Þjóðviljinn - 13.12.1986, Blaðsíða 6
Geiturnar þrjár
og
Gettu hver ég er
Glænýjar bækur fyrir lítil börn. Fallegar, ódýrar, á vönd-
uðu máll, með fjölda mynda í 4 litum. Þetta eru vinsæl-
ustu bækurnar á bókamarkaðnum fyrir yngstu börnin
og hinar skemmtilegustu.
Hver kannast ekki við bókaflokkinn: Skemmtilegu smá-
barnabækurnar. Sumar þeirra hafa komið út í 40 ár, en
eru þó alltaf sem nýjar. Þær heita:
1. Bláa kannan
2. Græni hatturinn
3. Benni og Bára
4. Stubbur
5. Tralli
6. Stúfur
7. Láki
8. Bangsi litli
9. Svarta kisa
10. Kata
11. Skoppa
12. Leikföngin hans Bangsa
13. Dísa litla
14. Dýrin og maturinn þeirra
15. Kalli segir frá
16. Geiturnar þrjár
17. Gettu hver ég er
Aðrar bækur fyrir lítil börn:
Kata litla og brúöuvagninn
Palli var einn í heiminum
Selurinn Snorri
Tóta tætubuska
GEITURNAR
ÞRJÁR
Fást í öllum bókaverslunum
Bókaútgáfan Björk
A
Útideild í Kópavogi
óskar eftir að ráða starfsmann.
Starfið er fjölbreytt með sveigjanlegum vinnu-
tíma.
Reynsla og/eða menntun tengd unglingastarfi er
æskileg. Umsóknarfrestur er til 31. desember nk.
Upplýsingar gefur unglingafulltrúi í síma 45700.
Féiagsmálastofnun Kópavogs
IÞROTTIR
Sjúkrahús Skagfirðinga
Sauðárkróki
Sjúkrahús Skagfirðinga, Sauðárkróki, óskar að
ráða hjúkrunarforstjóra. Staðan veitist frá 1. fe-
brúar 1987 og er umsóknarfrestur til 5. jan. 1987.
Allar upplýsingar um starfið veitir hjúkrunarfor-
stjóri á staðnum og í síma 95-5270.
St. Jósefsspítali, Landakoti
Lausar stöður
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðinga vantar nú þegar eða eftir
samkomulagi á gjörgæsludeild. Bjóðum upp á
aðlögunartíma.
Upplýsingar gefnar á skrifstofu hjúkrunarfor-
stjóra milli kl. 11-12 og 13-14 alla virka daga.
SímM 9600-300. „ ..
Reykjavik 11.12. 1986
Handbolti
Þrír koma heim
Alþjóðlegt mót með þátttöku USA
og Finnlands hefst á mánudaginn
Bjarni Guðmundsson, Einar
Þorvarðarson og Sigurður Gunn-
arsson koma heim og leika með
íslenska landsliðinu á alþjóðlegu
handknattleiksmóti sem haldið
verður hér á landi í næstu viku.
Að öðru leyti verða íslensku
landsliðin tvö sem taka þátt
skipuð leikmönnum sem leika
með íslenskum liðum.
Þátttökulið auk íslands-a og
21-árs landsliðsins eru landslið
Bandaríkjanna og Finna. Mótið
hefst á mánudagskvöldið í
Laugardalshöll og þá mætast
fyrst ísland og Finnland kl. 20 og
síðan ísland-21 og Bandaríkin kl.
21.30. Síðan verður leikið hvern
dag, tvöföld umferð, til laugar-
dags. Á þriðjudag að Varmá, á
miðvikudag á Selfossi, á
fimmtudag í Digranesi, á föstu-
dag á Akranesi og lokaumferðin
fer fram í Laugardalshöllinni
næsta laugardag.
A-landslið íslands skipa eftir-
taldir leikmenn: Einar Þorvarð-
arson, Kristján Sigmundsson,
Guðmundur Hrafnkelsson,
Þorgils Óttar Mathiesen, Hilmar
Sigurgíslason, Bjarni Guð-
mundsson, Karl Þráinsson, Sig-
urður Gunnarsson, Björn Jóns-
son, Aðalsteinn Jónsson, Guð-
mundur Guðmundsson, Egill Jó-
hannesson, Geir Sveinsson, Jak-
ob Sigurðsson og Júlíus Jónas-
son.
21-árs landsliðið er þannig
skipað: Bergsveinn Bergsveins-
son, Guðmundur A. Jónsson,
Ólafur Einarsson, Hrafn Mar-
geirsson, Árni Friðleifsson,
Bjarki Sigurðsson, Frosti Guð-
laugsson, Gunnar Beinteinsson,
Hafsteinn Bragason, Hálfdán
Þórðarson, Halldór Ingólfsson,
Héðinn Gilsson, Jón Þórir Jóns-
son, Jón Kristjánsson, Júlíus
Gunnarsson, Konráð Olavsson,
Blak
Austanmenn
sigursælir
Þróttur Neskaupstað vann
alla piltaflokkana
Þróttur frá Neskaupstað kom,
sá og sigraði á hinu árlega hrað-
móti Blaksambands íslands í
yngri flokkum sem haldið var í
Digranesi í Kópavogi fyrir
skömmu.
Austfirðingarnir unnu alla þrjá
piltaflokkana, 2., 3. og 4. flokk
og höfnuðu í öðru sæti í 3. flokki
stúlkna. HSK vann 2. flokk
stúlkna og Breiðablik 4. flokk
Knattspyrna
Steauaeða
River Plate
Annað hvortfélagið verður
heimsmeistari ífyrsta sinn
Á morgun, sunnudag, fer fram í
Tókíó, höfuðborg Japan, hinn árlegi
úrslitaleikur í heimsmeistarakeppni
félagsliða í knattspyrnu. Þar mætast
að vanda meistarar Evrópu og Suður-
Amcríku, sem að þessu sinni eru Stea-
ua frá Rúmeníu og River Plate frá
Argentínu.
Steaua er fyrsta lið Austur-Evrópu
leikur þennan úrslitaleik en Rúmen-
amir sigruðu Barcelona frá Spáni
eftir framlengingu og vítaspyrnu-
keppni í úrslitum Evrópukeppni
meistaraliða sl. vor. Hetja liðsins þá,
markvörðurinn Helmut Ducadam, er
nú fjarri góðu gamni. Hann varði
fjórar vítaspyrnur frá leikmönnum
Barcelona í vor en sl. sumar slasaðist
hann illa í umferðarslysi, varð að
gangast undir aðgerð á hendi og getur
ekki leikið knattspyrnu framar.
Lið River Plate gengur undir nafn-
inu „Milljónamæringarnir" en félagið
er talið hið ríkasta í Suður-Ameríku.
Samt hefur því gengið illa að vinna til
æðstu metorða og leikur nú í fyrsta
skipti til úrslita í þessari keppni -
hafði aldrei þar til í haust tekist að
sigra í meistarakeppni Suður-
Ameríku, Copa de Libertadores.
Óskar Helgason, Páll Ólafsson,
Pétur Petersen, Skúli Gunn-
steinsson, Sigurjón Sigurðsson,
Stefán Kristjánsson og Þórður
Sigurðsson.
Þjálfari A-liðsins er að sjálf-
sögðu Bogdan Kowalczyck og
liðsstjóri Guðjón Guðmundsson.
Viggó Sigurðsson stjórnar 21-árs
liðinu og Ingvar Viktorsson er
aðstoðarmaður hans. -VS
stúlkna. Önnur félög sem sendu
lið voru HK, Þróttur R., Stjarnan
og Fram, og flokkar sem kepptu á
mótinu voru alls 23 sem er veru-
leg aukning frá undanförnum
árum. Á síðasta ársþingi BLÍ var
samþykkt að engin þátttökugjöld
skuli vera í fslandsmótum yngri
flokka og það ætlar greinilega að
virka sem vítamínssprauta á
unglingastarf félaganna.
Haukur Gunnarsson var í vikunni
útnefndur íþróttamaður ársins hjá
Iþróttasambandi fatlaðra. Haukur
hefur verið einn mesti afreksmaður í
röðum fatlaðra síðustu árin, vann til
verðlauna á heimsleikunum á þessu
ári og á Ólympíuleikunum á síðasta
ári. Mynd: Sig.
Argentínumennirnir eru búnir að
dvelja í Japan í heila viku, fóru þang-
að strax um síðustu helgi, og leggja
greinilega allt í sölurnar til að verja
heiður Suður-Ameríku.
Juventus varð fyrsta Evrópuliðið til
að ná heimsbikarnum frá Suður-
Ameríku í tíu ár með því að vinna
úrslitaleikinn í fyrra gegn Independi-
ente frá Argentínu í vítaspyrnu-
keppni. Suður-Ameríka hefur góða
forystu, hefur unnið 15 úrslitaleiki en
Evrópa 9.
Sigurlið hafa verið: Suður-
Ameríka: Penarol (Uruguay) 3svar,
Santos (Brasilíu), Nacional (Urugu-
ay) og Independiente (Argentínu)
2svar, Racing Club (Argentínu), Est-
udiantes (Argentínu), Boca Juniors
(Argentínu), Olimpica (Paraguay),
Flamengo (Brasilíu) og Gremio
(Brasilíu) einu sinni hvert. Evrópa:
Inter Milano (Ítalíu) 2svar, Real Ma-
drid (Spáni), AC Milano (Italíu), Fe-
yenoord (Hollandi), Ajax (Hol-
landi), Atletico Madrid (Spáni), Bay-
em Munchen (V.Þýskalandi) og Ju-
ventus (Ítalíu) einu sinni hvert. Á
morgun verður nýtt nafn letrað á
gripinn. -VS/Reuter
Maradona
Fer hann
til Real?
Diego Maradona, fyrirliði argent-
ínsku heimsmeistaranna sem af mörg-
um er talinn besti knattspyrnumaður
heims, segir að hann hafi átt í við-
ræðum við forráðamenn spænsku
meistaranna Real Madrid. Ramon
Mendoza forseti Real staðfesti að fé-
lagið hefði mikinn áhuga á að fá Mar-
adona til liðs við sig fyrir næsta
keppnistímabil en samningur hans við
Napoli á Ítalíu gildir til loka tímabils-
ins 1987-88.
„Napoli vill selja mig, því fyrr því
betra. Maradona er til sölu. Real Ma-
drid og Juventus eru einu félögin sem
hafa efni á að kaupa mig en Napoli
myndi aldrei samþykkja að ég færi til
annars ítalsks félags. Mig langar til að
setja mark mitt á evrópska knatt-
spyrnu með því að leika með Real
Madrid og síðan með ensku liði,“
sagði Maradona á fimmtudaginn.
-VS/Reuter
England
Óþekktlið í
3. umferð
Utandeildaliðið Caernarfon
tryggði sér á þriðjudaginn sæti í 3.
umferð ensku bikarkeppninni í knatt-
spyrnu í fyrsta skipti. Caernafon vann
mjög óvæntan sigur á 3. deildarliðinu
Yorlc, 2-1, á útivelli en áður höfðu
liðin skilið jöfn, 1-1. Verðlaunin eru
heimaleikur við Barnsley, neðsta lið
2. deildar.
Til viðbótar tryggðu Northampton,
Cardiff, Bristol City og Preston sér
sæti í 3. umferð með sigrum í auka-
leikjum í vikunni. Þriðja umferð
verður leikin 10. janúar.
-VS/Reuter
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. desember 1986