Þjóðviljinn - 08.11.1986, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
' ‘
Laugardagur 8. nóvember 1986 255. tölublað 51. árgangur
SPJALDHAGI
allar upplýsingar
á einum stað
#
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Sjálfstœðisflokkurinn
Sendu starfsmann
Enginn Sjálfstœðisþingmaður á SÞ-þing.
Guðrún Agnarsdóttir: Gildirgreinilega ann-
að um þá en okkur
að skiptir greinilega ekki svo
miklu máli lengur hverjir fara
þegar það hentar þessum herra-
mönnum, sagði Guðrún Agnars-
dóttir þingflokksformaður
Kvennalista í gær, en hún fer við
fjórða mann á þing Sameinuðu
þjoðanna n.k. þriðjudag. Hinir
eru Eyjólfur Konráð Jónsson,
Sjálfstæðisflokki, Ragnar Arn-
atds, Alþýðubandalagi og Jón H.
Guðmundsson, Alþýðuflokki.
Kosningar
Klofningshreppur
klofinn
Kjósendur í Fellastrandar-
hreppi og Skarðshreppi í Dölum
ganga til hreppsnefndarkosninga
á morgun, í annað sinn á árinu.
Klofningshreppur hefur verið
lagður niður, og skiptist milli
hinna hreppanna tveggja og þarf
því að kjósa forystumenn í
sveitarstjórnirnar uppá nýtt.
Engir listar bárust og er kosn-
ingin óhlutbundin í báðum
hreppunum, ~m
T— 1
Nú um helgina koma fulltrúar
tveggja þingflokka heim frá alls-
herjarþinginu, þeir Jón Sveins-
son, Framsóknarflokki og Sigur-
björn Magnússon, Sjálfstæðis-
flokki. Hvorki Sigurbjörn, sem
er starfsmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, né Jón H. Guðmundsson,
fyrrverandi skólastjóri eru vara-
þingmenn en í fyrra gerðu Sjálf-
stæðismenn og Morgunblaðið
harða hríð að Kvennalistanum
fyrir að senda KristínuJónsdóttur
til Sí>, en hún var neðarlega á lista
þeirra. Engar athugasemdir hafa
nú verið gerðar opinberlega við
þetta val þingflokkanna.
Ingvi S. Ingvason, ráðuneytis-
stjóri utanríkisráðuneytisins
sagði í gær að þeir vildu halda sig
við þá aðalreglu að varamenn eða
þingmenn sjálfir færu á allsherj-
arþingið. Þingflokkarnir hefðu
hins vegar átt erfitt með að finna
menn úr þeim hópi á tilsettum
tíma og því hefði verið vikið frá
þessu nú og áður. Af hálfu ráðu-
neytisins gilti hins vegar sama af-
staða.
Fulltrúar þingflokkanna sitja 3
vikur í senn á þinginu, sem áætlað
er að ljúki 6. desember n.k.
-ÁI
...........1
Afmœli
Sátt
viðlífið
Hólmfríður Björnsdóttir
verður hundrað og
tveggja ára í dag
Hundrað og tveggja ára er í dag
Hólmfríður Björnsdóttir, frá
Nesi í Loðmundarfirði. Hún
dvelst nú á elliheimilinu Sunnu-
hlíð í Kópavogi og er vel ern þó
heyrn sé farin að tapast.
Hólmfríður er mikil hannyrða-
kona og enn í dag fellur henni
vart verk úr hendi.
„Ég hef alltaf haft það gott og
verið ánægð með lífið. Það var
það sem þurfti með,“ sagði
Hólmfríður þegar hún var spurð
hverju hún þakkaði langlífi sitt.
Nútímann afgreiddi hún með
því að segja að sér litist sæmilega
á hann.
Hólmfríður fæddist á Fá-
skrúðsfirði. Faðir hennar varð
einnig mjög aldinn, rúmlega átt-
ræður er hann lést, en það þótti á
þeim tímum mjög hár aldur.
Reyndar hefur Hólmfríður
ekki ætíð verið jafn heilsuhraust
og nú, því um miðja ævina átti
^__________________________________________________ hún við lasleika að stríða, en það
Hólmfríður Björnsdóttir sagðist alltaf hafa haft það gott og verið ánægð með eltist af henni og „lasleikanum vil
lífið. Mynd Sig. ég bara gleyma“. -Sáf
Nú býðst þér töfraheimur íslenskrar
myndlistar
ágóðu verði
Frábær greiðslukjör á bókinni
Ef þú hefur samband við okkur getur þú fengið bókina senda heim.
Þá má greiða bókina með afborgunum og dreifa þannig lágu verði á
langan tíma!
Kjörin gjöf til vina og viðskiptamanna innanlands sem utan.
LISTASAFN
ÍSLANDS
Auk listaverkamyndanna, sem flestar eru
litprentaðar, er í bókinni heildarskrá íslenskra
verka í eigu safnsins, æviatriði höfunda og ágrip af sögu Listasafnsins.
Bókin er ómissandi fyrir alla sem láta sig íslenska myndlist varða;
Listamenn, fræðimenn, námsmenn, listunnendur og aðra, sem vilja
kunna skil á menningararfi okkar.
Bókin Listasafn íslands 1884-1984
er sérstaklega falleg listaverkabók sem hefur að
geyma margar af perlum listasögu okkar.
Verð aðeins kr. 3.705-