Þjóðviljinn - 13.12.1986, Qupperneq 15
RÆKUR
Bragi Sigurjónsson
Smásögur Braga
Sigurjónssonar
Leiðin til Dýrafjarðar, heitir
saga eftir skáldið Braga Sigur-
jónsson, sem Skjaldborg gefur
út. - „Hér syngur háttföst og
rödduð norölenska fyrir eyrum
lesandans á hverri blaðsíðu,"
segir í bókarkynningu.
Bragi Sigurjónsson fer eigin
götur í smásagnagerð, grípur efni
úr ýmsum áttum, margbreytilegir
einstaklingar koma fram hjá hon-
um og ýmiss konar atburðir ger-
ast. Stundum er höfundur alvöru-
gefinn í frásögn, stundum gaman-
samur, stundum háðskur, stund-
um glettinn. Oft segir hann frá í
fyrstu persónu og hendir þá í
leiðinni góðlátlegt gaman að
sögumanni.
Saklaus svipur
Bókaforlag Odds Björnssonar
á Akureyri hefur gefið út sögu
eftir hinn kunna bandaríska
spennusagnahöfund Sidney
Sheldon og er efni hennar kynnt
á þennan veg:
Dr. Judd Stevens er nafntog-
aður sálfræðingur í New York,
sem hefur notið mikils álits. En
allt í einu verða örlagaríkar
breytingar í lífi hans. Lögreglan
fer að gruna hann um morð á
einkaritara sínum og einum af
hinum vel metnu sjúklingum sem
hann hefur haft til meðferðar.
Mafían kemst í spilið og upp hefst
æðislegur eltingaleikur.
Árni Kristjánsson
Hvað ertu,
tónlist?
Út er komin hjá Almenna bóka-
félaginu bók eftir Árna Kristjáns-
son sem nefnist Hvað ertu, tón-
list? - samantíningur um tónlist
og tónlistarmenn.
í bókarkynningu segir á þessa
leið:
Hvað ertu, tónlist? er ágætlega
skrifuð og á þann veg að jafnt
tónelskir sem ekki tónelskir
hljóta að hafa unun af að lesa
hana. Ritgerðirnar eru til orðnar
á ýmsum tímum og af mismun-
andi tilefnum, en efnið er eitt -
tónlistin - og þeim þáttum henn-
ar sem hér eru teknir fyrir eru
vissulega gerð rækileg skil.
Fjallað er um þessa tónlistar-
menn og verk eftir þá: Bach, Ha-
ydn, Scarlatti, Chopin, Wagner,
Schubert, Smetana, Berlioz, Gri-
eg, Sibelius, Sallinen, Nordheim.
Einnig er ritgerð um tónlist al-
mennt og um íslenska tónlist.
UJ
ÞJÓÐVIUMM - «teA 15
Allt jólahangikjöt Sláturfélagsins er eingöngu unnið úr nýju og mögru fyrsta flokks
hráefni. Síðan er því pakkað í lofttæmdar umbúðir og gæðin þannig innsigluð.
Notaðu aðeins úrvals hangikjöt. Notaðu SS jólahangikjöt.
SLÁTURFÉLAG