
dagvistarrýma og fjölgun fag-
lærðra fóstra, en aðsókn í námið
hefur minnkað," sagði Fanný að
lokum. K.ÓI.
Skákin
Karpoff á öndinni
Askorandinn Karpoff frestaði í
gær fyrstu skákinni í síðari
hluta heimsmeistaraeinvígisins
sem nú hefur verið flutt frá
London til Leníngrad.
í bréfi til aðstoðardómarans
Robert Wade sagði læknir Karp-
offs að áskorandinn ætti við
öndunarerfiðleika að etja. Karp-
off hefur þá frestað tvisvar,
Kasparoff einu sinni; hvor um sig
má fresta þrisvar alls.
Fyrir þrettándu skákina í Len-
íngrad á föstudag er staðan 6V2-
5Vi heimsmeistaranum Kaspa-
roff í vil. -m/reuter