Þjóðviljinn - 23.12.1986, Side 3
Samningarnir
Afturelding
vill
30 þúsund
5 félögfelldu
samningana
Samningaviðræður við vinnu-
veitendur standa nú yfir hjá 2 fé-
lögum af 5 sem felldu samninga
ASÍ og VSÍ, en það eru Snöt í
Vestmannaeyjum og Jökull á
Höfn. Verkalýðsfélagið Aftur-
elding, Verslunarmannafélag
Vestmannaeyja og Rafyrkjafélag
Akureyrar hafa enn ekki hafið
viðræður við vinnuveitendur.
Að sögn Björns Grétars
Sveinssonar formanns Jökuls eru
samningaviðræður langt komnar
og hafa þær fram að þessu verið
vinsamlegar. Björn sagði að á
þessu stigi málsins væri staðan
viðkvæm og því ekki tímabært að
opinbera hana. Staðan hjá Snót
virðist hins vegar vera læst eins og
stendur, en að sögn Vilborgar
Þorsteinsdóttur formanns félags-
ins hefur tilboðið um 3% hækkun
ofan á 15 ára taxta fiskvinnslu-
fólks ekki verið boðin Snót, en
víða um landið hefur verið samið
um þessa hækkun. Sagði Vilborg
að félagar Snótar hafi þegar gefið
þá yfirlýsingu að þessari hækkun
sé ekki hægt að taka sé hún boðin
á þeim forsendum að hún nái að-
eins til þeirra sem hafa verið 15 ár
á sama vinnustað, eins og víðast
hefur verið gert.
Að sögn formanna Aftureld-
ingar á Hellissandi og Verslunar-
mannafélags Vestmannaeyja, er
ólíklegt að viðræður á þessum
stöðum hefjist fyrir alvöru fyrr en
eftir áramót. Aðaláherslan í þess-
um félögum verður bundin við
það að fá lágmarkslaunin hækk-
uð, en hjá Aftureldingu hafa fé-
lagar verið að tala um 30 þúsund
króna lágmarkslaunakröfu.
—K.ÓI.
FRETTIR
Stjórnarandstaðan
Fjárlagahalli aldarinnar
Svavar Gestsson: Annað eins ekki gerst á öldinni. Kristín
Halldórsdóttir: Fjárlög stjórnarinnar standast ekki tímans
tönn. Jón Baldvin Hannibalsson: Skipbrot fjármálastefnu
Sjálfstœðisflokksins
Eg hygg að það sérkennilegasta
við þessi fjárlög sé hallinn í þessu
mikla góðæri. Ég held að það sé
ekki hægt að finna neinn sam-
jöfnuð á öldinni, þar sem fjárlag-
ahalli og góðæri fara saman með
þessum hætti, sagði Svavar Gests-
son formaður Alþýðubandalags-
ins þegar Þjóðviljinn leitaði álits
hans á afgreiðslu ríkisstjórarinn-
ar á fjárlögum næsta árs.
Fjárlögin voru afgreidd á
laugardaginn og fóru þingmenn í
jólaleyfi að því loknu. Allar
breytingartillögur stjórnarand-
stöðuflokkanna voru felldar og
voru lögin afgreidd með nærfellt
þriggja milljarða króna halla,
enda þótt góðærið hafi aukið
tekjur ríkissjóðs um 3 milljarða.
Svavar sagði í gær að sú sícýring
að kjarasamningar á þessu ári
væru meginorsök hallans stæðist
ekki, þvf góðærið hefði skilað inn
tekjum langt umfram kostnaðinn
við kjarasamningana.
„Við fluttum mjög ítarlegar til-
lögur við bæði fjárlög og lánsfjár-
lög um tekjuöflun og niðurskurð
á ákveðnum þáttum. Okkar til-
lögur gerðu ráð fyrir jöfnuði í
ríkisrekstrinum. Hallinn sem
fyrirsjáanlegur er þýðir að þegar
líður á næsta ár er hætta á verð-
bólgu og hún getur orðið talsvert.
Það er afar slæmt vegna þess að
góðærið á auðvitað að nota til
þess að jafna lífskjörin og stuðla
að stöðugleika í efnahagslífinu,“
sagði Svavar í gær.
Kristín Halldórsdóttir
Kvennalista sagði það hrikalega
niðurstöðu í einstöku góðæri að
afgreiða fjárlög með nær þriggja
milljarða halla. „Það er hættuleg
blekking að halda því fram að
rekstrarhalli ríkissjóðs verði
eitthvað betri vegna þess að hann
er fjármagnaður með innlendum
lánum. Það eykur aðeins þörf
annarra aðila fyrir erlend lán.
Ég tel reyndar afar litlar líkur á
að þessi fjárlög standist tímans
tönn. Ýmsir endar eru skildir
eftir óhnýttir og forsendur þjóð-
hagsspár þurfa ekki að raskast
nema örlítið til þess að heildar-
dæmið breytist um hundruð
milljóna eða jafnvel milljarða.
Við Kvennalistakonur höfum
frá upphafi gagnrýnt harðlega þá
stefnu sem birtist í fjárlagagerð
þessarar ríkisstjórnar þar sem að-
hald og sparnaður hefur beinst
um of að félagslegum og fram-
kvæmdum og rekstri, en rekstrar-
gjöld ráðuneyta og sumra ríkis-
stofnana verið leyft að þenjast
út,“ sagði Kristín.
Jón Baldvin Hannibalsson for-
maður Alþýðuflokksins hafði
þetta að segja um fjárlögin: „Sú
staðreynd að fjárlög eru afgreidd
fyrir byrjun árs með tæplega
þriggja milljarða halla í mesta
góðæri sem yfir þjóðarbúið hefur
gengið í háa herrans tíð sýnir
skipbrot fjármálastjórnar Sjálf-
stæðisflokksins. Halli upp á þrjá
milljarða í upphafi árs bendir
samkvæmt reynslu til raunveru-
legs halla á fimmsta milljarð þeg-
ar upp verður gert.
Við þetta bætist að sé litið á
ríkisbúskapinn í heild, er hallinn
sannarlega miklu meiri. Það
háskalegasta við þetta er að með
þessum vinnubrögðum er árangri
af kjarasamningum og voninni
um stöðugleika í efnahagsmálum
teflt í tvísýnu.
Heildarmarkmið með breyt*
ingartillögum Alþýðuflokksins
voru í fyrsta lagi þau að með
aukinni tekjuóflun og niður.
skurði útgjalda hefði hallinn
minnkað um rúma 2 milÞ
jarða, niður í 620 miljónir. í
öðru lagi hefði lánsfjárþörf ríkis-
sjóðs samkvænyt breytingar-
tillögum okkar við lánsfjárlög
minnkað verulega,“ sagði Jón
Baldvin.
-gg
Rauði krossinn
Held að fólk átti sig
Flóttamannasöfnun Rauða krossins hefur gengið
mjög illa.
Undirtektir almennings í flótta-
mannasöfnun Rauða krossins
sem hófst nú um helgina hafa ver-
ið afar dauflegar. Fyrstu tvo dag-
ana safnaðist aðeins hálf önnur
milljón, en til að standa öðrum
Norðurlandaþjóðum á sporði
hefði þurft tíu milljónir. Sú upp-
hæð hefði einnig verið í samræmi
við árangur í fyrri söfnunum af
þessu tæi.
Jón Ásgehsson framkvæmda-
stjóri Rauða krossins sagði Þjóð-
viljanum í gær að hann sæi vart
aðrar ástæður fyrir litlu gengi í
söfnuninni en þær umræður sem
undanfarið hafa átt sér stað um
hjálparstarf. Skipulag og undir-
búningur væri með eðlilegum
hætti. Að vísu væri símasöfnun
nýmæli og lítið hefði verið gengið
í hús, sem gæti haft sitt að segja.
Heldurðu að þessi niðurstaða
sé afleiðing af breyttu hugarfari
gagnvart þessu starfi?
„Nei, ég held ekki, sem betur
fer. Hugsanlega geta þessar
daufu undirtektir nú orðið til þess
að snúa þróuninni við, orðið til
þess að fólk áttar sig á að þetta er
ekki rétta leiðin þótt einhver
vandræði skapist heimafyrir.
Daufar undirtektir í svona söfnun
bitna á þeim sem síst skyldi,“
sagði Jón.
Gunnlaugur Stefánsson hjá
Hjálparstofnun kirkjunnar sagði
í gær að þrátt fyrir lítinn viðbúnað
þá væru undirtektir góðar í jóla-
söfnun stofnunarinnar auk þess
sem jólatréssalan hefði aldrei
gengið jafnvel. „Viðbrögðin hafa
verið mjög góð hjá okkur og allt
önnur og betri en maður heyrir
að sumir eru að gefa í skyn,“
sagði Gunnlaugur.
Pað er ekki bara hjá kaupmönnum og verslunarfólki sem mikið er að gera þessa síðustu daga fyrir jól. Bílafloti
landsmanna hefur aldrei verið stærri og það er mikil mæða sem hvílir á stöðumælavörðum borgarinnar sem vita
stundum ekki hvar þeir eiga að byrja og enda í sektarmiðaskrifum sínum. Mynd KAG.
Sjálfstœðisflokkurinn
Hafskip og frjálshyggja
mein floklcsins
Viðmœlendur Mogga með böggum hildar útafAlbert. Þorsteinn,
Friðrik og Birgir ísleifur ásakaðir. Albertsmenn reiðir
Er fálkanum að fatast flugið?
heitir fyrri fréttaskýringar-
grein í Morgunblaðinu um helg-
ina um Sjálfstæðisfiokkinn, - og
kemst greinarhöfundur að því
með viðmælendum sínum að svo
sé, - flokkurinn sé í verulegri
klípu sem best komi fram sem
fylgisleysi í skoðanakönnunum.
I fréttaskýringunni er ein
helsta ástæðan fyrir fallandi gengi
flokksins talin tengsl hans við
Hafskipsmálið, og þó einkum
persóna Alberts Guðmunds-
sonar í fyrsta sætinu í Reykjavík.
Gengur maður undir manns hönd
undir nafni og án og krefst þess
gegnum penna blaðamannsins að
Albert verði látinn víkja úr for-
ystusæti sínu.
Frjálshyggjustefna flokksins er
einnig talin ein af ástæðum hnign-
unarinnar, og samstarfið við Fra-
msókn ekki talið bæta stöðuna.
Athyglisvert er að í fréttaskýr-
ingunni eru þau Friðrik Sophus-
son, Birgir Isleifur Gunnarsson
og Ragnhildur Helgadóttir talin
hafa brugðist því hlutverki sínu
að halda Albert í skefjum í
Reykjavík, - og margir viðmæl-
endur blaðsins gera harða hríð að
varaformennsku Friðriks, og
leggja til að Davíð Oddsson taki
sæti hans. Formaður flokksins,
Þorsteinn Pálsson, fær einnig
misjafna dóma.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans hefur fréttaskýring Agn-
esar Bragadóttur í Morgunblað-
inu, sem flestir Sjálfstæðismenn
telja flokksmálgagn sitt, ekki
orðið til að stilla saman strengi
innan flokksinsn og stuðnings-
menn Alberts Guðmundssonar
líta á þessi skrif sem beina árás
ritstjóranna og skjólstæðinga
þeirra innanflokks á sinn mann.
Þriðjudagur 23. desember 1986 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 3
ísafjarðardjúp
Enn
ofundnir
Mennirnir sem fórust er skel-
fisksbáturinn Tjaldur ÍS-116
sökk í Jökulfjörðum sl. fimmtu-
dagskvöld hétu:
Hermann Sigurðsson, 60 ára.
Hlíðarvegi 31, ísafirði. Guð-
mundur Víkingur Hermannsson,
sonur Hermanns, 29 ára, Hafra-
holti 8, ísafirði og Kolbeinn
Sumarliði Gunnarsson 27 ára,
Hjallavegi 12, ísafirði.
El Salvador
Jóla-
Framlög í jólasöfnun El-
Salvador nefndarinnar á íslandi
vegna jarðskjálftanna í E1 Salva-
dor má leggja inn á tékkareikning
söfnunarinnar nr. 10401 í Búnað-
arbanka íslands við Hlemm.