Þjóðviljinn - 30.11.1986, Qupperneq 12
Skjöldur
kœrleikans
í Nicaragua
Þáttur bandarlskia
stjómvalda I ófriðnum I Nlkar-
agua er flestum kunnur.
Handtaka eins erindreka CIA
fyrir nokkru staðfesti einungis
það sem flestlr viasU fyrir, þ.e
að Bandarisk stjómvöld eru á
kafi I hernaðar- og hryðju-
verkastar fsemi i og við landa
mæriNlkaragua, Þátttaka
Bandarfkjanna er þó umdeild
heima fyrir, bæði meðal
stjórnmálamanna ogalrnenn-
ings. Skoðanakannanlrsýna
að allt að helmingur lands
rnanna er ósáttur við Ihlutun
rikisstjórnar sinnar I málefni
Mlð-Ameriku. Talsverðurfjöl-
di Norður-Amerlakana hefur
dvalist i Nikaragua sfðustu ár
á vegum samtakanna Wltn-
ess for Peace, til að draga úr
eyðileggingarmætti tiinna
CIAstuddu kontraskæruliða.
Talsmaður þessara samtaka,
Marilyn Gordon var á ferð um
Sviþjóð fyrir skömmu og átti
m.a. viðtal við Þjóðviljann.
Hvað er
Witness for Peace?
Witness for Peace eru kristileg
samtök sem stofnuð voru 1983
upp úr heimsókn til Nikaragua í
boði kristilegra samtaka þar. Til-
gangur heimsóknarinnar var að
kynnast af eigin raun ástandinu í
landinu og dreifa upplýsingum
frá fyrstu hendi heima í Banda-
ríkjunum. í þessari heimsókn
gistum við svæði sem höfðu orðið
illilega fyrír barðinu á árásum
kontraskæruiiðanna. Svo merki-
lega vildi til að á meðan á dvöl
okkar stóð þá voru þessi svæði
alveg látin í friði. Það var þá sem
hugmyndin fæddist. E.t.v. væru
Kontra ragir við að myrða
Vjðtal við
Marilyn Gordon
fró bandarísku
samtökunum
„Witness for
peoce", sem
starfa í
Nicaragua
Norður-Amertkana vegna hinnai
neikvæðu ímyndar sem það
myndi skapa í Bandaríkjunum.
Slíkt gæti leitt til að bándarísk
yfirvöld neyddust til að skrúfa
fyrir aðstoðina við þá vegna al-
menningsálitsins heima fyrir.
Einskær nærvera okkar, banda-
rískra þegna, án beinnar þátttöku
f átökum, gat hugsanlega hindrað
grimmdarverk konstraskærulið-
anna á íbúðum stríðssvæðanna.
Síðan þá hefur starf okkar í
Nikaragua markast af þessari til-
gátu. Aðferðin hefur verið nefnd
„skjöldur kærleikans". Við höf-
um nú stöðugt í 3 ár haft fólk úr
okkar röðum við dvöl í hinum
stríðshrjáðu héruðum Nikarag-
ua. Við höfum s.k. langtímagesti,
þ.e. fólk sem dvelur í ió-2 ár í
senn meðal bændafólks á sam-
vinnubýlunum. Langtímagestirn-
ir afla upplýsinga um árásir kont-
raskæruliðanna frá fyrstu hendi
og taka einnig á móti hinum s.k.
skammtímagestum. Það eru 18-
25 manna hópar frá Norður-
Ameríku sem dvelja 2-4 vikur í
senn.
Við dreifum einnig upplýsing-
um heima f Bandarfkjunum um
hvað sé að gerast f Nikaragua.
|« LAUSAR STÖÐUR HJÁ
l|l REYKJAVÍKURBORG
Fóstrur óskast til starfa strax eða eftir samkomu-
lagi á eftirtalin heimili.
Bakkaborg v/Biöndubakka
Laugaborg v/Leirulæk
Brákaborg v/Brákasund
Leikfell v/Æsufell
Grandaborg v/Boðagranda
Nóaborg v/Stangarholt
Hamraborg v/Grænuhlíð
Rofaborg v/Skólabæ
ösp v/Asparfell
Suðurborg v/Suðurhóla
Þá vantar skóladagheimilið Völvukot, Völvufelli
7, fóstru eða starfsmann I 5 tíma á dag e.h.
Upplýsingar veita umsjónarfóstrur á skrifstofu
Dagvista í síma 27277 og forstöðumenn viðkom-
andi heimila.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavlkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á
sérstökum eyðublöðum er þar fást.
Við setjum m.a. Upp krossa víðs-
vegar í Bandarfkjuiium fyrlr
hvern þann óbreyttan boigara
sem týnir lífinu í hryðjUVérfeuni
kontraskæruliðanna og ininnum
þanHig landa okkar á þann hartn-
leik seill tfkisstjórn okkar á svo
stóra sök á.“
Vinnum gegn
hryðjuverkapólitík
Er þúð elHUHgls fúlk úr
hisiiwrH sðfhUðUHt sent lékllr
fiíti I starji yklmr?
í byfjUíl vái það svo,- en seimia
Uefur kötnið fólk með úr öðium
trúarhreyfinguni og einnig fólk
an séistakrar trúarsannfæringar.
Það er hins vegar vissulega svo að
samtök okkar Witness for Peace
hvíia á orði Krists. Við viljum
lesa orð hans með augum hinna
kúguðu og þriðja heims landa og
þar höfum við mikið að læra af
reynslu byltingarinnar í Nikaru-
agua sem einmitt styðst að miklu
leyti við hina s.k. frelsunarguð-
fræði.
Er séstök ástœða fyrir kristna
söfnuðu í Bandaríkjunum og
meðlimi þeirra að skipta sér af
einmitt málefnum Nikaragua og
styðja við núverandi stjórnvöld
þar?
Já, það er sérstök ástæða fyrir
okkur kristna bandaríska þegna
að vinna gegn hryðjuverkapólitík
okkar eigin stjórnvalda f landi
þar sem verið er að byggja upp
samfélagið f anda frelsunarguð-
fræðinnar sem ég nefndi. Það
sem Nikaragua hefur til „saka“
unnið er að hefja herferð til að
útrýma ólæsi, byggja upp al-
menningsafræðslu í landinu,
veita öllum þegnum lágmarks
heilsugæslu og skipta upp jarð-
eignum til landlausra bænda. Við
getum ekki setið aðgerðalaus
hjá, við finnum til ábyrgðar þar
sem það er okkar eigin ríkisstjórn
í sem stendur á bak við skemmdar-
verkin sem beinast fyrst og fremst
gegn fyrrnefndri uppbyggingu og
sfður gegn hemaðarlega mikil-
vægum mannvirkjum.
Við blöndum okkur hins vegar
ekki f flokkapólitík í Nikaragua
og styðjum ekki Sandinista öðr-
um flokkum fremur. Okkar hlut-
verk er að deila kjörum með
óbreyttu alþýðufólki á erfiðum
tímum og ef mögulegt er að draga
úr hryðjuverkunum og koma f
veg fyrir hugsanlega innrás
bandarísks herliðs. Landsmenn
sjálfir hafa valið sér ríkisstjórn I
kosningum og við viljum hjálpa
til við að standa vörð um þann
sjálfsákvörðunarrétt þessarar fá-
tæku smáþjóðar. Þvf er þó ekki
að neita að afar margt í hug-
myndafræði Sandinista stemmir
vel við þá guðfræði sem við að-
hyllumst.
Kirkjan stendur djúpum rótum
f þjóðlífinu f Nikaragua eins og
víðast hvar í Latnesku Ameríku.
Á seinni tímum hefur frelsunarg-
uðfræðin orðið æ sterkari þáttur í
túlkun kirkjunnar f þessum
heinishluta á orði Krists, þ.e. að
Kristur boðaði hinum fátæku
mikinn fögnuð og hinum kúguðu
„Við viljum reyna að draga úr þeim grimmdarverkum i Nicaragua sem
stjórnvöld i Washington styðja með ráðum og dáð og upplýsa landa okkar um
hvað sé raunverulega að gerast I landinu." Marilyn Gordon frá bandarlsku
samtökunum Witness for Peace.. Mynd S.M.P.
frelsun. Af þessu viljum við læra
og ég er sannfærð um að margir
Norður-Amerískir söfnuðir vilja
taka til sín þessa túlkun.
Andstaðan við stefnu Reag-
anstjórnarinnar í málefnum Mið-
Ameríku er þegar orðin mjög
sterk meðal kirkjunnar fólks og
ég myndi jafnvel ganga svo langt
að segja að miðstöð þessarar and-
stöðu er einmitt að finna innan
kirkjunnar.
Kristin hreyfing
skiptist í tvö horn
Þegar minnst er á trúarlíf í
Bandaríkjunum verður okkur
evrópubúum gjarnan hugsað til
hreyfinga eins og t.d. Moral Ma-
jority og annarra slíkra sem virð-
ast í fljótu bragði vera hreinasta
afturhald, þröngsýnar og allt ann-
að en umburðalyndar. Er þetta
röng mynd af hinni kristilegu
hreyfingu i Bandaríkjunum? Er
hreyfingin viðfeðmari og e.t.v.
klofin í afstöðunni til helstu deilu-
mála samtímans?
Þetta er óneitanlega býsna
skökk mynd. Það er rétt að hinir
hægri sinnuðu trúarhópar eru
mjög áberandi í fjölmiðlum, sem
á sér skýringar í þvf að viðhorf
þeirra njóta velvildar núverandi
valdhafa í Washington. Skoðanir
innan kirkjunnar eru hins vegar
iðulega skiptar og hin kristilega
hreyfing er að skiptast f tvö horn f
mörgum samfélagsmálum. Stór
hluti kirkjunnar fólks er að vakna
til meðvitundar um samleið sína
með hinum kúguðu og nauðsyn
þess að vekja athygli á og vinna
gegn hvers kyns óréttlæti, bæði
heima fyrir og út um allan heim.
Það er svo staðreynd að stór
hluti bandarísku þjóðarinnar hef-
ur afar litla þekkingu eða skilning
á því sem er að gerast í öðrum
heimshlutum, allra sfst f þriðja
heiminum. Á þennan hóp spilar
Reagan forseti svo meistaralega
þegar hann kemur út með lygar
sínar og hálfsannleik um hvað sé
að gerast í Nikaragua. Samtök
sem okkar gegna mikilvægu upp-
lýsingahlutverki heima fyrir, til
að reyna að vega upp á móti hinni
opinberu blekkingu. Við þurfum
jaftivel að ganga enn lengra og
upplýsa í anda frelsunarguðfræð-
innar um hversu efnahagskerfi
okkar f Bandarfkjunum og allur
lífstfll er háður þvf að lönd þriðja
heimsins rísi ekki upp og krefjist
réttar síns.
Hœtta á innrás
Er raunveruleg hcetta á innrás
bandarísks herliðs inn í Nikarag-
ua?
Það hefur vissulega verið hætta
á innrás allt frá því að Reagan
varð forseti. Ég hef heyrt raddir
heima að sennilega sé einna mest
hætta á innrás nú strax eftir kosn-
Íngarnar til þingsitts. Með 2 ár
framundan til næstu kosninga
hefði Repúblikanaflokkurinn
hámarkstíma til að jafna sig með-
al kjósenda ef sérlega illa tækist
til með aðgerðirnar eða að þær
vektu upp sterka mótmælaöldu
12 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 30. nóvember 1986