Þjóðviljinn - 07.11.1986, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 07.11.1986, Blaðsíða 7
Nú er ungviðið farið að stjórna. Helga, Guðbjörg, Selmaog Halldór. Mynd: E.ÓI. Tölvu Þaö er rakalaus lygi og þvættingur, að öllu hraki í heimi hér. Hitt er annað að það fer ekki ýkja mikið fyrir því þegar áragamalt - jafnvel áratugagamalt - baráttumál, nær loks í höfn. Síðan ég man eftir mér höfum við unga fólkið, alltaf með reglulegu millibili, risið uppá afturfæturna og heimtað að fá að ráða einhverju um okkar eigið líf. Hjá sumum nálgast þetta eða er þráhyggja, og hvað varðar okkur félaga Orra, höfum við verið haldnir henni allt frá því að við lásum Uppreisnina á barnaheimilinu og tileinkuðum okkur þarmeð baráttutækni byltingarmannsins. Baráttan fyrir því að ráða einhverju um félagsmiðstöðvarnar okkar, hefur verið ámóta stór þáttur í sjálfstæðisbaráttu unglinganna og baráttan gegn einokunarverslun Dana á sjálfstæðisbaráttu íslands. En rétt einsog við íslendingar sigruðum í þeirri baráttu, virðumst við, unga fólkið, nú ætla að sigra í baráttunni við félagsmiðstöðvarnar, þó í áföngum verði. Fyrr á þessu ári var hafin tilraun með svokallað ung- lingalýðræði, en æðsta ráð þess skipulags er kallað unglingaráð. Við fengum til okkar f]óra af meðlimum unglingaráðsins í Þróttheimum, til að fræða okkur um starf þess svo og um Þrótt- heima sjálfa. Þau heita Selma Rut Gunnarsdóttir, Helga Kristín Friðjónsdóttir, Guðbjörg Odds- dóttir og Halldór Eiríksson. Við byrjuðum á að spyrja þau hve- nær og hvernig þau voru valin í ráðið: „Það fóru fram kosningar í byrjun október, þann níunda nánar tiltekið. Það voru um sex- tíu manns sem kusu, fyrst og fremst þeir sem höfðu gild fé- lagsskírteini í Þróttheimum. Frambjóðendurnir voru 7 í allt, en enn þeirra, Halldór, var sjálfkjörin því hann var eini fram- bjóðandinn úr níunda bekk, en í ráðinu verður að vera einn úr hverjum bekk, 7, 8 og 9.“ Hafði eitthvert ykkar verið í fráfarandi ráði? „Nei, ekkert okkar. Við erum öll að byrja í þessu.“ Eykur virkni Og hvernig mælist fyrir hjá ykkur, þetta unglingalýðræði? „Bara vel,“ svara þau stutt og laggott, en þegar við forvitnumst um hvað sé vel, svara þau því til að þetta auki á frjálsræði þeirra og jafnframt virkni og fjölda þeirra sem þátt taka í félagslífinu. En hve mikil er þátttakan? „Það er mjög misjafnt. í hverj- um klúbbi eru svona 10-15 manns. Þessir klúbbar eru 5: vídeó-, ljósmynda-, diskó-, blaðaútgáfu- og förðunarklúbb- ur. Þetta eru fastaklúbbarnir, en síðan eru allskyns tímabundnir klúbbar. Síðan er almennur klúbbur sem fundar einu sinni í viku og sér um að skipuleggja böll og ferðalög o.þ.h. Eigum við að segja rúmlega 100 manns í allt“. En eruð þið nokkurnveginn frjáls að því hvað þið takið ykkur fyrir hendur? „Innan vissra marka. Það sem við gerum má ekki brjóta í bága við lög Þróttheima og unglinga- ráðsins, en bæði eru sett af Æsku- lýðsráði." Sooonaaa Og eruð þið sátt við þessi lög? „Sooonaaa" (afar langdregið). „Maður er ekki sáttur við alveg allt. T.d. finnst okkur ekki rétt að hafa böllin svona stutt, þau eru bara til miðnættis. Og mér finnst Tveir meðlimir Ijósmyndaklúbbsins að störfum. líka of strangt," bætir einhver við, „að menn fá ekki að koma inn af því að þeir hafa tekið einn sopa af brennivíni." Ef þið fengjuð að ráða, hvað þá? „Ætli böllin stæðu bara ekki alla helgina,“ stingur Halldór uppá og fær góðar undirtektir og stelpumar bæta við: „Já og við myndum ekki vera svona ofsa- lega ströng á þessu með brenni- vínið.“ En hvaða vald hafið þið? „Við höfum tillögurétt og með- an við höldum okkur við jörðina fáum við okkar fram. Við höfum þetta þannig, að það er kassi í Þróttheimum þar sem fólk getur látið í hugmyndir. Svo höldum við fund vikulega og vinsum úr raunhæfu tillögurnar. Síðan eru haldnir stórfundir, þar sem allir sem hafa Þróttheimaskírteini mega sitja. Svo ræðum við málin og samþykkjum eða fellum til- lögur.“ Hvað kostar svona skírteini og hve margir eru með það? „Það kostar 300 krónur og gild- ir í eitt ár. Ætli það séu ekki um sjötíu manns búnir að kaupa, en það eiga það líka margir eftir.“ Og hverju hafið þið komið í verk? „Við héldum vetrargleði og svo höfum við keypt tölvuspil. Við vildum líka kaupa afruglara, en samþykktum síðan að bíða fram yfir áramót og sjá hvað set- ur.“ Þið eruð með vídeó, voruð að fá tölvuspil og stefnið á afréttara. Eruð þið ekki að breyta félags- miðstöðinni úr stað þar sem þið gerið eitthvað, í stað þar sem þið eruð mötuð? „Fólk hittist allavega og getur spjallað samnan. Það skiptir nú ekki svo litlu.“ Á náttfötum heila nótt Hvað er fleira á döfinni? „Náttfataball sem stendur Unglingaráðið reynist vel Höldum ótrauð áfram, segir Úlfar Snær. Mynd: E.ÓI. Úlfar Snær Arnarson er í 6. bekk í M.R. og hefur nýlega hafið störf í Þróttheimum. Hans hlut- verk er m.a. að hafa umsjón með unglingaráðinu. Við spurðum Úlfar hvernig mönnum þætti þessi tilraun hafa tekist: „Þetta hefur reynst vel,“ svar- aði hann og vottaði ekki fyrir efa. „Það gefur augaleið að það er af hinu góða að krakkarnir fái að ráða meiru. Þau hafa látið margt gott af sér leiða og ég er ekki frá því að þetta auki virknina. Nú á mánudaginn eru þau með stórfund, þar sem hugmyndir eru bomar upp, ræddar og gengið til atkvæða. Þar liggja fyrir tillögur um vinsældalistann, ball, atriði varðandi sjoppuna og að 5% af tekjum af miðasölu á böll verði látið renna til diskóráðs. Þetta aru allt hlutir sem koma krökk- unum við og þau eiga að hafa áhrif á. Auk almennra mála er snerta félagsmiðstöðina, fá þau svo á- kveðna upphæð árlega sem þau geta ráðstafað. Næst fá þau þetta 1. febrúar og verða sennilega um 70.000 kr.“ Var þetta lengi í bígerð? „Nei. Hugmyndin kom upp fyrir u.þ.b. ári síðan. Fyrirmynd- in var skandinavísk, en það er ýmislegt ólíkt með félags- miðstöðvum þar og hér. Hópur starfsmanna í félagsmiðstöðvum settist síðan niður og bjó til ák- veðinn ramma utan um þetta. Það er síðan mismunandi eftir félagsmiðstöðvum hvernig þessu er háttað í smáatriðum. Þessu unglingalýðræði var síðan komið á laggirnar uppúr áramótunum síðustu." Og samstarfið við krakkana, hvemig gengur það? „Mjög vel.“ Og þið ætlið að halda ótrauð áfram á sömu braut? „Já vissulega.“ heila nótt og er baaara fyrir þá sem eiga Þróttheimaskírteini,“ segja þau brosandi breitt af til- hlökkun. „Svo ætlum við að fara í Vogaskóla og Laugalækjarskóla og kynna Þróttheima. Þannig er að Þróttheimar eiga að vera fyrir þessa skóla og Langholtsskóla, en það eru næstum því bara krakkar úr Langholtsskóla sem sækjaþá. Þaðséstt.d. áþvíað við öll sem erum í unglingaráðinu, erum úr Langholtsskóla." Vitið þið afhverju það er? „Það er lengra fyrir þau að fara og kannski er ekki gert nóg af því að auglýsa dagskrána. Þau nenna ekki að koma til þess eins að gá hvað er að gerast og svo er kann- ski ekkert um að vera. Þrótt- heimar era líka dálítið útúr. Þetta er gamalt hverfi og lítið orðið um unglinga." 15 og fer í Hollí En er þátttaka álíka mikil í öðr- um félagsmiðstöðvum og hjá ykkur? „Já, það er kannski eitthvað meira í Árseli, en annars er þetta sennilega svipað allsstaðar.“ Ef það eru ekki nema 600 ung- lingar sem sækja þessa staði, þá er það ekki nema einn af hverjum tíu sem sækja þetta. Er það nóg? „Það má sjálfsagt örva þetta eitthvað, t.d. meðfleiri stórappá- komum. En það hefur verið reynt áður og lítið batnað aðsóknin.“ En úrþví þeir era ekki fleiri sem vilja koma, vantar þá bara ekki meiri fjölbreytni í starfið? „Það er ekki aðal málið. Þetta er almennt áhugaleysi. Fólk gerir mikið af því að horfa á sjónvarp og svo ræna skemmtistaðirnir frá okkur. Ekki bara Topp Ten og Hædjakk, heldur líka Hollí. Það er líka margir sem fara niðrí bæ, virðast ekki geta skemmt sér án víns.“ Niðrí bæ segið þið, er planið að lifna við aftur? „Nei, það væri frekar torgið. Þangað fer liðið töluvert mikið. T.d. fara sjálfsagt tveir þriðju þeirra sem hér eru á böllum niðrí bæ á eftir.“ Kaupa - mála - stækka „Ef þið fengjuð að ráða Þrótt- heimum ein og peningar væru ekkert vandamál... Það stendur ekki á hugmynd- unum: „Mála húsið - stækka hús- ið - kaupa stóla - kaupa borð og allt bara. Eymalokkaverksmiðju og Guð veit ekki hvað.“ Erað þið heimtiráð? „NEI!“ PJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.