Þjóðviljinn - 10.09.1986, Qupperneq 15
ÍÞRÓTílR
ISLAND
Þjálfari: Sigfried Held.
Fyrirliði: Atli Eðvaldsson.
Varamenn: Stefán Jóhannsson
(2), Guðmundur Þorbjörnsson
(37), Guðni Bergsson (8), Ólafur
Þórðarson (7).
J=
Bjarni Sigurðsson (12)
Gunnar Gislason (22)
Sævar Jónsson (29)
Agúst Már Jónsson (5)
Sigurður Jónsson (7) Atli Eðvaldsson (39)
Ómar Torfason (21)
Ragnar Margeirsson (20)
Arnór Guðjohnsen (20)
Stephane Paiile (0)
Ásgeir Sigurvinsson (35)
Pétur Pétursson (28)
Yannick Stopyra (23)
Bernard Genghini (26) Philippe Vercruysse (6)
Luiz Fernandez (34) Jean Tigana (47)
Basile Boli (1)
Manuel Amoros (40) William Ayache (13)
Patrick Battiston (50)
Joel Bats (29)
Þjálfari: Henri Michel.
Fyrirliði: Patrick Battiston.
Varamenn: Bruno Martini (0),
_ mmmmm m m m mm Juen-Francois Domergue (6),
ERAh Kl Fabrice Poullain (2), Philippe
U Anziani (0), Gerard Buscher (1).
Handbolti
Island-Frakkland
„Fyririiði, 40 og
200 boðar gott!“
Islendingar mœta Evrópumeisturunum á
Laugardalsvellinum kl. 18
Bjarni Sigurðsson ver mark íslands í kvöld. Heldur hann hreinu gegn frönsku
snillingunum eins og hann hefur svo oft gert meö Brann í Noregi í ár? Mynd:
E.ÓI.
„Fertugasti leikurinn, fyrirliði
í fyrsta sinn og afmælisár Reykja-
víkur. Þetta hlýtur allt santan að
boða gott!“ sagði Atli Eðvalds-
son, hinn nýi fyrirliði íslenska
landsliðsins í knattspyrnu í spjalli
við Þjóðviljann í gær.
„Það er alltaf jafngóð stemm-
ing í hópnum, maður hlakkar
alltaf til að koma heim í lands-
leikina og lifir á þeim lengi eftirá.
Það er auðvelt að taka við sem
fyrirliði þegar menn eru svona
samstilltir. Ef það væri jafngóður
andi í atvinnuklúbbunum úti og í
þessum hópi myndu þau ná mikið
lengra," sagði Atli, og það þarf
ekki að fylgjast með landsliðs-
hópnum nema í nokkrar mínút-
ur, innan vallar eða utan, til að
skilja hvað Atli á við. „Það er
langt síðan hópurinn hefur komið
saman hér heima og við erum
staðráðnir í að sýna okkar besta.
Ég á von á fjörugum leik,“ sagði
Arnór Guðjohnsen.
Það er mikill hugur í landsliðs-
strákunum fyrir leikinn við
Frakka í kvöíd. Þetta er fyrsti
leikurinn í Evrópukeppni lands-
liða 1986-88, þriðja riðli, en í
honum leika einnig Sovétríkin,
Austur-Þýskaland og Noregur.
Sigi Held landsliðsþjálfari ís-
lands tilkynnti byrjunarlið sitt í
Sigi Held - fyrsti stórleikur
hans sem landslidsþjálfara er
í kvöld.
gærkvöldi og það sést hér til
vinstri á síðunni. Val hans kemur
ekki á óvart, en það segir kannski
sitt um styrkleika íslenska liðsins
'að einn atvinnumannanna sem
sóttur var í leikinn, Guðmundur
Þorbjörnsson, situr á vara-
mannabekknum.
„Strákarnir eru í baráttuhug og
eru reiðubúnir til að gera sitt
besta. Það er ekki hægt að fara
framá meira. Franska liðið er sig-
urstranglegra í upphafi leiks, það
er geysilega sterkt og margir
leiknir og snjallir leikmenn. Eg
vona að áhorfendur styðji vel við
bakið á okkur, þá getur allt
gerst,“ sagði Sigi Held í samtali
við ÞJóðviljann í gærkvöldi.
Leikurinn hefst kl. 18 á
Laugardalsvellinum. Reiknað er
með miklu fjölmenni, a.m.k. 10-
12 þúsund manns, þannig að það
er eins gott að mæta snemma.
Veðurspáin er eins og best verður
á kosið, bæði lið eru þéttskipuð
snjöllum leikmönnum - það
stefnir allt í eftirminnilegan leik í
Laugardalnum í kvöld. -VS
Henri Michel
„Verðum
í besta
„Þetta er okkar fyrsti leikur í
Evrópukeppninni og hann er
mjög mikilvægur fyrir bæði liðin.
Við stefnum að sjálfsögðu að
sigri, leikurinn verður að vinn-
ast. Islenskir knattspyrnumenn
hafa tekið miklum framförum
síðustu árin og leikurinn verður
örugglega mjög erfiður. Við
verðum að vera í okkar besta
formi til að sigra,“ sgði Henri
Michel, landsliðsþjálfari Frakka,
í gær.
„Island tapaði mjög naumt
fyrir Skotlandi og Spáni í undan-
keppni HM. Þau úrslit voru ó-
sanngjörn og ísland hefði átt
betri úrslit skilin en tölurnar
sýna. Ég hræðist því íslenska liðið
mjög og ég er líka smeykur við
völlinn. Hann er mun verri en
þegar ég lék á honum fyrir 11
árum. Hann er lítill og þröngur
og það háir vafalítið okkar spili.
Við verðum bara að reyna að
venjast aðstæðum.
Ég hef því miður ekki getað
að vera
fonni“
fylgst með íslenska liðinu í ár og
þekki enga leikmann þess nema
Ásgeir Sigurvinsson, sem hefur
getið sér gott orð“, sagði Henri
Michel. _yg
Endurfundir
Bjarni og
Michel
Þeir rifjuðu upp gömul kynni í
gær, Bjarni Felixson íþrótta-
fréttamaður sjónvarpsins og
Henri Michel, landsliðsþjálfari
Frakka í knattspyrnu.
Bjarni var sannfærður um að
hann hefði leikið gegn Michel í
Evrópukeppni meistaraliða árið
1966, með KR gegn Nantes. Og
það kom á daginn, Michel mundi
vel eftir leikjunum. Bjarni var
vinstri bakvörður hjá KR og átti
því að gæta Michels sem var
hægri útherji Nantes.
„Hann var 10 árum yngri en ég,
frískur og erfiður,“ sagði Bjarni.
„Hann vildi lítið ræða um leikinn
á Laugardalsvellinum sem Nant-
es vann 3-2 en þess meira um
leikinn í Nantes sem endaði 5-2!“
-VS
Frakkar
Þorgils Ottar fyrirliði
Island mœtir Vestur-Pýskalandi tvisvar ínæstu viku
„Hefði getað
fengið Platini“
Þorgils Óttar Mathiesen, línu-
maður úr FH, hefur tekið við
stöðu landsliðsfyrirliða í hand-
knattleik af Þorbirni Jenssyni og
mun halda henni a.m.k. framyfir
Ólympíuleikana 1988, að öllu
óbreyttu.
Þorgils Óttar er einn fimmtán
leikmanna sem valdir hafa verið
fyrir tvo landsleiki gegn Vestur-
Þjóðverjum, sem fram fara ytra í
næstu viku. Liðið er þannig
skipað:
Markverðir:
Einar Þorvarðarson, Tres De Mayo
Brynjar Kvaran, KA
Aðrir leikmenn:
Guðmundur Guðmundsson, Víkingi
Jakob Sigurðsson, Val
Bjarni Guðmundsson, Wanne-Eickel
Valdimar Grímsson, Val
Geir Sveinsson, Val
Þorgils Óttar Mathiesen, FH
Hilmar Sigurgíslason, Vikingi
Steinar Birgisson, Kristiansand
Páll Ólafsson, Dusseldorf
Sigurður Sveinsson, Lemgo
Kristján Arason, Gummersbach
Július Jónasson, Val
Héðinn Gilsson, FH
Alfreð Gíslason fékk ekki leyfi
frá Essen vegna undirbúnings
liðsins fyrir Evrópukeppni
meistaraliða. Sigurður Gunnars-
son og Þorbergur Aðalsteinsson
eru meiddir og komast ekki með
af þeim sökum. Bogdan Kow-
alczyck landsliðsþjálfari hefur
dvalið í Póllandi undanfarið en
kemur til móts við liðið í Vestur-
Þýskalandi.
-VS
„Ég hcfði ekki þurft að leggja
mjög hart að Michel Platini til að
fá hann með okkur til íslands,“
sagði Henri Michel, landsliðs-
Getraunir
Einn með 11
Það kom enginn seðill fram
með 12 réttum og aðeins einn með
11 réttum leikjum í 3. leikviku
getrauna, enda voru úrsiitin
furðuleg. Vinningur fyrir 11 rétta
var 665,615 krónur og þar sem um
gráan seðil var að ræða var upp-
hæðin samtals 776,295 kr. Með 10
rétta voru 17 raðir og vinningur
fyrir hverja 16,780 krónur.
þjálfari Frakka, í samtali við
fréttastofu Reuters í gær. Platini
leikur sem kunnugt ekki með
franska liðinu á Laugardalsvell-
inum í kvöld.
Platini heilSaði uppá frönsku
landsliðsmennina á mánudaginn,
áður en þeir lögðu af stað til ís-
lands. Hann segist ekki hafa
lengur neinn metnað til að leika
með franska landsliðinu en sé til-
búinn til aðstoðar ef Michel þurfi
hans með. „En ég leik örugglega
ekki framar í heimsmeistara- eða
Evrópukeppni,“ sagði Platini.
-VS/Reuter
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19