Þjóðviljinn - 30.10.1986, Page 5
Háttsettur
foringi í afganska stjórnarhernum
gerðist liðhlaupi fyrir tveimur vik-
um og gekk í raðir afganskra upp-
reisnarmanna. Hann lýsti á-
standinu í herbúðum afganska
hersins og gaf heldur dökka
mynd af því. Mir Hashmatullah
heitir maðurinn og var ofursti í
herdeild sem staðsett var á milli
höfuðborgarinnar Kabúl og
landamæranna að Pakistan.
Hann sagði á blaðamannafundi í
gær í Islamabad að hann hefði
orðið fráhverfur kommúnisman-
um eftir að Sovétmenn réðust inn
íAfganistan árið 1979. Hashmat-
ullah kom til Islamabad í Pakistan
fyrir tveimur dögum ásamt konu
sinni og tveimur börnum sínum.
Hann sagði að hann hefði gengið
til liðs við eina stærstu fylkingu
múslimskra skæruliða, Hezg-E-
Islami. Um ástandið í afganska
hernum sagði hann að hermenn-
irnir vildu ekki lengur berjast við
skæruliða, tengslin við sovéska
herliðið í Afganistan væru slæm
og hernaðarleg staða afganska
hersins færi stöðugt versnandi.
Stuttu eftir að Hashmatullah yfir-
gaf afganska herinn fyrir 14
dögum síðan, flaug einn flug-
maður í afganska hernum á MIG
herþotu sinni til Pakistan og gaf
sig fram við yfirvöld. Stjórnin í Ka-
búl hefur ekki farið fram á framsal
flugmannsins né herþotunnar.
Lögreglan
í Seoul í S-Kóreu sat í gær um lóð
Konkuk háskólans í Seoul og var
búist við að hún ætlaði að hefja
innrás í háskólann með óeirða-
sveitum til að handtaka 1000
námsmenn sem þar eru innan
dyra. Námsmennirnir tóku yfir
bókasafn háskólans og fjórar
aðrar byggingar á lóðinni eftir að
lögregla hafði leyst upp fjöl-
mennan fund stjórnarandstæð-
inga í Seoul í fyrradag. Náms-
mennirnir hafa hellt olíu um bygg-
ingarnar og hóta að kveikja í
þeim ef lögreglan ræðst til
inngöngu.
Dönsk
bensínstöð í Skovshoved hefur
nú verið friðuð vegna sérstaks út-
lits. Arkitektinn Arne Jakobsen
hannaði þessa stöð árið 1937 í
stíl fúnksjónalisma. Yfir dælun-
um eru sérstakar steyptar regn-
hlífar, stöðin hefur margsinnis
verið í hættu, átt yfir sér að vera
rifin. Nú hefurhún hinsvegarver-
ið friðuð. Þetta mun vera í fyrsta
sinn í Danmörku sem bensínstöð
er friðuð.
Geislavirkni
er ekki meiri en vera ber í
Eystrasalti eftir Tsjernóbíl slysið,
segir í nýrri skýrslu vísinda-
manna frá sjö þjóðum sem land
eiga að Eystrasaltinu. Ástæðan
mun vera sú að joð vann á geisla-
virkni sem barst eftir slysið í haf-
ið. Geislavirkt sesíum hefði hins
vegar fundist í auknum mæli í
úrgangsvatni sem barst út í
Eystrasalt frá Svíþjóð, Danmörku
og V-Þýskalandi.
Nýjustu
fregnir af Marcos hjónum sem nú
búa í útlegð á Hawai eyjum eru
þær að imelda eyðir nú geysi-
legum fjármunum í blómakaup
og Ferdinand situr við skriftir allar
nætur vegna svefnleysis. Imelda
mun hafa það fyrir vana að kaupa
orkídeur fyrir þúsundir dollara
þegar hún fer í verslunarleiðang-
ur. Og ástæðan fyrir því að Marc-
os getur ekki sofið mun vera
vegna „ákafrar löngunar" til að
hverfa aftur til Filippseyja.
ERLENDAR
FRÉTTIR
hjörleífsson/R ELIIER
HEIMURINN
Kuwait flugvél
Hrakin til Sovétríkjanna
Teheran - írakskar herþotur
flugu í gær í veg fyrir flugvél frá
Kuwait í íranskri landhelgi og
þvinguðu hana til lendingar í
Sovétríkjunum. Flugvélin frá
Kuwait var með fyrrum olíu-
málaráðherra Kuwait innan-
borðs, Abdul Rahman Salem
Al-Atiqui.
Það var íranska fréttastofan
Ima sem skýrði frá þessu í gær.
„írakskar flugvélar eltu flugvél-
ina yfir norðvestur hluta írans og
þvinguðu hana síðan til að breyta
áætlaðri flugleið sinni og fljúga
inn í sovéska flughelgi,“ sagði í
tilkynnigu frá Irna.
„Flugvélin frá Kuwait kom
ekki aftur inn í lofthelgi írans og
það er ekki Ijóst hvar hún lenti í
Sovétríkjunum," sagði einnig í
tilkynningunni. Atiqui var með
boð til forseta írans um að koma
á íslamska ráðstefnu í Kuwait í
janúar. Atiqui hafði áður verið í
Jórdaníu, írak og Sýrlandi með
boð til þjóðaleiðtoganna um að
koma til Kuwait f janúar. Árið
1981 létust egypski utanríkis-
ráðherrann og aðstoðarmenn
hans þegar flugvél þeirra var
skotin niður skammt frá landa-
mærum írans og Tyrklands og er
ekki talið ólíklegt að þar hafi ír-
akar verið að verki.
Maputo - Kenneth Kaunda,
forseti Zambíu sagði í gær að
nú lægju fyrir óbeinar sannan-
ir sem sýndu að rikisstjórn S-
Afríku bæri ábyrgð á dauða
forseta Mozambique, Samora
Machel, í flugvélaslysi fyrir 11
dögum síðan.
Kaunda sagði þetta að loknum
Framvarðaríkillát Machel
S-Afríka ber ábyrgð
6 tíma fundi leiðtoga Framvarð-
aríkjanna svonefndu sem eru í
framlínu baráttu svartra Afríku-
ríkja gegn hvítri minnihlutastjórn
S-Áfríku. Þeir funduðu í Maputo
í gær, einum degi eftir útför
Samora Machels, forseta og
stuttu eftir að hægrisinnuð skær-
uliðasamtök í Mozambique lýstu
yfir stríði gegn stjórnvöldum þar í
landi.
í Moskvu var sagt í hinu opin-
bera útvarpi að margt benti nú til
þess að s-afrísk yfirvöld hefðu átt
einhvern þátt í dauða Machels.
Ríkisstjórn S-Afríku hefur ítrek-
að neitað slíkum ásökunum.
Noregur
Allur vindur úr stjómarandstöðunni?
Tilraunir stjórnarandstöðuflokkanna íNoregi til að sameinast gegn ríkisstjórn Verkamannaflokksins varðandi
fjárlagafrumvarpið fyrir nœsta ár, mistókust í fyrradag og ríkisstjórnin virðist nú munu lifa af afgreiðsluna um
fjárlagafrumvarpið
Osló - Ríkisstjórn Verkamann-
aflokksins í Noregi mun líkast
til „lifa af“ flutning sinn á fjár-
lagafrumvarpinu fyrir árið
1987 í Ijósi þess að stjórnar-
andstöðuflokkarnir hafa ekki
kynnt eiginn valkost við frum-
varp ríkisstjórnarinnar.
Tilraunir Kristilega Þjóðar-
flokksins og norskra miðflokka
til að setja saman sameiginlegan
valkost á fjárlagafrumvarp ríkis-
stjórnarinnar, mistókst í fyrra-
dag. Þar með virðast fyrri tilraun-
ir stjórnarandstöðunnar til að
fella ríkisstjórnina úr sögunni í
bili. Atkvæðagreiðsla um fjár-
lagafrumvarpið verður á norska
þinginu í næstu viku. Nú er opin
leið fyrir Verkamannaflokkinn
að semja við hluta stjórnarand-
stöðunnar um málamiðlun til að
koma frumvarpinu í gegn.
„Ef á að framfylgja efnahags-
stefnu Verkamannaflokksins,
verður það best gert af Verka-
mannaflokknum sjálfum," sagði
Rolf Presthus, formaður norska
Rolf Presthus (til hægri) brosti breitt þegar hann tók við formannsembætti hjá
Ihaldsflokknum norska í apríl síðastliðnum af Erling Norvik (til vinstri). Hann
brosir hins vegar ekki nú þegar Ijóst þykir að stjórnarandstöðunni mistakist að
fella ríkisstjórnina vegna fjárlagafrumvarpsins.
íhaldsflokksins í gær. Hann bætti
við: „Kristilegi Þjóðarflokkurinn
og miðflokkarnir eru ekki sósíal-
demókratar en tillögur þessara
flokka varðandi efnahagsfrum-
varp næsta árs eru ekki ólíkar
hugmyndum Verkamanna-
flokksins.“
Hingað til hafa flokkarnir þrír
ásamt íhaldsflokknum (þessir
flokkar mynduðu síðustu ríkis-
stjórn) gagnrýnt efnahagsstefnu
Verkamannaflokksins harðlega
fyrir að leiða til útþenslu, vera
verðbólguaukandi og fyrir að
hafa lítil áhrif í þá átt að bæta hið
versnandi efnahagsástand lands-
ins almennt. En fyrrum sam-
starfsflokkar í ríkisstjóm hafa
ekki viljað samþykkja tillögur
íhaldsflokksins um um að skera
rækilega niður framlög til vel-
ferðarmála og lækka skatta sem
leið til að auka hagvöxt í Noregi.
Norska Dagblaðið sagði í for-
ystugrein eftir að ljóst varð um
afdrif samvinnu stjórnarand-
stöðuflokka: „Nú er orðið ljóst að
þeir (stjórnarandstöðuflokkarn-
ir) em ófærir um að fylkja sér um
stefnu sem nýttist þeim til nýrrar
ríkisstjórnar."
Danmörk
Kynlífsbylgjan
aldrei risið hæira
Nýjar rannsóknir sýna að danskar konur um tvítugt lifa meira kynlífi
en kynsysturþeirra nokkru sinnifyrr. Æfleiri menntamenn á
aldrinum 30-45 ára kjósa að lifa skírlífi
Frá Gesti Guðmundssyni, frétta-
ritara Þjóðviljans í Kaupmanna-
höfn:
Kynlífsbylgjan hefur alls
ekki fjarað út eins og oft hefur
verið haldið fram. Splunkuný
rannsókn á kynlífi danskra
kvenna og viðhorfum þeirra til
þess sýnir að ungar konur lifa
bæði meira kynlífi en kynsyst-
ur þeirra nokkru sinni fyrr og
njóta þess líka betur.
Flestar ungu kvennanna sem
spurðar vom byrjuðu að lifa kyn-
lífi 15 ára. Af stómm hópi 22 ára
stúlkna höfðu 81% þeirra ein-
hvern tímann stundað sjálfsfró-
un. 91% þeirra höfðu upplifað
fullnægingu 16 ára gamlar. Þá
kemur fram að 60% stúlknanna
sofa hjá a.m.k. 1 sinni í viku,
20% a.m.k. 1 sinni í mánuði og
4% á hverjum degi.
í þessum aldurshópi kom fram
töluvert frjálslyndi í afstöðunni
til kynlífs. Þannig finnst 63%
þeirra lesbísk sambönd
fullkomnlega eðlileg og 27% að
auki gátu fellt sig við slík sam-
bönd, en einungis 10% fannst
eitthvað óeðlilegt við það að vera
lesbískur. 1/3 þessara ungu
kvenna eru á móti klámi, 1/3
stendur á sama en 1/5 þeirra
finnst klám harla gott.
í sömu könnun kom fram að
fimmta hver sjötug kona lifir enn
kynlífi. Hins vegar hefur dag-
blaðið Information rekist á nýja
tilhneigingu í kynlífi 30-45 ára
gamalla menntamanna, en æ
fleiri úr þessum hópi velja nú að
lifa algjöru skírlífi, a.m.k. mörg
ár í senn. Hér er kannski komin
skýring á því af hverju menn eru
að tala um að kynlífsbylgjan sé að
fjara út. Sú bylgja reis einna hæst
með þessari kynslóð en hún virð-
ist vera farin að þreytast fyrr en
aðrar kynslóðir. Þetta er sú kyn-
slóð sem mest ber á í fjölmiðlum
og þjóðlífi og er því sú skýring
nærtæk að hún hafi yfirfært eigin
kynlífsvanda á allt samfélagið í
kringum sig.
Aids
Almenningur
í blóðprafu?
Washington - Aids sjúkdómur-
inn vex nú hröðum skrefum
meðal heterósexúal fólks í
Bandaríkjunum og sérfræð-
ingar segja að eina leiðin til að
hefta framgang sjúkdómsins
sé að taka blóðprufu af öllum
almenningi í þeim iöndum þar
sem sjúkdómsins hefur orðið
vart.
Bandarískir sérfræðingar spá
því nú að hætta sé á að um það bil
50.000 manns muni látast á ári í
Bandaríkjunum vegna Aids sjúk-
dómsins og aukinn fjöldi heteró-
sexúal fólks og barna sé í hættu.
Nefnd sem Bandaríska lækna-
stofnunin og Bandaríska vísinda-
akademían (NAS) standa að,
lýsti því yfir í gær að þar sem útlit
fyrir varanlega lækningu gegn
sjúkdómnum væri ekki bjart
þessa dagana, þýddi það að eina
leiðin til að draga úr sjúkdómn-
um væri stóraukin fræðsluherferð
um kynferðismál. „Kynferðis-
fræðsla í skólum er nú ekki aðeins
spurning um ráðgjöf heldur er
þetta orðin spurning um ráðgjöf
sem getur skipt lífi og dauða,“
c^crir í vfirlvcinan np.fndarinnar.
Flmmtudagur 30. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5