Þjóðviljinn - 17.12.1986, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þjómnuiNN
Miðvikudagur 17. desember 1986 288. tölublað 51. árgangur
SAMVINNUBANK!
ÍSLANDS HF.
SPJALDHAGI
allar upplýsingar
á einum staó
Rafmagnshœkkanir
Landsvirkjun spennir bogann
Frá nœstu áramótum hœkkar verð á rafmagni um 7.5% til almenningsrafveitna.
Svarar til um 4.5% hœkkunar á smásöluverði. Þjóðhagsstofnun mœlir gegn
hœkkuninni. Rafmagnsverð í Reykjavík gœti hœkkað um 10%
Stjóm Landsvirkjunnar hefur
samþykkt hækkun á rafmagni til
almenningsrafveitna um 7.5%
frá og með 1. janúar nk., en í
fréttatilkynningu frá stjórninni
segir að það svari til um 4.5%
hækkunar á smásöluverði. Þjóð-
hagsstofnun hefur mælt gegn
hækkuninni á þeim forsendum að
hún sé of mikil. Landsvirkjun ætli
sér að borga þau erlendu lán sem
á fyrirtækinu hvíla örar niður en
ástæða sé til og jafnframt sé
Jólasteikin
Hugsið
fyrst
kaupið
svo
Alltað 200% verð-
munur á kjötvöru í
Reykjavík
Verðkönnun Verðlagsstofnun-
ar á kjötvörum sem algengar
eru á borðum landsmanna um
jólin sýnir hreint ótrúlegan verð-
mun á tegundum milli einstakra
verslana. Þannig er munur á
hæsta verði og lægsta verði á
reyktum úrbeinuðum svína-
kambi um 200%.
Jóhannes Gunnarsson hjá
Verðlagsstofnun sagði í samtali
við Þjóðviljann í gær að þessi
mikli verðmunur hefði ekki kom-
ið sér á óvart. „Ég vil brýna fyrir
fólki að velta verði fyrir sér og
gera samanburð á milli versl-
ana,“ sagði Jóhannes.
Niðurstöður könnunarinnar
sýna að meðalverð á kjötvörum
er yfirleitt lægst í Reykjavík, en
þar er verðmismunurinn einnig
langmestur. Verð var einnig
kannað á ísafirði, Sauðárkróki,
Akureyri, Egilsstöðum, Eskifirði
og á Reyðarfirði.
Eitt kfló af reyktum svína-
kambi kostar mest 914 krónur í
Reykjavík, en minnst 305 krón-
ur. Munurinn er 609 krónur eða
199%!
Kflóið af Bayone skinku kostar
í Reykjavík á bilinu 355 krónur til
897, munurinn er 153%. Kflóið af
pekingönd kostar frá 240 krónum
og upp í 489 krónur.
Það vekur athygli að nöfn ein-
stakra verslana eru ekki birt í
könnun Verðlagsstofnar. Jó-
hannes sagði að í þessu tilviki
hefði það ekki þótt ráðlegt, en
stofnunin væri ails ekki hætt
nafnbirtingum. -gg
eignastaða fyrirtækisins það góð
að 7.5% hækkun sé óþarflega
mikil.
Fyrri hugmyndir stjórnar
Landsvirkjunnar um hækkun
hljóðuðu upp á 16%, en sú hug-
mynd var endurskoðuð vegna at-
hugasemda Þjóðhagsstofnunnar
og endanlega ákveðið að hækk-
unin skyldi vera 7.5%. 1 frétta-
tilkynningunni sem stjórnin
sendir frá sér um hækkunina segir
að samþykktin hafi verið gerð
með hliðsjón af nýgerðum kjar-
asamningum og þeim verðlagss-
pám sem gerðar hafa verið í kjölf-
ar þeirra þar sem gert er ráð fyrir
að verðbólga verði um 7-8% á
árinu og gengi verði stöðugt.
Meðal stjórnarliða eru ekki all-
ir á eitt sáttir um ákvörðun
Landsvirkjunar, en mörgum þyk-
ir að með 7.5% hækkun verði
boginn spenntur of hátt sé tillit
tekið til þess efnahagsramma sem
mótaður hefur verið fyrir næsta
ár á grundvelli nýgerðra kjara-
samninga og þjóðhagsspá. Ekki
er t.d. ljóst hvort óskir Raf-
magnsveitu Reykjavíkur um
5.2% hækkun sem nú liggj a fyrir
borgarstjórn verði bætt ofan á
hækkun Landsvirkjunnar en ef
svo verður mun rafmagns-
kostnaður í Reykjavík hækka um
10% eftir áramót. -K.ÓI.
Fimleikar
Allur tíminn
í æfingar
Hlín Bjarnadóttir úr Gerplu valinfim-
leikamaður ársins
„Það fer allur tími minn í æfingar, ég æfl 5
sinnum i viku, 4-5 tíma á dag“ sagði Hlín Bjarna-
dóttir 15 ára Kópavogsbúi í samtali við Þjóðvilj-
ann en hún hefur nú verið valin fimleikamaður
ársins af Fimleikasambandi íslands.
„Ég hef alltaf verið í
Gerplu, byrjaði
þegar ég var sex ára
með vinkonu
minni“ sagði Hlín.
Hún var fyrst ung-
lingameistari 1980,
og er nú unglingam-
eistari 1986. Hún
hefur oft unnið til
verðlauna fyrir
bikarlið Gerplu. og
tekið þátt í mörgum
Iandskeppnum.
Hlín stóð sig mjög vel á Norðurlandameistara-
móti unglinga sem fór fram í Kaupmannahöfn á
þessu ári, en þar var hún í 4.sæti í gólfæfingum og
6.sæti í stökki.
„Núna er ég að æfa fyrir vináttukeppni sem fer
fram um jólin milli okkar og stelpna frá Þýska-
landi“ sagði Hlín. „Við heimsóttum þær í á jólun-
um í fyrra og vorum í æfingabúðum hjá þeim í
Hlín Bjarnadóttir fimleikamaður ársins: Æfi mig 5 daga í viku, 4-5 klukkutíma á dag. Mynd Sig. sumar.“ -vd.
Spítalasalan
Enn ekkert samkomulag
Óvíst hvort Borgarspítalinn verður seldur. Borgarstjóra og
ráðherrum gengur illa að komast að samkomulagi.
Frestast sennilegafram yfir áramót, efekki
til eilífðar
Enn hefur ekki náðst sam-
komulag um kaup rikisins á Borg-
arspítalanum. Ekkert var lagt
fram um málefni spítalans,
hvorki á borgarráðsfundi í gær né
ríkisstjórnarfundi. Það er jafnvel
talið ólíklegt að af sölu spítalans
verði að svo stöddu.
Davíð Oddsson borgarstjóri,
Ragnhildur Helgadóttir heil-
brigðisráðherra og Þorsteinn
Pálsson fjármálaráðherra hafa
unnið að því síðan um miðja síð-
ustu viku að ná samkomulagi um
málið, en nú virðist allt stefna í að
framtíð spítalans verði ekki ráðin
fyrr en eftir áramót.
Þar sem samkomulag var ekki
lagt fyrir borgarráð í gær mun
borgarstjóra ekki takast að koma
því á dagskrá borgarstjórnar-
fundar á morgun nema með því
að leita afbrigða, en til þess þarf
hann stuðning einhvers minni-
hlutaflokkanna. Fundurinn á
morgun er sá síðasti fyrir áramót.
Einnig er mögulegt að kalla sam-
an aukafund um málið, en ólík-
iegt er að það verði gert.
Fjárlagafrumvarpið verður af-
greitt á alþingi á föstudaginn og
verður þá tekin ákvörðun um
hvort Borgarspítalinn fer á föst
fjárlög um áramót eða ekki.
-gg
BSRB
Tollarar
með í
samflotið
Á stjórnarfundi Tollvarðafé-
lagsins í gær var samhljóða sam-
þykkt að félagið yrði með í sam-
floti BSRB, en á for-
mannafundinum í fyrradag bað
fulltrúi Tollvarðafélagsins um
frestun á ákvörðuninni þar eð
umboð frá félaginu lá ekki fyrir.
Starfsmannafélag Akureyrar
sem einnig fór fram á frestun hef-
ur enn ekki haldið fund um mál-
ið. í frétt Þjóðviljans í gær um
formannafundinn misritaðist
Starfsmannafélag Reykjavíkur
fyrir Starfsmannafélag Akur-
eyrar og er beðist velvirðingar á
því. -K.ÓI.