Þjóðviljinn - 30.10.1986, Síða 2
—SPURNINGIN—
Hefurðu trú á nýja hús-
næðiskerfinu?
Jóhannes Bachmann,
bílstjóri:
Já, ég held það. Þetta er framfara-
spor að mínu mati og ég held að þetta
eigi eftir að ganga upp þrátt fyrir ýmsa
byrjunarörðugleika.
Guörún Benjamínsdóttir,
bílstjóri:
Ég hef nú ekki kynnt mér þetta neitt
sórstaklega, en allt sem gert er hlýtur
að verða til bóta, því fyrra kerfi var
alveg ómögulegt.
Ástríöur Jónsdóttir,
sendill hjá HP:
Nei, ég hef enga trú á því. Ég held að
þetta muni ekki nýtast öllum eins og
skyldi. Ég veit ekki einu sinni hvort
það er bót að þessu, því kerfið er
komið í svo mikið rugl að þeir eru
hættir að vita hvað þeir eiga að gera í
þessum málum.
Jóhanna Guðjónsdóttir,
verslunarmaður:
Ég hugsa að þetta verði breyting til
batnaðar, enda ekki vanþörf á því. Ég
hef trú á að þetta gangi upp. Það
verður að gera það.
Ingi Rúnar Jónsson,
nemi:
Já, ég hef það. Það virðist ætla að
verða breyting til batnaðar frá því
sem áður var. Ég hef annars ekki
kynnt mér þetta sérstakiega vel, hef
þó fylgst með umræðunni.
FRÉTTIR
Byggðastofnun
Báknið út) land
Stjórn Byggðastofnunar kannar grundvöllfyrir
stofnun stjórnsýslumiðstöðva á landsbyggðinni
r
Eg vona að þetta verði að veru-
leika í vor og verði þá til þess
að efla þjónustu ýmissa stofnana
við landsbyggðina, en ekki aðeins
til þess að stækka báknið lands-
byggðarbúum að gagnslausu,
sagði Guðmundur Malmquist
framkvæmdastjóri Byggðastofn-
unar í samtali við Þjóðviljann i
gær, en stjórn stofnunarinnar
hefur ákveðið að láta kanna
grundvöllinn fyrir því að koma
upp svo kölluðum
stjórnsýslumiðstöðvum á Akur-
eyri og víðar á landsbyggðinni.
Guðmundur sagði í gær að
kannað yrði hjá ráðuneytunum
hvort stofnanir á þeirra vegum
myndu hugsanlega taka þátt í þvf
ásamt Byggðastofnun að opna
skrifstofur á Akureyri, ísafirði,
Egilsstöðum og jafnvel víðar.
Ráðuneytin hafa ekki svarað
bréfum þar að lútandi, en ýmsar
stofnanir hafa verið nefndar sem
mögulegir samstarfsaðilar
Byggðastofnunar.
Þar á meðal má nefna Húsnæð-
isstofnun, Iðntæknistofnun,
skipulagsstjórn og fleiri. Þessi
hugmynd stjórnar Byggðastofn-
unar spratt upp úr umræðunni
um að flytja stofnunina til Akur-
eyrar, en þeirri tillögu var hafnað
í stjórninni eins og kunnugt er.
Hugsunin er sú eins og Guð-
mundur sagði að færa báknið nær
fólkinu á landsbyggðinni, en
margt er enn óljóst í þessu sam-
bandi og alls óvíst hvort af þessu
verður eða ekki.
-gg
Kópavogur
íhaldið sýndi hug sinn
Fulltrúar Sjálfstœðisflokksins í Kópavogi samþykkir helmings
niðurskurði áframlögum ríkisins til byggingar dagvistarheimila.
Mótmæliþó samþykkt í bœjarstjórn með 7 atkvœðum gegn 4.
Ungtemplarar
Gegn
kúgun í
S-Afríku
r
A28. ársþingi Islenskra ung-
templara sem haldið var ný-
lega var ma. gerð ályktun þar sem
hvatt er til þess að tekið verði
fyrir öll viðskipti við Suður Afr-
íku vegna kúgunarstefnu minni-
hlutastjórnar hvítra þar í landi.
Jafnframt ályktuðu ungtempl-
arar gegn útsölum á áfengi og
auglýsingum ríkisfjölmiðlanna á
þeim. Segir í ályktuninni að á
sama tíma og rætt sé um að draga
úr áfengisneyslu sé efnt til útsölu
á áfengi, og því sé tímabært að
hið opinbera geri upp við sig í
Þessir kátu unglingar voru þingfulltrúar á ársþingi ungtemplara sem haldið var nýlega. Þar var ma. samþykkt nýtt hvorn fótinn það ætlar að stíga í
félagsmerki sem sést á myndinni. þessu máli.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í Kópavogi greiddu
atkvæði gegn ályktun bæjar-
stjórnar þar sem mótmælt var
niðurskurði ríkisins til bygginga
dagvistarheimila. Alyktunin var
samþykkt með 6 atkvæðum Al-
þýðubandalags og Alþýðuflokks
og atkvæði bæjarfulltrúa Fram-
sóknar að auki.
Samþykkt bæjarstjórnar Kóp-
avogs á þriðjudag var staðfesting
á tillögu sem fram hafði komið í
bæjarráði og skýrt hefur verið frá
í Þjóðviljanum. Þar er skorað á
alþingismenn að breyta þeirri
stefnu niðurskurðar á framlögum
til sameiginlegra verkefna ríkis
og sveitarfélaga, sem fram kemur
í fjárlagafrumvarpi sem nú liggur
fyrir alþingi. Sveitastjórnar-
menn, hvar í flokki sem þeir
standa, hafa ávallt mótmælt slík-
um samdrætti og er skemmst að
minnast ályktunar Sambands ísl.
sveitarfélaga í því efni.
Miklar umræður urðu á bæjar-
stjórnarfundinum í Kópavogi.
Rök sjálfstæðismanna voru þau
að óeðlilegt væri að taka einn
niðurskurðarþátt út úr fjárlaga-
frumvarpi og að bæjarfulltrúar
yrðu að gera sér grein fyrir bágri
fjárhagsstöðu ríkisins og að
eitthvað yrði að skera niður.
Meirihlutafulltrúarnir og fulltrúi
Framsóknarflokksins töldu á
hinn bóginn að í þessum niður-
skurði kæmi fram stefna núver-
andi ríkisstjórnar að skera niður
félagslega þjónustu. Svo virtist
sem bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins væru henni sammála.
-v.
Grikklandsvinir
Heimsmynd Fom-Grikkja
Grlkklandsvinafélagið Hellas söguslóðir Grikklands í júnímán-
heldur fund í kvöld kl. 20.3« á uði sl. en fararstjóri ferðarinnar
Hótel Esju, þar sem Þorsteinn skýrir myndirnar.
Vilhjálmsson eðiisfræðingur
flytur fyrirlestur um heimsmynd- Ráðgert er að fara í aðra slíka
ir Forn - Grikkja, en Þorsteinn ferð næsta sumar og af því tilefni
hefur nýlokið við að semja merka heimsækir gríski ferðamálafröm-
bók sem hann nefnir „Heims- uðurinn Basil Nakos félagið og
mynd á hverfanda hveli - Heims- leggur fram tillögur um ferðaá-
sýn vísinda frá öndverðu til Kóp- ætlanir sem ræddar verða á fund-
erníkusar" og kemur út hjá Máli inum. Þá verður greint frá heim-
og menningu á næstunni. sókn grísks þingmanns og tveggja
Þá mun Helga Þórarinsdóttir blaðamanna hingað til lands í ti-
sýna litskyggnur úr menningar- lefni leiðtogafundarins á dögun-
ferð 60 Grikklandsvina um helstu um.
\2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 30. október 1986