Þjóðviljinn - 08.10.1986, Blaðsíða 13
HEIMURINN
Danmörkl Leiðtogafundurinn
Friðsam-
legasta
samfélagið
Viðbrögð danskra
fjölmiðla af
leiðtogafundi í Reykjavík
eru m. a. annars á þann
veg að stórveldin geti
skipulagtfundinn eins og
þeim hentar án samráðs
við íslendinga
Frá Gesti Guðmundssyn, fréttaritara Þjóð-
viljans í Kaupmannahöfn:
Danskir fjölmiðlar hafa sagt
mikið frá fyrirhuguðum fundi
Reagans og Gorbatsjofs í Reykja-
vík og ekki minnst haft uppi
margar vangaveltur um staðar-
valið, ástæður þess og afleiðing-
ar.
Flestir hafa bent á landfræði-
lega staðsetningu íslands, miðja
veg milli stórveldanna og einang-
rað frá óboðnum gestum. Þá hafa
nokkrir haldið því fram að í
Reykjavík geti stórveldin skipu-
lagt fundinn eins og þeim hentar
án þess að spyrja leyfis hjá við-
komandi ríkisstjórn íslenska lýð-
veldisins. Einn leiðarahöfundur
beindi þeim frómu óskum til
beggja valdamestu manna heims
að þeir notuðu þetta tækifæri til
að kynnast einu friðsamlegasta
samfélagi heims.
Allir fjölmiðlar hafa leitast við
að segja frá íslensku samfélagi og
í vanþekkingu sinni velta flestir
sér upp úr gömlum klisjum um
verðbólgu, þorsk og kómíska
smæð þjóðarinnar. Þótt vonir
manna séu auðvitað fyrst of
fremst bundnar við árangur
leiðtogafundarins, er kannski að
vænta að innrás blaðamanna til
íslands leiði til vandaðri fréttafl-
utnings þaðan í framtíðinni.
ERLENDAR
FRÉTTIR
hjörlbfsson/REUTER
Flóttamenn
Ríkar þjóðir
verða að
taka ábyrgð
Genf - Háttsettur embættis-
maður hjá Flóttamannahjálp
Sameinuðu Þjóðanna í Genf
sagði í gær að hinar riku iðnað-
arþjóðir yrðu að hætta að líta á
flóttamenn frá Þriðja heims
löndum sem ólöglega innflytj-
endur og öryggishættu, heldur
taka sína ábyrgð á vandamá-
linu.
Jean Pierre Hocke heitir mað-
urinn, hann sagði að fjöldaflutn-
ingar fólks frá vanþróuðum nkj-
um til iðnríkjanna í leit að skjóli
hefðu „riðlað gildandi lögum og
reglum um flóttamenn“. Hocke
sagðist gera sér grein fyrir að ríki
þyrftu að gera greinarmun á
raunverulegum flóttamönnum og
því fólki sem yfirgæfu land sitt,
sér til persónulegra hagsbóta eða
vegna efnahagslegra eða félags-
legra aðstæðna sinna. Hocke
sagði hins vegar að yfirvöld í iðn-
ríkjunum ættu ekki að grípa til
aðgerða sem mismunaði báðum
hópum.
„Flóttamenn og þeir sem leita
hælis í iðnríkjum eiga ekki að
verða fórnarlömb aðgerða sem
ríkisstjórnir taka gegn ólöglegum
mannflutningum eða hótunum
gegn innanlandsöryggi, hversu
réttlætanlegar sem slíkar aðgerð-
ir kunna að sýnast“, sagði Hocke.
Leiðtogafundurinn
Shultz dregur úr vonum
George Shultz dró ígœr úrþvíað árangur íformi samkomulagsyrðiá fundi Reagans og
Gorbatsjofs um næstu helgi, fundi sem nú eryfirleitt nefndur mini-leiðtogafundur
(Mini-Summit). Shultz sagði einnig að mál eins og Afghanistan málið og mannréttindamál
yrðu tekin upp af Reagan
Reykjavík - George Shultz,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, hélt í gær fund með
fréttamönnum í fjórum borg-
um, þar á meðal Reykjavík, í
gegnum gervitungl. Hann dró
þar úr því að samkomulag yrði
gert á fundi þeirra Reagans og
Gorbatsjofs um næstu helgi.
„Við erum ekki að reyna að ná
samkomulagi um eitt né neitt,“,
sagði Shultz, „við erum að reyna
að móta tillögur sem gætu orðið
að sem mestri aðstoð og til
leiðbeiningar fyrir helstu samn-
ingamenn okkar.“
Shultz sagði einnig að Reagan
myndi taka upp ýmis mál önnur
en afvopnunarmál, svo sem
mannréttindamál, Afghanistan-
málið og „Kúbu-
Nicaraguamálið", eins og hann
orðaði það. Hann sagði að lík-
legast til samkomulags síðar meir
væri takmörkun meðaldrægra
kjarnorkuflauga í Evrópu.
Varðandi tilraunabann Sovét-
manna sagði Shultz að Bandarík-
in vildu gjarnan sjá árangur í því
máli en meðan þeir hefðu kjarn-
orkuvopn undir höndum yrðu
þeir að prófa þau. Sovétmenn
leggja hins vegar einna mesta
áherslu á að árangur náist í þessu
máli og mun Gorbatsjof leggja
það fram í viðræðum sínum við
Reagan sem eitt af forgangsmál-
um fundarins.
Nicaragua
Bandaríkin neita aöild
Bandaríkjamenn neituðu ígœr aðflugvél sú sem skotin var niðuryfir Nicaragua,
hefði verið á vegum bandarískra yfirvalda, Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna sagði í gœr að hún hefði verið á vegum einkaaðila
Washington - George Shultz,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna sagði í gær að flugvélin
sem skotin var niður yfir Nicar-
agua í fyrradag hefði verið á
vegum einkaaðila sem væru
ekki í neinum tengslum við
bandarísk yfirvöld. Embættis-
maður bandaríska varnamál-
aráðuneytisins sagði í gær að
flugvélin hefði ekki verið á
vegum bandaríska hersins.
Þessi embættismaður sagði
einnig að sá sem komst af úr
flugvélinni væri ekki banda-
rískur hernaðarráðgjafi í þjón-
ustu sveita sem berjast gegn
ríkisstjórn Nicaragua, eins og
yfirvöld í Nicaragua sögðu í
gærmorgun.
„Hann (sá sem komst lífs af) er
ekki ráðgjafi frá bandaríska varn-
armálaráðuneytinu vegna þess að
að bandarísk lög leyfa ekki að
bandarískar ríkisstofnanir veiti
Contra hreyfingunni stuðning."
Embættismaðurinn vildi ekki láta
nafns síns getið.
Báðar deildir Bandaríkjaþings
hafa samþykkt 100 milljóna að-
stoð til Contra hreyfingarinnar
sem berst gegn Nicaraguastjórn,
þetta frumvarp hefur hins vegar
ekki hlotið endanlega afgreiðslu
og er því ekki orðið að lögum
enn. í þessu frumvarpi er hins
vegar að finna ákvæði sem myndi
leyfa bandarísku leyniþjónust-
unni, CIA að sjá um að koma
hernaðarlegum hluta aðstoðar-
innar til Contra hreyfingarinnar.
Lögin munu hins vegar ekki leyfa
bandaríska loft- eða skipaflutn-
inga inn í Nicaragua.
Yfirvöld í Nicaragua tilkynntu
í fyrradag að hersveit þeirra hefði
skotið niður flugvéi sem var mál-
uð felulitum, líklega C-123 flutn-
ingavél með fjórum Bandaríkja-
mönnum innanborðs. Líklega
hefði hún verið með skotfæri,
handsprengjur og annan vopna-
búnað til stuðnings Contra
hreyfingunni. í tilkynningu Nic-
araguastjórnar í gær sagði, að
maðurinn sem komst af héti Eug-
ene Hafenfuf, 35 ára, og segðist
hann vera hernaðarráðgjafi.
Embættismaður í Nicaragua,
Alejandro Bendano, endurtók í
sjónvarpsviðtali við bandaríska
sjónvarpsstöð í gær að maðurinn
segðist vera hernaðaráðgjafi.
Það þýddi hins vegar ekki endi-
lega að hann væri í þjónustu
bandaríska hersins. Hér hefði
hins vegar greinilega verið um að
ræða aðgerð bandarísku leyni-
þjónustunnar, CIA, með
mönnum í hennar þjónustu,
sagði Bendano.
Frá Gesti Guðmundssyni, fréttaritara Þjóð-
viljans i Kaupmannahöfn:
I gær, 7. október, var danska
þingið sett og um leið voru lögð
fram 11 stjórnarfrumvörp sem
saman ganga undir nafninu kart-
öflukúrinn.
Undanfarna mánuði hefur
greiðslujöfnuður Dana við um-
heiminn gerst æ óhagstæðari.
Betur setti hluti þjóðarinnar hef-
ur eytt tekjuaukningu sinni í lúx-
usneyslu en hinn verr setti hluti
hefur ekki getað skorið neyslu
sína niður til samræmis við kjar-
askerðingar heldur tekið fleiri
neyslulán.
Kartöflukúrnum er ætlað að
vinna gegn greiðsluhallanum við
útlönd. Auknir skattar eru lagðir
á tóbak, áfengi, olíu til húshitun-
ar og fleiri vörur og jafnframt er
mönnum gert að sgreiða sérstök
gjöld af neyslulánum. Áhrif þess-
ara aðgerða á greiðslujöfnuðinn
verða ekki mikil en þetta er í
þriðja sinn á einu ári sem
Schluter og félagar hafa gripið til
samræmdra aðgerða til að draga
úr neyslunni og hefur það jafnan
bitnað mest á láglaunafólki.
í setningarræðu sinni lýsti
Schluter því yfir að stjóm hans
myndi ekki skipta sér af næstu
samningum sem á að vera lokið
fyrir vorið. Vill stjórnin koma í
veg fyrir að laun opinberra starfs-
manna hækki enda er ekki gert
ráð fyrir slíkum hækkunum í
fj árlagafrum varpinu.
Stokkhólmi - Ingvar Carlsson,
forsætisráðherra Svíþjóðar,.
hvatti í gær til þess að deilumál
á sænskum vinnumarkaöi
yrðu til lykta leidd hið fyrsta.
Þá sagði hann einnig að aukin
áhersla yrði lögð á umhverf-
ismál. Carlsson sagði þetta í
ræðu á fyrsta fundi sænska
þingsins á þessu hausti.
Carlsson kynnti þingheimi og
sænsku þjóðinni stefnuskrá
stjórnar sinnar og er þar lögð
mikil áhersla á umhverfismál.
Carlsson boðaði einnig umtals-
verða tekjuaukningu ríkisins en
sagði að það gæti því aðeins gerst
að launadeilur þær sem að und-
anförnu hafa leitt til mikilla verk-
falla og vinnubanna í Svíþjóð,
verði leystar. Um er að ræða
heilbrigðisþjónustuna, farþegafl-
utninga og aðrar mikilvægar
greinar. „Það er mikilvægt“,
sagði Carlsson, „að þessi deila
verði leyst eins fljótt og auðið er,
bæði hvað varðar baráttuna gegn
verðbólgu og þá baráttu að halda
Ingvar Carlsson hélt I gærfyrstu stefnuræðu sína á þingi sem forsætisráðherra
Svíþjóðar.
Svíþjóð
Ahersla á umhverfismál
Sœnskiforsœtisráðherrann, Ingvar Carlsson, sagði ístefnurœðu
stjórnar sinnar á sœnska þinginu ígær, að áhersla yrði lögð á
umhverfismál á næstunni. Einnig hvatti hann tilþess að launadeilur
yrðu leiddar til lykta, mikið vœri íhúfi
uppi og þróa frekar hið opin-
bera.“
Nú eru um það bil 20.000
manns í verkfalli og búist er við
að fleiri bætist í þann hóp sem nú
mætir ekki til vinnu, annað hvort
vegna verkfalls eða vinnubanns
atvinnurekenda. Ríkisstjórnin
heldur því fram að frekari launa-
hækkanir innan ríkisins séu ekki
mögulegar að svo stöddu.
f „Græna pakkanum", svo-
nefnda, þ.e. umhverfismálum, er
um að ræða sérstakt ráðuneyti
umhverfis- og orkumála. Iðnað-
arráðuneytið sænska hefur fram
til þessa séð um þessi mál. Carls-
son tilkynnti einnig áætlun sem
beinist að súru regni og skóga-
dauða sem er orðinn geysimikill
vegna mengunar í andrúmslofti.
Danmörk
Pjóðin sett á kartöflukúr
Miðvlkudagur 8. október 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13