Þjóðviljinn - 13.12.1986, Side 1
Laugardagur 13. desember 1986 285. tölu.blað 51. drgangur
Þjóðhagsspá
Natóflugvöllurinn
11 dagar
tiljola
Viðræður
hafnar
Viðræður um byggingu vara-
flugvallar fyrir Nató á íslandi eru
hafnar. Fyrsti fundur fulltrúa
samgönguráðuneytisins, varnar-
málaskrifstofu, fulltrúa hersins
og flotastjórnar Nató í Norfolk fór
fram í gær.
Rætt hefur verið um að þessi
flugvöllur verði byggður annað
hvort á Sauðárkróki eða á Egils-
stöðum. Gert er ráð fyrir að Atl-
antshafsbandalagið greiði bygg-
ingarkostnað að mestu leyti, en
flugvöllurinn verði alla jafna
undir íslenskri stjórn. Næsti við-
ræðufundur aðila verður haldinn
í næsta mánuði. “88
Heimsmet í hagvexd
Þjóðartekjur í ár vaxa meira en í nokkru öðru vestrœnu ríki. Spáð 4% hagvexti á næsta ári.
Hlutur launa vex umfram þjóðartekjur
Idrögum að þjóðhagsspá sem
birt var í gær er spáð halla-
lausum viðskiptum við útlönd á
þessu ári, sem yrði þá í fyrsta sinn
síðan 1978. En það eru fleiri met
slegin: Spáð er 8% aukningu á
þjóðartekjum á þessu ári - meiri
en í nokkru öðru vestrænu iðn-
ríki! Horfurnar á næsta ári eru
líka góðar: Spáð er 4% hagvexti í
stað 2% sem spáð var í haust og
að þjóðartekjur muni aukast um
5%.
í spánni sem gerð er fyrir árin
1986 og 1987, er tekið mið af ný-
gerðum kjarasamningum þó ekíci
liggi fyrir endanlegt mat Þjóð-
hagsstofnunar á áhrifum þeirra.
Eins og áður hefur komið fram
hafa launahækkanir orðið meiri á
þessu ári en ráð var fyrir gert:
35% í stað 31%. Kaupmáttur
kauptaxta hefur vaxið um 11%
og kaupmáttur atvinnutekna enn
meir. Á næsta ári spáir Pjóð-
hagsstofnun 7-8% verðbólgu,
4% hagvexti og 5% aukningu á
þjóðartekjum. Áætlað er að
kauptaxtar hækki um 16% milli
ára og atvinnutekjurnar um 20%.
Kaupmáttur atvinnutekna mun
samkvæmt spánni aukast um 7-
8% milli áranna 1986 og 1987 og
kaupmáttur kauptaxta um 4%.
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ sagði þessa spá staðfesta að
með nýgerðum samningum muni
hlutur launa vaxa umfram þá
aukningu sem yrði á þjóðartekj-
um. „Kaupmátturinn eykst um
11% meðan þjóðartekjur aukast
um 8% á árinu 1986 og á næsta ári
er spáð 7-8% aukningu á kaup-
mætti en 5% vexti þjóðartekna.
Ég sé ekki ástæðu til að gera
ágreining við þessar niðurstöður
Þjóðhagsscofnunar,“ sagði hann.
Ásmundur sagði einnig að miðað
hefði verði við meira en 2% hag
vöxt við gerð kjarasamninganna
á dögunum og íorsendur tynr
þeim breyttust ekki með þessari
spá. Þórarinn Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ tók í sama
streng. „Þessi þjóðhagsspá
breytir engu um þær forsendur
sem samningarnir voru byggðir
á,“ sagði hann. „Báðir aðilar
vissu að launabreytingar á þessu
ári voru heldur meiri en fyrir-
liggjandi þjóðhagsáætlun gaf til
kynna.“
-ÁI/KÓI.
„Hvar eru peningarnir mínir?“spyr Bessi Bjarnason. Myndin varitekin á sviði Þjóðleikhússins í gær, en þar fara nú fram æfingar á
jólaleikritinu Aurasálinni eftir Moliére. Bessi leikur þar aurasálina Harpagon, en önnur stór hlutverk eru í höndum þeirra Sigríðar Þorvaldsdótt-
ur, Pálma Gestssonar, Lilju Guðrúnar Þorvaldsdóttur, Jóhanns Sigurðssonar og Guðlaugar Maríu Bjarnadóttur. Það er Sveinn Einarsson
semþýðirverkiðogleikstýrir.enleiktjölderueftirfinnskaleiktjaldamálarann Paul Suominen. Mynd. Sig.
Pólland
Steypustöðin h.f.
Seldu ónýta steypu
Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins: Stór hluti steypufrá
Steypustöðinni stenst ekki lágmarkskröfur. Stöðinfœr alvarlega viðvörun
Sýning
rænd
fyrir
opnun
Varsjá - Þeir Pólverjar sem
höfðu hug á að sækja sýningu
á nektarmyndum af konum í
Kraká á næstunni, geta tekið
sér annað fyrir hendur. Þeim
hefur nefnilega öllum verið
stollð.
Sýningar sem þessar hafa
verið haldnar í Póllandi í 17 ár
og hafa þær verið rændar 12
sinnum. IH/Reuter
Ljóst er að stór hluti þeirrar
steypu sem Steypustöðin h.f. í
Reykjavík framleiddi og seldi í
sumar og jafnvcl áður hefur verið
meira og minna handónýtur. Nið-
urstöður rannsókna Rannsókn-
arstofnunar byggingariðnaðarins
sýna að 63% steypu í flokki S-200
hefur alls ekki staðist lágmarks-
kröfur um styrkleika.
Borgarverkfræðingur upplýsti
þetta á borgarráðsfundi í gær. f
bréfi frá embættinu segir að sýni
hafi verið tekin hjá steypustöðv-
unum þremur í Reykjavík í sum-
ar.
Engar athugasemdir hafa verið
gerðar við framleiðslu Óss h.f. og
BM Vallá, en byggingarfulltrú-
inn í Reykjavík hefur sent
Steypustöðinni h.f, alvarlega við-
vörun. Þar er Steypustöðinni gef-
inn frestur til 20. desember til
þess að leggja fram áætlun um
aðgerðir sem geta tryggt lág-
marksgæði steypunnar. Verði
slík áætlun ekki komin í tæka tíð
verður sala á steypu frá stöðinni
stöðvuð.
63% sýna í flokki S-200 sem
tekin voru á vegum Rannsóknar-
stofnunarinnar í sumar reyndust
vera ófullnægjandi hvað styrk-
leika varðar. Þá reyndust 35%
sýna í flokki S-250 ekki standast
lágmarkskröfur og 17% sýna í
flokki S-300 voru ófullnægjandi.
Það er því ljóst að lítt er
treystandi á margan vegginn sem
steyptur var í Reykjavík í sumar
og Steypustöðin má gera ráð fyrir
að bótakröfum rigni yfir þegar
tímar líða.
-88
Giljagaur var annar,
með gráan hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skaust í fjósið inn.
Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.