Þjóðviljinn - 08.11.1986, Side 3
BSRB
Tilbúin til
viðræðna
Stjórn og samninganefnd
BSRB hefur lýst sig reiðubúna
til að hefja strax viðræður um
nýjan aðalkjarasamning fyrir op-
inbera starfsmenn á þeim grunni
að samið verði um aukinn kaup-
mátt og lægri verðbólgu.
Á sameiginlegum fundi stjóm-
ar og samninganefndar BSRB í
fyrrakvöld var lögð áhersja á
verulega hækkun lægstu dag-
vinnulauna og að í komandi
kjarasamningum verði aukinn
kaupmáttur tryggður með hækk-
un kauptaxtanna. Kveðst stjórn
og samninganefnd reiðubúin að
semja til ársloka 1987 gegn því að
umsaminn kaupmáttur verði
tryggður með einhverjum ráðum
út samningstímann. Þá er minnt á
að forsenda fyrir lækkun verð-
bólgu og aukins kaupmáttar sé að
stjórnvöld tryggi stöðugt gengi,
lækkun vaxta og aukið aðhald í
verðlagsmálum.
í ályktun stjómar og samn-
inganefndar er vísað til efnahags-
bata og kjarakannana þegar lögð
er fram krafan um aukinn kaup-
mátt og hækkun lægstu dagvinnu-
launa. -v.
Launamál kvenna
Geta ekki
yppt öxlum
Ráðstefna um konurí
komandi samningum.
Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir: Heildarsamtök
launafólks bera ábyrgð á
launamisrétti kynjanna
Heildarsamtök launafólks geta
ekki bara yppt öxlum og sagt að
launastaða kvenna sé konum að
kenna. Heildarsamtökin bera
hikstalaust ábyrgð hvað þetta
varðar, sagði Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir formaður verka-
kvennafélagsins Sóknar, en hún
er ein þeirra sem heldur erindi á
ráðstefnu um konur í komandi
samningum, sem haldin er í dag á
vegum Framkvæmdanefndar um
launamál kvenna.
Erindið sem Aðalheiður flytur
ber heitið Ábyrgð heildarsam-
takanna á launamisrétti, en í því
mun hún jafnframt fjalla um ó-
kosti skammtímasamninga. Önn-
ur erindi sem flutt verða eru um
niðurstöður launakönnunar
Kjararannsóknarnefndar sem
Ari Skúlson starfsmaður nefnd-
arinnar flytur og Jóhanna Sigurð-
ardóttir aíþingismaður mun flytja
erindi um starfsmat. Þá munu
fulltrúar heildarsamtakanna
ræða þær kröfur sem leggja ber
áherslu á í komandi samningum.
Ráðstefnan, sem haldin er í
Sóknarsalnum að Skipholti 50,
hefst klukkan 13 í dag og er þátt-
tökugjald 200 krónur. -K.Ól.
Bandalag jafnaðarmanna
Yfirlýsing til
fjölmiðla
Almennur félagsfundur, sem
haldinn var í Bandalagi jafnaðar-
manna í fyrrakvöld hefur sent frá
sér þessa yfirlýsingu:
„Launárás eins og fram kom á
Stefán Benediktsson á Stöð 2
með dylgjum og ónafngreindum
heimildarmönnum, kom ekki frá
Bandalagi jafnaðarmanna. í jafn
viðkvæmum málum og þessum er
það siðferðileg krafa að heimild-
armanna sé getið.“ - v.
FRÉTTIR
Ummœli Davðs
Sjúkraliðar fokillir
Sjúkraliðar á Borgarspítalanum: Ekki sæmandi manni í stöðu borgarstjóra.
Hulda S. Ólafsdóttir: Borgarstjóri verður aðfinna orðum sínum stoð
Ummæli Davíðs Oddssonar borg-
arstjóra á borgarstjórnarfundi í
fyrrakvöld þess efnis að hópupp-
sagnir sjúkraliða hjá borginni
væru lögbrot hafa vakið reiði og
furðu sjúkraliða, sem og sú
ákvörðun Sjálfstæðisflokksins að
efna ekki til viðræðna við þá hópa
borgarstarfsmanna sem gripið
hafa til hópuppsagna.
Sjúkraliðar á Borgarspítalan-
um sögðu í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær að þeir teldu þessi um-
mæli Davíðs ekki sæmandi manni
í hans stöðu, það væri auðvitað
fráleitt að uppsagnir þeirra vörð-
uðu við lög.
Hulda S. Ólafsdóttir, formað-
ur Sjúkraliðafélags fslands sagði í
gær að borgarstjórinn yrði að
finna orðum sínum einhverja
stoð. „Hér er auðvitað ekki um
neina þegnskylduvinnu að ræða.
Einstaklingar hafa sagt upp störf-
um þar sem þeir sætta sig ekki við
þau lúsarlaun sem í boði eru og ég
harma þá afstöðu borgaryfir-
valda að neita að taka upp við-
ræður við okkur. Við fórum fram
á viðræður við bæði borgarstjóra
og fjármálaráðherra 17. sept-
ember sl. en því hefur ekki verið
svarað, þannig að boltinn er enn
hjá þessum aðilum," sagði Hulda
í gær.,
-gg
Bœkur
Saman í hring
Ný barnabók komin
út eftir Guðrúnu
Helgadóttur. Ástar-
saga úrfjöllunum
komin út vestan hafs
„Ég er eiginlega búin að ganga
með þessa bók í mörg ár og hún
hefur verið til alveg frá því að ég
skrifaði þá fyrri,“ sagði Guðrún
Helgadótttir rithöfundur og þing-
maður í samtali við blaðið í gær
en þá kom út eftir hana ný bók
sem ber nafnið Saman í hring og
er hún framhald af bókinni Sitji
Guðs englar.
„Sagan er sögð út frá sjónar-
hóli miðsysturinnar sem er 8 ára,
en sú fyrri er sögð af elstu systu-
rinni,“ sagði Guðrún. „Miðsy-
stirin, Lóa Lóa, sér hlutina hins
vegar svolítið öðruvísi. Ég hef
hugsað mér að skrifa þá þriðju og
ljúka þessari þrísögu með því að
skrifa hana út frá sjónarmiði litlu
systurinnar, Öbbu hinnar.
Þessi bók er töluvert stærri en
aðrar mínar bækur og sú þeirra
sem ég hef haft hvað mest fyrir'.
Ég vona að hún höfði bæði til
foreldra og barna og gefi fólki
eitthvað til að hugsa um. Það er
Guðrún Helgadóttir: Mikilvægt að foreldramir lesi barnabækumar l(ka og hafi ánægju af. Mynd Sig.
mjög mikilvægt að fullorðnir hafi
ekki síður gaman af að lesa barn-
abækur."
Bókin er gefin út af Iðunni og
er myndskreytt af Sigrúnu Eld-
járn.
Þess má geta að bókin Ástar-
saga úr fjöllunum eftir Guðrúnu
er nýkomin út í Bandaríkjunum í
enskri þýðingu Bretans Christop-
her Sanders sem er mörgum Is-
lendingum að góðu kunnur._v(j_
Þroskahjálp
Blaðaskrífin
besta heimildin
Félagsmálaráðuneytið vill vita meira um hvað
á að rannsaka á Sólheimum.
Þroskahjálp vísar í blaðaskrifin
Félagsmálaráðuneytið hefur
sent Þroskahjálp bréf þar sem
beðið er um útlistanir á því að
hverju úttektin á starfsemi Sól-
heima í Grímsnesi eigi sérstaklega
að beinast, en eins og kunnugt er
fór Þroskahjálp þess á leit við
ráðuneytið að slík úttekt yrði
gerð í kjölfar blaðaskrifa þar sem
starfsemin var harðlega
gagnrýnd.
Að sögn Ásgeirs Sigurgests-
sonar framkvæmdastjóra Þroska-
hjálpar hafa samtökin svarað
bréfi ráðuneytisins og í því aðeins
vísað til blaðaskrifanna og þeirra
þátta sem þar eru tilteknir.
„Þroskahjálp leggur ekki mat á
þá gagnrýni sem fram kemur í
þessum sícrifum. Hins vegar get-
um við að sjálfsögðu ekki látið
hjá líða að óska eftir því við yfir-
völd um málefni fatlaðra að þau
láti málin til sín taka. M.a. í ljósi
þess að áframhaldandi blaðaskrif
í þessum dúr eru til þess fallin að
valda íbúum stofnunarinnar frek-
ari óþægindum," sagði Ásgeir.
Vinstri menn í Háskóla íslands
AÐALFUNDUR
Félag vinstri manna í Háskóla íslands heldur aö-
alfund nú í dag, laugardag 8. nóvember í kaffi-
stofunni Árnagarði. Hefst fundurinn kl. 17.00.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. önnur mál.
3. Gleöskapur.
Allir velkomnir, bæði væntanlegir, nýir og gamlir
félagar.
VIRK BARÁTTA -
BETRI HÁSKÓLI
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3