Þjóðviljinn - 17.12.1986, Blaðsíða 6
Ríkissjóður
sveltir sveitarfélögin
Sveitarfélögin eiga kröfu á hendur ríkissjóði um 550 miljónir
króna vegna sameiginlegra verkefna. Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga hefur verið skorinn niður um 700 miljónir
króna. Stórskertframlög til samneyslunnar í landinu.
Ríkissjóður skuldar sveitarfé-
lögunum í landinu nú um 550
miljónir króna vegna sameigin-
legra verkefna ríkis og sveitarfé-
laga. Um er að ræða fram-
kvæmdir við grunnskóla, da-
gvistarheimili, íþróttamannvirki,
sjúkrahús og hafnarmannvirki.
Ofan í kaupið hefur ríkisvaldið
svo stórskert framlög til þessara
þátta og skorið Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga niður um heilar 700
miy ónir á valdatíma ríkisstjórnar
Steingríms Hermannssonar.
Þessar og fleiri upplýsingar
komu fram í svari fjármálaráð-
herra við fyrirspurn frá Geir
Gunnarssyni þingmanni Alþýðu-
bandalagsins í Rerykjaneskjör-
dæmi. Geir hefur lengi setið í
fjárveitinganefnd Alþingis fyrir
flokkinn og er því öllum hnútum
kunnugur í ríkisfjármálum. Hans
mat er það að ríkissjóður verði að
hækka framlög til ofangreindrar
samneyslu um amk 30% til að
vega upp undandrátt síðustu
fjögurra ára. Á sama tíma hafa
þjóðartekjur hækkað um 18% að
raungildi.
Fréttaskýring
Sveitarfélögin
sligast
Þessa óheillastefna gagnvart
sveitarfélögunum í landinu gerir
það auðvitað að verkum að mörg
þeirra sligast nú undir aukinni
byrði og eru þar af leiðandi verr í
stakk búin að veita þá þjónustu
sem þeim er ætlað að sinna sam-
kvæmt lögum. Áhrifin eru
minnkandi samneysla í heiid
enda í samræmi við yfirlýsta
stefnu núverandi ríkisstjórnar.
í svari fjármálaráðherra við
fyrirspurn Geirs kemur fram að
verst er viðskiptastaða ríkissjóðs
gagnvart sveitarféögunum vegna
grunnskólaframkvæmda. Reyk-
víkingar eiga 23.2 miljónir inni
hjá Þorsteini Pálssyni, Reykne-
singar heilar 45.4 miljónir, íbúar
Norðurlands eystra 40.5 miljónir
og Sunnlendingar eiga inni í fjár-
málaráðuneytinu vegna þessara
framkvæmda 36.7 miljónir króna
nú þegar dregur að áramótum.
Ríkissjóður skuldar íbúum Vest-
urlands 30.6 miljónir vegna
grunnskólanna þar,
Vestfirðingum 7 miljónir, íbúum
Norðurlands vestra 8.9 miljónir
og Austfirðingum 15.7 miljónir
króna. Hér er um að ræða hlut
ríkissjóðs í framkvæmdum við
skólana og í flestum tilfella eru
viðkomandi sveitarfélög búin að
punga út þessum upphæðum og
bíða eftir greiðslum frá ríkinu.
Allir viðurkenna að í nútíma
samfélagi er nauðsynlegt að efla
uppbyggingu dagvistarheimila
enda fáaum fjölskyldum gert
kleift að komast af án þess báðir
foreldrar vinni úti. Forsjármenn
ríkisfjármála eru þó ekki á sama
máli. Skuld ríkissjóðs gagnvart
sveitarfélögunum í þessum þætti
nemur í árslok 1986 rúmlega 108
miljónum króna. Mest er skuldin
gagnvart Reykjavíkurborg, eða
38.6 miljónir króna. Verst fara
þó þau sveitarfélög út úr þessari
stefnu þar sem félagslegar áhersl-
ur hafa verið miklar og mikið
byggt af dagvistarheimilum.
Kópavogur er gott dæmi um
þetta. Þar hefur á síðustu árum
átt sér stað meiri efling dagvista
en dæmi eru til annars staðar á
landinu og ríkissjóður skuldar því
Kópavogi 16.2 miljónir króna í
árslok. Hafnarfjörður hefur fram
að kosningunum í vor lotið sömu
forsjá og fjármálaráðuneytið,
þ.e. Sjálfstæðismanna, enda var
ekkert dagvistarheimili byggt þar
og skuld ríkissjóðs þess vegna
engin! Akureyringar eiga inni 7.6
miljónir króna og lítið sveitarfé-
lag eins og Hella á Rangárvöllum
á inni 2.5 miljónir í fjármálaráðu-
neyti Þorsteins Pálssonar.
Allt óverðtryggt
Nú er það svo að það er dýrt að
skulda peninga í þjóðfélaginu í
dag. Þetta vita allir og þurfa að
greiða stórar upphæðir í vexti,
dráttarvexti og refsivexti. En
ekki ríkissjóður. Þrátt fyrir
hundruða miljóna skuld ríkis-
sjóðs gagnvart sveitarfélögunum
í landinu þarf hann ekki að greiða
eyri í vexti af þessu fé. Hins vegar
hafa þessi sömu sveitarfélög ein-
att stofnað til mikilla skulda í lán-
astofnunum vegna þess arna og
þurfa að sjálfsögðu að greiða
stórfé í fjármagnskostnað. Að
vísu þarf ríkissjóður að greiða
verðbætur en skárra væri það nú.
Sveitarféögin í landinu þurfa
að taka höndum saman og gera
sameiginlega aðför að ríkissjóði
til að ná inn þessu fjármagni.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Meðan það tekst ekki er lág-
markskrafa að þau fái vexti af
þessu fé.
Spurning um stefnu
Það er engin tilviljun að svona
skuli vera komið. Það hefur verið
yfirlýst stefna ríkisstjórnarflokk-
anna að skera kerfisbundið niður
framlög til samneyslunnar og það
er auðveldast að ráðast á garð
sveitarfélaganna. Þessu mark-
miði hafa stjórnvöld náð með
þrenns konar hætti.
í fyrsta lagi með því að skera
niður Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
um ríflega 700 miljónir á árunum
1984-87.
í öðru lagi með því að skera
niður framlög til samfélagslegra
framkvæmda. Geir Gunnarsson
upplýsti í sinni fjárlagaræðu á Al-
þingi að á árunum 1984-86 væru
framlög rfkisins til dagvistar-
heimila, mennta- og fjölbrautar-
skóla, grunnskóla, sjúkrahúsa,
heilsugæslustöðva, hafna og flug-
valla aðeins 64.8% af framlaginu
1983. Steininn tók þó úr á árinu
1986, en þá voru framlög ríkisins
til þessara framkvæmda lægri en
nokkru sinni.
í þriðja lagi með þvf að draga
eftirágreiðslur til sameiginlegra
verkefna ríkis og sveitarfélaga,
eins og áður hefur verið rakið.
12 Hafskips-
gjaldþrot
Nú er það ekki svo að ríkissjóð-
ur blómstri þrátt fyrir þennan
undandrátt. Halli ríkissjóðs í árs-
lok nú nemur um 2000 miljónum
króna og ríkisstjórnin hefur tekið
ríflega 5000 miljónir króna að
láni erlendis frá. Afborganir af
slíkum eldri lánum hafa numið
2.700 miljónum. Hallareksturinn
og erlend skuldasöfnun jafngildir
12 Hafskipsgjaldþrotum á síð-
ustu þremur árum, sagði Geir
Gunnarsson í sinni ræðu.
Á sama tíma hafa fyrirtæki og
eignamenn í landinu notið æ
meiri skattfríðinda og meira en
helmingur allra fyrirtækja á ís-
landi greiðir engan tekjuskatt.
Aðeins 2.4% heildartekna ríkis-
sjóðs koma með tekjuskatti á fyr-
irtæki en í landi einkaframtaks og
kapitalisma, Bandaríkjunum
nemur þessi skattstofn 7.1%
ríkisteknanna.
Geir Gunnarsson endaði fjár-
lagaræðu sína á dögunum með
því að minna á góðærið í þjóðfé-
laginu og að sú staðreynd ásamt
nýgerðum kjarasamningum köll-
uðu á aðra stefnu í ríkisfjármál-
um en hallarekstur og erlenda
skuldasöfnun. Sagði hann að
þessi stefna hefði stórfellda hættu
í för með sér fyrir launafólk og
gæti raskað áætlunum manna um
stöðugt verðlag og aukinn kaup-
mátt launa. Geir minnti á að
launafólki gæfist tækifæri til að
bægja þeirri hættu frá í kosning-
unum í vor.
-v.
Bæjarritari
Starf bæjarritara hjá Ólafsvíkurkaupstaö er laust
til umsóknar. Mjög góð laun í boði.
Umsóknarfrestur er til 30. desember n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma
93-6153.
Umsóknir um starfið sendist á skrifstofu Ólafsvík-
urkaupstaðar á Ólafsbraut 34, Ólafsvík.
Bæjarstjóri.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
byggingadeildar óskar eftir tilboðum í jarðvinnu
vegna Vesturbæjarskóla.
Helstu magntölur eru:
Gröftur á lausum jarðvegi 6500 m3, fylling í
grunn 4000 m3.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, gegn 5 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboðirr verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
30. desember n.k. kl.15.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
byggingadeildar óskar eftir tilboðum í stálsmíði
og uppsetningu á grindargólfi og göngubrúm
Borgarleikhúss við Listabraut. Magntala (stál) 24
tonn.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, gegn kr. 10 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn
8. janúar 1987 kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fnkiikpivcgi 3 Simi 25800
getrauna-
^VINNINGAR!
17. LEIKVIKA - 13. DESEMBER 1986
VINNINGSRÖÐ: X11-1XX-X11-1X1
1. Vinningur: 12 réttir, Kr. 564.375.-
132364(6/11) 168050
2. vinningur Kr. 24.187.-
13994
19037
9447
24202+
24203+
40508
41450*
210834
12683*
*=2/11
Kærufrestur er til mánudagsins 5. janúar 1987, kl. 12.00
á hádegi.
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á
skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða tekn-
ar til greina,
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa eða senda stofninn og fullar
upplýsingar um nafn og heimilisfang til íslenskra Getrauna fyrir loka kæru-
frests.