Þjóðviljinn - 08.11.1986, Síða 2
'SPURNINGIN1
Hvað finnst þér um
10% hækkun dag-
vistargjalda í Reykja-
vík?
Halldóra Guömundsdóttir
þroskaþjálfi:
Mór finnst þaö ekki nógu gott að
hækka gjöldin. Mín börn eru hjá
dagmömmu því ég fæ ekki pláss
á dagheimili fyrir þau, einstæðar
mæður ganga fyrir. Og þetta
kemur sór illa fyrir þær. Þetta er
of mikil hækkun.
Guðlaug Guðjónsdóttir
húsmóðir:
Ég er ekki ánægð með þessa
hækkun en skil þörfina á henni
og sætti mig þess vegna við
hana.
Fanney Stefánsdóttir starfar
í bakaríi:
Ég vissi ekki af þessari hækkun
og hef ekki myndað mér skoðun.
Þorvarður Sigfússon nemi:
Hún er ekki í samræmi við þá
stefnu ríkisstjórnarinnar að halda
verðlagi niðri á meðan kaup
hækkar ekki. Hins vegar er þetta
kannski réttlætanlegt því þessi
gjöld hafa verið fryst nokkuð
lengi.
Víkingur Halldórsson
skipstjóri:
Mér finnst þessi hækkun óréttlát.
FRÉTHR
Borgarstjórn
Harðir á Mjóddarríki
Borgarfulltrúar vilja áfengisverslun íMjóddina.
Áfengisverslanir illa staðsettar. Skapa hœttu í umferð
Borgarstjórn Reykjavíkur hef-
ur farið fram á það við fjármála-
ráðherra að komið verði upp
áfengisverslun í Mjóddinni, en
sem kunnugt er hefur ráðuneytið
ákveðið að hætta við byggingu
húsnæðis fyrir áfengisverslun
þar.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Sjálfstæðisflokki hefur lýst þeirri
sícoðun sinni aðkoma ætti upp áf-
engisverslun í Mjódd. Borgar-
fulltrúar Alþýðubandalags,
Kvennalista, Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks hafa tekið
undir það og leggja áherslu á að
frá sjónarhorni skipulags og um-
ferðar sé staðsetning ríkis í
Mjóddinni mun æskilegri en í
Kringlunni, þar sem ríkið hefur
tryggt sér húsnæði undir áfengis-
verslun. Það var reyndar í tíð Al-
berts Guðmundssonar í fjármála-
ráðuneytinu að ríkissjóður lagði
40 miljónir króna í Hagkaupshöl-
lina í þessum tilgangi.
Borgarfulltrúar hafa áhyggjur
af því að áfengisverslun muni
leiða allt of mikla umferð í
Kringluna með tilkomu áfengis-
verslunar þar. Þeir hafa einnig
bent á að þær þrjár verslanir
ÁTVR sem fyrir hendi eru, séu
allar illa staðsettar og skapi hættu
í umferðinni, einkum á annatím-
um, og leggja til að þeim verði
fundinn heppilegri staður.
Þjóðviljinn reyndi að ná sam-
bandi við Þorstein vegna þessa
máls í gær, en var tjáð að hann
væri erlendis.
-gg
Framsókn sjötug
Halelúja
þing
Sigurður Geirdal: Bjart
fyrir stafni og byr í segl-
um
Nítjánda flokksþing Fram-
sóknarflokksins var sett í gær að
Hótel Sögu og er þingið jafnframt
afmælisþing flokksins sem er nú
70 ára gamall. Yfirskrift þingsins
er Ný öld í augsýn.
Á þinginu verður fjallað um
skipulag flokksins og starfshætti,
en í ávarpi til fulltrúanna segir að
þingið sé haldið við góðamál-
efnalega stöðu flokksins. “Það
hefur ríkt bjartsýni en festa í
stefnu flokksins í ríkisstjórninni
sem byggir á trú á landið og fólkið
sem byggir það“ segir Sigurður
Geirdal í ávarpi sínu sem endar á
jafn jákvæðum nótum: “Mitt mat
á stöðu okkar er, að það sé bjart
fyrir stafni og byr í seglum“.
“Þetta verður halelújaþing,
þar sem öll átök verða látin liggja
á milli hluta, enda fara kosningar
í hönd“ sagði einn fulltrúanna við
blaðamann um þingið.
Gamla kempan Eysteinn Jónsson á afmælisþingi Framsóknar. (Mynd: Sig).
Hótel og veitingaskólinn
Vesturland/forval
Tíu í seinni umferð
Síðari umferð forvals Alþýðu-
bandalagsins á Vesturlandi verð-
ur háð í næstu viku og hafa 10
manns tilkynnt þátttöku.
Þeir Gunnlaugur Haraldsson
Akranesi, Árni E. Albertsson
Ólafsvík, Ólöf Hildur Jónsdóttir
Grundarfirði, Þorsteinn Benjam-
ínsson Borgarnesi, Hannes Frið-
steinsson Grundarfirði, Sigurður
Helgason Hraunholtum, Rík-
harð Brynjólfsson Hvanneyri,
Skúli Alexandersson Hellissandi,
Heiðar E. Friðriksson Ólafsvík
og Þorbjörg Skúladóttir Akra-
nesi.
Átta þessara nafna eru afrakst-
ur tilnefninga félaganna í fyrri
umferð forvals. Þá fengu Guð-
bjartur Hannesson Akranesi, Jó-
hanna Leópoldsdóttir, Ragnar
Elbergsson Grundarfirði, Sig-
jóna Valdimarsdóttir Búðardal,
Ingi Hans Jónsson Grundarfirði
og Ólafur Guðmundsson Grund-
arfirði einnig tilnefningar, en þau
gáfu ekki kost á sér. Sem kunnugt
er aftók Jóhann Ársælsson vara-
þingmaður og bæjarfulltrúi á
Akranesi þátttöku í slagnum fyrir
nokkru.
-gg
Leiðrétting
Nafn misritaðist þegar birtur
var listi þátttakenda í forvali Al-
þýðubandalagsmanna á Austur-
landi í blaðinu í gær; einn þátttak-
endanna er Elna Jónsdóttir frá
Egilsstöðum.
Húsnæði skoðað í Kópavogi
Pingmenn Reykjaneskjördæmis: beitum okkur fyrir lausn íKópavogi
Menntamálaráðherra segir í
bréfi sem hann hefur sent
bæjarstjórn Kópavogs að engin
áform séu þjá stjórnvöldum um
að flytja Hótel- og veitinga-
skólann austur að Laugarvatni til
frambúðar. Aðeins séu uppi hug-
myndir um að flytja hluta af verk-
legri kennslu þangað til bráða-
birgða og enn séu í fullu gildi
samningar um framtíðarupp-
byggingu skólans í Kópavogi.
Kristján Guðmundsson bæjar-
stjóri í Kópavogi sagði við Þjóð-
viljann að Kópavogskaupstaður
hefði lengi verið reiðubúinn að
leysa bráðabirgðavanda skólans.
„Við teljum mikla hættu á að ef
hluti af starfseminni verður flutt-
ur austur flendist hann þar og að
samningur Kópavogs og ráðu-
neytis frá 1983 verði þar með að
engu hafður", sagði Kristján.
Eins og komið hefur fram í
fréttum hafa nemendur og kenn-
arar skólans lýst sig andvíga
flutningum að Laugarvatni. f vik-
unni fóru helstu forvígismenn
veitingamanna um Kópavog og
kynntu sér leiguhúsnæði fyrir
skólann og leist þeim vel á.
í gær hélt bæjarstjórn Kópa-
vogs fund með alþingismönnum
Reykj aneskj ördæmis og kom þar
fram sterkur vilji fyrir að leysa
málið.
Á vegum bæjaryfirvalda er
verið að gera áætlun um hvað
kosti að koma upp bráðabirgða-
aðstöðu í leiguhúsnæði því sem
stendur til boða og mun fjárveit-
inganefnd þingsins kynnt sú
niðurstaða innan fárra daga.
-v.
Það er einsog þú
hafir verið að
breytast soldið
uppá síðkastið
vinur.
Góð
athugasemd.
Ég minni
hinsvegar á... I
til að efla samtök okkar
og koma málefnum
okkar til þjóðarinnar
að nú er ekki tími til
að velta vöngum.
Á örlagatímum er
öðru mikilvægara að
allir leggist á eitt og
sæki fram í órófa
fylkingu...
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 8. nóvember 1986