Þjóðviljinn - 08.11.1986, Síða 14
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Reykjanesi
Kjördæmísráðsfundur
Boðað er til fundar í kjördæmisráði í Þinghóli Kópavogi, mánudaginn 10.
nóvember kl. 20.30.
Dagskrá: 1) Undirbúningur kosninga. 2) Skipun 9 manna blaðnefndar. 3)
Önnur mál. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið Akranesi
Bæjarmálaráð
Fundur verður haldinn mánudaginn 10. nóvember kl. 20.30 í Rein. Dag-
skrá: 1) Fréttir af starfi nefnda. 2) Bæjarstjórnarfundur 11. nóvember. 3)
Önnur mál.
Ragnar og uppreisnin
I tilefni af miðstjórnarfundinum um helgina verður opið hús í Miðgarði,
Hverfisgötu 105, laugardagskvöldið 8. nóvember frá kl. 21. Að lokinni
sýningu á Uppreisninni á fsafirði í Þjóðleikhúsinu mætir höfundur verksins,
Ragnar Arnalds, á staðinn og situr fyrir svörum.
Alþýðubandalagsfélagar og stuðningsmenn eru hvattir til að koma og njóta
samvista við félaga á landsbyggðinni.
Stjórn ABR
SUÐURLAND
Forval 14. og 15. nóvember
Fyrri umferð forvals Alþýðubandalagsins á Suðurlandi vegna alþingis-
kosninga fer fram dagana 14. og 15. nóvember. Kjörstaðir verða opnir
16-22 báða dagana. Kosið verður hjá formönnum félaganna nema annað
sé tekið fram. Þeir eru:
Vestmannaeyjar: Guðmundur Jensson Hólagötu 32, s. 98-2126. Kjör-
staður verður í Hólshúsi (Kreml).
Selfoss: Anna K. Sigurðardóttir Laufhaga 15, s. 99-2189. Kjörstaður verð-
ur í Alþýðubandalagshúsinu Kirkjuvegi 7.
Þorlákshöfn: Elín B. Jónsdóttir Haukabergi 6, s. 99-3770. Kjörstaður
verður á skrifstofu Stoð s/f Unubakka.
Stokkseyri: Ingi S. Ingason Eyjaseli 7, s. 99-3479.
Uppsv. Arnessýslu: Unnar Þ. Böðvarsson Reykholti, Biskupstungum, s.
99-6831.
Vestur-Skaftafellssýsla: Margrét Guðmundsdóttir, Vatnsskarðshólar,
Mýrdalshreppi, s. 99-7291.
Hveragerði: Magnús Ágústsson, Lindarbrekku, s. 99-4579.
Rangárvallasýsla: Upplýsingar hjá: Einar Sigurþórsson Háamúla, s. 99-
8569 og Guðrún Haraldsdóttir Þrúðuvangi 9, Hellu, s. 99-5821.
Utanskjörstaðaatkvæðagreiðsla stendur frá 8. nóvember. Kosið verður
hjá formönnum og á aðalskrifstofu Ab Hverfisgötu 105 í Reykjavík. Flokks-
mönnum er bent á að kynna sér forvalsreglur hjá stjórnum félaganna.
Fyrir hönd stjómar kjördæmisráðs: Einar Birgir Steinþórsson,
Vestmannaeyjum, hs. 98-2960 og vs. 98-1079.
Alþýðubandalagið Reykjavík
Viðtalstími borgarfulltrúa
Kristín Ólafsdóttir borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins verður til viðtals á
Hverfisgötu 105 laugardaginn 8. nóvember frá kl. 13.- 14.
Borgarmálaráð ABR.
Sveitarstjórnarmenn AB og áhugamenn um sveitarstjórnarmál
Fundur Byggðamanna
Byggðamenn halda fund í Miðgarði, Hverfisgötu 105 Rvík. 19. nóvember.
Fundurinn hefst kl. 20.
Dagskrá: 1) Frumvarpsdrög um breytingu á tekjustofnalögum. Fjallað
verður sérstaklega um fasteignagjöld, útsvör og jöfnunargjald. 2) Sam-
vinna sveitarfélaga á Suðurnesjum - ný viðhorf. 3) Stjórnarkjör. 4) Önnur
mál.
Stjórnin.
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Halló, halló!
Um leið og við þökkum öllum þeim sem hafa keypt af okkur happdrættis-
miða, minnum við þá sem eiga gíróseðla upp á ísskáp hjá sér að þeirra
stuðningur verður vel þeginn.
uHEGIÐ 1. DESEMBER N.K.
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins.
Utanríkismálanefnd ÆFAB
Fundur verður í utanríkismálanefnd ÆFAB sunnudaginn 15. nóvember að
Hverfisgötu 105 kl. 17.00.
Dagskrá: 1) Skýrslur frá landsfundi SHA og aðalfundi El Salvadornefndar- ■
innar. 2) Starfið framundan (Nánar auglýst síðar.) - Utanríkismálanefnd
ÆFAB.
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins
Framkvæmdaráð ÆF
Matarfundur verður hjá framkvæmdaráði á laugardaginn 8 nóvember að
Hverfisgötu 105.
Dagskrá: 1) Útgáfumál. 2) Fjármál. 3) Utanríkismál. 4) Starfið framundan.
Bon apetit.
Kvenréttindafélagið
Konur í
kosningaham
Vetrarstarf Kvenréttindafélags
íslands er nú hafíð, en í tilefni af
komandi alþingiskosningum
verður yfirskrift starfsársins
“Konur í kosningaham“.
í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að markmiðið í vetur sé að
“freista þess að taka þátt í að
breyta þeirri mynd sem blasir við,
og auka hlutdeild kvenna á Al-
þingi“, en konur þar eru sem
kunnugt er aðeins 9 af 60. Kven-
réttindafélagið, sem hefur
reyndar frá stofnun hvatt konur
til þess að sækja fram hverja í
sínum flokki, hefur að þessu sinni
sent bréf til fulltrúaráða, kjör-
dæmaráða og formanna flokk-
anna stjórnmáiaflokkanna, auk
kvennadeilda þeirra, þar sem
hvatt er til þess að unnið verði að
framgangi kvenna í komandi
kosningum.
Þá hefur félagið gefið út vegg-
spjald með yfirskriftinni “Býrð
þú í karlaríki" og í ráði er að efna
til námskeiða fyrir konur sem
vilja vera virkari í pólitísku starfi
og halda ráðstefnu með þeim
konum sem verða í framboði til
komandi alþingiskosninga.
-K.Ól.
Tækniskólinn
16 nýir
meinatæknar
20 árfrá því kennsla í
meinatækni hófst við
skólann
16 meinatæknar voru nýlega
útskrifaðir af námsbraut í meina-
tækni við Tækniskólann í Reykja-
vík og við það tækifæri var þess
einnig minnst að 20 ár eru nú liðin
frá því að kennsla hófst í meina-
tækni við skólann.
Nú fer nám meinatækna fram á
námsbraut í meinatækni við
heilbrigðisdeild Tækniskólans í
samvinnu við rannsóknardeildir
heilbrigðisstofnana og spannar
námið 7 annir.
Meðal þeirra sem fluttu ávarp
við útskriftina voru Árni Gunn-
arsson skrifstofustjóri í mennta-
málaráðuneytinu, Bjarni Krist-
jánsson skólastjóri, Guðrún Ing-
varsdóttir deildarstjóri og Helga
Ólafsdóttir formaður Meina-
tæknafélags íslands sem flutti
kveðjur félagsins og færði náms-
brautinni gjöf.
Krabbameinsfélagið
Haust-
happdrættið
er hafið
Árlegt hausthappdrætti
Krabbameinsfélagsins er nú haf-
ið. Vinningar eru þrjár Subaru
Station bifreiðar og þrjár Ford Si-
erra, allar af árgerð 1987, auk
tuttugu og fímm vöruvinninga að
verðmæti 50 þúsund krónur hver
og sextíu og níu vinninga á 25 þús-
und krónur hver. Samtals að
verðmæti um 6,2 miljónir króna.
Dregið verður að vanda 24. des-
ember.
Krabbameinsfélagið er mjög
háð happdrættinu um fjármagn
til að standa undir daglegum
rekstri sínum. Könnun sem Hag-
vangur gerði í sumar bendir ein-
dregið til að mikill meirihluti
landsmanna sé reiðubúinn til að
kaupa happdrættismiða félagsins
og þá fyrst og fremst til að tryggja
starfsemi þess.
Lausasala fer fram á skrifstofu
happdrættisins í Skógarhlíð 8,
Reykjavík, og síðustu tvær vik-
urnar fyrir jól í sölubíl í Austur-
stræti.
Útboð -
kælikerfi
Hagkaup hf. Lækjargötu 4, Reykjavík, óskar eftir
tilboöi í smíöi og uppsetningu á kælikerfi fyrir
matvöruverslun Hagkaups í Verslanamiðstöð í
Kringlumýri í Reykjavík.
Tilboð óskast m.a. í eftirtalda verkþætti:
- Kælipressur er anna allt að 250 kW
- Eimsvala er anna allt að 370 kW
- Allar tengingar og lagnir
- Raflagnir og stýrikerfi
- Uppsetningu og tengingu kæliborða
yerkinu skal að fullu lokið 1. júní 1987.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sig-
urðar Thorddsen hf. Ármúla 4, Reykjavík frá og
með þriðjudeginum 4. nóvember 1986 gegn
5.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila til Hagkaups hf., Lækjargötu
4, Reykjavík fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 9. des-
ember 1986 en þá verða þau opnuð þar að við-
stöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Hagkaup hf., Lækjargötu 4, Reykjavík
Auglýsið í Þjóðviljanum
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fjölskyldudeild Félagsmálastofnunar Reykjavík-
urborgar leitar að fjölskyldum í Reykjavík, sem
geta tekið börn á aldrinum 0-12 ára í fóstur í 2-4
mánuði.
Nauðsynlegt er að annað hjóna sé heimavinn-
andi.
Við óskum eftir hlýlegu fólki, sem hefur reynslu í
barnauppeldi og ertilbúið að veita börnum stuðn-
ing og alúð.
Þeir sem áhuga hafa eru vinsamlegast beðnir að
snúa sér til Helgu Jóhannesdóttur, félagsráð-
gjafa eða Áslaugar Ólafsdóttur félagsráðgjafa í
síma 685911 milli kl. 8.30 og 16.00 virka daga.
St. Jósefsspítaii, Landakoti
Lausar stöður
Þurfum á góðu fólki að halda til starfa við ræsting-
ar. Vinnutími frá kl. 7.30-15.30 eða 8-12.
Unnið ertvær helgar, þriðja helgin frí. Upplýsing-
ar í síma 19600 - 259 alla virka daga frá kl. 10-14.
Reykjavík 8.11. 1986.
Eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Indriði Sigurðsson
Melabraut 16, Seltjarnarnesi
lést í Landakotsspítala fimmtudaginn 6. nóvember s.l.
Erla Árnadóttir
Slgurður Stefánsson
Anna Sigríður Indriðadóttir Jón Ögmundsson
Árni Indriðason Kristín K. Einarsdóttir
Sigurður Indriðason
Kári Indriðason
og barnabörn.
Alúðarþakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför
Sigríðar Lilju Ámundadóttur
frá Sandlæk.
Systkini og vandamenn.