Þjóðviljinn - 01.11.1986, Síða 5

Þjóðviljinn - 01.11.1986, Síða 5
Frá afmæliskaffi í Þjóðviljahúsinu í gær. (mynd: Sig.) Þjóðviljinn um Þjóðviljann Sumir segja að eitt einkenni á fjölmiðlum dagsins sé hvað þeir eru sjállhverfir, - í stað þess að vera víðsýnn tengiliður í marg- breytilegu samfélagi séu þeir síf- ellt segjandi lítilsigldar fréttir úr veröld sem þeir sjálfir hafa skapað og kemur hinni raunveru- legu ekkert mjög mikið við, - og snúist ekki síst um sjálfa sig með tíðindi (yfirleitt slæm) af öðrum Qölmiðlum, frásagnir af því hver sé að hætta eða byrja eða flytja sig innan fjölmiðlaheimsins, og umfram allt blásandi út sjálfa sig seint og snemma. Að minnsta kosti eru þær syst- ur hógværð og lítillæti ekki tíð- sénar á ritstjórnum og fréttastof- um. Menn kannast við lands- föðurlegan sjálfbirging Morgun- blaðsins, geislandi ánægju sjón- varpsins með sína tilveru og sinna og unglingslegan glennuganginn í DV. Að ógleymdum Helgarpóst- inum sem stundum heldur að hann sé eini fjölmiðillinn á landinu, - í síðasta tölublaði slær hann til dæmis eign sinni á vel- flest frumvörp og ályktunartil- lögur sem menn hafa lagt fram á 109. löggjafarþinginu. Þjóðlífs- athugari uppí Hlíðum kallar þessa tegund af sperringi sjáifs- mont og þykir verra en annað mont. Þjóðviljamontið Það eru nefnilega til nokkrar gerðir af monti. Þjóðviljinn er til dæmis oft nokkuð montinn og stundum beinlínis drýldinn, en það mont er yfirleitt ekki sjálfs- mont. Þjóðviljinn gerir sér alla- jafna skýrari grein fyrir því en aðrir fjölmiðlar að dagblað er ekki eyland, vegna þess að sá munur er á honum og öðrum fjöl- miðlum hérlendum að hann á sér málstað, sem í stuttu máli má kenna við sósíalisma, þjóðfrelsi og verkalýðshreyfingu, og Þjóð- viljamont réttlætist af því að hafa lagt lið þeim málstað. A því bygg- ist líka sjálf tilvera Þjóðviljans. í afmælisblaði sem fylgdi hin- um fimmtuga Þjóðvilja í gær taka tólf lesendur til máls um blaðið, og það kemur ekki á óvart að jafnt pólitískir frændur sem and- stæðingar byggja sín orð á þessari sérstöðu: Þjóðviljinn er eina stjórnarandstöðublaðið sem gagn er í (Hafsteinn Austmann) -Mað- ur lagði mikið á sig til að kaupa Þjóðviljann og það var ekki að ástceðulausu. Manni fannst nefni- lega að þetta blað styddi alltaf málstaðinn sem maður sjálfur trúði á (Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir) -Það er tilvera fjölmiðla einsog Þjóðviljans sem tryggir að peningarnir og þeir sem þá eiga drottna ekki yfir allri opinberri umræðu í landinu (Einar Kára- son) -Þjóðviljinn er nauðsynlegur eldur fyrir okkur Morgunblaðs- menn (Matthías Johannessen). Um leið og blaðinu er sagt til syndanna fyrir flumbrugang, hlutdrægni, röng efnishlutföll, flokksþjónkun, Sovétníð og skort á guðlegu eðli vitsins í stjórnmálaskrifum - er þess ósk- að að blaðið haldi fast við sitt: / fjölmiðlaheimi nútímans verður Þjóðviljinn að passa sig á því að glata ekki sérstöðu sinni, því ef hann gerir það er hann búinn að vera. Hann getur bara keppt við hina fjölmiðlana með því að vera öðruvísi (Már Guðmundsson). Tvíeðli Sú er staða Þjóðviljans að vera í senn málgagn, þátttakandi í pó- litískri hreyfingu, og dagblað, fjölmiðill meðal fjölmiðla. Þetta tvíþætta hlutverk setur blaðið í mikla ábyrgð og það hefur stund- um reynst snúið á fimmtíu ára ferli að halda höfði. Annarsvegar gerir fréttamennska kröfur um heiðarleika, sanngirni, vægðar- leysi, - hinsvegar eru að Þjóðvilj- anum fleiri eigendur en nokkru öðru blaði, nefnilega allt fólkið í heilli hreyfingu, og þessir eigend- ur eiga blaðið af meira kappi en tíðkast um önnur blöð, vilja að Þjóðviljinn sé daglegt vopnabúr og una því skiljanlega illa ef blað- ið hleypur útundansér, sérstak- lega þegar upp kemur missætti í hinum stóra frændgarði. Þjóðviljinn skiptir miklu máli fyrir þá hreyfingu vinstri manna sem bæði stendur að baki honum, skrifar hann og les. En hann nýt- ist þessari hreyfingu ekki nema hann geti leikið lausum hala í henni, verið einsog fiskur í vatni, sótt stundum frammúr henni, kallast á við hana, hent á lofti nýjar hugmyndir, skapað líf með gagnrýni. Menn hafa stundum haft þá til- hneigingu að halda að Þjóðvilj- inn sé og hafi alltaf verið frétta- bréf um einhverja viðtekna skoðun, boðberi hinnar réttu línu í hverju máli. Það er athyglisvert að rýna í fimmtíu ára sögu blaðs- ins eftir þessu, - í ljós kemur nefnilega að styrkur Þjóðviljans í hálfa öld hefur öðru fremur legið einmitt í því að þetta hefur blaðið reynt að vera ekki, og stundum þurft að hafa fyrir því. Hvort sem litið er til hinnar svarthvítu heimsmyndar eftirstríðsáranna eða verkalýðsbaráttu á sjöunda áratugnum eða hinum níunda kemur í ljós að Þjóðviljamenn hafa við erfiðar aðstæður reynt að horfast í augu við veruleikann og gagnrýnt viðteknar hugmynd- ir vina og vandamanna án þess að leggja niður vopnin í baráttu allra daga gegn auðvaldi og afturhaldi. Við erum folkið Það er vonandi ekki sjálfs- mont, - þegar litið er yfir hálfa öld sýnist manni að Þjóðviljinn hafi átt drjúgan þátt í að móta íslenskt samfélag. Byltingarvonir frumherjanna hafa að sönnu ekki gengið upp, og mörgum finnst að afturhaldsöflin hvessi þessi miss- erin klærnar sem aldréi fyrr. En þrátt fyrir völd markaðshyggj- unnar hafa margir sigrar unnist í þeirri baráttu sem Þjóðviljinn hefur háð við hlið alþýðufólks, í nafni íslensks sjálfstæðis og fyrir menningarlegu innihaldi í kvunn- deginum. Það á helst ekki að hugsa í þáskildingatíð, en það er erfitt að hugsa sér íslenskt samfé- lag síðustu fimmtíu ára án blaðs- ins, - erfitt að geta sér til um ár- angur af verkalýðsbaráttu, at- vinnuuppbyggingu, menningar- sókn, þjóðfrelsisslag án hins dag- lega Þjóðvilja. Þegar efnt er til stórhátíða kringum Þjóðviljann, einsog á afmælinu í gær, finna menn líka betur til þess hvað hefur skapað blaðinu þann sess sem það hefur: hingað í Þjóðviljahúsið var allan daginn straumur fólks að drekka kaffi, spjalla saman, - og óska sjálfu sér til hamingju með afmæl- ið. Útgáfa Þjóðviljans hefur lengi verið pólitískt og fjárhagslegt kraftaverk, og galdurinn bakvið það kraftaverk er hið nána sam- band blaðsins við lesendur sína. Afmælisdagurinn í gær var ekki fyrst og fremst hátíð starfs- manna, stjórnenda, skrifenda, - hann var hátíð lesenda. þeirra sem líta á Þjóðviljann nánast sem hluta af sjálfum sér. Það er líka sú tilfinning sem skapar Þjóðvilja- mont, og hvetur okkur sem hér störfum til að leggja okk r betur fram. Það eru þessi tengsl ðvilj- ans við lesendur sem vak ví að eftir fimmtíu ár er enn ægt að lesa með sæmilegu stolti það ávarp sem fyrstu útgefendur blaðsins í miðstjórn Kommúnist- aflokksins sendu lesendum 31. október 1936. Mörður Árnason „Dagblaðið okkar heitir »Þjóðviljinn«. Nafnið felur í sér tilgang þess. Þjóðviljinn á að vera málsvari fyrir vilja þjóðarinn- ar. Hann á ekki aðeins að vera málsvari fylgjenda Kommún- istaflokksins, heldur alls verkalýðsins, og ekki aðeins málsvari verkalýðsins, heldur líka millistéttanna, bænda, fiskimanna, verslunarfólks, iðnaðarmanna, mennta- manna - allra þeirra sem hafa lífsviðurværi sitt af starfi heila og handa. Þjóðviljinn vill sameina alla íslensku þjóðina, öll heimili á landinu, til sjávar og sveita, gegn þeim örfáu mönnum, sem vilja gera sér þjóðina að féþúfu, og svifta hana frelsi sínu og sjálfstæði í því augna- miði; gegn þeim örfáu mönnum, hverra »föður- landsást fyrst um það spyr, hve fémikill gripur hún yrði«. Þjóðviljinn á að verða máls- vari fyrir sjálfstæði þjóðarinn- ar. Hann telur sig arftaka hins besta í íslenskri sjálfstæðis- baráttu, arftaka Þjóðviljans gamla, sem Skúli Thoroddsen gaf út. Og vegna þess, að Þjóðvilj- inn vill verða blað þjóðarinn- ar - blað allra heimila hins starfandi fólks - til sjávar og sveita - þá mun hann ekkert til spara að uppfylla allar þarf- ir þessara heimila - allar þær- kröfur, sem þau gera til dag- blaðs síns - um bestu erlendar og innlendar fréttir, pólitík, hverskonar skemmtilestur, ritgerðir um hin margvísleg- ustu efni, frá öllum sviðum mannlegs lífs, eftir pennafær- ustu blaðamenn og rithöfunda landsins. Kjörorð okkar er: Þjóðviljinn á að verða blað íslensku þjóðarinnar." listjiii KwigistiOottslis áyarpar lesenðnr íjóflTiljans. ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.