Þjóðviljinn - 23.12.1986, Síða 2

Þjóðviljinn - 23.12.1986, Síða 2
—SPURNINGIN— Hvað finnst þér um dóm hæstaréttar í okurmál- inu? Sigurður Magnússon, fulltrúi hjá RKl: Mér þykir þessi dómur mjög at- hyglisverður. Hann er í algjöru ósamræmi við þá niðurstöðu sem ég bjóst við. Gunnar Gunnarsson, vagnstjóri: Ég átti alls ekki von á þessari niðurstöðu. Það eru auðvitað hrapalleg mistök hjá Seðlabank- anum að auglýsa ekki hæstu leyfilegu vexti. Það á að gera það mun oftar. Rut Gylfadóttir, starfar hjá Flugleiðum: Það á að taka mun harðar á okri. , Þessi dómur er allt of vægur ef maðurinn hefur stundað okur í einhverjum mæli. Jón Ómar Jóhannsson, bifreiðarstjóri: Mér finnst hann alls ekki nógu harður. Þetta er að mínu mati ekki réttlátur dómur. Vera Guðmundsdóttir, nemi: Mér finnst þetta nú hálfgert rugl. Það hefði átt að dæma manninn í miklu hærri sektir. FREITIR Innra öryggi Alitsgerð næstu daga Nefnd semfjallað hefur um hugmyndir er varða „öryggismál ríkisins“ eins ogþað er nefnt af opinberri hálfu skilar áliti til ríkisstjórnar milli jóla og nýárs efndin skiiar frá sér áliti um II þetta mál til ríkisstjórnarinn- ar milli jóla og nýárs, það er síðan ráðherra að taka afstöðu til fram- haldsins,“ sagði Baldur Möller fyrrverandi ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu en hann veitir forstöðu nefnd sem kannar nú hugmyndir um „stöðuna í ör- yggismálum ríkisins“ eða „innra öryggi" eins og þær hafa verið nefndar. „Ég gríp nú bara til dön- skunnar af þessu tilefni og segi „fri fantasi,“ þegar Baldur var spurður að því hvort hugmyndin væri að stofna leyniþjónustu ríkisins. í fréttaskeyti frá Reuter fréttastofunni sem fréttamaður hennar hér á landi, Þórir Guð- mundsson, fréttamaður á Stöð 2, sendi frá sér, er talað um leyni- þjónustu (secret service eins og það er nefnt í skeyti frá Reuter á ensku). Þórir hefur eftir heimild- armönnum sem eru sagðir þekkja til málsins að verði hún sett á stofn, verði fólk sent í þjálfun til Danmerkur eða Noregs á næsta ári í fyrsta lagi. Baldur sagði þetta markleysu. Ekkert slíkt hefði enn komið fram. „Innra öryggi“ er ansi vítt hugtak,“ sagði Baldur, „en hing- að til hefur aðallega verði rætt um þörfina á að vernda æðstu menn ríkisins eins og gert er í nágrann- alöndunum.“ IH Helgi Gíslason við verðlaunatillögu sína sem sett verður upp fyrir framan útvarpshúsið. mynd Sig. Útvarpshúsið Helgi fékk 1. verðlaun 46 tillögur bárust ísamkeppni um listaverk á lóð nýja útvarpshússins Helgi Gíslason myndlistarmað- 46 tillögur bárust í samkeppn- ur hlaut 1. verðlaun í samkeppni ina og voru þrjár verðlaunaðar Ríkisútvarpsins um listaverk sem auk þess sem Ríkisútvarpið keypti tvær til viðbótar. 1. verð- laun voru 250 þús. kr. 2. verðlaun 80 þús. kr. hlaut Magnús Tómas- setja á upp fyrir utan nýja út- varpshúsið við Efstaleiti í Kringlumýri. son og 3. verðlaun 70 þús. kr. hlaut Jónas Bragi. Auk þess voru keyptar tillögur þeirra Guttorms Jónssonar og Arnar Þorsteins- sonar. í dómnefndinni áttu sæti þeir Markús Örn Antonsson útvarps- stjóri sem var formaður hennar, Vilhjálmur Hjálmarsson arkitekt og Kristján Davíðsson mynd- listarmaður. -•g- Lánskjaravísitala Vitlaust hjá UN líka Leiðréttingin lítið mál og nœr tilfárra Hin ofreiknaða lánskjaravísi- tala árið 1983, sem nú er stór- mál í húsnæðis- og bankakerfinu, hefur einnig áhrif á endur- greiðslur námslána til Lánasjóðs námsmanna, en að sögn Þor- björns Guðmundssonar fram- kvæmdastjóra er um að ræða litl- ar upphæðir og mjög fáir hafa lent í að borga meira en þeim ber. Hjá Lánasjóðnum ná leiðrétt- ingarnar aðeins til svokallaðra R- lána, sem tekin voru upp 1982. Lánskjaravísitalan var ofreiknuð á þau lán veturinn 82-3 og verður nú leiðrétt í tölvum Lánasjóðs. Aðeins þeir sem luku námi vorið 83 eru byrjaðir að borga af T-lánum sínum, fyrst á árinu sem er að líða, og aðeins fáir þeirra hafa borgað meira en þeim bar. Afborgun er þannig háttað að miðað er við ákveðið lágmark, nú 12.124 krónur, og er það lágmark framreiknað eftir lánskjaravísi- tölu, en síðan greiða menn fram- myfir lágmarkið 3,75% af skatt- skyldum tekjum. Þetta þýðir að eingöngu þeir sem greiddu lág- marksupphæðina eina hafa borg- að meira en þeim bar, og nemur varla nema nokkur hundruð krónum. Vísitölutryggð námslán tekin fyrir 1982 vaxa miðað við fram- færsluvísitölu, ekki lánskjara.-m Landsvirkjun Reykjavík út Bjarni P. Magnússon Alþýðu- flokki lagði fram tillögu í borgar- stjórn í vikunni um að könnuð verði hagkvæmni þess að borgin se(ji að hluta eða öllu leyti hlut Rafmagnsveitu Reykjavíkur í Landsvirkjun. Tillögunni var vís- að til borgarráðs. Bjarni sagðist þeirrar skoðun- ar að þar sem draumurinn um ör- uggt rafmagn fyrir alla lands- menn væri nú orðinn að veru- leika, væri ástæðulaust að höfuð- borgarbúum sé Iengur gert að greiða meira til Landsvirkjunar en öðrum landsmönnum. -gg Sæll Bjúgnakrækir. Hér á eftir fer ^BÍddu hægur. Ertu ’ ^(nákvæmur listi um það sem mig langar í raunog veru í núna um jólin. byrja þáað lesa.... um að þú þurfir í raun og veru á öllu þessu að halda um jólin? 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 23. desember 1986

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.