Þjóðviljinn - 28.11.1986, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 28.11.1986, Blaðsíða 2
-SPURNINGIN- Hvað finnst þér um út- hlaup Dagsbrúnar- manna og Sambands byggingamanna úr samningaviðræðunum í gær? Halldór J. Guðmundsson, rafsuðumaður: Það þarf náttúrlega að hækka taxtann hjá þessum stéttarfé- lögum en fyrst og fremst þarf að hækka laun þeirra lægstlaunuðu. Að því þurfa menn að einbeita sór. Sigurjón Jónsson, stæðisvörður í Kolaportinu: Meginmálið er að menn samein- ist í einn hóp með kröfur sínar. Það er besta leiðin til að ná fram kröfum um hærri laun. Hanna Sigurðardóttir, skrifstofustúlka. Mér finnst ágætt að einhverjir vilji taka sér meiri tíma en viku til að semja um launakjör lands- manna. Vika er allt of stuttur tími. En það má vera að kosninga- skjálfti hafi þarna eitthvað að segja. Vlðar Sigurgelrsson, vélstjóri: Veistu, þetta hjal um að hækka lægstu launin hefur gengið svo lengi að ég hef því miður ekki mikla trú á að það gerist nú, hvernig sem menn vilja fara að því. Þetta hjal ristir ekki djúpt nú frekar en fyrr. Guðrún Jónsdóttir, húsmóðir: Mér fannst það ekki nógu gott. Þeir hefðu átt að halda áfram samfloti við aðra í samningamál- unum. FRÉTHR Neskaupstaður 30 pláss vantalin í Neskaupstað Menntamálaráðherrafór með rangar tölur ísvari við fyrirspurn á Alþingi. Bœjaryfirvöld í Neskaupstað óska eftir leiðréttingu Bæjaryfírvöld í Neskaupstað hafa mótmælt upplýsingum sem menntamálaráðherra lagði fram á Alþingi fyrir skömmu þegar hann svaraði fyrispurn frá Sva- vari Gestssyni og Guðrúnu Helgadóttur um fjölda og starf- semi dagvistarstofnana í landinu. í svari ráðherra kom fram að dagheimilispláss í Neskaupstað væru 16 og 55 leikskólapláss og voru þessar tölur sagðar miðaðar við 1. desember 1985. Staðreynd- in er sú að á þessum tíma voru 36 dagheimilspláss í bænum og 66 leikskólapláss. í Neskaupstað voru því flest dagheimilispláss á landinu miðað við íbúafjölda eða 2.1 á hverja 100 íbúa og nær 4 leikskólapláss á hverja 100 íbúa en Neskaupstaður hefur einmitt verið í forystu í dagvistunarmál- um á undanförnum áratugum. Það er rétt við höfum gert at- hugasemdir við þessar tölur sem ráðherra fór með á Alþingi og eigum von á því að þetta verði leiðrétt. Ég veit að þessar tölur eru mjög villandi fyrir aðra kaup- staði eins og Kópavog þar sem tölumar eru þetta gamlar og eins segir samanburðurinn aðeins hálfa sögu um hug borgaryfir- valda í Reykjavík því þar eru tal- in með pláss sem félög og stofn- anir ráða yfir, sagði Ásgeir Magnússon bæjarstjóri í Nes- kaupstað í samtali við Þjóðvilj- ann. Ásgeir sagði að nú væri í fyrsta sinn í langan tíma fullbókað í öll dagvistar- og leikskólapláss í bænum en engir biðlistar og ástandið í góðu lagi en á síðustu árum var töluvert um auð og ó- notuð pláss á dagvistunarstofn- unum bæjarins. -lg- Ný bók Brautryðjandi í búnaðarmálum Saga Torfa Bjarnasonar og Ólafsdalsskóla Torfí var ótrúlega einstakur maður. Hann var fjögurra manna maki því að með lífsstarfi sínu kom hann því í verk, sem fjórir menn hefðu verið fuli- sæmdir af. Ljárinn hans, sem hann kom með frá Skotlandi og smíðaði síðan eftir, er kannski það merkasta, sem hann hafði með sér þaðan. Ljárinn bjargaði íslensku skógunum frá eyðingu því þá var hætt að nota viðarkoiin og afköst manna við slátt jukust a.m.k. um þriðjung. Verkfærin Arkitektar Reykjavík framtíðarinnar Arkitektafélag íslands efnir á morgun til ráðstefnu um Reykja- vík framtíðarinnar. Ráðstefnan sem verður öllum opin hefur hlotið yfirskriftina „Miðborgir, mannlíf og mannvirki“, og er markmið hennar að ræða fram- tíð Reykjavíkur i ljósi þekkingar og hugmynda um þróun borga al- mennt með sérstakri áherslu á miðborgir. Ráðstefnan verður haldin í Norræna húsinu og hefst kl. 9.15 og stendur fram eftir degi. Meðal þeirra sem flytja erindí eru Stefán Thors sem fjallar um borgar- skipulag í sögulegu samhengi, Haukur Viktorsson fjallar um Miðbæjarkjarna, Valdís Bjarna- dóttir talar um Árkitektúr í mið- borgum, Bjarni Reynisson og Jó- hannes Kjarval fjalla um stjórn- tæki í skipulagi. Frjálsar um- ræður verða að loknum þessum fyrirlestrum og stýrir Sigurður Harðarson umræðunum en ráð- stefnustjóri verður Hrafnkell Thorlacius. -4g. frá Ólafsdai ollu hliðstæðri bylt- ingu i íslenskum landbúnaði og varð þegar dráttarvélarnar og tæki með þeim leystu hestaverk- færin af hólmi. Þannig fórust þeim m.a. orð Játvarði Jökli Júlíussyni, bónda og rithöfundi á Miðjanesi, Jónasi Jónssyni, búnaðarmálastjóra og Ólafi H. Torfasyni, forstöðu- manni Upplýsingaþjónustu land- búnaðarins er þeir kynntu nýút- komna bók um Torfa Bjarnason og Ólafsdalsskólann, sem Ját- varður Jökull hefur skrifað. Og það má kallast einkennileg tilvilj- un og ánægjuleg að Játvarður Jökull er sonur Júlíusar Jóhanns Ólafssonar, sem nam í Ólafsdal fyrstu tvo veturna, sem skólinn starfaði, 1880-1882, og bar fyrs- tan nemenda þar að garði þá um haustið. Ólafsdalsskólinn, fýrsti búnað- arskóli á fslandi, var stofnaður af Torfa Bjarnasyni 1880 og starfaði til 1907. Hann brautskráði hátt á annað hundrað búfræðinga, sem síðan störfuðu í öllum landshlut- um. -mhg Játvörður Jökull með bókina um Torfa og búnaðarskólann í Ólafsdal. Mynd - Sig. Námslán Námsmenn gera stjómvöldum tilboð Samstarfsnefnd námsmanna- hreyfínganna hefur gert Lánasjóðsnefnd ríkisstjórnar- flokkanna tilboð um að þessir að- ilar sameinist um tillögur náms- manna um hækkun á endur- greiðsluhlutfalli námslána, gegn þvf að ríkisstjórnin leggi til hliðar hugmyndir sínar og tillögur um vaxtahækkanir, niðurskurð og hámark á námslánum sem náms- menn hafa alfarið lýst andstöðu sinni við. Búist er við að stjórnarflokk- arnir svari tilboði námsmanna í dag eða á morgun. Framsóknar- menn hafa ekki tekið tillögunum illa en Sjálfstæðismenn eru síður hrifnir. Tillögur námsmanna- hreyfinganna ganga út á, að endurgreiðslustuðull námslána sem í dag er 3.75% af útsvars- stofni hvers lántakenda verði á bilinu 3.5 - 4.5% eftir því hve námslánsskuldin er há hjá hverj- um námsmanni. Með þessu móti verði mögulegt að ná endur- greiðsluhlutfallinu uppí þau 88% sem lögin um Lánasjóð íslenskra námsmanna geri ráð fyrir. En þá verði einnig að standa við önnur ákvæði sömu iaga sem stjórnvöld hafa algerlega hundsað, þe. að námslán dugi að fullu fyrir fram- færslu og að jafnrétti sé tryggt til náms. jg 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 28. nóvember 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.