Þjóðviljinn - 10.09.1986, Page 6
Framtíðin
FRÉTTIR
Framtíðarspá
í haust
Framkvœmdanefnd umframtíðarkönnun
skilar afsér í nóvember
Við erum að búa skýrslur
starfshópanna til prentunar
og vonumst til þess að geta komið
þeim frá okkur ásamt yfirlitsriti í
nóvember, sagði Jón Sigurðsson
forstöðumaður Þjóðhagsstofnun-
ar í samtali við Þjóðviljann, en
Jón hefur síðastliðið ár haft um-
sjón með vinnu 15 starfshópa sem
unnið hafa að gerð víðtækrar
framtíðarspár fyrir íslenskt
þjóðlíf næstu 25 árin.
Frumkvæöi að þessu verkefni
er komið frá Steingrími Her-
mannssyni forsætisráðherra og
hafa um 50 manns unnið við það
frá upphafi en fleiri bæst í hópinn
með tímanum. Að sögn Jóns er
spáin mjög víðtæk og mun ná til
nær allra sviða þjóðlífsins, jafnt
til efnahagsmála, menntunar-
mála og menningarmála. Skýrsl-
ur hópanna munu koma út í 5
sérritum og einnig er unnið að
samantekt yfirlits um verkið. Jón
vildi ekki láta neitt uppi um nið-
urstöður hópsins, þannig að við
verðum bara að bíða og sjá.- vd.
Niðurskurður
Sama rétt til náms
Framsóknarkonur og Kvennalisti mótmœla
tillögum Sverris
Framkvæmdastjóri Landssam-
bands Framsóknarkvenna
hefur nýlega mótmælt „aðför
menntamálráðherra að jöfnum
Rauði krossinn
Aðhlynning
í heimahúsum
Rauði Kross Islands gengst á
næstunni fyrir námskeiði fyrir þá
sem sjá um aldraða eða sjúka
ættingja sína í heimahúsum.
Námskeiðið hefst þann 22.
september og stendur yfir í fjóra
daga þ.e. tvo mánudaga og mið-
vikudaga frá kl. 9-14. Á nám-
skeiðinu verður meðal annars
lögð áhersla á réttar starfsstell-
ingar við aðhlynningu og ýmis
hjálpartæki kynnt.
Námskeiðið er opið öllum og
námskeiðsgjald verður kr. 1000,-
Kennt verður í kennslusal RKÍ,
Nóatúni 21, 2. hæð og í Sjúkra-
liðaskóla íslands við Suður-
landsbraut. Nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu RKÍ, Nó-
atúni 21, s. 91-26722.
rétti barna til náms með hug-
myndum sínum um niðurskurð
fjárveitinga til skólaaksturs“. All-
ir sama rétt til náms, er yfirskrift
ályktunar Framsóknarkvenn-
anna.
f sama streng hefur Kvenna-
listinn tekið og mótmælt hug-
myndum Sverris um lækkun
framlaga til sérkennslu, skóla-
aksturs, mötuneyta og gæslu í
grunnskólum.
„Kvennalistinn telur fráleitt,
að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
sé í stakk búinn til að taka yfir
kostnað vegna þessara þátta,
enda hafa lögboðnar tekjur hans
verið stórlega skertar nú síðustu
árin.
Kvennalistinn bendir á, að til-
gangurinn með þessum þáttum í
rekstri grunnskólanna er að jafna
aðstöðu allra til náms án tillits til
efnahags og búsetu. Nái tillögur
menntamálaráðherra fram að
ganga mun það leiða til mismun-
unar og stórfelldrar skerðingar á
lögboðnum rétti grunnskóla-
barna í dreifbýli til náms. Slíkum
aðgerðum hafnar Kvennalistinn
einarðlega."
Starfsmenn Hótels Keflavíkur: Hildur Sigurðardóttir og Guðlaug Helga Jónsdóttir í móttöku og Steinþór Jónsson
hótelstjóri. Ljósm.: Sig.
Keflavík
Hotelin spretta upp
Fyrsta eiginlega hótelið í Keflavík var opnað í vor. SteinþórJónsson hótelstjóri
Hótels Keflavíkur: Nýtingin hefur verið 100% hingað til oghver veitnema við
stœkkum innan tíðar!
Þrátt fyrir að miliiiandaflug
okkar íslendinga hafi um ára-
tugaskeið farið um Keflavíkur-
flugvöll hefur ekkert hótel ver-
ið til skamms tíma í nágrenni
hans. Nú hefur hins vegar ver-
ið opnað glæsilegt hótel í
Keflavík og annað smærra í
Njarðvíkum. Þriðja hótelið er í
byggingu auk þess sem ýmsir
aðilar munu um árabil hafa
hugleitt að reisa hótelbygg-
ingu í nágrenni nýju flugstöðv-
arinnar.
Þjóðviljamenn litu við í Hótel
Keflavík og spurðu hótelstjórann
Steinþór Jónsson hvenær hótelið
hefði verið opnað:
„Við opnuðum 17. maí í vor, á
þjóðhátíðardag Norðmanna.
Framkvæmdir við bygginguna
hófust um miðjan janúar þannig
að segja má að við höfum byggt af
svipuðum hraða og eigandi Hótel
Arkar í Hveragerði. Við höfum
ekki tekið allt hótelið í notkun
ennþá því auk þeirra 22ja her-
bergja sem við erum nú með er
verið að innrétta efstu hæðina í
húsinu þar sem verða 5 svítur og
fimm herbergi að auki“.
En hvernig hefur reksturinn
gengið fram að þessu?
„Hann hefurgengið alveg skín-
andi vel. Frá því við opnuðum
hefur verið 100% nýting og í
þessum mánuði eru aðeins örfáir
dagar óbókaðir. Það hefur verið
mikið um stórar pantanir og við
höfum hvað eftir annað þurft að
vísa gestum frá. Hér koma bæði
útlendingar og fslendingar og
það hefur verið athyglisvert að
fólk utan af landi, sem erá leið til
útlanda, sækir hingað í vaxandi
mæli.“
Nú fer samkeppnin ört vax-
andi. Þú er ekkert banginn?
„Nei, alls ekki. Ég er ekki í
nokkrum vafa um að á þessum
stað getur þrifist mjög mikið
hótelrými, bæði vegna legunnarr
við millilandaflugvöllinn og einn-
ig hefur staðurinn mikið upp á að
bjóða. Suðurnesin eru sérkenni-
leg, sérstaklega í augum útlend-
inga, sem eiga trjám og miklum
gróðri að venjast. íslenskt lands-
lag í sinni snörpustu mynd á að
vera okkar söluvara í túrisman-
um enda hefur það sýnt sig að
útlendingar eru heillaðir af þessu
landslagi, sem við fslendingar
kunnum stundum ekki að meta
eins og skyldi. Ég var þeirrar
skoðunar áður en við fórum út í
reksturinn að Keflavík gæti aldrei
orðið ferðamannastaður í eigin-
legum skilningi. Hér myndu
einkum gista farþegar sem væru á
leið yfir landið til annarra staða.
En eftir að hafa rætt við okkar
gesti í sumar er ég kominn á aðra
skoðun“, sagði Steinþór Jónsson
hótelstjóri.
Hótel Keflavík er fjölskyldu-
fyrirtæki og eingöngu rekið af
fjölskyldu Jóns W. Magnús-
sonar, sem einnig á Ofnasmiðju
Suðurnesja. Við hótelið vinna,
auk Steinþórs, Guðlaug Helga
Jónsdóttir kona hans og Hildur
Sigurðardóttir í móttöku. Starfs-
menn hafa verið 1-2 til viðbótar á
álagstímum.
„Lykillinn að gengi svona hót-
els, sérstaklega þegar það er að
hefja rekstur, er að halda öllum
kostnaði í lágmarki. Auk þess
þurfa menn fyrirgreiðslu í banka-
kerfi og það höfum við fengið í
því formi að Sparisjóður Kefla-
víkur hefur boðist til að vera okk-
ur öflugur bakhjarl ef eitthvað
bregst. Miðað við bókanir hingað
til og horfurnar á næstu mánuð-
um eru við bjartsýn, og hver veit
nema við stækkum innan tíðar?“,
sagði hinn glaðbeitti hótelstjóri
Hótels Keflavíkur um leið og við
kvöddum.
—v.
KONUR OG KJÖR
Hefjum kvennastéttir upp
Þjóðviljinn spyr
1. Hvað veldurað illa gertgurí
kjarabaráttu kvenna? "
2. Hvað er til ráða?
Hulda S. Ólafsdóttir svarar
1 ■ Konur búa enn við tvöfalda
ábyrgð, þær eru samviskusamar í
vinnu og eru líka með alla ábyrgð
á börnunum og heimilinu. Þótt
margir ungir menn taki núna ein-
hvern þátt í heimilisstörfum, eru
konurnar miklu fastari við. Þeir
geta farið út á kvöldin án þess að
börnin æmti né skræmti, en það
geta mæðurnar ekki. Þá kemur
sektarkenndin og afleiðingin
verður miklu minni þátttaka
kvenna í félagsstörfum.
Þess vegna eru karlarnir í for-
ystu í stéttarfélögunum og í
samningagerð og viðsemjend-
urnir eru líka karlmenn. Þeir hafa
lítinn vilja og skilning og þykja
kvennastörfin minna virði. Þegar
þarf svo að velja hverjir fá hækk-
un, þá halda þeir okkur niðri.
Þeir líta alls ekki á okkur sem
fyrirvinnur, það er vandamálið.
Og ennþá eru til konur, sem líta á
sín laun sem aukagetu til per-
sónulegra þarfa.
Fleira kemur til, konur van-
treysta sér og sínum kynsystrum
og bera sjálfar ekki næga virð-
ingu fyrir kvennastörfunum. Það
þekki ég úr minni stétt, sjúkralið-
um, sem vinna mjög mikilvægt en
öðruvísi starf en hjúkrunarfræð-
ingar og læknar. Éf við værum
öruggari um gildi okkar starfs
værum við kröfuharðari með
launin. Það er varla von að aðrir
meti okkar störf ef við gerum það
ekki sjálfar.
En þetta tengist kannski þeim
viðhorfum, sem voru uppi í
kvennahreyfingunni um að kon-
ur ættu að hasla sér völl í karla-
störfum. Mér finnst mikilvægara
að hefja kvennastéttirnar upp,
því oft liggur það beinast við fyrir
okkur, sem höfum lengi verið
húsmæður að velja störf þar sem
okkar lífsreynsla nýtist, s.s. í
hjúkrun.
Öll störf eru mikilvæg og þarf að
launa réttlátlega. Þess vegna
verður að koma á því viðhorfi að
uppeldis- og umönnunarstörf séu
verðmætasköpun, rétt eins og’
karlastörfin.
. Svo einhver veruleg breyting
eigi sér stað, verðum við konur
að líta á okkur sem fyrirvinnur og
verða fjárhagslega sjálfstæðar.
Þess vegna verðum við að grípa
til allra þeirra ráða sem tiltæk
eru. Þegar allt um þrýtur eru hóp-
uppsagnir nauðvörn, sem getur
minnt á mikilvægi kvennastarf-
anna.
Að auki verður að efla félags-
lega þjónustu s.s. að auka upp-
byggingu dagvistarheimila, svo
konur verði frjálsari að sinna sín-
um störfum svo og baráttumál-
um, annars stöndum við í stað.
Þá geta konur fremur sótt í að
komast til áhrifa í stéttarfélögun-
um og í samningagerð, en þá
verðalíkakonuraðstyðjakonur. —
Hulda Ólafsdóttir er formaður
Sjúkraliðafélags íslands.
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 10. september 1986