Þjóðviljinn - 08.10.1986, Blaðsíða 16
DlfiBVIUINN I
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Mlðvikudagur 8. október 1986 228. tólublað 51. órgangur-
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Síld
Meira til
Norðurlanda
Samningar hafa tekist um sölu
á 51 þúsund saltsfldartunnum til
Svfþjóðar og Finnlands, og er það
um 15 prósent meira en síðast.
Seldar verða ýmsar tegundir
saltaðrar sfldar, þar á meðal sér-
verkuð flök sem framleidd hafa
verið á vegum Sfldarútvegns-
nefndar.
Samningar við öflugustu salt-
sfldarkaupendurna, Sovétmenn,
hefjast í Reykjavík í dag.
Bandalag
jafnaðarmanna
9489 kjós-
endur án
þingmanns
Framkvæmda- og landsnefnd
Bandalags jafnaðarmanna, -
þeirra sem ekki hafa gengið í aðra
flokka - munu að öllum líkindum
afhenda forseta sameinaðs al-
þingis bréf í dag þarsem fjallað er
um þá stöðu að allir þingmenn af
BJ-Iistum eru komnir í aðra vist.
Þorgils Axelsson, einn stað-
fastra BJ-manna, sagði Þjóðvilj-
anum í gær að verið væri að vinna
að bréfaskriftunum í samráði við
lögspekinga, og yrði erindið tii
þingforseta væntanlega tilbúið í
dag. - Við teljum þetta rangt og
óréttlátt, sagði Þorgils, - við ætl-
um okkur ekki að gerast neinn
hæstiréttur, en viljum að þjóðin
og þingið athugi þetta mál.
Búast má við að BJ-menn
krefjist þess að 9489 kjósendur
BJ 1983 fái fulltrúa á alþingi með
því að varaþingmenn taki sæti
þeirra fjögurra fyrrverandi BJ-
þingmanna sem hyggjast setjast á
þing í vikunni undir öðrum
flokksfánum. -m
Leiðtogafundurinn
Gyðingamir koma
Leiðtogar gyðingasamtakannafá lendingarleyfi, standa við ísex tíma.
Jerry Strober: Náum marhmiðum okkar með þessu
Samkomulag hefur náðst um
það, að hér megi lenda á föstu-
dagsmorgni einkaflugvél frá
Samstarfsnefnd amerískra gyð-
ingasamtaka um málcfni sové-
skra gyðinga. Að líkindum verð-
ur um tugur forystumanna gyð-
ingasamtaka í vélinni.
Hópurinn gerir hér nokkurra
stunda stans, að sögn Jerrys Stro-
bers, talsmanns Samstarfsnefn-
darinnar, sem hefur verið hér
undanfarna daga og unnið að
undirbúningi málsins. Flugvélin
mun lenda um níuleytið og fljúga
vestur aftur kl. 3 síðdegis. Á
meðan munu þátttakendur í ferð
þessari efna til alþjóðlegs blaða-
mannafundar til kynningar á
stöðu sovéskra gyðinga og bar-
áttu sinni fyrir réttindum þeirra.
Jerry Strober hafði á föstudag
lagt inn tilmæli um að hér lenti
flugvél með um fimmtíu manns,
ekki til mótmælaaðgerða, heldur
til að nýta það tækifæri að
heimspressan er hér til að vekja
athygli á málum sovéskra gyð-
inga. Þeirri beiðni var synjað og
Steingrímur Hermannsson við-
hafði umdeild orð um að hann
æskti ekki eftir slíkum gestakom-
um. En í gærmorgun náðist svo
samkomulag við fulltrúa ís-
lenskra stjórnvalda um þetta mál
sem fyrr segir. Jerry Strober
sagði í viðtali við Þjóðviljann að
hann og hans menn væru íslensk-
um stjórnvöldum og þjóðinni
þakklátir fyrir að fá þetta tæki-
færi og teldi hann að mögulegt
yrði með þessari heimsókn að ná
þeim markmiðum sem ætlað var.
Brottfarartíminn á föstudag er
m.a. tengdur því að eftir sólsetur
þann dag gengur í garð ein helsta
hátíð gyðinga, Jom Kippur.
-áb.
Pravda
Kvennaathvarfið
Bubbi
í herferð
Enn á ný ætlar Bubbi Morthens að standa
fyrir fjáröflun fyrir Kvennaathvarfið með tón-
leikum á Akureyri, Selfossi og í Keflavík.
Hljómleikahrinan hefst á morgun með
tveimur tónleikum á Akureyri. Samtímis verða
haldnir tónleikar í Sjálfstæðishúsinu og í Fél-
agsmiðstöðinni Dynheimum og munu tónlista-
mennirnir valsa á milli þessara staða. Að sögn
Viðars Arnarsonar umboðsmanns Bubba að
verður að skipuleggja þessa tónleika uppá mín-
útu svo að allt gangi upp. Auk Bubba skemmta
á tónleikunum Bjarni Tryggvason, Skriðjökl-
arnir, Stuðkompaníið og danskompaníið Alís.
Á föstudag verður Bubbi kominn á Hótel
Selfoss, en þar skemmtir hann ásamt Megasi,
dúett Guðjóns Guðmundssonar og Trinity frá
Selfossi. Á sunnudag verður Bubbi síðan kom-
in til Keflavíkur á síðdegisskemmtun í Félags-
bíóinu og með honum dúett þeirra Guðjóns og
Kristjáns og aðrir keflvískir listamenn.
Að lokum verða Athvarfstónleikar í Há-
skólabíó um aðra helgi.
Ágóði rennur óskiptur til viðgerða á húsi
athvarfsins. „Við erum vitanlega mjög þakk-
látar Bubba fyrir það frumkvæði sem hann hef-
ur haft í fjáröflun til handa Kvennaathvarfinu.
Maður hefði nú haldið að aðrir ættu að telja sér
málið skyldara og leggja til langtímalausnir á
fjárhagsvanda Kvennaathvarfsins" sögðu þær
Áthvarfskonur Guðrún Jónsdóttir og Jenný
Anna Baldursdóttir.
Kvennaathvarfið bíður nú eftir svari frá rík-
Viðar Arnarson umboðsmaður Bubba á heiðurinn af skipulagn- inu vegna umsóknar um 800 þúsund króna
ingu tónleikanna. Hann er hór ásamt fulltrúum Kvennaathvarfs- aukafjárveitingu, sem er sú lágmarksupphæð
ins, Guðrúnu Jónsdóttur (t.v.) og Jenný önnu Baldursdóttur. sem þarf til þess að reka athvarfið út árið.
Mynd Sig. -K.Ól.
Engar æsifréttir
Sovésk blöð hafa lagt áherslu á
mikilvægi fundarins í Reykja-
vík, en ekki verður sagt að þau
hafl sagt fyrstu fréttir af honum
með sérlegum tilþrifum.
Fyrsta fréttin um fundinn kom
á næstöftustu síðu Prövdu þann
annan október. Þar er frétt neð-
arlega á síðu og fyrirsögn er ekki
beinlínis æsispennandi:
„í blaðamannamiðstöð Utan-
ríkisráðuneytis Sovétríkjanna“.
Það er ekki fyrr en lesandinn
fer að rýna í smáletrið að hann
kemst að því, að í blaðamiðstöð-
inni var daginn áður sagt frá fyrir-
huguðum fundi Reagans og Gor-
batsjofs.
Sovésk blöð hafa annars mjög
sérstæða fréttastefnu. Forsíða
þessa dags í Prövdu er lögð undir
frásögn af þingi þeirra sem
stjórna pólitískri og félagslegri
fræðslu í skólum landsins. Þar er
og birt upphaf ræðu sem Gor-
batsjof hélt á því þingi og heldur
hún áfram á næstu tveim síðum
blaðsins. Pravada er sex síður
þennan dag.
-áb.
„í blaðamannamiðstöð Utanríkisráðunéytis Sovétríkjanna".
WE OFFER EXPERTISE
FOREIGN EXCHANGE SERVICES
'
.. ■■■
Branch Offíces in
two major Reykjavík hotels
Hotel Saga Branch
Hotel Esja Branch
BUNAÐARBANKI ISLANDS
The Agricultural Bank of Iceland
Head Office - Austurstræti 5