Þjóðviljinn - 08.11.1986, Side 13
Bretland
Slúttí
kosningar
Skyndilegt örlœti
íhalds-
stjórnarinnar
þykir benda til
kosninga á nœsta
ári
London - Breska ríkisstjórnin
hefur boðaö að næstu tvö ár
hækki ríkisútgjöld um tíu
milljarða punda, og þykir at-
hugendum týra frá stjórn sem
hingað til hefur boðaö niður-
skurð og strangt aðhald í ríkis-
fjármálum.
Stjómarandstæðingar gagn-
rýna Thatcher og félaga fyrir að
leika sér að fjármálum ríkisins til
að hækka í áliti kjósenda, og
fréttaskýrendur segja að þessi
óvænta eyðslusemi bendi til að
kosningar fari fram fyrr en seinna
á næsta ári. Samkvæmt reglum
þarf ekki að kjósa fyrren 1988.
Mest fé rennur til heilbrigðis-
og menntamála þarsem menn
hafa undanfarið fundið mjög
fýrir íhaldsniðurskurði. Sérfræð-
ingar um efnahagsmál eru mjög
hissa á tilkynningu ríkisstjórnar-
innar, og sumir þeirra telja að
meðfram sé verið að sannfæra þá
í kauphöllunum, sem hafa ráð
gjaldmiðla í höndum, um að
Ihaldsflokkurinn sé öruggur um
sigur í næstu kosningum, en það
ætti að styrkja stöðu pundsins.
Stjórnarflokkurinn hefur nú
fimm prósenta forskot á Verka-
mannaflokkinn í skoðanakönn-
unum.
T
Kvenprestar
þjónusta Finna eftir tvö ár, - í
fyrradag samþykkti kirkjuráð lút-
ersku kirkjunnar að kvenfólk
mætti gegna prestsembætti, og
ekki er búist við að finnska þingið
geri annað en að leggja blessun
sína yfir þá ákvörðun. Þarmeð er
lokið áratuga löngum og harðvít-
ugum deilum innan finnsku kirkj-
unnar um fylgispekt við misrétt-
iskenningu Páls postula sem var
á sínum tíma heldur í nöp við að
konur lofuðu guð öðruvísi en sem
óbreyttur safnaðarlýður.
Beljavskí
vann í gær geysisterkt skákmót í
Tilburg í Hollandi. Sovéski stór-
meistarinn fékk 81/2 vinning og
má vera hress. í öðru sæti varð
júgóslavinn Ljúbojevió, sem
hingað er væntanlegur í febrúar,
með 8 vinninga og þriðji
heimsmeistarinn fyrrverandi, An-
atólí Karpof með 71/2. Timman,
Miles og Portisch fengu 7 vinn-
inga, Húbner 61/2 og Kortsnoj
41/2. Sérstaka athygli vakti á móti
að erkifjendurnir Karpof og
Kortsnoj voru allí einu orðnir hinir
ágætustu félagar, spjölluðu sam-
an um skákir sínar og spiluðu
bridds.
Rúmlega
fjögur þúsund hafa látist í styrj-
öldinni í Nicaragua það sem af er
árinu að sögn talsmanns stjórn-
arhersins. Samkvæmt þeim
tölum féllu 3734 contra-
skæruliðar, 631 stjórnarhermað-
ur og 155 almennir borgarar. Frá
því stríðið hófst 1981 hafa sam-
kvæmt tölum stjórnarhersins fall-
ið 17 þúsund manns og 9 þúsund
særst.
Steingervingar
hafa fundist í Suðurskautsísnum,
og eru taldir 42 milljón ára gamlir.
Steingervingarnir eru lauf og
smáverur og fundust við borun á
518 metra dýpi.
HEIMURINN
Ósonlagið
Svíar íhuga freon-bann
Þynnra ósonlag loksins farið að valda áhyggjum á œðstu stöðum. Spáð
stórauknu krabbameini eflagið heldur áfram að þynnast
Stokkhólmur - Umhverfisráð-
herra Svía, Birgitta Dahl, að-
varaði sænsk iðnfyrirtæki al-
varlega í þingræðu í gær um að
sjá til þess að ekki sleppi út í
andrúmsloftið freon-gas sem
talið er helsti andskoti ósonl-
agsins kringum jarðkúluna.
Birgitta Dahl sagði þingheimi
að sænska stjórnin íhugaði að
banna notkun gassins í iðnaði ef
lekamál kæmust ekki í lag. Þegar
eru í gildi lög sem banna freon-
gasið á úðunarbrúsum til almenn-
ingsnota. Freongas er notað
meðal annars sem einangrun í
hitadælum í orkustöðvum, í
plastiðnaði og í byggingarefni.
Óson er afbrigði af súrefni (03)
og er þéttast í 20-30 kflómetra
hæð yfir jörðu, í ósonlaginu, sem
stöðvar útfjólubláa geisla. í ófá
ár hafa menn vitað að lagið gerð-
ist sífellt þynnra, og síðustu miss-
eri telja menn að göt hafi mynd-
ast í lagið yfir suður- og norður-
pólnum, - en ekki er vitað um
ástæður þess að þeim svæðum er
hættast. Nái útfjólubláir geislar
til jarðar í verulegum mæli gæti
jarðlíf beðið ómildan hnekki, og
sérstaklega er talið að undir-
stöðufæðu sjávar sé hætta búin.
í bandarískri vísindaskýrslu
sem birt var í vikunni segir að
haldi ósonlagið áfram að þynnast
með sama hraða og síðustu ár
megi búast við að krabbamein
dragi 800 þúsund Bandaríkja-
menn til dauða næstu 90 ár,
vegna útfjólublárrar geislunar
einnar saman.
V-Þýskaland
Kohl ávflaður
af þinginu?
Jafnaðarmenn á v-þýska
sambandsþinginu hafa nú boriðfram
tillögu um ávítur á Helmut Kohl,
kanslara V-Þýskalands, fyrir að ýja að
líkindum milli Mikhaíls Gorbatsjofs og
Josephs Göbbels, áróðursmeistara
þýskra nasista
Bonn - Helmut Kohl, kanslari
V-Þýskalands stendur nú
frammi fyrir því að hljóta ávítur
frá v-þýska sambandsþinginu
í Bonn fyrir ummæli þau sem
höfð voru eftir honum fyrir
nokkru í bandaríska vikuritinu
Newsweek þar sem hann líkti
saman þeim Gorbatsjof So-
vétleiðtoga og Göbbels, áróð-
ursmeistara þýskra nasista.
Hans-Jochen Vogel, formaður
þingflokks v-þýskra jafnaðar-
manna (SPD) sagði á þinginu í
gær að hann hefði í hyggju að
leggja þar fram snemma í næstu
viku tillögu þess efnis að sam-
bandsþingið ávíti Kohl fyrir um-
mæli sín. Hann hafi líka blekkt
sambandsþingið þegar hann sak-
aði Newsweek um að afbaka svör
sín.
„í tillögunni um ávítur er því
annars vegar haldið fram að
ákærur Kohl á Newsweek séu
ekki á rökum reistar og hins veg-
ar að viðtalið í vikuritinu hafi á
réttan hátt lýst tóni og innihaldi
svars þess sem Kohl gaf“, sagði
Vogel í yfirlýsingu á þinginu í
gær. í tillögunni er hvatt til þess
að Bundestag (neðri deild sam-
bandsþingsins) „ávíti kanslarann
fyrir að breiða yfir eigin mistök
með því að koma með óréttlátar
ásakanir gegn þriðja aðila.“
Stjórnvöld í Moskvu sendu
skrifstofu Kohls skriflega kvört-
un í síðustu viku og frestuðu
heimsókn tveggja háttsettra v-
þýskra embættismanna til Mos-
kvu. Kohl brást við því með því
að segja á sambandsþinginu í
fyrradag, að það hefði alls ekki
vera ætlun sín að móðga Gorbat-
sjof en orð sín hefðu verið mis-
túlkuð. Hann hefði ekki borið
saman Göbbels og Gorbatsjof.
Sovéski sendiherrann í Bonn
fagnaði á varfærnislegan hátt yf-
irlýsingum Kohls. Sendiherrann
sagði að í Moskvu væri enn verið
að íhuga ummæli Kohls í viðtal-
inu við Newsweek en sagði að nú
væri mögulegt að bæta sam-
skiptin aftur, þó það yrði erfitt.
Newsweek hefur hins vegar
brugðist við með því að leika
Orðræða Kohls um Göbbels þykir missmekkleg og þykir mörgum sem hún
komi úr hörðustu átt.
segulbandsupptöku með viðtal-
inu við Kohl, á fréttamannafundi
í V-Þýskalndi. Það gerðu fulltrú-
ar tímaritsins í fyrradag í Bonn. Á
segulbandsupptökunni má heyra
Kohl segja: „Þetta er nútíma-
legur kommúnistaleiðtogi. Hann
hefur aldrei komið til Holly-
wood, aldrei komið til Kaliforn-
íu. En hann skilur ýmislegt um
almannatengsl. Göbbels var
einnig sérfræðingur í almanna-
tengslum.
Vogel sagði á sambandsþing-
inu í fyrradag að Kohl hefði verið
hirðulaus, hrokafullur og seinn
að átta sig. „Skilur þú ekki að þú
hefur skaðað möguleika þína til
að ræða við einn af fulltrúum risa-
veldanna á þann máta sem erfitt
verður að bæta fyrir.“
Mál þetta hefur vakið gífurlega
athygli í V-Þýskalandi og er talið
að það muni skaða mjög Kohl í
komandi þingkosningum.
-IH
Hryðjuverk
Shultz og Chirac Ivtt sáttir
París - Spjall bandaríska utan-
ríkisráðherrans George Shultz
við fréttamenn eftir fund sinn
með Jacques Chirac, franska
forsætisráðherranum, bendir
til að þeir félagar hafi skilið lítt
sáttir um helsta viðræðuefnið,
baráttu gegn hryðjuverka-
mönnum.
Shultz sagði um fundinn að ef
vinátta markaðist af hreinskilni
og því að menn segðu gagnrýna
meiningu sína hefði ríkt mikil
vinátta á fundi þeirra Chiracs.
Ágreiningur Chiracs og Shultz
í þessum efnum stafar af rifrildi
Breta við Sýrlendinga, sem sak-
aðir eru um stuðning við hryðju-
verk í Bretlandi og víðar. Jórdan-
íumaður var fyrir nokkru dæmd-
ur í 45 ára fangelsi í London fyrir
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
hryðjuverkatilraun sem Sýrlend-
ingar eru taldir hafa tekið þátt í,
og í framhaldinu rauf Lundúna-
stjórn stjórnmálasamband sitt
við Bagdad.
Bandaríkjamenn hafa stutt við
bakið á Bretum í þessum málum,
en ákalli Breta til annarra Efna-
hagsbandalagslanda um stuðning
hefur verið tekið mjög dræmlega,
enda er uppi önnur sýn en hin
engilsaxneska á vandanum við
Miðjarðarhafsbotn í til dæmis
Frakklandi og Ítalíu, og Frakkar
hafa við mörg ríki þar söguleg
tengsi og hagsmunaleg.
Shultz sagði Bandaríkjamenn
vera að endurskoða samband sitt
við Sýrland og væntu þeir þess að
Evrópuríki tækju sem harðasta
afstöðu.
Tóbaksauðhringar
Sækja á þríðja heiminn
Singapore - Stærstu tó-
baksfyrirtæki heims beina nú
framleiðslu sinni í æ ríkari
mæli til þriðja heimslanda í
von um aukna sölu vegna
sölutregðu tóbaksafurða á
Vesturlöndum, segir í tilkynn-
ingu frá samtökum sem berj-
ast gegn tóbaksreykingum.
Fulltrúar Alþjóðlegu samtak-
anna gegn krabbameini, (IUAT)
halda nú heimsráðstefnu sína f
Singapore. Þeir sögðu í gær að
reykingar hefðu minnkað mikið í
hinum þróuðu iðnríkjum. Þær
hafa hins vegar aukist um tvö
prósent í þriðja heiminum á síð-
ustu árum. Fulltrúar IUAT segja
að sú aukning sé fyrst og fremst
vegna mikilla áróðursherferða
stærstu tóbaksframleiðenda . í
heiminum.
IH