Þjóðviljinn - 08.10.1986, Page 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
október
1986
miðviku-
dagur
228. tölublað 51. örgangur
MENNING
ÍÞRÓTTIR
HEIMURINN
Friðarhreyfingar
FNBARHJNDUR
Stöð tvö
Páll stólar
á fimm
mínútur
Þeir á Stöð tvö hafa ákveðið að
hefja fréttatíma sinn fimm mínút-
um áður en fréttir hcijast í RÚV-
sjónvarpi, eða fimm mínútum
fyrir hálf átta.
Stöð tvö hefst klukkan 19.20 á
morgun með ávarpi sjón-
varpsstjórans, Jóns Óttars Ragn-
arssonar. Síðan koma fréttir,
bein útsending frá Keflavíkur-
flugvelli þegar Reagan stígur útúr
flugvélinni, framhaldsþáttur og
kvikmynd. Fyrstu dagana sendir
Stöð tvö dagskrá sína út ótrufl-
aða. -m
Vídeóleigurnar
Erum
skíthræddir
„Við erum skíthræddir og get-
um lítið annað gert en beðið
átekta“, sagði Birgir Lárusson
verslunarstjóri hjá Vídeóhöllinni
þegar Þjóðviljinn leitaði álits á
því hvernig vídeóleigurnar ætl-
uðu að bregðast við samkeppn-
inni frá Stöð 2.
Birgir sagði að líklega myndu
leigurnar lækka verð á spólum
vegna þessa. Hjá Snævarsvídeói
sagði verslunarstjórinn Pálmi
fvarsson, að höggið yrði rosalegt
til að byrja með en svo færi bólan
að hjaðna. „Ég held að þessi
sjónvarpsstöð lifi ekki út árið“.
Samstarfshópur friðarhreyfinga með friðarstund á
Lœkjartorgi. Stjórnmálaflokkarnir á Akranesi með
samskonar athöfn á sama tíma. Kirkjunnar menn áberandi
Samstarfshópur íslenskra
friðarhreyfínga hefur ákveðið
að standa fyrir friðarstund á
Lækjartorgi til að minna á friðar-
vilja almennings. I gær var
áformað að halda fundinn á
föstudagskvöldið, en einnig var
mögulegt að það drægist fram á
laugardagsmorgun.
Hólmfríður Árnadóttir, sem
unnið hefur að skipulagningu
sagði í samtali við Þjóðviljann í
gær að lögð yrði áhersla á að hafa
athöfnina einfalda og stutta.
Verði hún á föstudagskvöldið
mun fólk halda kyndlum á lofti.
Pétur Sigurgeirsson biskup mun
halda aðalávarp kvöldsins og
Helga Bachmann flytur ávarp
fyrir hönd friðarhreyfinga. Þá
mun Bríet Héðinsdóttir flytja
ljóð eftir Jóhannes úr Kötlum og
Módettukórinn syngur. Hólm-
fríður sagðist í gær vilja hvetja
alla til þess að taka þátr í þessari
athöfn og þá sem ekki komast
niður á torg til að setja kertaljós
út í glugga hjá sér.
Stjórnmálaflokkarnir á Akra-
nesi munu standa fyrir samskon-
ar athöfn á sama tíma og
hreyfingarnar í Reykjavík. Að
sögn Garðars Norðdahl for-
manns Abl. á Akranesi flytur
Björn Jónsson sóknarprestur
ávarp þá um kvöldið, kirkjukór-
inn syngur og eitthvað fleira
verður þar á dagskrá. Samstaða
náðist um það í gærkvöldi að
friðarstund á Akranesi yrði aug-
lýst í nafni allra stjórnmálaflokka
sem þar starfa.
Gera má ráð fyrir að athöfnin á
Lækjartorgi muni vekja athygli
um alla heimsbyggðina. Allur sá
fréttamannaskari sem staddur er fyrir stafni þá um kvöldið en að að flytja fréttir af honum til síns
hér á landi mun fátt annað hafa fylgjast með fundinum og hlýtur heima. Atg
Álafi
OSS
Leiðtogarnir
fá lopapeysur
Álafoss lœtur handprjóna
peysur ú Gorbatsjofog
Reagan. Framleiðir að auki
500peysur vegnafundarins.
Fer í verslanir í dag
ú í dag fara í verslanir 500
lopapeysur frá Alafossi, sem
hafa verið framleiddar gagngert
vegna lciðtogafundarins um helg-
ina. Framan á þessum pcysum
eru myndir af þeim Gorbatsjof og
Reagan. Auk þess er verið að
handprjóna fyrir Álafoss peysur á
leiðtogana sjálfa, sem verða af-
hentar þeim við hentugt tækifæri,
það er að segja ef það býðst.
María Hjaltadóttir sölustjóri
hjá Álafossi sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær að ákveðið
hefði verið sl. föstudag að fara út
í þessa framleiðslu vegna leiðtog-
afundarins og peysurnar hannað-
ar með það sama. Peysurnar
verða sendar í verslanir víða um
borgina. María sagði þær myndu
kosta 900 krónur í heildsölu,
þannig að verð þeirra út úr búð
verður að öllum líkindum um
2000 krónur, ekki svo lítil álagn-
ing það.
En Álafoss er ekki eitt urn að
tengja framleiðslu sína við
leiðtogafundinn. Ýmsir aðilar
hafa framleitt hvers kyns vöru
sem minnir á þennan stórviðburð
í Reykjavík. gjá SÍðu 3 "**
Horfðu í austur/ horfðu í vestur/ horfðu á þann sem þér þykir bestur. María Hjaltadóttir hjá Álafossi sýnir leiðtogalopa-
peysuna. (Mynd Sig.).
Fundurinn
Joan
Baez
kemur
Bandaríska söngkonan Joan
Baez kemur hingað til lands í til-
efni af fundi þeirra Reagans for-
seta og Gorbatsjofs aðalritara.
Baez, sem þekkt er að baráttu
sinni fyrir friði í heiminum heldur
líklega tónleika í Reykjavík á
föstudagskvöldið ef húsnæði fæst
undir þá. Einnig er mögulegt að
hún komi fram á skemmtun í
Gamla bíói á laugardagskvöldið.
-gg
A F0STUDAGINN
Krataþingið
Jón of hægrisinnaður
Fjöldi Alþýðuflokksmanna hef-
ur kosið Alþýðubandalagið i
síðustu kosningum vegna þess að
þeim geðjast ekki að framkomu
Jóns Baldvins, telja hann of hægri
sinnaðan, og ég er viss um að
þetta fólk vill miklu frekar vinna
með Alþýðubandalaginu heldur
en Jóni, segir Svavar Gestsson
formaður Alþýðubandalagsins
m.a. í viðtali við Þjóðviljann um
niðurstöður flokksþings Alþýð-
ufíokksins og mögulegt samstarf
A-flokkanna sem birt er í blaðinu
í dag.
Svavar segir að margendur-
teknar yfirlýsingar Jóns Baldvins
um að verkalýðsleiðtogar úr Al-
þýðubandalaginu séu á leið í Al-
þýðuflokkinn séu ekki annað en
venjuleg kokhreysti í Jóni sem
hann sé þekktur fyrir. „Ég get í.
þessum efnum sagt það nákvæm-
legasamameðöfugum formerkj-
um og Jón er að reyna að gera.
Ég er hins vegar ekki sá ódrengur
í garð þessa fólks að ég sé að
hengja það í fjölmiðlum“, segir
Svavar.
-Jg-
Sjá bls. 3
-K.Ol.