Þjóðviljinn - 07.12.1986, Page 19
Nú þegar prófkjörs- og for-
valshasar er yfirstaðinn taka
stjórnmálamenn sér hvíld
fram yfir nýjár að þeir byrja að
undirbúa hinn eiginlega kosn-
ingaslag. Til að halda lesend-
um Þjóðviljans við efnið á-
kváðum við að bjóða þeim á
kosningafund með Joe Kenn-
edy, nýjustu stjórnmála-
stjörnu Kennedyættarinnar í
Bandaríkjunum, en hann var
kosinn í fulltrúadeildina í nóv-
ember.
Leiðsögumaður okkar á fund-
inn er norski blaðamaðurinn Stig
Nielsen.
Fundurinn var haldinn á
Sheraton-hóteli en þetta kvöld
var Joseph Kennedy, elsti sonur
Roberts Kennedys, frambjóð-
andi Demókrata kosinn í fulltrú-
adeildina.
Joe á þing
Á dreifimiða sem okkur er
fenginn er við komum inn erum
við boðin velkomin á kosninga-
vökuna. Á miðanum er tilkynnt
að Michael, yngri bróðir Josephs,
muni á tuttugu mínútna fresti til-
kynna nýjustu tölur. Á miðanum
er einnig greint frá því að Joseph
sé þrjátíu og þriggja ára að aldri
og að hann sé sonur Roberts
heitins Kennedy og Ethelar
ekkju hans. Joseph fæddist í
Massachusetts, er giftur Sheilu
og á með henni sex ára tvíbura.
Það er mikill mannfjöldi sam-
ankominn í þessum víðu salar-
kynnum. í miðjum salnum er
stallur með sjónvarpstökuvélum,
ljóskösturum og öðrum tækj-
aútbúnaði sem fylgir ljósvaka-
fólkinu. Á veggjum hanga stórir
borðar með slagorðum: Joe
Kennedy á þing. Sama slagorð
má sjá á höttum gesta. í einu
horni sviðsins er stór jasshljóm-
sveit sem leikur stöðugt niður-
soðna sveiflutónlist.
Við tröppuna upp á sviðið
stendur ungur maður í stífpress-
uðum buxum, jakka og gúmmí-|
skóm. Hann er gleiðfættur, eins-
og hermaður £ hvíldarstöðu.
Jakkinn víður og hægt að fela
hvað sem er undir honum. Sjálf-
sagt er líka ýmislegt falið þar.
-Það er lífvarðarlykt af þess-
um, segi ég við ljómyndarann og
h't í kringum mig eftir mögulegum
eða ómögulegum launmorðingj-
um.
-Það er skiljanlegt að þessi
fjölskylda sé á varðbergi. En
hugsaðu þér bara ef einhver
dræpi hann núna. Við gætum
lifað einsog blómi í eggi það sem
eftir er á því að selja myndir og
skrifa um það sem gerðist.
-Nú gerist eitthvað, sagði ljós-
myndarinn og var rokinn burt.
Að erfa sœtið
Michael Kennedy ber með sér
öll ættareinkennin þar sem hann
stendur í ræðustólnum og til-
kynnir niðurstöður kosninganna.
Allir andlitsdrættir, tanngarður
og rödd minna á hinn myrta föður
hans.
Tölurnar vitna næstum allar
um að Joe Kennedy verði sigur-
vegarinn um 8. héraðið í Mass-
achusett. Hérað sem skipar stór-
an sess í sögu Kennedyættarinn-
ar. John Francis Fitzgerald, lang-
alangafi Joe Kennedy, var full-
trúi 8. héraðs um aldamótin.
Frændinn, John F. Kennedy,
notaði héraðið sem stökkpall inn
£ öldungadeildina og þaðan í
Hvíta húsið. Annar frændi Joe,
Edward Kennedy, er nú fulltrúi
Massachusett í öldungadeildinni.
Stærsti kostur Joe Kennedy er
eftirnafnið. Hann þarf ekki að
Ákosningafundi
með Joe Kennedy,
nýju stjörnu
Kennedyœttarinnar
berjast fyrir útnefningu heldur
erfir hann hana. Þá er sagt um
Joe að hann tilheyri íhaldssöm-
ustu öflunum í Demókrata-
flokknum. Er hann sagður mun
íhaldssamari en frændinn í öld-
ungadeildinni.
Þá halda rætnar tungur því
fram, að hann stigi ekki um of í
vitið, auk þess sem hann eigi erf-
itt með að taka af skarið í ýmsum
málum. Segja sömu tungur að
það sé ástæðan fyrir tregðu hans
að láta alþjóðafjölmiðla taka við-
töl við sig. Á kosningaskrifstof-
unni var sú skýring gefin að hann
veitti fréttastofum í fylkinu fyrst
og fremst viðtöl á meðan á kosn-
ingaslagnum stæði.
Meðal þeirra mála sem hann
hefur átt erfitt með að gera upp
hug sinn í eru tildæmis fóstur-
eyðingarmálið og loftárásir Re-
aganstjórnarinnar á Libyu.
Svo er sigurinn í höfn. Lítill
velklæddur unglingakór hrópar:
Við viljum Joe. Við viljum Joe!
Hljómsveitin rennir sér inn í
gamalt ættjarðarljóð og undir
lúðrablæstrinum marserar Kenn-
edyættin inn á sviðið. Fyrst
systkini Joes, þá gömul blökku-
kona (sennilega fóstra hans), þá
Joe með Sheilu eiginkonu sína og
Ethel móður sína. Og síðast ætt-
arhöfuðið sjálft Edward Kenne-
dy. Allt er vel æft. Það er ekki
bara frambjóðandinn sem hefur
sigrað nei það er öll fjölskyldan.
Það er nafnið.
Kennedy
Mikki bróðir fer enn einusinni í
ræðupúltið og segist stoltur geta
tilkynnt það að Joe verði fulltrúi
þess í Washington.
Fagnaðarlætin gerðu næstum
útaf við segulbandið mitt. Mikki
sagðist hafa unnið með Joe
bróður sínum undanfarin ár að
fyrirtækinu Borgaraorka (Citiz-
éns Énergy) og gaf hann í skyn að
það hefði verið erfið ákvörðun
hjá Joe að hætta vinnu hjá fyrir-
tækinu vegna þingsins.
Borgaraorka varð til vegna
þess neyðarástands sem skapað-
ist þar sem margar láglaunafjöl-
skyldur höfðu ekki efni á að
kynda húsin sín. Kennedy keypti
þá ódýra olíu frá Venezuela og
seldi hana ódýrt til neytenda.
Þetta sló í gegn og skilaði ágætis
arði, en eftir því sem heimsmark-
aðsverð á olíu lækkaði hvarf
þetta framtak í skuggann.
Borgaraorkan vakti þó ræki-
lega athygli á Joe. Hann var
kynntur sem Kennedy nýja tím-
ans; maðurinn sem sameinar við-
skipti og félagshjálp.
Mikki heldur áfram ræðu sinni
og vill nú þakka tveim konum
sem hafa gert kvöldið mögulegt.
-Önnur er hin fríða eiginkona
Joes, Sheila.
Ég mæni á fölu konuna á bak-
við ræðupúltið, sem virðist óska
þess að vera stödd einhversstaðar
allt, allt annarsstaðar.
-Hin konan er Kerry systir
okkar.
Hin 26 ára gamla litlasystir
Joes hleypur að ræðustólnum.
Hún virðist í meira lagi vinsæl,
\einkum meðal ungiinganna fyrir
framan sviðið, sem stjórna húrra-
hrópunum. Sennilega skóiasystir
þeirra.
Joe Kennedy, mun íhaldssamari en Edward frændi.
-Kærar þakkir öll sömul. Og
ég vil þakka enn einni konu hér á
meðal okkar, móður okkar.
Kerry brosir sínu breiðasta og
bendir á ekkju Roberts Kenne-
dys, sem brosir sviðsvön. Enn
meiri fagnaðaróp.
Og nú vil ég kynna næsta full-
trúa okkar í fulltrúadeildinni:
Bróður minn Joseph Kennedy.
Eitt með
fjölskyldunni
Jasshljómsveitin leikur nokkra
tóna þegar Joe gengur að stóln-
um. -All right, all right, all right.
Aldrei hef ég verið jafn stoltur og
nú í kvöld.
Bláeygði herðabreiði pilturinn
er í essi sínu. í hvert skipti sem
hann stoppar tii að draga andann
brjótast fagnaðarlætin fram.
Hann hrósar þeim sem unnu fyrir
hann við kosningarnar, hann
hrósar kjósendum og hann hrós-
ar andstæðingum.
-Eitt eigum við öll í 8. héraði
sameiginlegt. Við trúum öll á að
Bandaríkin standi fyrir eitthvað.
Það er tími til kominn að við
endurvekjum Bandaríkin sem
land möguleikanna. Stjórnin í
Washington virðist álíta mikil-
vægara að fjórfalda útgjöld til
hermála en takast á við
menntakerfið og félagslegar um-
bætur. Efnahagslegt og félagslegt
réttlæti er lífsnauðsyn. Við verð-
um að afvopnast. Sérhvert okkar
verður að taka þátt í því að gera
Bandaríkin að hinu stóra lýðræð-
isríki.
Undir miklum fagnaðarlátum
og lúðraþyt hverfur Joe úr ræð-
ustólnum og Edward Kennedy
stígur í pontu. Hann hrósar Joe
og þeim sem störfuðu að kosning-
unni. Það er bara eitt sem vantar.
-Ég sakna bara þess að hér
meðal okkar eru ekki staddir
tveir menn, menn sem væru jafn
stoltir og við hin ef þeir hefðu
verið hér meðal okkar.
Svo nefnir hann til bræður sína
sem voru myrtir. Það hittir í
hjartastað. Kennedy minnist
tveggja myrtra bræðra. Ég fæ
gæsahúð.
Eitt augnablik urðu allir við-
staddir hluti af Kennedyfjöl-
skyldunni.
Sáf/Ny Tid
fUqjör
DÚNDURSACA FYRIR
UNGLiNGA
EFTIR
RÚNAR ÁRMANN ARTHÚRSSON
SAGAN ALGJÖRIR BYRJENDUR gerlst
í Reykjavík nútímans. Þar segir frá
unglingsstráknum Crímsa og fyrstu ástinni
hans, kunningjunum og fleira fólki
veturinn sem sprengjan sprakk. Ekkl alveg
tíðindalaus vetur það! Þessi fyrsta skáldsaga
Rúnars Armanns er bæðl skemmtiieg og
spennandi afiestrar. Dúndursaga fyrir
ungiinga.
d hvítu
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
Kennedysœtið í arf
Sunnudagur 7. deMmbw 1986