Þjóðviljinn - 23.09.1986, Síða 11
Stærsta opna mótið
Hermann Lárusson og ísak
Orn Sigurðsson urðu sigurvegar-
ar á Opna afmæiismótinu sem
Þjóðviljinn gekkst fyrir sl. laug-
ardag, í tilefni 50 ára afmælis
blaðsins.
Jafnir þeim Hermanni og ísak
að stigum, urðu Jörundur Þórð-
arson og Hjálmar S. Pálsson, en
það par sem fleiri stig hafði eftir
fyrri umferðina taldist ofar.
Þetta Opna mót er sennilega
stærsta bridgemótið í tvímenn-
ing, sem haldið hefur verið hér á
landi (í Reykjavík) frá upphafi.
Alls tóku 62 pör þátt í mótinu.
Spilað var eftir Mitchell-
fyrirkomulagi, alls 60 spil í tölvu-
útreikningi. Keppnisstjóri var
Ólafur Lárusson en Vigfús Páls-
son annaðist útreikning.
Sigurvegararnir hlutu svo ferð
til Kaupmannahafnar/Salzburg,
að vali með Samvinnuferðum/
Landsýn. Alls voru veitt sjö verð-
laun í mótinu, auk þess sem spil-
að var um silfurstig.
Röð efstu para varð annars
þessi:
1. Hermann Lárusson - ísak Örn
Sigurðsson 973 stig
2. Hjálmar S. Pálsson-Jörundur
Þórðarson 973 stig
3. Gissur Ingólfsson - Helgi Ing-
varsson 962 stig
4. Rúnar Magnússon - Stefán
Pálsson 956 stig
5. Kristján Blöndal - Valur Sig-
urðsson 948 stig
6. Hjalti Elíasson - Hörður Arn-
þórsson 937 stig
7. Sigfús Örn Arnason - Svavar
Björnsson 936 stig
8. Ingvar Hauksson - Sverrir
Kristinsson 927 stig
9. Haukur Hannesson - Ragnar
Björnsson 922 stig
10. Júlíus Snorrason - Sigurður
Sigurjónsson 921 stig.
ól.
Sigurvegarar: T.v. fsak örn Sigurðsson. T.h. Hermann Lárusson.
Á afinað hundr-
að þátttakendur
á afmœlisbridge-
móti Þjóðvilj-
ans. Hermann
Lárusson og
Isak Orn Sig-
urðsson urðu í
efsta sœti.
Spllalok. Á myndinni má þekkja m.a.: Sverri Kristinsson, Gissur Ingólfsson,
Hjálmar S. Pálsson, Valgarð Blöndal og Ragnar Magnússon.
Bridgemót Þjóðviljans
Anton R. Gunnarsson, Val Sigurðsson, Rúnar Magnússon, Júlíus Snorrason,
FORVITNAST UM FÓLK
Slökkviliðið
Eldljós og
slysaljós
Eldvarnarfrœðslafyrir 9 ára börn
Kjartan, Magnús, Eva og Arna voru svo sannarlega galvösk í eldvarnarfræðslunni hjá Slökkviliðinu. Enda búin að læra
heilmikið um hvernig á að hafa eldvarnir á heimilum og ákveðin í að laga það þar sem þarf. Ljósm. Sig.
„Svona fer fyrir krökkum sem
fara með cldspýtur í skemmti-
ferð“, segir einkennisklæddur
slökkviliðsmaður frammi fyrir
hóp af áhugasömum krökkum.
Hann hcldur á mynd sem sýnir
fólk vera að berjast við eld í
kjarri. Við erum stödd á Slökkvi-
stöðinni í eldvarnarfræðslu sem
fer fram þessa viku fyrir 9 ára
börn.
Það eru ótal hendur á lofti, því
allir vilja segja frá reynslu sinni af
eldi. Einn hafði t.d. verið nálægt
kerti og gleymt sér, beygt sig
fram og samstundis kviknaði í
hárinu.. -Já það er betra að gæta
sín nálægt eldinum, segir slökkvi-
liðsmaðurinn, Sigurður Ágúst
Sigurðsson.
„Við tökum á móti 9 ára börn-
um grunnskólanna þessa viku.
Strætisvagn sækir þau og keyrir
þau hingað og síðan aftur í
skólann. Hér förum við í gegnum
starfsemi slökkviliðsins, sýnum
hvernig við förum í brunaútköll
og t.d. hve alvarlegt það er að
plata slökkviliðið. Við sýnum
tækin sem notuð eru s.s. hjálma,
eldgalla, slöngur og þ.u.l. Áð því
loknu horfum við saman á And-
rés önd þar sem hann lærir um
eldvarnir, og spjöllum saman um
myndina. Þau fá síðan spurninga-
lista í hendur sem þau fara með
heim og kanna ástandið hvað
snertir eldvarnir. Listana á síðan
að senda hingað til okkar, útfyllta
og við sendum viðurkenningar-
skjal til baka. Lokaþáttur fræðsl-
unnar fer síðan fram hér úti í
porti þar sem við kveikjum eld og
sýnum hvernig á að bera sig að
við notkun slökkvitækja“, segir
Sigurður Ágúst.
Hópurinn sem var í heimsókn
var 3. bekkur úr Laugarnesskóla.
„Við sáum mynd á námskeiðinu
og lærðum um slökkvibílana og
sírenurnar og ljósin í húsinu..“
-Ljósin í húsinu?
„Já, það kvikna nefnilega alls
konar ljós hérna í slökkvistöðinni
svo mennirnir viti hvað er um að
vera og viti hvað þeir eiga að
gera. Það geta verið símaljós,
eldljós eða slysaljós“. í sama bili
kviknar ljós og allir hafa á hreinu
að það er símaljósið.
„Við lærum hvernig ekki á að
slökkva eld..“
-Ha, ekki?
„Já ef maður ætlar að slökkva
eld í logandi feiti má ekki nota
vatn því þá skvettist feitin út um
allt. Maður á að nota teppi til
þess. Svo sáum við hvernig á að
nota slökkvitæki".
Krakkarnir sem við töluðum
við heita Magnús Þór Magnús-
son, Kjartan Marinó Kjartans-
son, Arna Björk Kristinsdóttir og
Eva Þorsteinsdóttir og þau ætl-
uðu svo sannarlega að athuga
hvort allt væri í lagi heima með
reykskynjarann, slökkvitækin og
allt það. Hjá sumum var allt pott-
þétt, reyndar. „Pabbi minn er
nefnilega slökkviliðsmaður“,
segir Kjartan svolítið rogginn.
„Það er allt í lagi heima og meira
að segja erum við með slökkvi-
tæki í bflnurn". Magnús var
eitthvað í vafa og sagði að það
vantaði slökkvitæki og
reykskynjara heima hjá sér. I
sama streng tóku Arna og Eva.
En því verður örugglega kippt í
lag á næstunni.
Þau voru öll sammála um að
þau hefðu lært mikið hjá Slökkvi-
liðinu. Og þrjú þeirra sögðust
ætla að verða slökkviliðsmenn
þegar þau verða stór, en Arna
Björk sagðist ætla að verða tölvu-
fræðingur eða lögfræðingur.
-GH
Þrlðjudagur 23. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15