Þjóðviljinn - 28.11.1986, Síða 13
HEIMURINN
Bandaríkin/íranmálið
Bergmál af Watergate
„Hvað vissiforsetinn og hvenær?“ varspurt í Watergate málinu.
Slíkra spurninga er einnig spurt nú
Washington - Margar
rannsóknarnefndir hafa nú
verið settar i gang til að rann-
saka íranmálið og peninga-
sendingar Bandaríkjanna til
Contra skæruliða i Nicaragua.
Þykir þetta mál vera farið að fá
á sig mynd Watergate málsins.
Ljóst er að peningasending-
arnar til Contra samtakanna eru
ólöglegar þar sem Bandaríkja-
þing hafði samþykkt bann við
stuðningi bandarískra yfirvalda
við Contra samtökin á því tíma-
bili sem fjármagnstilfærslurnar
áttu sér stað, í sumar. En rann-
sóknin er einnig talin bera keim
af Watergate rannsókninni í tíð
Nixons Bandaríkjaforseta.
„Hvað vissi forsetinn og hve-
nær“? Vissi Reagan Bandaríkjaf-
orseti ekkert af þessu máli?
Edwin Meese, æðsti yfirmaður
dómsmálaráðuneytisins banda-
ríska, hefur nú í vikunni yfirheyrt
Ronald Reagan forseta, George
Shultz, utanríkisráðherra, Casp-
ar Weinberger, varnamálaráð-
herra og William Casey, yfir-
mann CIA, bandarísku leyni-
þjónustunnar. Meese sagði í
sjónvarpsviðtali í vikunni að „svo
virðist sem fleiri aðilar hafi vitað
um þessi mál og við erum að
rannsaka það nú.“
í skoðanakönnun sem kynnt
var í fyrrinótt kemur fram að 62
prósent Bandaríkjamanna trúa
því ekki að Reagan hafi ekki vit-
að um málið fyrr en á mánudag-
inn. Samkvæmt könnuninni hef-
ur þeim fækkað um 14 prósent í
Bandaríkjunum, frá því í síðasta
mánuði, sem ánægðir eru með
forsetann. Rannsókn
dómsmálaráðuneytisins sem
hófst í síðustu viku og afhjúpaði
leyniaðgerðina undir stjórn
North ofursta er nú orðin að sak-
amálsrannsókn, þá fer önnur
rannsókn fram á vegum FBI.
Bandríkjaþing hefur einnig sett á
stofn nefnd til að kanna málið.
Beinist nú rannsóknin m.a. að
því hvort ekki sé um saknæmt
mál að ræða.
Helstu leiðtogar Contra sam-
takanna héldu í fyrradag með sér
fund eftir að hafa afneitað því að
hafa tekið við þessari peninga-
upphæð, allt að 30 milljónum
dollara. Sögðust þeir ekkert vita
um þessa peninga. Bandarískir
fylgismenn stuðnings við Contra
samtökin, eiga nú mjög í vök að
verjast.
París
Verkföll og
mótmæli
Járnbrautarstarfsmenn, prentarar og
námsmenn mótmæltu ígær
niðurskurðaráœtlunum stjórnvalda.
Paris - Franskir járnbrauta-
starfsmenn og prentarar fóru í
verkfall í gær til að mótmæla
áætlunum hægristjórnarinnar
í Frakklandi um niðurskurð á
fjármagni til félagsmála. Mikil
mótmæli hafa einnnig verið í
frönskum háskólum og
Kolaskagi
Jákvætt skref
Helsinki - Forsætisráðherra
Svíþjóðar, Ingvar Carlsson,
sagði í gær að tilkynning So-
vétríkjanna um að kjarnorku-
vopn hefðu verið fjarlægð frá
Kola skaga, norðan Skandina-
víu, væri jákvætt skref í átt að
því að koma á kjarnorku-
vopnalausu svæði á Norður-
löndum.
Það var Jegor Lígasjev, einn
talsmanna og hugmyndafræðinga
Sovétstjórnarinnar sem tilkynnti
þetta í Helsinki fyrir tveimur vik-
um, að Sovétríkin hefðu fjarlægt
öll meðaldræg kjarnorkuvopn sín
frá Kolaskaga.
menntaskólum að undan-
förnu.
Stúdentar fóru í gær í mótmæl-
agöngu að franska þinghúsinu í
miðborg Parísar til að mótmæla
áætlunum ríkisstjórnarinar um
auknar aðgangstakmarkanir að
mennta- og háskólum, m.a. í
formi hærri skólagjalda. Harkan í
andstöðunni jókst að mun í fyrra-
dag þegar fjórir unglingar særð-
ust í tækniskóla einum í París í
átökum urðu milli námsmanna
og stuðningsmanna öfgasinnaðra
hægrisamtaka.
Daniel Cohn-Bendit (Rauði
Danni, leiðtogi námsmanna í
uppreisn námsmanna 1968 í Par-
ís) kom í fyrradag í heimsókn í
sinn gamla háskóla í París, Nant-
erre háskólann, og ávarpaði
námsmenn við mikil fagnaðar-
læti.
ERLENDAR
FRÉTTIR
hjörlbfsson/REUIER
stappaði í þá stálinu.
Bokassa
Ásakaði
D‘Estaing
Bangui - Fyrrum keisari Mið-
Afríkulýðveldisins, Jean-
Bedel Bokassa, kom fyrir rétt
síðdegis í fyrradag fyrir meinta
glæpi sína gegn lands-
mönnum og neitaði hinum al-
varlegu ákærum. Hann ásak-
aði Valery Giscard D'Estaing,
fyrrum Frakklandsforseta um
að hafa fundið upp þessa
glæpi til að hafa tilefni til að
fella sig.
Um það bil 200 manns voru
samankomnir í litlum réttarsal til
að heyra þessar ákærur Bokassa.
Réttarhaldinu var frestað til 15.
desember, dómari tilkynnti að
saksóknari vildi kynna sér betur
ýmis atriði í málinu sem enn væru
óskýr.
Bokassa er sakaður um fjöl-
damorð á skólabörnum, mannát
og fyrir að pína fanga og kasta
þeim fyrir krókódfla og ljón.
S.Þ.
Konur
loks í
topp-
stöður
New York, S.Þ. - Tilkynnt hefur
verið hjá Sameínuðu Þjóðun-
um að tvær konur, Kanada-
maðurog Breti, verði bráðlega
ráðnar í æðstu stöður innan
samtakanna. Þessi ákvörðun
er svar við gagnrýni á kynja-
mismunun varðandi ráðningu
í æðstu stöður innan stofnun-
arinnar.
Þetta er í fyrsta sinn sem konur
eru ráðnár í stöður aðstoðarfram-
kvæmdastjóra samtakanna. Nú-
verandi aðalritari samtakanna,
Javier Peres De Cuellar, hafði
heitið því að leiðrétta þessa mis-
munun, þegar hann var ráðinn
aðalritari. Sameinuðu Þjóðirnar
hafa lengi verið gagnrýndar fyrir
að ráða aðeins karla í æðstu stöð-
ur.
Konurnar eru Therese Paquet-
Sevigny frá Kanada sem verður
yfirmaður deildar samtakanna
um almannatengsl og Margaret
Joan Anstee frá Bretlandi sem
verður yfirmaður Vínarskrifstofu
samtakanna.
Salt-2 rofinn
íranmálið/Bandaríkjastjórn
Sovétríkin íhuga aðgerðir
Boris Pyrdysjev, einn tals-
manna stjórnvalda í Moskvu,
sagði í gær á fréttmannafundi að
áætlanir Bandaríkjamanna um
að rjúfa Salt 2 samninginn í dag,
myndi óhjákvæmilega hafa nei-
kvæð áhrif á afvopnunarviðræður
stórveldanna tveggja í Genf. Þeg-
ar Pyrdysjev var spurður til
hvaða ráðstafana sovésk
stjórnvöld kynnu að taka, svaraði
hann: „V arnamálaráðuneytið
íhugar nú ákveðnar viðeigandi
ráðstafanir.“
Bandaríska varnamálaráðu-
neytið hyggst í dag flytja 131. B-
52 sprengjuflugvélina, hlaðna
Cruise kjarnorkuflaugum til Tex-
as og brjóta þar með í bága við
ákvæði Salt 2 samningsins um
takmörkun langdrægra kjamork-
uflauga.
Moskvu - Yfirvöld í Sovétríkj-
unum íhuga nú ákveðnar að-
gerðir til að svara áætlunum
Bandaríkjastjórnar um að rjúfa
Salt 2 samninginn (samning-
inn frá 1979 um takmörkun
iangdrægra kjarnorkuvopna) í
dag.
Pol Pot
Talinn alvarlega sjúkur
Bangkok - Haft var eftir thaíl-
enskum og vestrænum heim-
ildarmönnum í gær í höfuð-
borg Thaílands, að Pol Pot,
leiðtogi skæruliðahreyfingar
Kampútseu, ætti nú við krabb-
amein að stríða og væri ekki
hugað líf.
Reuter fréttastofan hafði eftir
þessum ónefndu heimildar-
mönnum að ólíklegt væri að Pol
Pot, sem nú er í Kína til lækninga,
kæmi aftur til að berjast gegn
stjórnarhernum sem kom honum
frá völdum fyrir átta ámm með
aðstoð Víetnama. Heimildar-
mennirnir héldu því fram að hann
ætti innan við ár ólifað.
Pol Pot hefur verið sakaður um
að bera ábyrgð á dauða hundruða
þúsunda Kampútseumanna í af-
tökum, vegna sjúkdóma og vinn-
uþrælkunar á ámnum 1975 til
1979, valdatíma Rauðu Khme-
ranna sem Pol Pot stjómaði.
Hann er sagður hafa farið til Kína
í september síðastliðnum.
Sendiráöstakar í spilinu
Lundúnum - Bandarískir
stjórnarerindrekar ræddu m.a.
við leiðtoga námsmannanna
sem réðust inn í bandaríska
sendiráðið í Teheran og héldu
starfsfólki sendiráðsins í gísl-
ingu í eitt ár, í tengslum við
vopnasendingar til Iran fyrr á
þessu ári.
Það var fyrrum forseti írans,
Abolhassan Bani-Sadr, sem
sagði frá þessu í símtali við frétta-
mann Reuter fréttastofunnar í
Lundúnum í gær. Bani-Sadr býr
nú í útborg Parísar. Hann sagði
að fyrrverandi öryggisráðgjafi
Bandaríkjaforseta, Robert Mac-
Farlane, hefði ásamt fleiri banda-
rískum embættismönnum farið til
Teheran tvívegis á þessu ári og
hitt að máli aðstoðarmann utan-
ríkisráðherra írans, Hossein
Sheikholesslam, til að ræða hern-
aðarþarfir írans.
Það var einmitt Sheikholes-
slam sem stjórnaði innrásinni í
sendiráð Bandaríkjanna 1979 og
reis fljótlega eftir það í metorð-
astiganum í landinu. Sheikholes-
slam var einn helsti samninga-
maður írana um vopnasending-
arnar. íranskir embættismenn
hafa neitað því að hafa átt bein
samskipti við bandaríska emb-
ættismenn vegna þessa máls, í
gær neitaði einn þeirra að tjá sig
um yfirlýsingar Bani-Sadr.
Ef yfirlýsingar Bani-Sadr,
reynast á rökum reistar á það
eftir að vekja mikla reiði í Banda-
ríkjunum og ekki síður meðal
bandalagsríkja í Evrópu. Reagan
Bandaríkjforseti hefur margsinn-
is lýst því yfir að stjórn sín skipti
ekki við skæruliða. Þá gagnrýndi
Reagan Carter, fyrrum Banda-
ríkjaforseta, harkalega á sínum
tíma fyrir linku í viðskiptum sín-
um við íran þegar gíslamálið var í
algleymingi.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13