Þjóðviljinn - 23.09.1986, Qupperneq 2
“SPURNINGIN'n
Er vinnutíminn
of langur?
Jóhanna Jónsdóttir
starfsstúlka:
Nei, alls ekki. Hann mætti vera
lengri. Ég vinn 10 tíma á dag fjóra
daga vikunnar og ég vildi gjarnan
vinna meira. Launin eru ágæt en
maður getur alltaf eytt meiru!
Sigurjón Úlfarsson
bílstjóri:
Allt of langur. Á mínum vinnustað
vinna menn til 8 og 10 á kvöldin til
að endar nái saman. Kaupið fyrir
dagvinnuna er einfaldlega of lágt.
Erla Guðnadóttir
verkakona:
Hann mætti alveg vera lengri. Ég
vinna bara frá 8 til 4 og manni bara
leiðist eftir það. Það er alveg eins
gott að vinna eins og að slæpast.
Guðmundur Tómasson
verkamaður:
Hann er nógu langur. Ég vinn
dagvinnuna hér en það dugir eng-
an veginn svo ég er að fara að
skipta um vinnu. Verð að vinna
meira til að geta lifað.
Róbert Jónsson
verkamaður:
Já, en það er vegna þess að
kaupið er of lágt. Maður verður að
vínna næturvinnu öðru hverju til að
það dugl.
______________FRÉTTIR___________
Þroskaheftir
Erum of vemdaðir
Málþing þroskaheftra: Viljum vera meira sjálfráða.
þeim að hjálpa sér sjálf“, sagði
Landssamtökin Þroskahjálp
stóðu um helgina fyrir mál-
þingi fyrir þroskahefta í Hvera-
gerði. Það stóð í tvo daga og þátt-
takendur voru 15 auk 5
leiðbeinenda.
„Markmið málþingsins er að
efla og styrkja þroskahefta til að
tala sínu máli sjálf, gera þau með-
vituð um sína fötlun og hjálpa
Halldóra Sigurgeirsdóttir hjá
Landssamtökum Þroskahjálpar.
„Málþing þetta tengist starfshóp-
um á vegum Þroskahjálpar sem
starfað hafa í fundaformi. Þar er
þroskaheftum léiðbeint í sama
skyni.
Niðurstöður málþingsins um
helgina voru einkum þær að
þroskaheftum finnst þeir of
verndaðir, þeir vilja fá að ráða
sér meira sjálfir. Þeir töluðu
mikið um neikvæð viðbrögð
fólks, finnst að litið sé niður á þá
vegna þess að þeir eru þroska-
heftir. Þetta brann mikið á þeim
og mér finnst sorglegt til þess að
vita að við séum ekki meiri mann-
eskjur en það að við getum ekki
umgengist þroskahefta eðlilega",
sagði Halldóra.
„Þeim finnst þau vanta sama-
stað til að koma saman á og geta
boðið öðrum til sín, en vilja ekki
sífellt vera þau sem er boðið ann-
að. Við leggjum áherslu á að
þetta starf haldi áfram og hug-
myndin er að næsta ár sjái
þroskaheftir algerlega um mál-
þingið.
-GH
Kópavogur
Deilt um fóstrulaun
Kjaranefndfóstra: Erum á lægri launum enfóstrur íReykjavík. Björn
Þorsteinsson, bœjarritari: Ýmis ákvæði hækka launin.
Þjó ð viljaafmæli
Ljoð-
skáld
lesa
Fimmtán skáld
lesa í Hlaðvarpan-
um á miðviku-
dagskvöld
Það er skammt stórra högga á
milli í afmælishátíðarhaldi
Þjóðviljans. Aðeins þrír dagar
líða frá glæsilegri dagskrá um Jó-
hannes úr Kötlum til þess að
fimmtán Ijóðskáld troða upp á
Þorsteinn frá Hamri.
Ijóðadagskrá sem Þjóðviljinn
gengst fyrir í tilefni fimmtíu ára
afmælis. I þeim hópi eru mörg af
helstu Ijóðskáldum landsins.
Þetta ljóðakvöld Þjóðviljans
verður í Hlaðvarpanum á
miðvikudagskvöldið og hefst
lesturinn klukkan 20. Þau skáld
sem þegar er öruggt að mæti til
Vilborg Dagbjartsdóttir.
lestrar eru Vilborg Dagbjarts-
dóttir, GyrðirElíasson, Bragi Ól-
afsson, Vigdís Grímsdóttir, Jón
úr Vör, Elías Mar, Nína Björk
Árnadóttir, Ólafur Haukur
Símonarson, Ingibjörg Haralds-
dóttir, Kristinn Freyr, Sjón, Þor-
steinn frá Hamri og Þóra Jóns-
dóttir. Ennfremur mun Geirlaug
Sjón.
Þorvaldsdóttir lesa úr verkum
Þuríðar Guðmundsdóttur.
Eins og sjá má góð blanda
virðulegra góðskálda og einnig
obbinn af vonarpeningi ljóðlistar
á íslandi. Með ljóðunum í Hlað-
varpanum geta menn einnig feng-
ið léttar veitingar og byrja herleg-
heitin klukkan átta. -pv.
Fóstrur í Kópavogi eru ekki
betur launaðar en fóstrur í
Reykjavík segir í bréfi frá kjara-
nefnd fóstra í Kópavogi. Þar segir
meðal annars. „Vegna viðtals við
Kristján Guðmundsson bæjar-
stjóra Kópavogs í Þjóðviljanum
ó.september s.l. langar okkur að
koma eftirfarandi á framfæri:
Við viljum byrja á því að lýsa
ánægju okkar yfir þeim ummæl-
um sem starf á dagvistarheimil-
um fær í umræddu viðtali og
þeirri viðurkenningu að gerð sé
krafa um að tvær fóstrur og einn
starfsmaður starfi á hverri deild.
En við viljum leiðrétta þann mis-
skilning sem fram kemur í viðtal-
inu að fóstrur hjá Kópavogsbæ
séu betur launaðar en hjá Reykja-
víkurborg“.
Máli sínu til stuðnings senda
fóstrur Kópavogsbæjar saman-
burðartöflu um grunnröðun
starfa á dagvistunarstofnunum
samkvæmt sérkjarasamningum
frá 1.9. 1986. Þar kemur fram
m.a. að byrjunarlaun fóstra í
Kópavogi eru 1-2 launaflokkum
lægri en fóstra í Reykjavík og í
nágrannasveitarfélögum og 4
flokkum lægri en fóstra á Akur-
eyri.
Þjóðviljinn hafði samband við
Björn Þorsteinsson, bæjarritara í
Kópavogi og spurði hann út í
málið. „Kjaranefndin segir ekki
nema hálfa söguna í bréfi sínu.
Þær voru settar í sama flokk og
fóstrur í Reykjavík samkvæmt
kjarasamningum, en þar á ofan
hafa þær fengið ýmis sérkjör. Frá
l.des. 1984 hafa þær hækkað um
einn flokk og að auki fá þær einn
launaflokk út á námið, þannig að
þær byrja a.m.k. tveimur flokk-
um hærra en þær halda fram í
bréfinu (sbr. grein 31 og 23 í
kjarasamningum). Þærsleppa að
geta um þessi sérákvæði sem eru í
raun falin grunnkaupshækkun.
Flestar fóstrur hér eru í 63
flokki. Innan hvers flokks er síð-
an raðað í þrep eftir starfsaldri
sem fer hratt upp. Laun í 63
flokki eru 27.240 og í 8. þrepi
sama flokks eru þau 37.070. Það
er undantekning ef starfsfólk er í
tveimur lægstu þrepum flokks-
ins“.
-Ber á skorti á fóstrum í Kópa-
vogi?
„Við höfum ekki þurft að
kvarta yfir skorti. Við reynum að
hafa sem flestar fóstrur í deild,
þannig að á móti hverri ófag-
lærðri starfsstúlku séu tvær fóstr-
ur. En fóstrur eru óánægðar með
laun og fjöldauppsagnir myndu
bitna illa á okkur vegna þess að
hlutfall þeirra á dagvistarheimil-
unum er stórt og mun stærra en
t.d. í Reykjavík", sagði Björn
Þorsteinsson bæjarritari í Kópa-
vogi.
-GH
Skákin
Karpoff vann
Karpoff saxar áforskot Kasparoff. Aðeins einn vinningur skilurþá að nú
Það reyndist svo að biðstaðan
úr 18. skák heimsmeistaraeinvíg-
isins var unnin á svart. Karpoff
tefldi úr stöðunni af nákvæmni og
gaf Kasparoff engin færi á að
koma skipan á stöðu sinna
manna. Eftir 58. leik gafst Kaspa-
roff upp. Hann hefur nú 9Vi vinn-
ing en Karpoff 8‘/2. Þessir tveir
sigrar Karpoffs hleypa nokkurri
spennu í einvígið á ný því flestir
voru búnir að afskrifa hann. Það
er þó hæpið að honum takist að
sigra í einvíginu því til þess þarf
hann að vinna tvær skákir í viðbót
og aðeins eftir að tefla sex.
,________________
jon
TORFASON
1
I I
i &
£2 i #
m í v
m ii®ii
m ■ m !H li§
Hvítt: Kasparoff
Svart: Karpoff
41. Hh4 - Hg-d8
42. c4 - Hdl+
43. Ke2 - Hcl
44. a6 - Hc2+
45. Kel - Ha2
Hvítur getur með engu móti
komið kóngshróknum í leikinn.
Eina von hans er bundin frípeð-
unum en svartur stöðvar þau og
vefur jafnframt mátnet um hvíta
kónginn.
46. Hb6 - Hd3
47. c5 - Hal+
48. Ke2 - Ha2+
49. Kel - g3
50. fxg3 - Hxg3
51. Kfl - ...
Ef 51. Hh2 He3+ 52. Kfl Hd3
53. Bel Hdl og biskupinn fellur.
Ef hins vegar 52. Kdl Hd3+ 53.
Kcl e3 með hótuninni e2 og Hdl
mát.
51. ... - Hgxg2
52. Bel - Hg-c2
53. c6 - Hal
Hótar Hc-cl og biskupinn fell-
ur. Hvítur á óhægt með að valda
hann.
54. Hh3 - f4
55. Hb4 - Kf5
56. Hb5+ - e5
57. Ha5 - Hdl
58. a7 - e3
Hvítur gafst upp vegna hótun-
arinnar Hf2+ og Hxel mát.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN