Þjóðviljinn - 07.11.1986, Side 5
Þyrluslys
varð stuttu fyrir hádegi í gær á
Norðursjó með þeim afleiðingum
að 45 manns eru látnir eða týndir.
Slysið varð með þeim hætti að
þyrla af Chinook gerð sem var að
flytja fólk af breskum olíuborp-
alli í land, hrapaði í hafið. Slysið
varð rétt undan ströndum Shetl-
andseyja. Embættismenn sögðu í
gær að 45 til 47 manns væru látnir
eða týndir. Síðdegis í gær hafði
aðeins tekist að bjarga tveimur
mönnum. Sérfræðingar sögðust í
gær telja að þyrlan hafi hrapað í
hafið á miklum hraða og sokkið
samstundis þar sem lítið hefur
fundist af braki úr þyrluimi. Litl-
ar líkur eru taldar á að fleiri finn-
ist lifandi.
Lútherstrúarmenn
í Finnlandi kusu í gær um að
hvort konum leyfðist að messa
yfir þeim og samþykktu slíkt með
yfirgnæfandi meirihluta eða 87
atkvæðum gegn 21. Lúther-
strúarmenn eru reyndar ekki
svona fáir í Finnlandi, það voru
kirkjulegir leiðtogar finnskir sem
tóku þessa ákvörðun, hið lúther-
ska kirkjuráð í Finnlandi. Rétt
áður en kirkjuráðið gekk til at-
kvæðagreiðslu um karl- eða
kvenpresta barst beiðni um að
breytingu laganna yrði hafnað frá
2700 prestum ungum sem
gömlum. Ástæðan var sú að hin
heilaga ritning segði að ekki væri
það konum hollt að starfa sem
prestar. Einn biskup í landinu er
þannig ekki á því að það sé kon-
um hollt að gegna prestskap og
segist munu neita að vígja kvenk-
ynið til heilagra starfa. Hann á
getur hins vegar átt von á lögsókn
neiti hann konum um vígslu.
Fangi
nokkur slapp fyrir stuttu úr fang-
elsi í Kaliforníu í Bandaríkjun-
um. Eitthvað leiddist honum hið
nýfengna frelsi svo hann stal sér
þyrlu, flaug henni til fangelsis eigi
allfjarri og tók þar upp unnustu
sína sem þar var í betrun. Hann
sagðist vilja leigja þyrluna til að
gera „fasteignakönnun". Þyrluf-
yrirtækið bauð honum upp á flug-
mann, þegar fanginn var hins
vegar kominn inn í þyrluna, otaði
hann flugmanninum í burtu með
byssu og flaug sjálfur til að sækja
spúsu sína. Ekkert hefur síðan
frést af parinu né þyrlunni.
Kínverjar
mega nú eiga von á því um næstu
aldamót að eiga svo til ekkert
timbur til í landi sínu. Svo mun að
minnsta kosti verða ef Kínverjar
bæta ekki ráð sitt hvað varðar
skógarhögg, segir kínverska dag-
blaðið „Efnahagstíðindi“. Þar
segir að svo hafi verið gengið á
skóglendi í Kína síðustu tvo ára-
tugi, að fimmtungur hinna 131
skógasvæða í Kína sé nú skóg-
laust. „Ef svo heldur fram sem
horfir verður um næstu aldamót
ekkert tré eftir til að höggva og
þar með ekkert timbur til að
vinna úr, nema erlendis frá“,
segir í „Efnagstíðindum“.
Sjávarútvegs-
ráðherrar Evrópubandalags-
landa samþykktu í gær að veita
framkvæmdnefnd bandalagsins
umfangsmikið vald til að koma í
veg fyrir að fiskveiðflotar banda-
lagsþjóða stundi ofveiði. Einnig
hefur nefndin nú leyfi bandalags-
ins til að refsa þeim sem svindlar
á kvóta sínum. Nú er svo til ekk-
ert eftirlit með mögulegri ofveiði
bandalagslanda og eftirlitsmenn
bandalagsins fá nú vald til að ák-
veða hvar, hvernig og hvenær eft-
irlit fer fram á aðstæðum hjá
hverri þjóð fyrir sig til fiskveiða.
Áður sáu eftirlitsmenn hvers
lands fyrir sig um slíkt.
ERLENDAR
FRÉTTIR
árnason/R EUTER
HEIMURINN
Shultz-Shevardnadze
Enginn árangur í Vín
Utanríkisráðherrar stórveldanna fara heim í fýlu eftir fimm stunda viðrœður í
Vínarborg. Shultz: Sovétmenn staðir. She vardnadze: Bandaríkjamenn vilja
gleyma Reykjavík. Parfað byrja vopnaparísinn uppá nýtt?
Af kveðjuorðum utanríkis-
ráðherra stórveldanna fyrir
brottför frá Vínarborg í gær má
ráða að enginn árangur hafi
orðið af viðræðufundum
þeirra í gær og fyrradag, og
enn sem fyrr hafi strandað á
stjörnustríðsáformum Banda-
ríkjastjórnar. Fréttaskýrendur
spá því nú að þrátt fyrir glæt-
una frá Reykjavíkurfundunum
séu stórveldin í þeirri stöðu að
þurfa að hefja að nýju að
leggja þann kapal tilboða og
gagntilboða sem næstum var
genginn upp í Höfða.
•
Þeir Shultz og Shevardnadze
voru báðir í Vín þeirra formlegu
erinda að ávarpa fyrsta fund af-
vopnunarráðstefnunnar sem
hófst í fyrradag, og hafa síðan ást
við á tveimur viðræðufundum í
samtals fimm tíma, mestan hlut
Sigur demókrata
Hemaðartiyggjan veikist
Kosningaúrslitin breyta utanríkisviðhorfum vestra
Shultz og Shevardnadze. Fyrsti fundur ráðamanna stórveldanna slðan I
Reykjavík hefur ekki glætt vonir um samkomulag.
þess tíma einir ásamt túlkum sín-
um. Milli þessara lota sátu undir-
menn þeirra við á næturfundum
líkt og í Reykjavík.
Shevardrtadze sagði að loknum
seinni fundinum í gærmorgun að
Washington - Ljóst er að kosn-
ingasigur demókrata í fyrra-
dag hefur í för með sér áhersl-
ubreytingar í samskiptum
Bandaríkjanna við umheim-
inn, þótt jafnljóst sé að forset-
inn heldur um taumana og
ræður ferðinni.
Demókrata ætla sér ekki að
takast beinlínis á við Reagan-
stjórnina um utanríkismál, en
þeir munu beita sér fyrir breyttri
stefnu í Nicaragua og nágrenni og
reyna að hafa áhrif í afvopnun-
armálum. Robert Byrd, væntan-
legur leiðtogi demókrata í Öldu-
ngadeildinni hefur lýst því yfir að
leyniþjónustunni muni ekki hald-
ast uppi felustyrjöld í Nicaragua.
Margir demókratar eru hlynntir
contra-skæruliðum gegn stjórn-
inni í Manila og er óljóst hvort
Manila - Fulltrúi stjórnvalda á
Filippseyjum í samningavið-
ræðum þeirra og kommúnista
á eyjunum, sagði í gær að bú-
ast mætti við vopnahlés-
samkomulagi deiluaðiia á allra
næstu dögum.
Það var landbúnaðarráðherra
landsins, Ramon Mitra, sem til-
kynnti fréttamönnum þetta eftir
að hann hafði átt stuttan fund
með Corazon Aquino um gang
samningaviðræðna. Mitra fulltrúi
stjórnvalda í samningaviðræðun-
um sagði að hann þyrfti aðeins
örfáa daga með fulltrúum skæru-
liða til að ná samkomulagi. Mitra
hefur vald til að skrifa undir
vopnahléssamkomulag við
skæruliða.
Slíkt samkomulag yrði hið
fyrsta í sögu Filippseyja og yrði
mikill pólitískur sigur fyrir for-
dregið verður úr beinum fjár-
hagsstuðningi við þá, en hinsveg-
ar lagði Byrd áherslu á að „dreng-
irnir okkar“ yrðu ekki sendir
suðreftir, og búist er við að
demókratar muni hlusta betur
eftir tillögum Contadora-
ríkjanna en Hvíta húsið. Stjórnin
í Nicaragua hefur fagnað kosn-
ingaúrslitunum í Bandaríkjun-
um.
Orð Byrds um Mið-Ameríku
eru með öðru til merkis um að
draga muni úr hernaðarhyggju í
utanríkisstefnu Bandaríkjanna, -
þótt demókratar hafi lýst stuðn-
ingi við stjörnustríðsáætlanir Re-
agans. Talið er að þeir muni beita
stjórnina þrýstingi um að koma
til móts við Svoétmenn í afvopn-
unarviðræðunum f Genf.
Þá telja menn nú líklegt að
samþykktar verði efnahagsþving-
anir gegn Suður-Afríku, og að
seta landsins Corazon Aquino.
Henni myndi þá takast það sem
engum fyrirrennara hennar hefur
tekist, eftir aðeins níu mánuði í
embætti forseta. Aquino hefur
sætt miklum ákúrum fyrir að
reyna að semja um frið við skæru-
liða. Fjölmargir fréttaskýrendur
segja að slíkt sé ómögulegt, skær-
uliðar leggi aldrei niður vopn
eftir samningaviðræður.
Slíkt hið sama sögðu reyndar
fréttaskýrendur þegar Aquino
fór þess á leit við skæruliða að
þeir hæfu vopnahlésviðræður. Þá
var sagt að þeir myndu aldrei fást
að samningaborðinu, Aquino
tókst það hins vegar. Menn eins
og Juan Ponce Enrile, varnar-
málaráðherra, hafa þrátt fyrir
það haldið uppi mikilli gagnrýni á
Aquino fyrir að vera of mjúkhent
við skæruliða. Vinstri sinnuö
stuðningur við Aquino-stjórnina
á Filippseyjum verði
beinskeyttari en áður. Enn er
hugsanlegt að demókratar stífli
fjárrennsli til skæruliða í Angóla.
Utanríkisviðskipti Bandaríkj-
anna gætu tekið umtalsverðum
breytingum á næsta ári með
frumvarpi demókrata um vem-
dartolla og aðrar ráðstafanir í
þágu bágstaddra atvinnuvega.
Helst er talað um erlendan fata-
innflutning og olíuinnflutning í
þessu sambandi. Því hefur verið
hótað að forsetinn beiti neitunar-
valdi gegn slíku frumvarpi, en at-
hugendur um bandarísk
stjórnmál telja að ef einhverjar
málefnalegar forsendur standi að
baki afstöðu kjósenda sé helst
bendandi á efnahagslegt
ójafnvægi, þarsem kreppa í of-
antöldum greinum og í landbún-
aði skipti miklu.
uppreisn hefur verið nær stöðug á
Filippseyjum frá 1930. Þá hafa
skæruliðar múhameðstrúar-
manna haldið uppi skærum á
eyjunum í fjölda ára.
Mitra, fulltrúi stjórnvalda í
samningaviðræðunum nú, sagði í
gær um gang samningaviðræðn-
anna:„Þegar við setjumst næst
niður við samningaborðið hætt-
um við ekki fyrr en friðarsamn-
ingur hefur verið undirritaður.“
Hann sagði að aðeins fáeinir pun-
ktar hefðu verið ófrágengnir.
Skæruliðar vilja 100 daga vopna-
hlé. Stjórnvöld óttast hins vegar
að það vilji þeir aðeins til að
endurskipuleggja baráttu sína og
hafa lagt til 30 daga vopnahlé sem
síðan má framlengja um aðra 30
daga. Þegar samið hefði verið um
vopnahlé færu síðan af stað við-
,ræður um varanlegan frið. -LH
Bandaríkjastjórn væri á leið
afturábak frá þeim sporum sem
stigin hefðu verið í Reykjavík.
Þeir óskuðu þess greinilega að
gleyma Reykjavík sem allra fyrst,
en þar hefðu gerst þeir atburðir
að þeim yrði ekki auðgleymt.
Shultz sagði að ekkert hefði
hreyfst í áttina á fundinum þeirra
Shevardnadze. Sovétmenn fen-
gjust ekki úr fyrra viðræðufari,
og hefðu ekki sýnt tvíþættum til-
lögum sínum nokkurn áhuga.
Hann sagðist annarsvegar hafa
lagt til að samningamenn ríkj-
anna í Genf hættu við að taka sér
vetrarfrí, hinsvegar að rætt yrði
um áfangafækkun kjarnorkutil-
rauna meðfram fækkun kjam-
orkuvopna.
Báðir sögðu þeir ekkert útlit
fyrir annan leiðtogafund í bráð, -
Shultz sagði slíkan fund ekki
einusinni hafa borist í tal.
Af þessu sýnist sennilegast að
Sovétmenn hafi viljað halda þar
áfram sem niður féll í Reykjavík,
og enn steytt á stjörnustríði, -
Bandaríkjamenn hafi aftur snúið
baki við Reykjavíkurleiðinni og
séu farnir að ræða hvern þátt af-
vopnunarflækjunnar í sínu lagi í
samræmi við ásetning sinn um að
geimvopnunaráætlun verði ekki
hluti af stærri samningapakka
milli Moskvu og Washington, og
eru fyrstu spár fréttaskýrenda að
nú þurfi að byrja enn einu sinni
að nýju.
Að vísu er að einu leyti komin
upp önnur staða en á Reykjavík-
urfundinum, - demókratar hafa
öðlast aukin áhrif í bandarísku
stjórnkerfi og eru þrátt fyrir
stuðning sinn við stjörnustríð Re-
agans líklegir til að knýja á um
aukinn samningsvilja í Hvíta hús-
inu.
Þrátt fyrir vonbrigði eftir Vín-
arfund utanríkisráðherranna er
til þess tekið að bæði Shevardna-
dze og Shultz höguðu orðum sín-
um af þeirri tiltölulegu kurteisi
sem hefur einkennt samskipti
stórveldanna síðustu misseri.
Noregur/Brundtland
Ákall um
sættir
Gro Harlem Brundtland
hvetur stjórnmálaflokka
til sameiginlegs átaks
varðandi
fjárlagafrumvarp
Osló - Gro Harlem Brundtland,
forsætisráðherra Noregs,
hvatti í gær leiðtoga stjórnar-
andstöðuflokka til að ieggja til
hliðar ágreining sín í milli um
fjárlagafrumvarp svo mögu-
legt reynist að komast að
samkomulagi um frumvarp
sem allir geta sætt sig við.
Brundtland hóf í gær annan
dag umræðna á þingi um fimm
útgáfur af fjárlagafrumvarpi með
ákalli til stjórnarandstöðunnar
um að sameinast Verkamanna-
flokknum um fjárlagafrumvarp
til að leysa yfirvofandi stjórnar-
kreppu. Ólíklegt er talið að
nokkur hinna fimm gerða fjár-
lagafrumvarpsins nái í gegn við
núverandi aðstæður.
Samkvæmt áætlun á að ganga
til atkvæða um endanlegt fjár-
lagafrumvarp 16 desember.
-IH
Föstudagur 7. nóvember 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Filippseyjar/Skœrukernaður
Sættir í sjónmáli?
Talsmaður stjórnvalda á Filippseyjum sem á í viðræðum við
skœruliða kommúnista hefur lýst þvíyfir að möguleiki sé á
vopnahléssamkomulagi á allra nœstu dögum