Þjóðviljinn - 10.09.1986, Síða 2
FRÉTTIR
Sovétsíld
Óttinn sagður ástæðulaus
Sovéska sendinefndin sem hér
er til viðskiptaviðræðna lagði á
fundinum í fyrradag áherslu á að
sá ótti sem verið hefur hérlendis
um sölu saltsíldar austur væri
ásíæðulaus.
Hinsvegar bárust síldarútflytj-
endum í fyrrakvöld skilyröi frá
viðsemjendum í Sovét fyrir söl-
unni, og munu þau mun
óaðgengilegri en áður. Halldór
Ásgrímsson sagði Þjóðviljanum í
gærkvöldi nýkominn frá Finn-
landi að hann hefði ekki heyrt um
síðustu atburði. Aftur á móti
hefði það oft gerst áður að Sovét-
menn sendu hingað ýmis boð, og
engin ástæða til að láta vaða á
súðum fyrr en í samninga væri
komið, „menn semja ekki fyrir-
fram“.
Það hefur komið fram, til
dæmis í Þjóðviljanum og Morg-
unblaðinu, að menn telja á bratt-
ann að sækja í samningunum, og
eru nefnd til gjaldeyrisbágindi í
Sovét og kanadísk undirboð
meðal annars. Síldarviðræður
hefjast nú síðar en í fyrra, í lok
mánaðar eða um miðjan októ-
ber.
—gg/-n’
Viðey
Rafmagn
r | nlt ■ ■
a leiðinni
Þess er ekki langt að bíða að
menn geti hringt út í upplýsta
Viðey, því að um þessar mundir
eru í gangi miklar framkvæmdir
úti í Viðey.
í gærdag voru menn að vinna
við það að flytja gröfur og pressur
á pramma út í eyju, til að hægt
yrði að grafa fyrir rafmagns-
lögnum. Þar með hefur nútíminn
hafið innreið sína í Viðey. Guðj-
ón Jónsson flokksstjóri hjá Raf-
magnsveitunni sagði að þessar
framkvæmdir tækju ekki langan
tíma. 5 manns eru í vinnu á veg-
um Rafmagnsveitunnar í Viðey.
Hann sagði ennfremur að fyrir-
hugað væri að fornleifafræðingur
fylgdist með þeim við fram-
kvæmdirnar, „því þetta er merk
og friðlýst eyja“, sagði Guðjón.
SA.
Við verðum ekki nema svona 3 daga
að leggja rafmagn í húsið og kirkjuna
úti í Viðey, sögðu þeir Guðjón Jóns-
son flokksstjóri hjá Rafmagns-
veitunni og Páll Valdimarsson. E.ÓL.
Kaipoff
gaf
Kasparoffþarf aðeins
fjóra vinninga úrþeim tíu
skákum sem eftir eru
Anatólí Karpoff gaf í gær bið-
skák sína við Kasparoff frá i
fyrradag án þess að setjast aftur
að tafli.
Þarmeð hefur heimsmeistarinn
náð skínandi forystu, 8-6, og þarf
nú aðeins fjóra vinninga í þeim
tíu skákum sem eftir eru til að
halda titli sínum, þarsem
heimsmeistarinn telst sigurvegari
ef báðir eru jafnir að vinningum.
Raunar gæti Kasparoff gert útum
einvígið áður þarsem sá sigrar
sem fyrr vinnur sex skákir.
Kasparoff hefur nú unnið þrjár,
Karpoff eina, tíu endað með jafn-
tefli. Biðleikur Kasparoffs
reyndist vera riddari c5.
Fimmtándu skákina á að tefla í
Leníngrad í dag.
-m/reuter
GÓÐÆRIÐ GÓÐÆRIÐ GÓÐÆRIÐ
Svavar
Gestsson
Stjómin
skilar engu
Það sem eftir stendur þrátt fyrir þessi
hagstæðu skilyrði er sú staðreynd að
kaupmáttur kauptaxta verður 20% lægri í
árslok en í upphafi árs 1982. Kaupmáttur
ráðstöfunartekna heimilanna hefur
hækkað, en það stafar fyrst og fremst af
aukinni vinnuþrælkun, einkum kvenna,
sagði Svavar Gestsson formaður Abl. þeg-
ar hann var inntur álits á þjóðhagsspá
Þjóðhagsstofnunar í gær.
„Meginástæðurnar fyrir góðu efnahags-
ástandi eru þær að í fyrsta lagi hefur olíu-
reikningurinn lækkað um 2 miljarða
króna, í öðru lagi er útflutningsverð sjáv-
arafurða hærra en gert var ráð fyrir og í
þriðja lagi hafa viðskiptakjör okkar batn-
að um 11% síðan þessi ríkisstjórn tók við
völdum. Þá færir stóraukinn hagvöxtur
þjóðarbúinu 7-8 miljarða króna.
En þessir miljarðar eru ekki hjá fólkinu
sem ber uppi kauptaxtana, ekki hjá Sókn-
arkonunum og ekki hjá kennurum. Með-
altöl hafa alltaf verið vitlaus en aldrei eins
og nú. Mismunurinn á þeim hæstu og
þeim lægstu hefur aldrei verið hrikalegri
og því verðum við í næstu samningalotu
að hækka kaupmátt kaupataxtanna án
þess að hleypa verðbólgunni upp.
Stefna ríkisstjórnarinnar hefur engu
skilað. Fyrir kjarasamninga og olíulækk-
un var verðbólgan 35-40% og stjórnin átti
að fara frá um leið og samningarnir í feb-
rúar voru gerðir. Aðrir höfðu tekið af
henni ráðin og knúið fram breytingar á
efnahagskerfinu“, sagði Svavar.
-gg
Jóhanna
Sigurðardóttir
Harðæri
í góðærinu
Það er deginum Ijósara að efnahagsbat-
inn er fyrst og frcmst hagstæðum ytri skil-
yrðum að þakka, sagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir varaformaður Alþýðuflokksins í
samtali við Þjóðviljann í gær.
„Olíuverðlækkunin, aflaaukningin og
verðmætaaukning eru meginástæður
þessa bata. Launþegar hafa fórnað fjórðu
hverju krónu úr umslaginu sínu og þannig
lagt sitt af mörkum til hjöðnunar verð-
bólgunnar.
Það voru aðilar vinnumarkaðarins sem
mörkuðu þann efnahagsramma sem unn-
ið hefur verið eftir síðan í febrúar og ég sé
ekki betur en Steingrímur viöurkenni þá
staðreynd. Enda tala verk ríkisstjórnar-
innar sínu máli og óráðsían blasir alls stað-
ar við, sem sést best á geysilegum halla á
ríkissjóði og hrikalegri aukningu erlendra
skulda. Skattalækkunin sem stjórnin
gumar af hefur að mestu leyti lent hjá
atvinnurekendum og fjármagnseigend-
um.
Hins vegar hefur almennt verkafólk,
eili- og örorkulífeyrisþegar og margir op-
inberir starfsmenn borið þyngstu byrð-
arnar. Þeir hafa ekki notið launaskriðs
eða yfirborgana og kjaraskerðingin hefur
dunið á þeim með fullum þunga. Og égtel
að menn ættu ekki að treysta loforðum
ríkisstjórnarinnar um að nú muni lág-
launahóparnir fá réttmæta hlutdeild í
bættum þjóðarhag. Hjá mörgum hefur
ríkt harðæri í góðærinu og ég er staðfast-
lega þeirrar skoðunar að á meðan Fram-
sókn og Sjálfstæðisflokkur fara með
stjórn landsmála muni þeir verst settu
ekkifá réttmætan skerf af kökunni“, sagði
Jóhanna. -gg
Kristín
Halldórsdóttir
Láglaunafólk
situr eftir
Þessi góði efnahagur gefur því fólki von-
andi viðspyrnu í næstu kjarasamningum
sem setið hefur eftir á töxtunum og ekki
notið launaskriðs. Það er auðvitað mjög
slæmt að láglaunafólkið skuli ekki hafa
fengið sinn skerf af góðærinu, sagði
Kristín Halldórsdóttir þingmaður
Kvennalista í samtali við Þjóðviljann í
gær.
„Spá Þjóðhagsstofnunar kemur mér
raunar ekki svo feykilega á óvart. Ég átti
að vísu ekki von á að fiskverð og afli
myndu koma svo vel út, en allir þeir sem
fylgjast með þróun mála erlendis sáu að
olíuverð var á niðurleið og vextir að lækka
þegar í lok síðasta árs. Þá var hins vegar
eins og spámönnum ríkisstjórnarinnar
væri upp á lagt að vera svartsýnir í spám
sínum. En hagur okkar er sem sagt all
góður þrátt fyrir stjórn landsfeðranna.
Það er tvennt sem er mjög neikvætt.
Annars vegar mikill halli á ríkissjóði, sem
er mjög alvarlegt mál. Hins vegar hvað
batinn hefur nýst fólki misjafnlega.
Launafólkið hefur ekki fengið sinn skerf
og það eru einkum konur og almennt
verkafólk sem sitja eftir. Það vita allir að
launabilið hefur aukist verulega. At-
vinnutekjur hafa aukist, en það stafar af
stórauknu vinnuframlagi og launaskriði,
sem deilist mjög misjafnlega niður.
En gott ástand efnahagsmála gefur
manni von um að fólkið sem setið hefur
eftir hingað til mun fá einhverj a viðspyrnu
í næstu samningum og það verður að ske“,
sagði Kristín.
-gg
Guðmundur
Einarsson
Meira
olnbogarými
í hnotskurn er þetta eins og rakarinn
minn sagSi í morgun: Ekki hef ég orðið
var við þetta. Og þannig held ég að mörg-
um fleiri sé farið, sagði Guðmundur Ein-
arsson formaður BJ í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
„Þessar bættu efnahagshorfur sem spáð
er eru eingöngu að þakka ytri aðstæðum,
lækkuðu olíuverði, góðu ástandi á mörku-
ðum og metafla. Ríkisstjórnin þakkar
þetta fyrst og fremst styrkri fjármála-
stjórn og samningunum í vetur, en það er
blekking að mínu mati.
Samningarnir kostuðu 1,5 miljarða og
sendu ríkissjóð veg allrar veraldar og við
eigum eftir að fá það allt saman í bakið
aftur. Það er ekki hægt að koma saman
fjárlögum nema stórauka álögur eða
skera verulega niður til félagsmál.
Á sama tíma og við fáum þetta góðæri
breytist ekkert í efnahagsmálum innan-
lands. Frystiiðnaðurinn er á hausnum og
fjórðungur þjóðarinnar býr við fátækt.
Þetta er mergurinn málsins og sýnir að
það er eitthvað stórkostlega bogið við
þetta.“
Hvaða áhrif heldurðu að efnahagsbat-
inn muni hafa á komandi kjarasamninga?
„Það er ljóst að nú verður mun meira
olnbogarými fyrir meðaltalssamninga
sem umbera fátækt hjá fjórðungi þjóðar-
innar. En raunveruleg velmegun mun
hins vegar ekki aukast nema til komi kerf-
isbreyting í efnahags- og félagsmálum. Ég
held að þessi happdrættisvinningur muni
annars ekki skila sér í varanlegri aukningu
raunverulegrar velmegunar“, sagði Guð-
mundur. -gg
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 10. september 1986