Þjóðviljinn - 10.09.1986, Page 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
ÍÞRÓT71R
MENNING
SUÐURNES
Góðœrið
Stjómin þvælist fyrir
Svavar Gestsson: Kaupmáttur kauptaxta enn20% lœgri en 1982. Jóhanna Sigurðardóttir: Góðœrið
skilar sér til fjármagnseigenda. Guðmundur Einarsson: Eins ogstór happdrœttisvinningur.
Kristín Halldórsdóttir: Láglaunafólkið fœr ekki sinn skerf
Góðærið sem við upplifum nú
stafar auðvitað fyrst og fremst af
gífurlega hagstæðum ytri skilyrð-
um, olíulækkun, hærra útflutn-
ingsverði sjávarafurða og betri
viðskiptakjörum. Hins vegar er
kaupmáttur kauptaxta enn 20%
lægri en hann var árið 1982 og
launamunurinn hefur sjaldan
verið meiri. Því verður í næstu
samningum að hækka kaupmátt
kauptaxta án þess að hleypa verð-
bólgunni upp og það á góðærið að
geta tryggt okkur með skynsam-
legri stjórnarstefnu, sagði Svavar
Gestsson formaður Abl. í samtali
við Þjóðviljann í gær.
„Þáttur ríkisstjómarinnar í
þessum efnahagsbata er hins veg-
ar verri en enginn. Hún hefur
þvælst fyrir og átti auðvitað að
fara frá strax eftir febrúarsamn-
ingana“, sagði Svavar.
Jóhanna Sigurðardóttir þing-
maður Alþýðuflokksins sagði í
gær að fólk ætti að treysta loforð-
um ríkisstjórnarinnar varlega um
að nú væru að renna upp þeir
tímar að láglaunahópar færu að
fá sína hlutdeild í bættum þjóðar-
hag. „Það er augljóst að hjá
mörgum hefur ríkt harðæri í góð-
ærinu. Góðærið og efnahagsað-
gerðir ríkisstjórnarinnar hafa
fyrst og fremst skilað sér til fjár-
magnseigenda, en ekki til launa-
fólks. Það fær ekki réttmæta hlut-
deild í bættum þjóðarhag meðan
Framsókn og Sjálfstæðisflokkur
fara með stjórn landsmála‘%
sagði Jóhanna.
„Það er tvennt mjög neikvætt í
þessu sambandi: Annars vegar
mikill halli á ríkisjóði og hins veg-
ar sú staðreynd að láglaunafólkið
hefur ekki fengið sinn skerf af
Krókódíll
Leifði fótunum
Tjaldbúa sporðrennt.
Vaknaði ekki aftur
Krókódíll át sofandi mann,
sem var í tjaldi nálægt fiskiþorpi í
Norður-Ástralíu, og skildi ein-
ungis fótleggina eftir. Fundust
fæturnir í fyrradag og voru þá
settar upp gildrur í McArthur-
ánni í grennd við Borroloola-
þorp, um 800 km fyrir suðaustan
Darwin, til að góma mannætu-
krókódílinn. Yfirmaður lögregl-
unnar á staðnum sagði að vitað
væri um krókódíl í þessu héraði,
en ekki væri víst að það væri sá
sami og sporðrenndi tjaldbúan-
um. Hefði lítill krókódíll glefsað í
handlegginn á syndandi manni í
fyrra. Astralskur krókódílafræð-
ingur sagði fréttamönnum að
þessir krókódílar, sem verða sjö
metra langir og eru friðaðir, gætu
orðið mannýgari á fengitímanum
en venjulega. A.m.k. tveir menn
hafa látið lífið af völdum krókó-
díla í Ástralíu síðasta ár, og lenti
m.a. ein kona í gini dýrsins þegar
hún var á sundi.
e.m.j./reuter
góðærinu“, sagði Kristín Hall-
dórsdóttir þingmaður Kvenna-
lista þegar Þjóðviljinn leitaði álits
hennar í gær.
Guðmundur Einarsson for-
maður BJ sagði að góðærið væri
ekkert annað en stór happdrætt-
isvinningur. „Það sjá hins vegar
allir að það er eitthvað stórkost-
lega bogið við þetta, því á sama
tíma og þetta kemur yfir okkur er
frystiiðnaðurinn á hausnum og
fjórðungur þjóðarinnar býr við
fátækt.“ -gg
Sjá bls. 2
Mjólkurpósturinn
Dæmigerður reykvískur framtíðarmorgunn: Blaðið okkar, hundurinn okkar og mjólkin okkar. ( E.ÓL.).
Mjólkin heim
að dyrum
Sveinn Guðmundsson:
Ætla að selja mjólk
í áskrift. Sama verð
og í búðum og ekkert
heimsendingargjald
Mjólkurpósturinn er heiti á nýju fyrirtæki
sem Sveinn Guðmundsson verkfræðingur
hefur stofnað og hyggst hann hefja sölu á mjólk
í heimahús einsog nafn fyrirtækisins gefur til
kynna.
„Hugmyndin er sú að bjóða 12 lítra pakkn-
ingar til sölu hverjum sem þær vill kaupa og
markaðurinn verður allt höfuðborgarsvæðið",
sagði Sveinn í samtali við Þjóðviljann. „Mjólk-
in er í lítrafernum, sams konar og Mjólkursam-
salan er með, en ég ætla að selja 12 fernur í einu
því það er mun erfiðara að dreifa mjólkinni í
smærri einingum. Verðið verður það sama og
út úr búð og ég tek ekkert heimsendingargjald.
Það er ætlunin að fá fasta viðskiptavini,
áskrifendur ef svo má segja, og þeir geta þá
pantað og afpantað mjólk með ákveðnum
fyrirvara. Síðan er hugmyndin sú að taka tækn-
ina í okkar þjónustu við viðtöku pantana,
þannig að fólk geti hringt inn pantanir og á sér
þá ákveðin númer í skrá í tölvu. Til að byrja
með reynum við að einbeita okkur að ákveðn-
um þéttbýlum svæðum en ef vel gengur færi ég
svo út kvíarnar. Hugmyndinni hefur verið
tekið vel og ég hef trú á að það sé þörf á þessari
þjónustu, sérstaklega fyrir barnmargar fjöl-
skyldur sem neyta mikillar mjólkur hverja
viku“, sagði Sveinn Guðmundsson. - vd.
Kaffimálið
Vita ekki baun
Arnór og Gísli neituðu öllu íyfirheyrslum ígœr. Hlé á
yfirheyrslum í viku. Saksóknari: Erlendur og Hjalti bera
frumábyrgð
Gísli Theódórsson og Arnór
Valgeirsson, ákærðu í kaffi-
baunamálinu neituðu öllum
sakargiftum í yfirheyrslum fyrir
Sakadómi Reykjavíkur í gær.
Þeir segjast eins og Erlendur Ein-
arsson og Hjalti Pálsson enga
ábyrgð bera á ólögiegum við-
skiptum SÍS vegna innflutnings
kaffibauna frá Brasilíu á árunum
1980 og 1981.
Sigurður Árni Sigurðsson er þá
sá eini af fimm sakborningum
sem fengist hefur til að játa aðild
að því að hafa dregið Samband-
inu fé með refsiverðum hætti.
Hann hefur játað að hafa gefið
fyrirmæli um faktúrufalsanir, eða
tvöfalda vörureikninga. Hann
segist þó ekki hafa tekið ákvörð-
un um það, heldur hafi þessi fyr-
irmæli verið gefin í samráði við
Hjalta Pálsson. Hjalti neitar því
hins vegar.
Jónatan Sveinsson saksóknari
telur að Erlendur Einarsson for-
stjóri og Hjalti beri frumábyrgð á
fjársvikum og skjalafalsi, en Sig-
urður, Arnór og Gísli séu hlut-
deildarmenn. Þeir hafi átt að vita
að þessi viðskiptamáti væri refsi-
verður. Mál þetta er afar flókið
og á að sögn Jónatans ekki hlið-
stæðu í íslenskri réttarsögu.
Yfirheyrslum verður haldið
áfram 17. september. Þá verður
Arnór Valgeirsson yfirheyrður
auk vitna. Búist er við að dómar
verði kveðnir upp jafnvel í næsta
mánuði.
-gg
Herinn
íslendingar
rannsaka
mengun
Utanríkisráðuneytið tilkynnti
herliðinu á Miðncsheiði í gær, að
rannsóknir á vatnsbólum á
Reykjancsi fari ekki öðruvísi
fram en undir íslenskri stjórn og
að íslensku frumkvæði.
Tilkynning ráðuneytisins kem-
ur í kjölfar frétta um að Banda-
ríkjaher hafi leitað fyrir sér í
Bandaríkjunum til að finna fyrir-
tæki til rannsókna á vatnsbólum
sem mengast hafa á hersvæðinu.
Orkustofnun og Verkfræðistofa
Sigurðar Thoroddsen höfðu haft
veður af tilburðum hersins og
boðið sig fram til rannsóknanna
en fengið neitun.
- m