Þjóðviljinn - 30.11.1986, Síða 2
FLOSI
\iku
skammtur
Það er eiginlega búinn aö vera í mér hálfgerð-
ur lunti í allan dag. Ég veit ekki hversvegna í
andskotanum frekar núna en endranær. Fæ
ekki séö aö ég háfi nokkra minnstu ástæðu til að
vera í vondu skapi. En það er nú einusinni svo
að ég held að ólund sé eitthvað sem maður
ræður svo sáralítið við. Samt er ég nú satt að
segja þeirrar skoðunar, að maður geti með góð-
um vilja haft hönd í bagga með sálarástandinu,
þó nýjustu kenningar í læknavísindum segi að
allar geðrænar hreyfingar eigi sér lífefnalegar
skýringar.
Mér skilst að slík bylting hafi átt sér stað í
skoðunum á sálarlífi mannskepnunnar, að sá
maður sé umsvifalaust dæmdur fábjáni, sem
heldur því fram að Freud hafi ekki verið fábjáni.
Það er af sem áður var, þegar menn gátu sest
niður í þrumandi þunglyndiskasti og sálsýkis-
legri skítafýlu með allt á hornum sér og gefið þá
skýringu á sálarástandinu, að djúpt í undirmeð-
vitundinni biundaði svonefnd „DULD“, sem er
óbærileg endurminning um eitthvað sem ekki er
hægt að fá uppá yfirborðið, nema ráða í vinnu
langskólagenginn sérmenntaðan sálfræðing
með fimmþúsundkall á tímann.
Sálfræðingurinn á semsagt að hressa uppá
minnið og grafa upp einhverja steingleymda og
ógeðfellda barnæskuminningu; bregða Ijósi á
eitthvað sem undirmeðvitundin vill hylja myrkri
gleymskunnar.
Svona upprifjun átti víst að vera allra meina
bót, að dómi Freuds og hans pótin táta.
Það væri til dæmis ekki ónýtt fyrir mig, þegar
ég er sem fúllyndastur að geta með einhverjum
sálvíkingi grafið uppúr langa minninu einhverja
æðisgengna gleymda æskuminningu. Eitthvað
sem hefur bæklað mig andlega framað þessum
degi, einkum þó og sérílagi af því að ég er búinn
að gleyma því hvað þetta var.
af Freud
Endurminningin þyrfti þá líklega að vera
svona einsog dálítið krassandi, eitthvað sem
hefði markað djúp spor í barnssálina.
Það væri til dæmis ekki ónýtt fyrir Freudiskan
sálfræðing af sænska skólanum, sem væri að
sykkóanalýséra úr mérfúllyndið, að fá mig til að
muna allt í einu - já einsog það hefði skeð í gær
- eftir því hvernig Guðríður Pétursdóttir hvíta-
sunnukona og farandtrúboöi - oftast kölluð
Gudda Halelúja - dró mig átta ára gamlan útí
kirkju, batt mig þar berrassaðan við gráturnar,
snoðaði mig, þannig ámigkominn, þarna fyrir
altarinu, setti næturgagn á höfuðið á mér, mál-
aði mig rauðan í framan með exportbréfi, færði
mig í lífstykki af sjálfri sér, litaði á mér skankana í
öllum regnbogans litum með matarlit, en tippið
skærgrænt og knýtti á það appelsínugula sluffu
úr fléttunni sem var mesta höfuðprýði Guddu
Halelúja og náði henni niðurfyrir rass og niðrí
hnésbætur ef ég man rétt.
Og meðan hún var að koma þessu í verk
söng hún hástöfum: - Ó pabbi minn kæri, æ!
kondu með mér heim, eftir Davíð.
Það væri hægt að lækna ólitla sálarbæklun,
ef manni tækist að rifja upp svona barnæsku-
minningu. Líklega yrði maður albata af mislyndi
og sálarkvöl fyrir lífstíð.
Aðalmálið er bara að muna það og muna það
vel, að maður verður að hafa gleymt þessu öllu í
millítíðinni. Annars er „allt unnið fyrir gír“, eins-
og frændi minn einn, sem er að reyna að hætta
að drekka, sagði einusinni.
Viðskipti okkar Guddu Halelúja eru mér hins-
vegar - sem betur fer - ógleymanleg og af allt
öðrum toga en hér er lýst að framan. Hún var
nefnilega alla tíð ósköp góð við mig og þess
vegna sjálfsagt vita gagnslaus sálarheillinni
minm.
Ég er víst ekki með neina DULD. Ég veit að
vísu ekki hvað DULD er, en ég er satt að segja
sannfærður um að ef ég vissi það, þá kæmi það
uppúr kafinu að ég er ekki með neina DULD.
Og nú er mér tjáð að maður sem ekki hefur
DULD sé ólæknandi „keis“ einsog sagt er á
fræðimáli og það versta er að hann ógnar
kjörum sálfræðinga og eykur á atvinnuleysi í
stéttinni.
Og úr því ekki er hægt að lækna í mér
ólundina með aðferðum Freuds, hvernig á þá
að fara að því?
Mér hefur gefist best að setjast við ritvélina og
skrifa einhverja himinhrópandi dellu, helst
glórulaust píp.
Ég er tildæmis kominn í sólskinsskap núna.
Þetta er kallað að yrkja frá sér harminn og er
svosem engin ný bóla á íslandi.
Egill fór svona að í lokrekkjunni forðum.
En svona að lokum - sósíalt séð og almennt-
held ég að ólund sé átakanlegust, þegar fólk fer
í fýlu útaf því hvað það er í góðu skapi.
Þetta skeður stundum í leikhúsinu þar sem ég
vinn. Mönnum verður það á að skemmta sér
konunglega og hlæja sig máttlausa, en verða
gersamlega óhuggandi á eftir. Kátína þeirra var
ekki við hæfi.
(leikhúsinu á maður semsagt - að margra
dómi - að vera upphafinn og í listrænni fýlu.
Nú við þessu er svosem ekkert að segja ann-
að en það að mönnum sem ekki geta glaðst
nema vera í fýlu er ósköp mikil vorkunn - held
ég.
Sjálfur ætla ég að reyna að halda uppteknum
hætti og reyna að vera sem oftast kátur yfir því
hvað ég er kátur þegar ég er kátur.
Ást er aö bíða ekki eftir tiótun-
arbréfinu frá Njarövíkurbæ.
Þetta er furðu djúp skil-
greining á þessu fyrirbæri
2 SÍÐA - ÞJÓOViLJINN, Sunnudaflur 30. nóvantNr 1886
sem heimspekingar allra alda
hafa glímt við án þess að finna
algilda skýringu á. Það er Inn-
heimta Njarðvíkurbæjar, sem
skrifar sig fyrir þessum skila-
boðum til lesenda Víkur-frétta
20. nóvember sl.
Gáttaþefur
í Kína
Þegar Stelngrímur var (K(na
hélt hann veislu fyrir gestgjafa
sína. Þar var framin tónlist og
annaðist það kínversk sveit,
og kunni eitt lag (slenskt, sem
leikið var Steingrími til
heiðurs: Jólasveinar ganga
um gólf... ■
Sjónvarpið vill
ekki flytja
Ríkisútvarpiö stefnir aö því að
flytja alla starfsemi sína upp I
Efstaleiti á næsta ári. Eitthvaó
eru þó skoðanir skiptar um
ágæti þeirra flutninga hjá
starfsfólki stofnunarinnar. Við
höfum fregnaö að starfsfólk
fréttadeildar Sjónvarpsins sé
mjög óánægt með þessa til-i
högun. Ástæðan er tvíþætt: (
[tfyrsta lagi er lítill áhugi fyrir
[hendi að lenda I jafn nánu
sambýli við fréttastofu út-
varpsins. ( öðru lagi mun
| húsnæðið I Efstaleiti ekki það
mikið stærra en það sem
Sjónvarpið býr nú þegar viö.
Hefur verið bent á sem miklu
vænlegri kost, að kaupa eina
hæð til viðbótar I núverandi
húsnæði Sjónvarpsins við
Laugaveg.
í veg fyrir
sérframboð
Kratar á Vestfjöröum heyja
prófkjör nú um helgina og
stendur slagurinn á milli Kar-
vels Pálmasonar og Sighvats
Björgvinssonar einsog fyrri
daginn. Nú hefur formaður Al-
þýðuflokksins, Jón Baldvin
lagt Karvel lið f baráttunni og
Bryndis formannstrú staðið (
ströngu við að smala utan-
kjörstaðaratkvæðum I höfuð-
borginni. Það var löngum vit
að að fátt væri um kærleika á
milli þeirra Sighvats og Jóns
Baldvins en fleira kemur til að
formaðurinn kýs að styðja
Karvel. Karvel hefur töluvert
persónufylgi á Vestfjörðum,
einkum I Bolungarvík og
munu kratar skíthræddir um
sérframboð Karvels ef hann
færi halloka í viðureigninni við
Sighvat.
Hófí í leynum
Almenna bókafélagiö hefur
haft það fyrir reglu að vera
I með einskonar leynibók, sem
haldið er til baka hjá forlaginu
I og ekki látin fjúka á markað-
I inn, fyrr en rétt fyrir jólin.
Leynibókin I ár hefur farið
1 mjög leynt, svo leynt að hin
bókaforlögin hafa ekki enn
getað grafið upp hver hún
verður og hefur þó verið sótt
að Sigurði Valgelrssyni út-
gáfustjóra með ýmsum
ráðum. Þjóðviljjnn getur hins
vegar upplýst það hér og nú,
. að leynibók AB I ár er skrifuð
af ofnotaðasta sjónvarps-
manni landsins, Jóni Gúst-
afssyni og er urn glæsidlsina
Hófí. Reyndar hófst kynning-
arstarfsemin um daginn þeg-
ar Jón misnotaði aðstöðu sína
hjá Sjónvarpinu og spjallaði
við Hófí fyrir framan alþjóð. ■