Þjóðviljinn - 28.11.1986, Qupperneq 3
¥mm
Spámennska
Stjómarstefnan draumsýn
Efasemdirum raunsæi ístefnu ríkisstjórnarinnar á Spástefnu. Þorsteinn Pálsson: Ekkertfararsnið á góðœrinu
Efnahagssérfræðingar lýstu á
Spástefnu 1986, sem haldin
var í gær, miklum efasemdum um
að rflástjórninni tækist að ná
þeim markmiðum sem hún hefur
sett sér í efnahagsmálum á næsta
ári.
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð-
herra ítrekaði á spástefnu Stjórn-
unarfélagsins meginmarkmið
ríkistjómarinnar í þjóðarbúskap
á þar til hún lætur af völdum. Sú
stefna hefur verið mörkuð að
verðbólga aukist að minnsta kosti
ekki á næsta ári, og menn hafa
jafnvel verið að gera að því skóna
að takast megi að ná verðbólgu
allt niður að 5%. M er það einnig
meðal efnahagsmarkmiða stjórn-
arinnar að viðskipti við útiönd
verði hallalaus.
Ragnar Árnason lektor og
fleiri efuðust stórlega um raunsæi
þessara markmiða í erindum sín-
um í gær. Menn lýstu áhyggjum
sínum af ofþenslu í þjóðarbú-
skapnum og alvarlegum halla á
rekstri ríkissjóðs og taldi Ragnar
að í Ijósi þeirra staðreynda væri
vafasamt að verðbólgumarkmið
stjórnarinnar gætu talist raunsæ.
Það setti mark sitt á spá-
mennsku manna í gær að mikil
óvissa ríkir um hugsanlegt ástand
efnahagsmála á næsta ári þar sem
nú er verið að reyna að koma
saman kjarasamningum og í vor
rennur kjörtímabil stjórnarinnar
út. Þorsteinn Pálsson sagði þetta
tvennt geta haft úrslitaáhrif á
þróun efnahagsmála á næsta ári,
en ekkert benti til þess að góðær-
inu væri að linna og því væru
miklir möguleikar á að ná árangri
í efnahagsmálum. „Næsta ár get-
ur orðið með þeim bestu í þjóð-
arbúskapnum fram til þessa,“
sagði Þorsteinn. -gg
ísafjörður
Nýja sjúkrahúsið
er að úreldast
Hafin bygging á nýju sjúkrahúsifyrir 12
árum. Óvíst hvenœr hægt er aðflytja inn. Á
meðan beðið er liggja sjúklingar á alltof litlu
sjúkrahúsi sem uppfyllir ekki lágmarkskröfur
um hollustuhœtti
A því herrans ári 1970 kom
fyrst til tals að reisa nýtt sjúkra-
hús fyrir Vestfirðinga á Isafirði
enda gamla sjúkrahúsið löngu of
lítið. Fyrsta skóflustungan var þó
ekki tekin fyrr en á þjóðhátíðar-
árinu 1974.
Bókfærður kostnaður hvers árs
við bygginguna, óframreiknaður,
er nú orðinn 89 milljónir og áætl-
að er að ljúka fjórða og síðasta
áfanga í apríl á næsta ári. Til sam-
anburðar má geta þess að 18
VILBORG
DAVÍÐSDÓTTIR,
Fréttaskýring
mánuðum eftir að fyrsta skóflu-
stungan var tekin að gamla
sjúkrahúsinu var hægt að flytja
inn. Það var árið 1925.
Enn er eftir að kaupa sjúkra-
rúm og tækjabúnað, í nýbygging-
una og sá kostnaður mun eflaust
skipta milljónum. Ekki er vitað
hversu háa fjárhæð fjárveitinga-
valdið, hyggst veita í bygginguna,
en ríkið greiðir 85% af kostnað-
inum.
„Sú tala sem við höfum heyrt
dugar alls ekki og við vinnum í
því núna á fullu að pressa á fjár-
veitingavaldið“ sagði Haraldur
L. Haraldsson bæjarstjóri á ísa-
firði í samtali við Þjóðviljann.
„Það er mjög slæmt ef við þurf-
um að bíða með flutninga í 1-2 ár í
viðbót því að gamla sjúkrahúsið
er óstarfhæft og vinnuaðstaða þar
fyrir neðan allar hellur.“
Það er ekki bara ástandið á
gamla sjúkrahúsinu sem veldur
mönnum áhyggjum, heldur einn-
ig hönnun nýja sjúkrahússins.
Vegna þessa langa byggingartíma
hefur nú komið í ljós að mörg
dæmi eru þess að tæknilegur út-
búnaður sem var hannaður upp-
haflega er nú orðinn úreltur.
Vestfirðingar eru orðnir lang-
þreyttir á seinaganginum og ný-
lega kom til tals að selja sveitarfé-
lögum og öðrum aðilum sem
áhuga hefðu á skuldabréf, til þess
að afla fjár.
Einsog Þjóðviljinn hefur skýrt
frá hefur heilbrigðisfulltrúinn á
ísafirði lagt fram lista yfir 26 at-
riði sem bæta þarf úr eigi ekki að
þurfa að loka gamla sjúkrahús-
inu. Meðal þess sem lagfæra þarf
er salerni við skurðstofu, sprung-
ur í veggjum, eldhúsinnréttingu
og ruslakassa.
32 sjúkrarúm eru í gamla
sjúkrahúsinu en þegar húsið var
byggt 1925 var gert ráð fyrir 17
rúmum. Röntgentæki hafa verið
flutt í þann hluta nýbyggingarinn-
ar sem er tilbúinn og rúm sett í
röntgenherbergið fyrrverandi.
Einnig hefur baðherbergi verið
innréttað sem sjúkrastofa og fyrir
kemur að sjúklingar liggja í rúm-
um sfnum frammi á göngum og
tjald er dregið fyrir.
Hversu lengi þetta ástand varir
veltur á fjárveitingavaldinu í
Reykjavík.
-vd.
Spáð um efnahagslottóið hjá Stjómunarfélaginu: Lára M. Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri félagsins, Guðmundur
Magnússon viðskiptafræðingur, Ragnar Árnason hagfræðingur, Friðrik Friðriksson hagfræðingur (Mynd: E.ÓI).
Eyjafjarðarsjónvarp
Sendirinn kominn
Stöð tvö send út í Eyjafirði í desember. Stefnt að eyfirskum dagskrárl-
iðum og fréttum
Sendir Eyfirska sjónvarpsfél-
agsins er nú niðurkominn í
Reykjavíkurhöfn og verður drif-
inn norður næstu daga. Þarmeð
geta útsendingar Akureyrarsjón-
varpsins hafist f byrjun desemb-
er, en þar verður send út vikug-
ömul dagskrá Stöðvar tvö nema
fréttir.
Bjami Hafþór Helgason hjá
Samveri á Akureyri sagði Þjóð-
viljanum að stefnt væri að dag-
skrárgerð í héraði mjög fljótlega,
og síðar eyfirskum sjónvarps-
fréttum með Stöðvarefninu.
Dagskráin nyrðra verður einsog
hjá Stöðinni bæði trufluð og ótr-
ufluð.
Sjónvarpsreksturinn verður í
höndum Eyfirska sjónvarpsfél-
agsins sem reyndar er enn ekki
fullstofnað, en ráð fyrir því gert
að eigendur séu margir hinir
sömu og að Samveri, sem sér um
tæknihliðina og um væntanlega
dagskrárgerð. Samvinnufyrir-
tækin eiga meirihluta í Samveri, -
KEA, SÍS, Kaffibrennslan
o.s.frv., og auk þess einkafyrir-
tæki og einstaklingar, t.d. Þórar-
inn Agústsson og Hermann
Sveinbjörnsson ritstjóri Dags.
Gerður hefur verið viðskiptas-
amningur við Stöð tvö um efnisk-
aup framtil ársloka 1988.
Fyrst um sinn ná sjónvarps-
sendingar til Eyfirðinga frá Hjalt-
eyri að Grund, en í ráði er að
koma upp litlum sendi í Hrísey og
bættust þá við íbúar þar, á Greni-
vfk, Dalvík og nágrenni. Hugsan-
legt er að Húsvíkingar og nær-
sveitarmenn bætist í hópinn síð-
ar.
- m
Lánasjóðurinn
--------- ■■ r
Tohran enn sljo
Rukkunarseðlar með gjalddaga 1 .nóvember
að berast núna til skuldunauta LÍN.
Það hefur dregist svona lengi
að senda út seðlana vegna
tölvuvandkvæða sagði Þorbjörn
Guðjónsson nýskipaður fram-
kvæmdastjóri Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna þegar Þjóð-
viljinn leitaði upplýsinga um
hvers vegna skuldunautum LÍN
eru fyrst nú að berast rukkunar-
seðlar með gjalddaga
l.nóvember.
Að sögn Þorbjarnar leggjast
dráttarvextir á afborganirnar
22.desember en þess er hvergi
getið á seðlunum. „Fólk veit að
það á að borga af lánunum
l.nóvember og venjan er að ein-
dagi sé mánuði frá sendingu til-
kynningarinnar. Kannski hefði
verið eðlilegt að setja eindagatil-
kynningu á seðilinn“ sagði Þor-
björn.
Aðspurður sagði hann að það
kæmi til álita að fresta dagsetn-
ingu eindagans fram í lok des-
ember, þannig að mánuður væri
liðinn frá sendingu seðlanna.
Orsakir tölvuvandkvæðanna
hjá LÍN eru að þessu sinni þær að
nýlega var farið að innheimta
bæði V-lán sem voru tekin á bil-
inu 1975-1982 og T-lán, sem voru
tekin á bilinu 1982 til dagsins í
dag og það hefur reynst tímafrek-
ara en reiknað var með að koma
þessu til skila í tölvuna hjá
SKÝRR, sem sér um mestan
hluta tölvukeyrslu fyrir LÍN.-vd.
Kópavogsbúar athugið!
Opið hús ABK
Alþýðubandalagið í Kópavogi verður með
Opið hús á föstudagskvöld í Þinghóli Hamra-
borg 11 (fyrir ofan Apótekið). Húsið opnað kl.
21.00.
Gestur kvöldsins verður Bubbi Morthens.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Léttar
veitingar og fjörugar samræður fram yfir
miðnætti.
Stjórn ABK