Þjóðviljinn - 09.12.1986, Page 14
BÆKUR
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Stjórnarfundur ÆFAB
Veröur haldinn laugardaginn 15. des. 1986 kl. 11.00.
Dagskrá: I. Skýrslur a) deilda b) framkvæmdaráös c) nefnda.
II. Útgáfumál (Birtir, Rauðhetta o.fl.)
III. Utanríkismál.
IV. Kosningar framundan.
V. Önnur mál.
Fundurinn verður haldinn á Stokkseyri og er opinn öllum félögum. Allar
nánari upplýsingar gefa Sölvi s. 99-3259 og Anna s. 19567.
Framkvæmdaráö ÆFAB
Dregið hefur verið í happdrætti ÆFAB.
Vinningsnúmerin hafa verið innsigluð til 20. des. n.k.
Ykkur gefst því enn kostur á að eignast ritsafn Laxness og sitthvað fleira,
með því að greiða heimsenda gíróseðla.
Framkvæmdaráð ÆFAB
Iðnráðgjafi
Starf iðnráðgjafa á Norðurlandi vestra, með að-
setri á Blönduósi, er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur um starfið er til 20. desember
og skal umsóknum skilað til Knúts Aadnegard
Raftahlíð 22 550 Sauðárkróki, en hann gefur
jafnframt allar nánari upplýsingar um starfið í
síma 95-5669 eftir kl. 20.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra
Útboð
Byggingarnefnd flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli
býður út handslökkvitæki, ásamt uppsetningu
þeirra.
Verkinu skal lokið 20. mars 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Fjarhitun h/f, Borg-
artúni 17, Reykjavík, frá og með mánudeginum 8.
desember gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Fyrirspurnir og óskir um upplýsingar skulu berast
Fjarhitun h/f eigi síðar en 30. desember 1986.
Tilboðum skal skilað til byggingarnefndar, Varn-
armálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Skúla-
götu 63, 105 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 föstudag-
inn 9. janúar 1987.
Byggingarnefnd flugstöðvar
á Kefiavíkurflugvelli
Fóstrur -
þroskaþjálfar
Óskum eftir að ráða í eftirtaldar stöður á Dagvist-
arheimili Hafnarfjarðar:
1. Fóstru í fullt starf, þroskaþjálfa í hálft starf á
dagvistarheimilið Víðivelli.
2. Forstöðumann og fóstrur í hálfar stöður á leik-
skólann Álfaborg.
3. Fóstru eftir hádegi á leikskólann Norðurberg.
4. Fóstru eftir hádegi á leikskólann/dagheimilið
Smáraland.
Upplýsingar um störfin gefa forstöðumaður við-
komandi heimila og dagvistarfulltrúi í síma 53444
á Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar.
Félagsmálastjóri Hafnarfjarðar.
Eyrtin a
veggjtmom
eftir verðlauna-
höftmdinn
'j/ JB22I2IE
— bráðskemmtileg
barnabók
Ný bók um
Elías
Komin er út hjá Iðunni fjórða
bókin um ELÍAS sem flestir
krakkar kannast við. Nefnist hún
ELÍAS, MAGGA OG RÆNIN-
GJARNIR og er eftir AUÐI
HARALDS.
Nú ætlar fjölskyldan að freista
gæfunnar á Ítalíu og pabbi
Elíasar fær vinnu við að byggja
brú á milli Ítalíu og Sikileyjar.
Magga móða og Misja maðurinn
hennar fylgja í fótspor þeirra við
misjafnan fögnuð!
A Sikiley þarf fleira að gera en
byggja brýr. Pað þarf að ala Sikil-
eyinga betur upp, segir Magga.
En þeir vilja ekkert læra góða siði
af Möggu og hún sannfærir þá
með sínum aðferðum... Pabbi,
sem vildi komast í Möggufrí,
hafði reynt að hræða þau með
Mafíunni og mannræningjum, en
hann hefði frekar átt að aðvara
ræningjana. Brian Pilkington
teiknaði myndirnar og hannaði
kápu.
Eiturskógur-
inn
Komin er út hjá Iðunni tuttug-
asta bók spennuhöfundarins,
Hammond Innes, í íslenskri þýð-
ingu. Nefnist hún EITURSKÓ-
GURINN.
Hér segir frá auðkýfingnum
Tom Halliday, sem hverfur spor-
laust skömmu eftir að hann hefur
látið breyta erfðaskrá sinni.
Hann er óútreiknanlegur eins og
aðrir eiturlyfjaneytendur, - hefur
hann kosið að hverfa sjálfur eða
er hvarf hans af mannavöldum?
Eiginkona hans og synir krefjast
þess að hann finnist eða sé lýstur
látinn svo hægt sé að skipta arfin-
um. Álfheiður Kjartansdóttir
þýddi.
Vestur-íslenskar
æviskrár
út er komið hjá bókaforlagi
Odds Björnssonar fimmta bindi
ritsins Vestur-íslenskar æviskrár,
sem Jónas Thordarson tekur
saman.
f þessu nýja bindi eru æviskrár-
Undraleiðir
ástarinnar
Bókaútgáfan Skuggsjá hefur
gefið út enn eina skáldsögu eftir
vinsælan ástarsöguhöfund, Ther-
esu Charles, sem heitir Undra-
leiðir ástarinnar. Andrés Krist-
jánsson þýddi.
Bókin fjallar um elskendur
sem styrjöld og eigingjörn móðir
aðskilja, um raunir stúlku sem
telur að unnustinn sé fallinn og
um sérstætt tilboð um ástlaust
hjónaband.
Svarti
riddarinn
Svarti riddarinn, ný bók eftir
Alistair MacLean, er komin út
hjá Iðunni.
Um efni bókarinnar segir m.a.
í kynningu forlagsins: Auglýst er
eftir vísindamönnum til starfa er-
lendis. Sérfræðiþekkingar á sviði
eldflaugatækni er krafist og
óvenju há laun í boði. Átta menn
eru ráðnir, en hverfa síðan spor-
laust ásamt eiginkonum sínum...
En síðasti umsækjandinn er ekki
alveg jafn grandalaus og hinir
fyrri. John Bentall er sérfræðing-
ur á sviði eldflaugatækni, en hann
er einnig sérfræðingur í ýmsu
öðru sem kemur eldflaugum ekk-
ert við. Sviðið er í suðurhöfum og
hér er barist um heimsyfirráð.
Átökin magnast, engum að
treysta og spennan eykst frá síðu
til síðu. Sigurður G. Tómasson
þýddi.
þættir 100 Vestur-íslendinga með
330 Ijósmyndum, saga þeirra
sögð í stuttu máli, greint frá upp-
runa og ævistarfi, ættingjum og
afkomendum. f bókarlok er ítar-
leg mannanafnaskrá.
Vestur-íslenskar æviskrár eru
ómetanlegur lykill að persónu-
fróðleik og ættfræði, auk þess
sem þær gefa aukin tækifæri til
styrktar vináttubanda og frænd-
semi milli íslendinga austan hafs
og vestan.
Beggja
skauta byr
Út er komin hjá bókaforlagi
Odds Björnssonar skáldsaga eftir
Ingibjörgu Sigurðardóttur sem
nefnist „Beggja skauta byr“. Ing-
ibjörg hefur lagt stund á
„hugljúfar“ ástarsögur öðrum
fremur og er þetta 27nda bók
hennar.
iveiníg vifl lænrni 09 hveis vifl þörlnumjl til efl hahii heiisu
Svona
erum við
Bókaútgáfan Setberg hefur
sent frá sér bókina „Svona erum
við“ ætluð að veita börnum skiln-
ing á líkama sínum - og að hjálpa
foreldrum að svara spurningum
barna sinn.
Hér eru kynnt á auðveldan hátt
líffæri og líkamshlutar manna og
starfsemi þeirra.
Bókin er einkum sniðin við
hæfi ungra lesenda - eða hlust-
enda á aldrinum sex til tólf ára
sem kynnast munu hér hugmynd-
um og hugtökum er tendra at-
hygli þeirra og áhuga.
Skipulegt og auðskilið mál
ásamt teikningum sýnir hvernig
við erum, hvernig við vöxum,
hvemig líffærin starfa og hvers
við þörfnumst til að halda heilsu.
Þetta er fróðleiksrit og upp-
sláttarrit handa allri fjölskyld-
unni. Bókina þýddi Órnólfur
Thorlacius en hún er 96 blaðsíður
í stóru broti.
íslensk rit í
Vesturheimi
Landsbókasafn fslands hefur
nýlega gefið út Skrá um rit á ís-
lensku prentuð vestan hafs og
austan af Vestur-íslendingum
eða varðandi þá. Ólafur F. Hjart-
ar, deildarstjóri í safninu, tók
skrá þessa saman og gerir grein
fyrir henni í inngangi. Sjálfskráin
er um 80 tvídálka síður í stóru
broti. Fyrst fara rit prentuð í
Vesturheimi, síðan rit prentuð á
íslandi eða annars staðar austan
hafs, og loks er efnisskrá, er
sýnir, hvað prentað hefur verið
um einstök efni.
Skráin er merkileg heimild um
bókmenntir, sögu og félagslíf
landanna vestra, svo sem þetta
birtist í ritum þeirra á íslensku, en
sýnir jafnframt áhuga íslendinga
hér heima á þessum efnum og
hvern þátt þeir hafa átt í útgáfu
vestur-íslenskra bókmennta og
umfjöllun um þær.
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 9. desember 1986