Þjóðviljinn - 28.11.1986, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 28.11.1986, Blaðsíða 6
Styðjum Guðrúnu Helgadóttur alþingismann Guðrún Helgadóttir hefur í sjö ár setið á þingi fyrir okkur vinstrimenn í Reykjavík. Þar hefur hún staðið í fremstu víglínu og sýnt það og sannað að stjórnmál snúast um daglega lífsbaráttu okkar, en ekki um málamiðlanir og baktjaldamakk. Guðrún hefur beitt sér af djörfung og sjálfstæði, meðal annars í menningar- og menntamál- um, málefnum fjölskyldunnar og kjaramálum, og haft að leiðarljósi í máiflutningi sínum þá alþýðlegu skyn- semi og mannlegu tilfinningu sem oft vantar í málróf einhæfra þingmanna. Við síðustu þingkosningar var Guðrún í þriðja sæti G-listans í Reykjavík. Við undirrituð skorum á Alþýðu- bandalagsfélaga að gera hlut hennar - og sinn - sem mestan í forvalinu 29. og 30. nóvember næstkomandi. Aagot Vlgdís Óskarsdóttlr tónlistarkennari Álfhelöur Kjartansdóttlr þýðandi Anna Soffla Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur Andrea Jónsdóttir dagskrárgerðarmaður Arl Tryggvason strætisvagnastjóri Arna Jónsdóttir fóstra Árnl Björnsson þjóðháttafræðingur Árnl Einarsson framkvæmdastjóri Árni Óskarsson bókmenntafræðingur Áml Slgurjónsson ritstjóri Árný Erla Sveinbjörnsdóttir jarðefnafræðingur Björn Th. Björnsson listfræðingur Björn Jónasson framkvæmdastjóri Bríet Héðinsdóttir leikari Bubbl Morthens hljómlistarmaður Eggert W. Nlelsen verkamaður Elnar Bragason húsasmiður Einar Már Guðmundsson rithöfundur Einar Kárason rithöfundur Garðar Mýrdal eðlisfræðingur Gfsli Sváfnisson kennari Guðmundur Andri Thorsson gagnrýnandi Guðrún Ása Grimsdóttir handritafræðingur Halla Kjartansdóttir háskólanemi Halldór Guðmundsson útgáfustjóri Helgl Hjörvar menntaskólanemi Hrafnhildur Guðmundsdóttir forstöðumaður Hrannar B. Arnarsson formaður Félags framhaldsskólanema Inglbjörg Haraldsdóttir rithöfundur ívar Gissurarson forstöðumaður Ljósmyndasafnsins Jóhannes J.S. Kjarval arkítekt Jón Th. Haraldsson sagnfræðingur Lára Gunnarsdóttir fyrrv. forstöðumaður Lára Marteinsdóttlr nemi Logi Elðsson form. Nemendafélags Ármúlaskóla Lllja Valdlmarsdóttir hljómlistarmaður Linda Vilhjálmsdóttir sjúkraliði Mörður Árnason blaðamaður Ólöf Rfkharðsdóttir starfsmaður Sjálfsbjargar Páll Baldvln Baldvinsson framkvæmdastjóri Páll Valdlmarsson verkamaður Páll Valsson háskólanemi Ragna Ólafsdóttlr kennari Slgurður Einarsson iðnnemi Sigrún Valbergsdóttir leikstjóri Slgurlaug Straumland læknaritari Sllja Aðalsteinsdóttlr ritstjóri Stefán Jónsson fyrrv. alþingismaður Sverrlr Tómasson miðaldafræðingur Tómas R. Elnarsson hljómlistarmaður Tryggvl Hermannsson bifreiðarstjóri Vlgdís Grímsdóttlr rithöfundur Póra Kristln Ásgeirsdóttir verkakona Þorstelnn Blöndal læknir Þórunn Jónsdóttlr fóstra ' Þórunn Slgurðardóttir leikstjóri Þurfður Magnúsdóttlr forstöðumaður örnólfur Thorsson bókmenntafræðingur Ö88ur Skarphéðlnsson ritstjóri Auglýsing SKAK Ólympíuskák I toppbaráttunni! íslendingar í6. sæti. 3-0 og vænleg biðskák gegn sterkum Indónesum. Bandaríkjamenn treystaforystu sína, - í dag mœta þeirokkar mönnum í slensku strákarnir í Dubai hafa náð sér eftir hrinuna hörðu á móti Sovét og Englandi. í gær vannst glæsilegur sigur yfír einni sterkustu skákþjóð Asíu, 3-0, og biðskák Margeirs er talin sæmi- lega vænleg líka. Sjötta sætið eftir 11. umferð, og í dag er það að öllum líkindum forystusveit Bandaríkjanna sem íslending- arnir etja kappi við. Staðan á toppnum hefur ekki breyst veru- lega, en Sovétmenn drógust hálf- um vinningi afturúr Könum. Kvennasveit Sovétmanna er hins- vegar örugg með guUið, hefur 261/: vinning, Ungverjar 22, Pól- verjar, Kínverjar og Rúmenar 21 Vi. Mikill dagur í gær hjá okkar mönnum, - úr biðskákunum um ' morguninn fékkst hálfur annar vinningur (Helgi vann Kúbu- manninn, Jóhann gerði jafntefli við Pólverjann), - og gegn Indó- nesum þrír, samtals 4Vz og að minnsta kosti hálfur í viðbót í bið- skák. Á tveimur fyrstu borðum rúlluðu íslendingarnir upp Indó- nesunum. Helgi hvfldi eftir bið- skák sína, og Jóhann var fánaber- inn, tefldi drottningarindverja gegn Ardiansjah, fórnaði drottn- ingu í 23. leik og fékk í skiptum hrókana báða og riddara og ó- stöðvandi sókn sem endaði með gjöf í 27. leik. Jón L. var með hvítt gegn kunningja okkar frá síðasta Reykjavíkurmóti, Utut Adianto, - sá sem vann Miles í fyrstu umferðinni á Loftleiðum, og er nú búinn að næla sér í stór- meistaranafnbót með góðri frammistöðu í Dubai. Jón L. var hvergi banginn. Uppúr Caro- Kann vörn hóf hann kóngssókn með þremur peðum og valtaði hinn geðuga Utut í 22 leikjum. Á fjórða borði sat Karl Þor- steins í sóknarhug gegn Sig- angang sem gafst upp í mátstöðu eftir 36 leiki, og hefur Karl þá unnið tvær af þremur ólympíu- skákum sínum suðurvið Persa- flóa. Margeir tefldi þunga skák gegn Handokó, vann peð og virt- ist með betra tafl, og á að minnsta kosti hálfur vinningur að vera í höfn. Gegn Bandaríkjamönnum í dag að öllum líkindum. Þeir náðu forystu í gærmorgun þegar Seirawan vann biðskák sína við Portisch hinn ungverska, og Bahrain, og sitja langneðstir á botninum með 4V2 vinning. Næstu sveitir fyrir ofan eru trá Gambíu (I2V2), Botswana (14) og Máritíus (15). Án þess að miklast um of af sigrinum í gær er rétt að minna á ágætan árangur Indónesanna: naumt tap (lVi-2l/i) gegn Banda- ríkjunum og Júgóslavíu, jafntefli við Frakka og Kúbumenn, 3-1 sigur gegn Pólverjum. Sumsé engir aukvisar. Helstu úrslit úr 11. umferð í gær: Bandaríkin-Spánn ftalía-lndland Karl Þorsteins hefur allar ástæður til að láta skína I tennurnar. fleyttu sér síðan áreynslulítið framhjá Spánverjum, 3-1. Sovét- menn unnu Búlgari naumlega 2V1-V/2, - Karpov rétt náði jöfnu á móti Kiril Georiev, fyrrverandi heimsmeistara unglinga. Eng- lendingar geta saxað á Banda- ríkjamenn ef sigur fæst í biðskák gegn Rúmenum, en Ungverjar náðu aðeins 2-2 gegn grönnum sínum Tékkum. Þráinn Guðmundsson Skák- sambandsforseti sagði við Þjóð- viljann í gær að íslendingunum í Dubai litist „bara vel“ á Banda- ríkjamenn. Þeir væru aldrei hræddir við Kanana, þekktu þá vel, og væru í góðu formi. Allt gæti gerst, - það hefði sýnt sig að sterkustu sveitirnar þyldu álagið illa; allar nema sú sovéska. Ur neðstu byggðum Dubai- mótsins er það meðal annars að frétta að aumingja Seychelles- skákmennirnir töpuðu 0-4 fyrir 3-1 2-2 21/2-1 1/2 21/2-11/2 2V2-V2, B 2-2 2-2 21/2-1 1/2 2- 1, B 3-1 3- 0, B 21/2-1 1/2 3- 1 4- 0 Skotland-Sýrland Sovét-Búlgaría England-Rúmenía Tekkó-Ungverjaland Kína-Júgóslavía Chile-Argentína V-Þýskaland-Austurríki Pólland-Tyrkland Ísland-lndónesía Kúba-Ástralía Frakkl.-Filipsseyjar Brasilía-Kólombía Staða efstu Iiða fyrir biðskákir í dag: 1. Bandaríkin (31) 2. England (29V2B) 3. Sovétríkin (291/z) 4. Ungverjaland (28V2) 5. Spánn (28) 6. ísland (27B) 7. -8. Búlgaría, Pólland (27) 9.-13. Tékkóslóvakía, Kína, Júgó- slavía, Chile, Brasilía (26V2) 14. V-Þýskaland (26B) 15. Argentína (26) 16. Rúmenía (251/2B) 17. -19. Kúba, Frakkland, Nicaragua (251/2) 20. Sviss (25B) 21. -24. Tyrkland, Ástralía, Indland (25) 25. Austurríki (241/2BB) - n Biðskák Margeirs Margeir á góðar vinningslíkur. Hann þarf að hrekja hvíta kóng- inn af miðborðinu, síðan ýtir hann frípeðunum sínum fram, og vinnur með tímann. Hann verður að varast hvíta peðið á h-línunni, sem gæti orðið að frípeði, og einnig að hvítur fái færi á að drepa peðið á b5, því þá rynni a-peðið uppí borð. Margeir átti biðleik og hefur sennilega leikið Ke7, sem hótar Kd6 og e5. Mar- geir ætti að hafa það en verður að tefla af nákvæmni. - JT Fundur með Uriel Perez Hótel Borg laugardag kl. 14 Uriel mun segja frá ástandinu í Nicaragua, skemmdarverkum contra-málaliöanna og fjáraustri Bandaríkjastjórnar til aö reyna að kæfa frelsisbaráttu þessarar þjóöar. Fyrirspurnum svaraö, íslensk þýöing. í byrjun fundar mun Torfi Hjartarson sýna og útskýra nokkrar litskyggnur frá Nicaragua. ALLIR VELKOMNIR, MISSIÐ EKKI AF GÓÐUM FUNDI El Salvador-nefndin á íslandi. Auk El Salvador-nefndarinnar standa eftirtaldir aöilar að því aö bjóða Uriel Perez hingað til lands: Æskulýðsfylkingin, Kvennalistinn, Vinstri sósíalistar, Alþýðuflokkurinn, SHA, Baráttusamtök sósíalista, Alþýðubandalagið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.