Þjóðviljinn - 28.11.1986, Blaðsíða 1
ASÍ/VSÍ
Samkomulag um bónusinn
Samkomulag um að hlutur bónusar affastakaupinu minnki og um bónusútreikning. Lengd samningstímabils rædd.
Ásmundur Stefánsson: Uppstokkun launaflokkakerfisins erforsenda hœkkunar lægstu launanna
Astuttum fundi samninga-
nefndarinnar í gær var byrjað
að ræða það hvort semja ætti til
skemmri eða til lengri tíma. Þá
var bónusmálið til umræðu í
nefndum, en samningsaðilum
tókst að ná samkomulagi um þær
leiðir sem farnar skyldu við út-
reikning bónussins, en það er
fyrsta samkomulagið sem gert
hefur verið í þessum viðræðum.
hæstan bónus hafa haft tapa
engu. Launakjörin munu síðan
ráðast af því hvar fiskvinnslufólki
verður raðað í launaflokkakerfi.
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var eftir samningafundinn
sagði Ásmundur Stefánsson að
ekki væri farið að sjá til botns í því
hvort samningar yrðu gerðir til
.lengri eða skemmri tíma. Hann
ítrekaði hins vegar að gengið
hefði verið til viðræðnanna með
það markmið að lægstu launin
hækki, samhliða með áherslu á
það samningsákvæði sem er í
gildi að flokkakerfið verði stokk-
að upp. „Við erum öll sammála
um það okkar megin samnings-
borðsins að forsenda þess að við
náum að færa lægsta kaupið upp
þannig að það haldi, er að flokk-
akerfið verði stokkað upp. Þessi
aðferð auk endurskoðunar á bón-
uskerfinu eru þær aðferðir sem
við höfum upphaflega miðað við
til að ná lægstu laununum upp,“
sagði Ásmundur, en umræður
um uppstokkun flokkakerfisins
hafa aðeins lítillega komið til við-
ræðu samningsaðila enn sem
komið er.
Samningsaðilar beggja vegna
borðsins vildu ekki útiloka að
samningar tækust fyrir mánaða-
mót, það yrði látið á það reyna.
Fundir í nefndum héldu áfram í
gærkvöldi, en viðræðunefndar-
fundur hefst á ný klukkan 14 í
Þórir Daníelsson talsmaður
bónusnefndarinnar sagði að
samkomulagið væri þess eðlis að
byrjað væri að greiða bónus við
hærri mörk en nú gerist. Sú
breyting kemur þeim best sem
lítinn bónus hafa haft. Samtímis
verður það tryggt að þeir sem
Alþingi
Tannlæknar
Tannlæknar fengu fimm
sinnum meiri
launahækkun en
bóndinn
Flugvöllur
Er hægt með litlum
tilkostnaði að nota
Akureyri sem
varaflugvöll?
Sjá bls. 7
Fjárvonir
íslensku fangelsin: Valinn maður í hverju rúmi og komast færri að en vilja. (Mynd Sig. o.fl.)
Bak við lás og slá
Tugthusin em kjaftfull
Gífurlegfjölgunfangelsisdómaásl. 2 árum: Kjaftfull fangelsi.
Lottó-æði
„Ég geri ráð fyrir að heildar-
salan á lottó-miðum verði komin
upp í 3-4 milljónir þegar dregið
verður á laugardag“ sagði Vil-
Iijálmur Vilhjálmsson fram-
kvæmdastjóri íslenskrar Getspár
í samtali við blaðið í gær, en þá
var salan komin upp í 1,2
milljónir.
„Salan hefur farið dagvaxandi
alla vikuna, og við búumst við að
hún vaxi ákaft á föstudag og laug-
ardag“ sagði Vilhjálmur.
íslensk Getspá þarf að selja
miða fyrir rúmar tvær milljónir til
þess að koma slétt út og kvaðst
Vilhjálmur engar áhyggjur hafa
af því. „Við kýlum á auglýsingar
á föstudag og laugardag og það
myndast örugglega biðraðir við
kassana áður en dregið verður“
sagði hann. -vd.
Skák
Í6. sæti
Fyrir lokatörnina í Dubai er ís-
lenska skáksveitin í sjötta sæti
eftir 3-0 sigur á Indónesum í gær.
Margeir á vænlega biðskák við
Handoko. í dag kljást okkar
menn við forystusveit Banda-
ríkjamanna.
Sjá síðu 6
Fangelsisdómum hefur fjölgað
gífurlega á undanförnum
tveimur árum og nú er svo komið
að Hegningarhúsið við Skóla-
vörðustíg í Reykjavík er yfirfullt.
Þar hafa ekki verið teknir inn
sektarmenn um mánaðaskeið að
sögn Guðmundur Gíslasonar for-
stöðumanns þess.
Björk Bjarkadóttir formaður
Fangavarðafélagsins vekur at-
hygli á því í nýjasta tölublaði Fé-
lagstíðinda SFR, að í fangelsun-
um sé hvert einasta pláss nýtt,
Eg ræddi við Seðlabankastjóra
um að hann tæki að sér að
boða til samráðsfundar með
Landsbanka og Búnaðarbanka
um þessi mál og hann lofaði að
athuga málið mjög fljótlega,
sagði Matthías Bjarnason við-
skiptaráðherra í samtali við Þjóð-
viljann í gær, en nú eru uppi há-
„jafnvel þau sem hefðu ekki talist
mönnum bjóðandi fram að
þessu.“ Og um Litla-Hraun sagði
hún: „Þar verður jafnvel að nota
klefa sem við köllum skápa.“
Guðmundur sagði í gær að
skýringin á þessu aukna álagi á
fangelsin væri að hluta til sú að
viðurlög t.d. við ölvunarakstri
hefðu verið hert gífurlega. Þá
hefði aukin fíkniefnaneysla og
dómar í kjölfar hennar átt drjúg-
an þátt í þessari þróun. „Það hef-
ur vissulega verið mikið álag á
værar raddir um að Seðlabanki
greiði fyrir því að hægt verði að
standa við skuldbindingar við
sauðfjárbændur vegna afurða
þeirra frá í haust. Sú tillaga kom
fram í bréfi viðskiptabankanna
þriggja til Jóns Helgasonar land-
búnaðarráðherra, þar sem þeir
gerðu grein fyrir stöðu þessa
okkur og við höfum orðið að nota
klefa sem annars eru ekki í notk-
un. Ástandið er oft þannig að við
höfum ekki pláss fyrir þá sem
eiga að sitja af sér sektir og ann-
að, þannig að segja má að hér
hafi oft á tíðum ríkt ófremdará-
stand,“ sagði Guðmundur.
Fangavörður sem Þjóðviljinn
ræddi við í gær orðaði þetta þann-
ig að fangelsin væru „kjaftfull" og
ástandið væri það versta sem
hann hefði komist í kynni við á
löngum starfsferli sem fanga-
máls.
Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður sagði í umræðum
um málið á alþingi í gær að það
væri ekki aðeins afleiðing af
stefnu ríkistjórnarinnar í land-
búnaðarmálum, heldur einnig
stefnu hennar í banka- og vaxta-
má!um. -gg/Á!
vörður. „Jafnvel rónarnir komast
ekki lengur inn,“ sagði hann.-gg
Vídeóleigur
Amrískur
afsláttur
50% afsláttur á vídeóspólum
vegna þakkargjörðardags
(Thanksgiving day). Þannig
hljómaði auglýsing á Bylgjunni í
gær. Það voru þrjár vídeóleigur
sem minntust þessa helgidags
kanans með afslættinum.
Þakkargjörðardagur var í gær
og almennt frí í Bandaríkjunum
þessvegna. Hér á íslandi hélt lífið
samt sinn vanagang ef undan er
skilinn þessi óvænti afsláttur
vídeóleiganna. Spyrja menn sig
nú hvort í framhaldi af þessu
verði veittur afsláttur á stutt-
pilsum á þjóðhátíðardegi Skota á
sunnudag eða á svínakjöti á
Ramadau, föstumánuði
múhameðstrúarmanna. -Sáf
Sauðfjárafurðir
Seðlabankinn hjálpi til