Þjóðviljinn - 30.10.1986, Blaðsíða 16
NöemuiNN
1936-1986 ÞJÓÐVIUINN 50 ÁRA
Fimmtudaour 30. október 1986 247. tölublað 51. árgangur
Aðalsími: 681333. Kvöldsínrii: 681348. Helgarsími: 681663.
Bankarnir
Vaxtaokur í uppsiglingu
Lög um „vaxtafrelsi“ taka gildi á morgun. Svavar
Gestsson: Ráðherra skortir pólitískt þrek til að hindra
vaxtaokur í kjölfar laganna.
Þó aðeins sé 1 sólarhringur þar
til ný lög um Seðlabanka Islands
og svokallað „vaxtafrelsi“ taka
gildi, gat viðskiptaráðherra i
engu svarað fyrirspurnum Svav-
ars Gestssonar í gær um það
hvort ákvörðun yrði um leið tekin
um hámarksvexti.
Svavar vakti athygli á því í
neðri deild alþingis í gær að ef
ríkisstjórnin tæki ekki nú ákvörð-
un um hámarksvaxtastig eins og
henni væri heimilt samkvæmt
lögum, væri mikil hætta á að
vaxtakapphlaup hefðist með ó-
fyrirsjáanlegum afleiðingum.
Hann spurði ráðherra hvaða þró-
un hann teldi líklega í vaxta-
málum allra næstu daga og hvort
ákvörðunar væri að vænta um
takmörkun vaxta um leið og lögin
um Seðlabankann taka gildi 1.
nóvember.
Matthías Bjarnason sagðist
vera að leggja síðustu hönd á
reglugerð m.a. um stjórnun Seðl-
abankans og bankaeftirlit. Hins
vegar gæti hann ekkert fullyrt um
hver þróunin yrði í vaxtamálum í
kjölfar laganna. „Þó nú ríki frelsi
í viðskiptabönkunum,“ sagði
ráðherra, „þá held ég að ríkis-
bankamir verði að vísa veginn.“
Taldi hann eðlilegt að fulltrúar
alþingis í bankaráðum þeirra
veittu aðhald í vaxtamálum og
sjálfur væri hann reiðubúinn til
að styðja bankaráðin í því. Svav-
ar sagði útilokað að bankaráð
ríkisbankanna færu að greiða at-
kvæði um vaxtastig og að þau
leystu þennan vanda fyrir ráð-
herra. Sjálfur hefði ráðherra
lagalegt vald til að koma í veg
fyrir vaxtaokur en hins vegar
kynni hann að skorta pólitískt
þrek til þeirra verka.
-ÁI
Fjárlög
Umræða í dag
í dag verður á alþingi fyrsta
umræða um fjárlagafrumvarp
ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár
og fer hún fram í sameinuðu
þingi. Sem kunnugt er gerir fmm-
varpið ráð fyrir 1600 miljón
króna halla á ríkissjóði og hefur
það ásamt mörgum öðrum at-
riðum orðið stjórnarandstæðing-
um tilefni mikillar gagnrýni. Því
má búast við að hitni í kolunum
eftir ræðu Þorsteins Pálssonar
síðdegis. -ÁI
Fyrirmyndarfaðir
Fer en
kemur aftur
Sjónvarpsþátturinn Fyrir-
myndarfaðir hverfur af skjánum
í Sjónvarpinu eftir næsta laugar-
dag, eins og tilkynnt hefur verið í
Sjónvarpinu en það verður ekki
lengi, þann 20. desember kemur
hann aftur með fjölskyldu sína og
verða þá sýndir 24 þættir í þess-
um vinsæla sjónvarpsflokki.
Ellert Sigurbjörnsson, dag-
skrárritari Sjónvarpsins, sagði í
samtali við Þjóðviljann í fyrradag
að Cosby fjölskyldan væri ekki
horfin að eilífu af skjánum. „Hún
kemur aftur á skjáinn í síðustu
viku fyrir jól,“ sagði Ellert. Því
hefur verið hvíslað að Sjónvarpið
sé að hætta með sýningu Fyrir-
myndarföður og Stöð 2 hafi náð í
réttinn á sýningu myndaflokks-
ins. Þær hvíslingar em hins vegar
ekki á rökum reistar.
-IH
L
Árbœjarsafn
Ragnheiður vill
Aðalbjöigu
Líkur á að Aðalbjörg RE5 verðigeymd á
Árbœjarsafni. Byggð á kreppuárunum til að bœta
atvinnuástandið
Ragnheiður um borð í Aðalbjörgu: Merkur bátur og yrði góður fengur fyrir
safnið. Mynd Sig.
Þetta er merkilegur bátur og
yrði mjög góður fengur fyrir
safnið og borgina. Ef verið er að
halda þessari sögu til haga þá er
þetta gott tillegg í það starf, sagði
Ragnheiður Þórarinsdóttir borg-
arminjavörður í samtali við Þjóð-
viljann i gær, en hún hefur mik-
inn áhuga að fá Aðalbjörgu RE 5 í
eigu Árbæjarsafns og varðveita
hana þar í heilu lagi.
Ragnheiður hefur farið þess á
leit við borgarráð að borgin varð-
veiti bátinn, en málið hefur ekki
fengið afgreiðslu þar.
Ragnheiður sagði í gær að Að-
albjörg hafi verið byggð í Skip-
asmíðastöð Reykjavíkurbæjar
árið 1934 ásamt 3 öðmm af sömu
tegund, gagngert til þess að bæta
atvinnuástandið í Reykjavík. Þá
stóð kreppan sem hæst og smíði
þessara báta var liður í að bæta
það hörmungarástand sem ríkti í
atvinnumálum. Báturinn er því
nátengdur atvinnusögu borgar-
innar og útgerðarsögu.
Aðalbjörg var 22 tonn þegar
hún var byggð, en síðan hefur
hún verið lengd og telst nú vera
30 lestir. Hún hefur verið gerð út
á ýmis veiðarfæri síðan, en fór
sína síðustu sjóferð fyrir
skömmu. Eigendur em Stefán og
Guðbjartur Einarssynir Sigurðs-
sonar, sem er upphaflegur
eigandi. Báturinn hefur þannig
verið í eigu sömu fjölskyldunnar
alla tíð.
Enda þótt beiðni Ragnheiðar
hafi ekki verið afgreidd í borgar-
ráði enn sem komið er, hefur
henni verið þar vel tekið og sagð-
ist Ragnheiður bjartsýn á að mál-
ið fengi jákvæða afgreiðslu.
-gg
Forval/Austurland
Þingmennimir oftast tilnefndir
Helgi Seljan: Ánægður með að menn muna eftir mér enfyrri ákvörðun um að hœtta er óbreytt
Helgi Seljan og Hjörleifur Gutt-
ormsson fengu milli 80 og 90
prósent tilnefningu í fyrri forvals-
umferð hjá Alþýðubandalagsfé-
lögunum á Austurlandi. Hjör-
leifur hefur gefíð kost á sér til
þingmennsku áfram en Helgi
Seljan hinsvegar lýst því yfir að
hann láti af þingmennsku í vor.
Helgi sagði vlð Þjóðviljann í gær
að hann væri ánægður með að
menn myndu eftir sér, ákvörðun
sfn stæði hinsvegar óbreytt.
Talningu og útreikningi úrslita
úr forvalsumferðinni um síðustu
helgi varð ekki lokið á fundi for-
valsnefndarinnar í gær, og verða
fleiri nöfn ekki nefnd fyrren í
fyrsta lagi eftir fund nefndarinnar
á laugardag. í fyrri umferð tóku
þátt um 600 manns, flokksfélagar
og stuðningsmenn. Nefna átti
mest fimm, þaraf einn úr heima-
byggð.
Steinunn Aðalsteinsdóttir for-
maður forvalsnefndarinnar sagði
Þjóðviljanum í gær að leitað yrði
til þeirra sem oftast voru tilnefnd-
ir og þeir beðnir að gefa kost á sér
í seinni umferðina, sem stefnt er
að helgina 22.-23. nóvember. Þá
skal velja fimm og merkja við í
töluröð. Úrslitin eru leiðbein-
andi, endanlegur listi verður á-
kveðinn af kjördæmisráði.
Steinunn sagði forvalsnefnd hafa
ákveðið að í tillögum nefndarinn-
ar til ráðsins yrði farið að forvals-
úrslitum með þeim breytingum
einum sem reglur um kynja-
skiptingu og byggðasjónarmið
gæti hugsanlega valdið.
„Ég er ánægður með að menn
muna eftir mér, en ákvörðun mín
stendur óbreytt,“ sagði Helgi
Seljan í gær við Þjóðviljann.
„Þetta er könnunarumferð, og ég
lít á þetta sem ákveðna viljayfirl-
ýsingu, sem kemur mér raunar
ekki á óvart þrátt fyrir fyrri yfir-
lýsingar mínar. Ég mun auðvitað
svara forvalsnefnd formlega fyrir
seinni umferðina, en hef ekki
hugsað mér að breyta ákvörðun
minni, sem er orðin rúmlega
ársgömul. Það má segja að það sé
út af fyrir sig ágætt að hætta með-
an einhver sér eftir manni.“
-m
AFMÆLIS-
HAPPDRÆTTI
ÞJÓÐVILJANS
Dregið 31. október
Munið gíróseðlana
Gerum lokaátakið glæsilegt