Þjóðviljinn - 19.11.1986, Blaðsíða 14
ALÞÝPUBANDALAGIP
Austurland
Forval 22. -23. nóvember.
Síðari umferð forvals AB á Austurlandi vegna alþingiskosninga fer fram
dagana 22. og 23. nóvember. Formenn félaganna veita allar upplýsingar.
Þeir eru:
VÖpnafjörður: Guðmundur Wium s: 3326, Egilsstaðir, Hérað og Borgar-
fjörður: Kristinn Árnason s: 1286. Seyðisfjörður: Jóhann Jóhannsson s:
2425. Neskaupsstaður: Már Lárusson s:7331. Eskifjörður: Hjalti Sigurðs-
son. s:6367. Reyðarfjörður: Sveinn Jónsson s:4377. Fáskrúðsfjörður:
Magnús Stefánsson s: 5211 Stöðvarfjörður Ármann Jóhannsson s:5283.
Breiðdalsvík: Þorgrímur Sigfússon s:8817. Djúpivogur: Eysteinn Guðjóns-
son s: 8873. Höfn: Sigurður Geirsson s:8172.
Utnakjörstaðaatkvæðagreiðsla stendur frá 17. nóvember. Kosið verður
hjá formönnum og á aðalskrifstofu AB Hverfisgötu 105 í Reykjavík á skrif-
stofutíma.
Alþýðubandalag Hafnarfjarðar
Gunnar Rafn
Félagsfundur
Félagsfundur ABH verður haldinn í Skálanum mið-
vikudaginn 19. nóv. kl. 20.30. Dagskrá: 1) Undirbún-
ingur kosninga. Framsaga: Gunnar Rafn Sigur-
görnsson. 2) Stjórnmálaviðhorfin. Framsaga:
lafur Ragnar Grímsson. Nýir félagar eru boðnir
velkomir. - Stjórnln.
Ólafur Ragnar
Alþýðubandalagið í Vesturlandskjördæmi
auglýsir síðari hluta forvals
Kosningarétt hafa allir flokksbundnir Alþýðubandalagsmenn á viðkomandi
félagssvæði svo og allir stuðningsmenn þess sem af heilindum vilja taka
þátt í forvalinu, enda hafi stjórn viðkomandi félags samþykkt þá.
Kosning skal fara fram á tímabilinu 13.-20. nóvember.
Kjörgögnum skal skila til fulltrúa viðkomandi félags í uppstillingarnefnd fyrir
klukkan 12.00 föstudaginn 21. nóvember n.k.
Talning atkvæða fer fram í Borgarnesi laugardaginn 22. nóvember kl.
20.00.
Úrslit verða kunngerð á kjördæmaráðsfundi sem hefst kl. 14.00 daginn
eftir, þann 23. nóv. í Borgarnesi.
Forvallð er ekki bindandi.
Nánari upplýsingar gefa formenn Alþýðubandalagsfélaganna.
F.h. uppstillingarnefndar
Ólafur Guðmundsson Grundarfirði sími 8703.
Sveitarstjórnarmenn AB og áhugamenn um sveitarstjómarmál
Fundur Byggðamanna
Byggðamenn halda fund í Miðgarði, Hverfisgötu 105 Rvík. 19. nóvember.
Fundurinn hefst kl. 20.
Dagskrá: 1) Frumvarpsdrög um breytingu á tekjustofnalögum. Fjallað
verður sérstaklega um fasteignagjöld, útsvör og jöfnunargjald. 2) Sam-
vinna sveitarfélaga á Suðurnesjum - ný viðhorf. 3) Stjórnarkjör. 4) Önnur
mál.
Stjórnin.
Vesturlandskjördæmi
Kjördæmisráðsfundur
Kjördæmisráð boðar til fundar sunnudaginn 23. nk. í Röðli.Brákarbraut 3,
Borgarnesi. Fundarefni: 1) Niðurstaða forvals. 2) Önnur mál. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið Neskaupstað
Seinni hluti forvals
Seinni hluti forvals fer fram að Egilsbraut 11, laugardaginn 22. og 23.
nóvember nk. Opið verður frá kl. 13 - 18 báða dagana.
Þeir sem ekki verða heima fyrrgreinda daga haf i samband við Má Lárusson
s. 7331, Lilju Huldu Auðunsdóttur s. 7327 og Bjarna Aðalsteinsson s. 7583.
Félagar og stuðningsmenn fjölmennið. - Stjórn ABN.
HRARIK útboð
RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftirtilboðum í eftir-
farandi:
RARIK-86017: Aflastrengir, stýrisstrengir og ber
koparvír.
Opnunardagur: Fimmtudagur 8. janúar 1987, kl.
14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyriropn-
unartíma og verða þau opnuð á sama stað að
viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, frá
og með fimmtudegi 20. nóvember 1986 og kosta
kr. 200,- hvert eintak.
Reykjavík 17. nóvember 1986
Rafmagnsveítur ríkisins
Umferðarátak
12 milljónir í fræðslu
Tryggingarfélögin ákveða að veita 1 % afiðgjöldum nœsta árs
til umferðaráróðurs
„Það var ákveðið að verja 1%
af bókfærðum iðgjöldum trygg-
ingafélaganna á árinu 1987 til
umferðaráróðurs og umferðar-
fræðslu og félögin munu sjálf
sinna verkefnum í samvinnu við
Umferðarráð,“ sagði Brúnó
Hjaltested aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Samvinnutrygg-
inga í samtali við blaðið að lok-
inni ráðstefnu bifreiðatrygginga-
félaganna um öryggismál í um-
ferðinni sem haldin var á mið-
vikudag.
Ástæðuna fyrir þessarri
ákvörðun sagði Brúnó vera að
félögunum fyndist ekki nógu
miklu fé veitt til umferðaráróð-
urs. Upphæðin sem félögin munu
verja til umferðaröryggismála á
næsta ári er álíka há og fjárveiting
ríkisins til Umferðarráðs eða um
12-13 milljónir að sögn Brúnós.
„Ef dregur úr tjónum eftir
þetta átak okkar þá spörum við
þjóðarbúinu og tryggingarfé-
lögunum mikla peninga,“sagði
Brúnó. „Tryggingatakar hagnast
auðvitað líka því fækki tjónum
hækka iðgjöld minna eða jafnvel
lækka.“
-vd.
Framhaldsskólar
Afleit
einkunnargjöf
Félag framhaldsskóla: Koma í vegfyrirfjölbreytt
menntakerfi
i stofnfundi Félags framhalds- málaráðherra er einungis sá að
n skóla fyrir skömmu var sam-
þykkt ályktun um menntamál,
þar sem ítrekað var að þess verði
að gæta við skipulagningu og
uppbyggingu menntakerfisins að
hafa fjölbreytni í kennslu og
námsframboði sem mesta. „Mið-
stýrðar samræmingaraðgerðir af
hálfu stjórnvalda eru því, að mati
félags Framhaldsskóla, einungis
til þess fallnar að koma i veg fyrir
þá fjölbreytni sem menntakerfið
verður að bjóða upp á.“ Síðan
segir:
Nýsettar reglur menntamála-
ráðherra varðandi einkunnargjöf
í framhaldsskólum eru sorglegt
dæmi um þær samræmingarað-
gerðir sem hér hefur verið fjallað
um. Sjáanlegur tilgangur með
þessum nýju reglum mennta-
auðvelda ríkisbákninu að draga
námsmenn í dilka að loknu stúd-
entsprófi. Námsmat í fram-
haldsskólum batnar á engan hátt
með tilkomu þessara reglna, en
þær eru sem hnefahögg í andlit
þeirra sem vilja beita sér fyrir
fjölbreyttu menntakerfi. Það ætti
að vera hverjum manni ljóst að
mismunandi kennsluhættir kaila
á mismunandi aðferðir við náms-
mat og standa regiurnar því
beinlínis í vegi fyrir fjölbreyttum
kennsluháttum.
Félag framhaldsskóla skorar
því að menntamálaráðherra að
fella nýju einkunnarreglurnar úr
gildi nú þegar og heitir fullum
stuðningi við allar tillögur sem
draga úr miðstýringu mennta-
mála og auka við fjölbreytni
menntakerfisins.
Alþýðusamband
Austurlands
Samninga
strax
Alþýðusamband Austurlands
samþykkti á þingi sínu á dög-
unum að ef ekki næðist samstaða
um sameiginlega samningagerð í
komandi kjarasamningum þá
muni aðildarfélög ASA standa
saman sem órofa heild að samn-
ingum heirna í héraði.
I kjaramálaályktun þingsins er
lögð áhersla á að úrlausn fáist hið
fyrsta á kjörum þeirra lægst-
launuðu og því verði að ganga til
samninga nú þegar. Samningarn-
ir í febrúar sl. hafi markað ákveð-
in þáttaskil en ekki verið neinn
lokasigur. Áherslan í komandi
samningum verði að dagvinnu-
laun dugi til framfærslu, kjörin
séu tryggð með rauðum strikum,
launamunur verði Ieiðréttur milli
kynja og búsetuskilyrðin í
landinu jöfnuð.
Gosdrykkir
Landsbyggðargosið dýrt
Verðkönnun Verðlagsstofnunar: Geysilegur verðmunur á gosi útum
landið. Mun lœgra verð íReykjavík
Verðkönnun Verðlagsstofnun-
ar á gosdrykkjum sýnir fram á að
geysilegur verðmunur er oft á tíð-
um á sömu vöru í mismunandi
verslunum. í Ijós kom að allt að
71% munur er á hæsta og lægsta
verði af 19 cl flösku af kóki og
67-69% munur á 25 cl flösku af
appclsíni.
Samkvæmt könnuninni er verð
á gosdrykkjum í flestum tilvikum
mun lægra í Reykjavík en annars
staðar. Hæst er verðið að jafnaði
á ísafirði, í Bolungarvík, á
Reyðarfirði, Höfn í Hornafirði
og á norðaustur homi landsins.
Þannig er verð á gosdrykkjum
hjá Kaupfélagi N-Þingeyinga
ótrúlega hátt miðað við verðið í
Reykjavík. Gengið var út frá því í
könnuninni að lítil kók kostaði 14
krónur í Reykjavík, en hún kost-
aði 24 krónur á Raufarhöfn. Á
sama tíma og sykurlaust appelsín
kostaði 16 krónur í Reykjavík
kostaði það 27 krónur á Raufar-
höfn. Einn og hálfur líter af kóki
kostaði minnst 79 krónur í
Reykjavík, en hvorki meira né
minna en 112 krónur hjá Gunnari
Hjaltasyni á Reyðarfirði.
í frétt frá Verðlagsstofnun
segir að flutningskostnaður sem
leggst ofan á verðið víða úti á
landi skýri ekki nema hluta af
þessum mikla verðmismun.
Hluta af skýringunni mun vera að
finna í kostnaði vegna milliliða og
mishárri smásöluálagningu. -gg
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 19. nóvember 1986