Þjóðviljinn - 19.12.1986, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 19.12.1986, Blaðsíða 8
Það rœttist úr silakeppnum Sagnir af Mœlifellsár-Flink Hundurinn var hér áöur fyrr ómissandi förunauturfjár- mannsins. Mun vart nokkurt sveitaheimili á landinu hafa verið svo snautt að þar væru ekki hundar, einn eða fleiri. Með breyttum búskaparhátt- um má segja að þörfin fyrir fjár- hundinn hafi að sumu leyti minnkað. Sauðfjárbeit að vetrar- lagi er víðast hvar úr sögunni, og þar með möguleikinn á því, að þjálfa hundinn við daglega notk- un. Enn þarf þó að smala fénu haust og vor. En það þjálfar eng- inn fjárhund með því að nota hann aðeins tvisvar á ári. Hér sem annarsstaðar er það æfingin, sem gerir meistarann. Auðvitað eru hundarnir mis- jafnlega af guði gerðir rétt eins og mannfólkið. Afburðamenn eru stundum kallaðir „séní”. Aftur á móti hef ég aldrei heyrt það orð notað um hund þótt hann ætti það e.t.v. engu síður skilið en af- burðamaðurinn. Og nú skal hér ofurlítið sagt frá einum slíkum. Eigandi hans var Jóhann Magnússon, bóndi á Mælifellsá í Skagafirði og löngum kenndur við þann bæ. Jóhann var maður stálgreindur og landskunnur hag- yrðingur. Hann er nú látinn fyrir allnokkrum árum. Fundum Jó- hanns og undirritaðs bar stund- um saman og var þá margt skraf- að. Birtist sumt af því í riti Kaupfélags Skagfirðinga, Glóð- afeyki. Eitt sinn barst talið að húsdýr- unum okkar. - Sumir kalla þau skynlausar skepnur, sagði Jó- hann. - Slík ummæli bera aðeins vott um skynleysi þeirra, sem þannig tala. Það er langt frá því að skepnurnar séu skynlausar, en auðvitað eru þær misjafnlega skynsamar, rétt eins og mannfólkið. Og úr því að við erum nú á annað borð farnir að tala um þetta þá er kannski best að ég segi þér ofurlítið frá hundi, Nú bjóðum við VISA korthöfum stað- greiðsluafslátt (háð upphæð) eða rað- greiðslukerfi, jafiivel án útborgunar. Allt að 9 mánaða greiðslutími á eldhús- innréttingum, flisum, hreinlætistækjum, parketi, panil, máln- ingarvörum o.fl. Við sendum í póst- kröfu um allt land og bjóðum staðgreiðslu- afslátt, þar sem við á, ef krafan er greidd innan 7 daga. Allt að 12 mánaða greiðslutími á tepp- um, mottum og gólf- dúk. Allt að 4 mánaða greiðslutími á grófari byggingarvörum, t.d. timbri, stáli, rörum, fittings o.fl. Við erum útverðir hús- byggjenda á höfuð- borgarsvæðinu. • Fullur stadgreiösluafsláttur. • Afsláttur vid helmingsútborgun, en radgreiöslur i 2-12 mánuöi. • Þægilegur og ódýr greiðslumáti. 2 góðar byggingavöruverslanir. Austast og vestast í borginni Stórhöfða, sími 671100 Hringbraut, simi 28600. OPIÐ KL. 8 - 18 VIRKA DAGA KL. 10 - 16 LAUGARDAGA sem ég átti eitt sinn. Ég kallaði hann Flink. Raunar eru sumar sögurnar af tiltektum Flinks svo furðulegar að vart er að búast við að neinn trúi þeim. Og þó að Flinkur minn eigi það margfald- lega skilið að frá honum sé sagt þá mundi ég nú láta það vera ef ekki vildi svo til að enn eru ýmsir á h'fi, sem geta vottað að sögurnar séu sannar. Flinkur var ennþá hvolpur, þegar ég eignaðist hann. Það atvikaðist svo að við Indriði bróðir fengum sinn hvolpinn hvor hjá Guðmundi á Lýtings- stöðum og kom hann með þá báða yfir að Hömrum. Þeir voru ólíkir í háttum. Annar var ákaf- lega sprækur og fjörugur en hinn mjög hægfara, lallaði silalega um gólfið og virtist ekki taka eftir neinu. Auðvitað vildu krakkarnir að sá fjörugi yrði eftir á Hömrum og því fékk ég hinn. Það var Flinkur. Flinkur sœkir Sauðarhyrnu Eitt sinn vorum við í heiðaleit að vorinu. Við leituðumst við að ganga úr þær ær, sem rúnar voru og með mörkuðu, svo ekki þyrfti að þvæla þeim heim. Eina ána mína nefndi ég Sauðarhyrnu. Hún var mjög stórhyrnd og hringhyrnd. Búið var að rýja hana en lambið var ómarkað. Er rúnu ærnar runnu upp fyrir brún- ina þóttist ég þekkja Sauðar- hyrnu í hópnum þar sem hún bar við loft með sín stóru og sérk- ennilegu horn. Piltarnir, sem með mér voru hvöttu mig til þess að senda Flink eftir henni. Ég taldi það tilgangslaust þar sem hún var þá líka rúin eins og hinar, sem með henni voru, hún að hverfa upp af brúninni en ærin vegalengd frá okkur og þangað upp. Ég lét Flink samt fara. Það gat aldrei sakað. Þá voru ærnar komnar í hvarf. Líður nú góð stund svo að ekkert sést né heyrist til Flinks og býst ég ekki við neinum árangri af þessu ferðalagi hans. En viti menn. Birtist hann ekki skyndilega á brúninni með ána og lambið á undan sér og skilar hvoru tveggja niður til okkar. Og nú má spyrja: Hvernig fór hann að því að þekkja ána? Ja, hver getur svarað því? Þáði ekki bílfarið Einu sinni sem oftar vorum við Flinkur staddir norður á Akur- eyri. Um leið og við héldum heimleiðis þurfti ég að koma við í húsi einu í bænum. Er út í Krækl- ingahlíðina kom tók ég eftir því að Flinkur var ekki samferða. Taldi ég víst að hann hefði ekki nennt að bíða eftir mér og dvaldi í húsi því, sem áður greinir og trú- lega farið heim í smiðju Stefáns Stefánssonar járnsmiðs. Þar lá hann oft en ég bjó jafnan hjá Stefáni er ég var á Akureyri. Rétt í þessu mætti ég Gunnari Valdim- arssyni á Víðivöllum í Blönduhl- íð, sem var á leið til Akureyrar í vörubíl. Bað ég hann að taka Flink með sér er hann kæmi til baka, en hann mundi vafalaust vera hjá Stefáni, - og sleppa hon- um svo er hann kæmi niður af Öxnadalsheiðinni, úr því mundi hann skila sér. Gunnar fór svo heim til Stefáns og voru þeir Flinkur í smiðjunni. Kom þeim saman um að setja Flink í kassa og flytja hann þann- ig. Sem þeir eru að ræða þetta taka þeir eftir því, að Flinkur er ákaflega lúpulegur, leggur eyrun aftur með hausnum en bærir ann- ars ekki á sér. Fara þeir Stefán og Gunnar nú að ná í kassann, en er þeir koma til baka er seppi hvergi sjáan- legur. Þótti nú Stefáni sýnt að hann hefði afþakkað bílfarið en kosið að komast heim á eigin spýtur. Á Akureyrarferðum mín- um kom ég vanalega við bæði á Bakka og Kotum. Á báða þessa bæi kom Flinkur í heimleiðinni, fékk að éta en hélt svo áfram för sinni heim í Mælifellsá. Skildi hann símtalið? Eitt sinn hringdi Magnús á Vindheimum í mig og bað mig að finna sig. Jú, ég skyldi koma út- eftir síðar um dginn. Ég átti von á að Flinkur yrði mér samferða eins og venjulega þegar ég fór eitthvað að heiman, en gaf því annars ekki gum fyrr en ég kom niður hjá Nautabúi. Þá tók ég eftir því að Flinkur var ekki með. Ég mundi eftir honum heima meðan á samtali okkar Magnúsar stóð og heima var hann meðan ég var að borða. En hvern skyldi ég hitta fyrstan er ég kom að Vind- heimum, nema Flink? Hann hafði bara lagt af stað stundar- korni á undan mér. Hafði veður af þeim Eitt sinn fórum við Sigmar á Steinsstöðum fram á Mælifellsdal að svipast um eftir kindum. Auðvitað var Flinkur með. Á leiðinni fram dalinn hafði Sigmar orð á því að sér sýndist á Flinki að við myndum finna kindur. Ég gerði lítið úr því. En er við kom- um vestur í dalkjaftinn sáum við kindur í hábrúninni rétt vestan við Svartagilið. „Hvernig stendur á því að Flinkur sér þær ekki,” sagði Sig- mar. Ég kallaði á Flink, hann var nú aldrei fyrir að láta mikið á sér bera og ég bjóst við að hann væri að snuðra einhversstaðar á eftir okkur. En þá er það seppi, sem sprettur upp rétt hjá kindunum. Hann hafði þá haft veður af þeim löngu á undan okkur, þotið upp á fjallsbrún án þess að við tækjum eftir og gætti kindanna þar. Öðru sinni bar það við að við Sigmar og Flinkur sóttum nokkr- ar ær vestur að Stafni í Svartár- dal. Austur Kiðaskarðið runnu þær spölkorn á undan okkur. Um það fengumst við ekki því við bjuggumst við að þær myndu halda sig við göturnar. En er við komum austur á Þröskuldinn í Kiðaskarðinu voru ærnar hvergi sjáanlegar. Skildum við ekkert í hvað af þeim hefði getað orðið á svo stuttum tíma, sem við höfðum þær ekki í sjónmáli. Verður mér það nú fyrir að siga Flink svo tilgangslaust sem það sýndist þó vera. Hann tekur þeg- ar strikið þráðbeint upp á fjall þótt engin sæist kindin. Og að stundarkomi liðnu kemur hann niður með allar æmar. Margar álíka sögur gæti ég sagt af Flinki mínum þótt fleiri verði þær ekki í þetta sinn. O-já. Skynlausar skepnur, segja menn. Ætli það þætti nú samt ekki sæmilega skynugur maður sem hefði gáfurnar hans Flinks? - mhg 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.