Þjóðviljinn - 08.10.1986, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 08.10.1986, Blaðsíða 14
VIDHORF Hverjir skríða saman? Það má ugglaust til sanns vegar færa, að leiðtogafundur risaveld- anna geti orðið efnalegur bú- hnykkur fyrir ýmsa íslenska sölu- menn og atvinnurekendur í bráð og lengd. Þessu veldur sá aragrúi fréttamanna úr öllum heimi, sem flykkist hingað og hlýtur að kynna nafn landsins. Líklega verður enn auðveldara en áður að selja fiskinn og fegurð lands- ins. Og kannski verður loks hægt að selja besta lambakjöt í heimi á sannvirði. Þá væri það blátt áfram tilgerð að afneita því, að maður hafi dá- lítið gaman af öllu tilstandinu. Og alltaf vonar maður ósjálfrátt, að blessað landið okkar sýni nú eitthvað af sínum betri hliðum. Rétt einsog menn vilja síður að börnin þeirra séu óþekk og illa til fara, þegar gestir koma. En menn skulu fyrir alla muni ekki ganga fram í þeirri dul, að fundur pótintátanna verði til að draga úr fjársóun til vígbúnaðar eða stuðla að sjálfsákvörðunar- rétti smáþjóða. Til þess þyrfti blátt áfram að breyta um efna- hagskerfi í Bandaríkjunum og stjórnkerfi í Sovétríkjunum. Og slíkt er vitaskuld ekki á dagskrá. Að vísu mundi Gorbatsjoff óska þess að geta létt drápsklyfj- um vígbúnaðar að einhverju leyti af hinu staðnaða sovéska efna- hagskerfi án þess að þurfa í hinu minnsta að slaka á heljartökum Sovétríkjanna á leppríkjum þeirra frá Afganistan til Tékkó- slóvakíu. Og hann virðist svo glámskyggn að halda, að um þetta sé unnt að semja persónu- lega við forseta Bandaríkjanna. Árni Björnsson skrifar „En menn skulufyrir alla muni ekki gangafram íþeirri dul, aðfundur pótintátanna verði til að draga úr fjársóun til vígbúnaðar eða stuðla að sjálfsákvörðunarrétti smáþjóða. Til þess þyrfti bláttáfram að breyta um efnahagskerfi í Bandaríkjunum og stjórnkerfi íSovétríkjunum. Ogslíkter vitaskuld ekki á dagskrá. “ Reagan kemur hinsvegar til fundarins af því að slá þarf ryki í augu bandarískra kjósenda í haust. Þeir tiltölulega fáu skatt- greiðendur, sem á annað borð neyta atkvæðisréttar þar í landi, þykjast auðvitað sligaðir af út- gjöldum til vígbúnaðar og vilja minnka hann. Fulltrúar vopna- framleiðenda í öldungadeildinni þurfa því framyfir kosningar og láta svo sem dregið verði úr þess- um útgjöldum. En æðsti talsmað- ur þeirra er Reagan. Til mála- mynda verður e.t.v samið um að fækka - í bili - einhverjum teg- undum elflauga, sem þegar hafa verið settar upp. Ef kosningar verða svo nægar átyllur til að magna vígbúnaðarframkvæmdir á ný og setja upp nýjar eldflaugar í stað hinna - framundir þarnæstu kosningar. Á sama hátt verður haldið áfram yfirgangi í garð smá- ríkja einsog Granada og Níkarag- úa. Talsmenn Bandaríkjastjórn- SJÚKRAHÚS SKAGFIRÐINGA SAUÐÁRKRÓKI óskar eftir að ráða eftirtalið starfsfólk. 1. Hjúkrunarfræðing nú þegar á nýja hjúkrunar- og ellideild. 2. Hjúkrunarfræðinga - 2 stöður - á sjúkradeild frá 1. jan. 1987. 3. Sjúkraliða nú þegar og frá 1. jan. 1987. 4. Röntgentækni í 50% stöðu á nýja og vel út- búna röntgendeild, frá 1. des. 1986. Allar nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri á staðnum í síma 95-5270. Blaðbera vantar Jakasel Jórusel Jöklasel Kaldasel Jaðrasel Kambasel Kleifarsel Klyfjasel Kögursel Langagerði DJÓÐVIUINN Sími 681333 ar eru m.a.s. svo hreinskilnir nú þegar að ítreka, að þeir séu „ekki bjartsýnir á varanlega lausn“. Út úr þessum fundi kemur því varla annað en ný staðfesting á „friðsamlegri" skiptingu heimsins í áhrifasvæði milli risa- veldanna. Og það er ekkert til- hlökkunarefni fyrir smáþjóðir eða aðra þá, sem berjast fyrir sjálfstæði sínu og frjálsræði og vilja losna við óværu vígbúnaðar- ins ásamt lífshættunni, sem af honum stafar. Það var í rauninni ósköp eðli- leg ítrekun á þessari samtrygg- ingu risaveldanna, sem hrökk útúr utanríkisráðherra Sovétríkj- anna á dögunum. Hann taldi ís- land góðan fundarstað, af því hér væri svo öflug bandarísk herstöð. Svona á þetta að vera, hugsa þessir pótintátar: Þið hér; við þar. Ef þetta er réttur skilningur, yrði með góðri samvisku hægt að fyrirgefa fósturjörðinni, þótt hún léti napurt næða um þá, sem vilja níða brjóst hennar með morð- virkjum líkt og Jakobína Sigurð- ardóttir sagði í ákvæðaljóði fyrir meira en þrem áratugum. Láttu. fóstra, napurt um þá nceða norðanélin þín, fjörudrauga og fornar vofur hræða. Feigum villtu sýn þeim sem vilja virkjum morðsins níða vammlaust brjóstið þitt. Sýni þeim hver örlög böðuls bíða bernskuríkið mitt. Hinir gleyn eftur Ágúst Vigfússon idu „Það er ekki hœgt að bera á mótiþvíað hér er mjög vangert við hina umkomuminnstu. Ríkriþjóð er til minnkunar og vanvirðu að búaþannig að allsleysingjum“. spyffi 'njt j'i Undanfarið hefur mikið verið rætt um góðærið, sem þeir vfsu menn segja að sé í okkar kæra landi. Þjóðviljinn eitt blaða hefur dregið í efa að hér sé almennt góðæri. Góðæri hverra? Ekki skal í efa dregið að ýmsir bro- ddborgarar og söluspekulantar hafa bætt stöðu sína. En svo eru þeir líka til og ekki svo fáir, sem lifa við svo ömurleg kjör og þröngan kost að með fádæmum má telja. En á þennan hóp er aldrei minnst. Ég á hér við ör- yrkja og gamalmenni, - eigna- laust fólk. Ég heyrði nýlega öryrkjakonu segja frá því sem henni er skammtað og henni er ætlað að lifa af. Hún fær alls kr. 19.341. Húsaleigu verður hún að greiða til Reykjavíkurborgar kr. 4.300. í hús og hita fara 1.300. Eftir eru þá til daglegra þarfa kr. 13.740. Viljið þið athuga góðir lesendur hvernig hægt er að lifa af þessu. „Ég get ekki sagt,“ sagði konan, „að ég hafi keypt mér flík síð- astliðin tvö ár. Ég hef ekki ráð á að láta gera við skóna mína hvað þá að kaupa mér nýja. Er þetta góðæri? Ég kalla þetta örbirgð." Ég þykist vita að það sé all fjöl- mennur hópur sem þannig er á- statt fyrir, en það er lítið minnst á okkur, við erum hinir gleymdu. Þannig mælti konan sem ég minntisti á. Er þetta ekki ömurlegt, að það skuli geta skeð í allsnægta- þjóðfélagi, að þannig skuli búið að öryrkjum og gamalmennum. Stendur ekki einhversstaðar: „Það sem þér gerið einum af mín- um minnstu bræðrum, það hafið þér mér gert.“ Það er ekki hægt að bera á móti því að hér er mjög vangert við hina umkomu- minnstu. Ríkri þjóð er til minnkunnar og vanvirðu að búa þannig að allsleysingjum. Menn tala um að verðbólgan hafi minnkað. Sjálfsagt er það rétt, en hefur dýrtíðin minnkað? Færðu meira verðmæti fyrir hverja unna klukkustund? Ég er ófróður um allar fræði- legar útskýringar, það er kannski þess vegna sem mér er í nöp við tilfinningalitla hagfræðinga. Er verðbólga og dýrtíð ekki það sama? Væri nú ekki athugandi að verkalýðshreyfingin og hinir svokölluðu vinstrisinnar, sem þykjast bera hag hinna umkomu- minnstu fyrir brjósti kveddu sér hljóðs og reyndu að fá einhverjar úrbætur fyrir „hina gleymdu". Ágúst Vigfússon Maðurinn minn og faðir okkar Jóhann J.E. Kúld lést á Borgarspítalanum 7. október. Geirþrúður J. Ásgeirsdóttir Kúld Eiríkur og Helgi Kúld Eiginmaður minn, faðir. tengdafaðir og afi Björn Þorsteinsson fv. prófessor, andaðist á Borgarspítalanum mánudaginn 6. október. Guðrún Guðmundsdóttir Valgerður Björnsdóttir og barnabörn. Agúst Þorgeirsson 14 SÍDA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.