Þjóðviljinn - 17.12.1986, Qupperneq 14
VHDHORF
Að gefa skít í 26.500 krónur
Ásmundur Stefánsson skrifar:
Unnur Bragadóttir sem skipar
annað sæti á lista Alþýðubanda-
lagsins á Austurlandi í komandi
kosningum sendir mér snyrtilega
tóninn í viðhorfsgrein í blaðinu sl.
föstudag. Henni finnst lítið til
koma að hækka lægstu laun í
26.500 og segir atvinnurekendur
reiðubúna að borga langtum
meira.
Ég get ekki beint þakkað Unni
tilskrifið. Satt að segja finnst mér
að hún hefði átt að kynna sér mál-
in áður en hún settist við skriftir.
Til upplýsingar fyrir Unni og
aðra sem ekki hafa fylgst með tel
ég rétt að draga fram nokkrar
staðreyndir.
1. Samkvæmt könnun Kjara-
rannsóknarnefndar í apríl á
þessu ári reyndust 46% af-
greiðslukvenna og 50%
verkakvenna undir því sem
framreiknað samsvarar
26.500 kr. Samanlagt áætla
okkar sérfræðingar að um
30% félagsmanna ASÍ hafi
verið undir þeim lágmarkstöl-
um sem samið var um. Því fer
fjarri að atvinnurekendur hafi
greitt öllum hærra en nú var
samið um og ég veit með vissu
að fólkið með 20 þúsund
króna mánaðarkaup gefur
ekki skít í 26.500 krónur.
2. Samningarnir nú gilda frá 1.
desember. Ef mál hefðu frest-
ast fram yfir áramót er ólíklegt
að dregið hefði til tíðinda fyrr
en síðari hluta febrúar. Fyrir
það fólk sem var undir 20 þús-
und krónum eftir 4.59%
hækkun 1. desember hefði
þriggja mánaða bið kostað 20
þúsund krónur. Með biðinni
hefði miklu verið fórnað.
3. Nýgerðir samningar snerust
ekki einhliða um laun heldur
Reynslan hefur hins vegar
kennt okkur að stórar
kauptölur skila því aðeins
stórauknum kaupmætti að
verðbólgan éti þær ekki upp.
30% aukning kaupmáttar
veitir fiskvinnslufólki tekjuör-
yggi þegar ekki er bónus eða
til atvinnuleysis kemur.
5. í samningunum er samið um
gerð fastlaunasamninga þar
„...Sásem villleggja baráttumálum
verkalýðshreyfingarinnar lið verður að
lœra að greina á milli þess sem sœkir á
ogþess sem stendur fyrir, lœra að beina
spjótum sínum í réttar áttir... “
einnig um aðhald að verðlagi.
Samið var um stöðugt gengi,
takmarkanir á verðhækkun-
um opinberrar þjónustu og al-
mennt aðhald. Ef forsendur
standast má reikna með „hóf-
semi“ í verðbólgu eða 7-8%.
Með því að slaka t.d. á gengis-
forsendum gagnvart útflutn-
ingsatvinnuvegunum hefði ef-
laust verið hægt að ná hærri
kauptölum í krónum.
lægsta kaups uppfyllir ekki
okkar óskir þó stökkið nú sé
reyndar stærra en dæmi eru
um, en hlýtur að teljast mark-
tækt skref.
4. í þessum samningum var sam-
ið um mikla hækkun fasta-
kaupsins í bónus sem gefur
þeim tekjulægri í fiskvinnsl-
unni töluverða launahækkun,
hækkar yfirvinnukaup allra og
sem stefnt er að því að reisa
nýtt launakerfi á rústum þess
sem nú hefur verið eyðilagt
með lágmarkstölum sem
fljóta yfir allar tölur almennu
kauptaxtanna. í fastlauna-
samningunum skal að því
stefnt að festa raunverulegar
kauptölur í töxtum.
í samþykktum okkar samtaka
á liðnu hausti var megináhersla
lögð á hækkun lægstu launa. Á
formannafundi ASÍ í nóvember
var þess krafist að strax yrði
gengið til viðræðna um tafar-
lausar úrbætur til þeirra sem við
rýrust kjör búa. Við sem förum
með samningaviðræður fyrir
hönd samtakanna töldum okkur
skylt að fylgja þessari stefnu eftir.
í öllum þeim samningum sem
ég hef staðð að, hefði ég kosið að
ná lengra en raun varð. Ég hef nú
eins og oft áður, ásamt félögum
mínum, orðið að meta hvort rétt
sé að gera samning á þeim for-
sendum sem fyrir liggja eða fresta
samningsgerð og reyna síðar í
átökum að ná lengra. í ljósi þess
áfanga sem nú náðist fram fyrir
þá tekjulægstu tel ég okkur skylt
að fylgja samningnum fram.
Ég treysti því að flestir þeir sem
hærri laun hafa, sætti sig við að
sitja að óbreyttum kaupmætti og
gefa þeim tekjulægri þann for-
gang sem að er stefnt. Ég treysti
því, að okkar fólk sýni viljann í
verki, sýni að kjör þeirra lægst-
launuðu skipta í reynd máli en
eru ekki aðeins slagorðafóður í
ræðuhöldum. Hugsjón sam-
stöðunnar er að allir sameinist
um að leysa mál þeirra sem erfið-
ast eiga. Öllum sem fylgjast með
hlýtur að vera ljóst, að samning-
alið verkalýðssamtakanna semur
ekki við sjálft sig. Lausnin á
hverjum tíma er málamiðlun á
milli verkalýðshreyfingarinnar
og viðsemjenda hennar. Sá sem
vill leggja baráttumálum verka-
lýðshreyfingarinnar lið verður að
læra að greina á milli þess sem
sækir á og þess sem stendur fyrir,
læra að beina spjótum sínum í
réttar áttir.
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin I Reykjavík
Jólafagnaður
Félagar.
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík mun halda jólafagnað laugardaginn 20.
desember kl. 9 tii ? Krossið á dagatalið. Dagskrá auglýst síðar.
Stjórn ÆFR.
Dregið hefur verið í happdrætti ÆFAB.
Vinningsnúmerin hafa verið innsigluð til 20. des. n.k.
Ykkur gefst því enn kostur á að eignast ritsafn Laxness og sitthvað fleira,
með því að greiða heimsenda gíróseðla.
Framkvæmdaráð ÆFAB
Liðsmannafundur
í kvöld
Jólasöfnun El Salvador-nefndarinnar
El Salvador-nefndin heldur fund um tilhögun jól-
asöfnunarinnar, í Mjölnisholti 14, kl. 20.30 í kvöld,
miðvikudagskvöld. Þeir sem hug hafa á að leggja
hönd á plóginn eru hvattir til að mæta og það
stundvíslega.
El Saivadornefndin
LAUSAR STÖÐUR
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður við læknadeild Háskóla
íslands.
Hlutastaða (37%) dósents í líffærafræði (vefjafræði) og lektorss-
taða (50%) í líffærafræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf, rannsóknir og
ritsmíðar, svo og námsferil og störf skulu sendar menntamalaráðu-
neytinu Hverfisgötu 6, 105 Reykjavík, fyrir 12. janúar n.k.
Menntamálaráðuneytið
12. desember 1986
DJÓÐVIIJINN
45 68 13 33
Tímiim
45 68 18 66
45 68 63 00
Blaðburdur er
BESTA TRIMMIÐ
og borgar sig
Blaðbera
vantar
víðs vegar
um
borgina
DJOÐVIIJINN