Þjóðviljinn - 10.09.1986, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 10.09.1986, Blaðsíða 14
_________FRÁ LESENDUM_____ Fyrirspum tii siðanefndar Lögmannafélagsins 3. LEIKVIKA - 6. september 1986 VINNINGSRÖÐ: X22-2X2-222-21X 1. Vinningur: 11 réttir, kr. 665,615 128216(6/10) 2. Vinningur: 10 réttir kr. 16.780 2871+ 48451 96494 101325 12081 55560 96862+ 201376+ 12316+ 56895 98917 Kærufrestur ertil mánudagsins 29. sept. 1986 kl. 12.00 á hádegi. tslenskar Getruunir, Iþróttamidstödinni y/Sifttún. Reykjueik Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyöublöö fást hjá umboðsmönnum og s skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæöir geta lækkað, ef kærur veröa tekn- ar til greina. Handhafar nafnlausra seðla (+) verða aö framvísa eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til íslenskra Getrauna fyrir loka kæru- frests. Norrænn styrkur til bókmennta nágrannalandanna Önnur úthlutun norrænu ráðherranefndarinnar (mennta- og menn- ingarmálaráðherrarnir) 1986 - á styrkjum til útgáfu á norrænum bókmenntum í þýðingu á Norðurlöndunum - fer fram í nóvember. Frestur til að skila umsóknum er: 1. október 1986. Eyðublöð ásamt leiðbeiningum fást hjá menntamálaráðuneytinu í Reykjavík. Umsóknir sendist til: NORDISK MINISTERRÁD Sekretariatet Store Strandstræde 18 1255 Kobenhavn K Danmark Sími: DK 01 -11 47 11 og þar má einnig fá allar nánari upplýsingar. Eldviðvörunarkerfi Tilboð óskast í tæki fyrir eldviðvörunarkerfi á Land- spítalalóð. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri á kr. 1.000- Tilboð verða opnuð á sama stað kl. 11.00 f.h. þriðju- daginn 14. október n.k. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS Borgartúni 7, sími 26844 Evrópuráðið býður fram styrki til framhaldsnáms starfandi og verðandi verkmenntakennara á árinu 1986. Styrkirnir eru fólgnir í greiðslu fargjalda milli landa og dagpeningum fyrir hálfan mánuð eða allt að sex mánuði. Umsækjendur skulu helst vera á aldrinum 26-50 ára og hafa stundað kennslu við verkmennta- skóla eða leiðbeiningarstörf hjá iðnfyrirtæki í að minnsta kosti þrjú ár. Sérstök umsóknareyðublöð fást í menntamála- ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík. Um- sóknir skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir 1. októ- ber 1986. Menntamálaráðuneytið. 8. september 1986. Enn eru tannlæknar við sama heygarðshornið. Ekki er langt síðan þessi stétt Ég vil þakka honum Flosa sér- staklega fyrir síðasta Viku- skammt þar sem hann fjallaði um flugvöllinn í Vatnsmýrinni. Ég er honum algerlega sammála um að þessi flugvöllur er óþarfur þar hækkaði laun sín úr hófi fram. Sagt var að hækkunin væri yfir 40%. Þegar málið komst í fjöl- sem hann er og einnig stórhættu- legur. Flest flugslys verða við flugvelli. Með áætlunarflugið til Keflavíkur og einkaflugið upp á Sandskeið. Ein sem iék sér í Vatnsmýrinni. miðla, tóku yfirvöld sig til og komu að nokkru leyti í veg fyrir tiltækið. Neyddust tannlæknar þá til „að geifla á saltinu" og greiða opinbera geiranum fúlgur fjár. En, Adam var ekki lengi í Par- adís. Enn eru tannlæknar farnir á stúfana. Hækkunar-draugar þeirra eru sem óðast farnir að ríða húsum. Ekki er enn séð hvernig sú deila endar. En í sambandi við fyrri hækk- unina reyndu tannlæknar að verja sig með því, að sú hækkun væri gerð í samráði við tvo lög- fræðinga, þá Guðmund Ingva Sigurðsson og Benedikt Sigur- jónsson. Sögðu raunar skæðar tungur, að vera kynni að afskipti þeirra stöfuðu af því, að sonur annars væri tannlæknir en sonur hins læknir. Fyrirspurnir voru gerðar í blöðum til fyrrnefndra lög- manna, um það hvort þeir ein- staklingar, sem greitt hefðu tannlæknum samkvæmt hærri gjaldskránni ættu ekki rétt á endurgreiðslu, eins og opinberi geirinn, en svar hef ég ekki séð, og er mér næst að halda að þeir hafi enn ekki svarað. Nú lenti ég í þessu hinu sama, og tannlæknir sá, er ég skipti við, hefur neitað mér um endurgreiðslu. Þar sem ég er vonlaus um að áðurnefndir lögfræðingar svari, vil ég hér með beina ofannefndri fyrirspurn þar að lútandi til siðanefndar lög- mannafélagsins. Virðingarfyllst, með þökkum fyrir birtingu, Sigríður Jónsdóttir. Bréfritari vill að innanlandsflugið verði flutt frá Reykjavík til Keflavíkur. Burt með flugvöllinn AFMÆLISUTGAFA vegna 70 ára afmælis Guðrúnar Guðvarðardóttur FERÐA- SÖGUR FRÁ VESTFJÖRÐUM Guðrún Guðvarðardóttir NIÐJATAL ÞÓru Gunnlaugsdóttur frá Svarfhóli Álftafirði í tilefni af 70 ára afmæli Guðrúnar Guðvarðardóttur í vor s.l. mun Starfsmannafélag Þjóðviljans gefa út ferðasögur hennar frá Vestfjörðum og niðjatal Þóru Gunnlaugsdóttur frá Svarfhóli. Bókin er væntanleg á markaðinn í október. Þeir sem hug hafa á að tryggja sér eintak geta hringt í síma 681333/73687 (Jóhannes) og 610398 (Jörundur) eða fyllt út pöntunarseðil og sent Starfsmannafélagi Þjóðviljans. Pósthólf 8020, 128 Reykjavík. Nöfn áskrifenda munu birtast í bókinni sem heillakveðja. Bókin kostar kr. 1.300.- til áskrifenda. (Útsöluverð úr búð verður kr. 1.500.-). Pöntunarseðill Nafn Heimili Sími Póstnúmer

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.