Þjóðviljinn - 23.09.1986, Qupperneq 5
Erlingur Gíslason
Bríet Héðinsdóttir
María Sigurðardóttir
Inga Backman
Afmœli Þjóðviljans
„Þessa dagskrá verður að
endurtaka hið bráðasta og
reyndar ætti sjónvarpið að taka
hana upp,“ sagði stórhrifinn gest-
ur í Gerðubergi á sunnudag, en
þar var flutt hátíðadagskrá um
Jóhannes úr Kötlum í tilefni 50
ára afmælis Þjóðviljans, sem nú
er minnst með ýmsu móti þessa
dagana.
Og úr því að þessi ánægði gest-
ur fór fram á að dagskráin yrði
endurtekin má gera ráð fyrir að
fleiri séu sama sinnis, því margir
misstu af hátíðinni vegna þess
fjölmennis sem var samankomið í
Gerðubergi. Því miður urðu
margir frá að hverfa og aðrir
gerðu sér að góðu að sitja á gólf-
inu eða stóðu jafnvel frammi á
gangi, enda varð aðsókn mun
meiri en menn höfðu gert ráð
fyrir á þessum síðustu og svæsn-
ustu fjölmiðlatímum.
Dagskráin „Ljóðasmiðurinn
síungi", sem fékk svona góðar
viðtökur var í umsjá þeirra
leikkvennanna Bríetar Héðins-
dóttur og Maríu Sigurðardóttur,
en auk þeirra lásu leikararnir Er-
lingur Gíslason og Jóhann Sig-
urðarson úr ljóðum skáldsins og
verkum.
Háskólakórinn söng lög úr Sól-
eyjarkvæði í útsetningu og undir
stjórn Árna Harðarsonar. Einnig
söng Inga Backman nokkur lög
Hvert sæti var skipað í salnum og allmargir urðu frá að hverfa, þegar fólk á öllum aldri kom saman í Gerðubergi til að hlýða á dagskrá þeirra Bríetar Héðins
dóttur og Maríu Sigurðardóttur úr verkum Jóhannesar skálds úr Kötlum. (Myndir Sig)
jpp '* # P AAZ. $ ■■M’A m ImL ■gfffr ss #1» .' 4 JP >
f .v m ííJl!!i AAkÆf % > Á
.ajBI, J- H W \ h A í i * S. '
við ljóð Jóhannesar, við undir-
leik Þórhildar Björnsdóttur, þar
á meðal lag eftir Arnmund Bac-
kman, sem fyrrum átti sæti í út-
gáfustjórn Þjóðviljans.
Umsjónarmönnum hátíðar-
innar og þeim sem fram komu var
vel og innilega fagnað af gestun-
um sem áttu ljúfa stund með Jó-
hannesi úr Kötlum, ljóðasmiðn-
um síunga.
-Þráinn
Háskólakórinn flutti Sóleyjarkvæði.
Jóhann Sigurðarson
Þriðjudagur 23. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5